Morgunblaðið - 16.03.1974, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MARZ 1974
18
Fóstbræður úr Fóstbræðrum syngja viðopnun Vökunnar ásunnudag. Þarna er allur kór Fóstbræðra.
Fjölbreytt Kópavogsvaka að hefjast
Dagana 17.—23. marz. gengst
Leikfélag Kópavogs fyrir vöku í
félagsheimilinu í samvinnu við
rekstrarstjórn þess. Tilgangurinn
er að auka starfsemi Félags-
heimilisins og gera bæjarlífið
fjölbreytilegra.
Dagskráin er við það miðuð, að
sem flestir, bæði ungir og aldnir,
geti fundið þar eitthvað sér til
skemmtunar eða fróðleiks.
Vakan hefst á sunnudag kl. 3
með fjölskyldudagskrá, en meðal
efnis þar eru 14 fóstbræður,
Skólahljómsveit Kópavogs, dans-
sýning frá Dansskóla Heiðars Ást-
valdssonar, gamanþættir og
fleira. Um kvöldið sýna Leikfélag
Selfoss og Leikfélag Hveragerðis
Skugga-Svein Matthíasar
Jochumssonar. Mánudagskvöldið
er helgað æsku bæjarins og mun
hún sjá um og flytja allt efni. A
þriðjudag verður kynning á verk-
um nokkurra rithöfunda og kvik-
myndasýning. Miðvikudagurinn
er helgaður tónlistinni og munu
Tónlistarskóli Kópavogs, Karla-
kórinn fóstbræður og 10 manna
söngflokkur sjá um flutninginn.
A fimmtudagskvöld mun Leik-
félagið flytja kafla úr Hrafnhettu
Guðmundar Daníelssonar, en
höfundur verður sögumaður. Á
föstudagskvöldið verður þjóðlaga-
kvöld. Flytjendur verða nokkrir
kunnustu listamenn landsins á
því sviði, eins og Kristín
Ölafsdóttir, Hörður Torfason,
Árni Johnsen, Kristín Lilliendahl
og fleiri. Vökunni lýkur svo með*
almennu hófi á laugardagskvöld,
en þar verða ýmis skemmtiatriði
og „Kátir félagar" leika fyrir
dansi.
Á meðan vakan stendur mun
Lista- og menningarsjóður Kópa-
vogs sýna grafik í neðri sal, en á
annarri hæð verður sýnt úrval
teikninga barna í skólum
bæjarins. Þá mun Leikfélagið
ásamt barnaskólum bæjarins sjá
um skemmtun fyrir yngstu bæjar-
búanna 3 fyrstu daga vökunnar.
Formaður Leikfélags Kópavogs
er Björn Magnússon, en fram-
kvæmdastjóri Vökunnar er
Donald Jóhannesson.
Þing norrænna tann-
læknanema í Reykjavík
FÉLAG fslcnzkra tannlækna-
nema, sem er aðili að samtökum
norrænna tannlæknanema, hefur
tekið að sér að halda þing hér 1
Reykjavík dagana 14.—18. marz
n.k., en það er haldið hér í sam-
bandi við 25 ára starfsemi féiags-
ins.
Þing sem þetta er haldið tvisvar
á ári og skiptast skólarnir þá á um
að halda það. Á Norðurlöndum
eru nú starfandi 11 tannlækna-
skólar, en verið er að byggja tvo
nýja, að því er segir f frétt frá
félaginu.
Helztu málefni til umræðu á
þessu þingi verða m.a. „sam-
bandið á milli tannlæknanema og
aðstoðarfólks tannlækna, með til-
lití til sameiginlegs náms“. Þær
umræður eru íslenzkum tann-
læknanemum að því leyti gagn-
legar, að um þessar mundir er
unnið að hönnun nýs húsnæðis og
kennslurýmis tannlæknadeildar
Háskóla Islands, auk þess sem
unnið er að breytingum á kennslu
í deildinni.
Þá verður og fjallað um
„stúdentaskipti á milli aðildarfé-
laga hinna norrænu samtaka“.
Gísli Jónsson
— ekki Johnsen
í FRÁSOGN Morgunblaðsíns í
gær af dráttarvélargjöf Pólverja
til Vestmannaeyjakaupstaðar
urðu þau mistök, að fyrirtækið,
sem gaf yfirbyggingu á dráttar-
vélina, var sagt heita Gísli
Johnsen og Co. Fyrirtækið heitir
Gísli Jónsson og Co., til húsa að
Klettagörðum 11. Leiðréttist
þetta hér með.
Samkomulag
um takmörkun
á þorskveiði
London, 15. marz AP —
NTB.
t DAG var undirritað sam-
komulag milli stjórna Noregs,
Bretlands og Sovétríkjanna
um takmarkanir þorskveiða
þessara þjóða á Norðaustur-
Atlantshafi. Viðræður um mál
þetta hafa staðið frá þvf árið
1972 og var vonazt til, að sam-
komulag næðist ,fyrir síðustu
áramót til að það gæti tckið
gildi 1. janúar 1974 en það
tókst ekki fyrr en nú.
Samkvæmt þessu samkomu-
lagi sem gildir fyrir yfirstand-
andi ár mega Bretar veiða
77.650 lestir af þorski á þessu
svæði á árinu, Norðmenn
242.850 lestir og Sovétmenn
179.500 lestir. Þá voru afmörk-
uð sérstök svæði, þar sem eftir-
lit verður haft með veiðunum.
16.298 nemendur í
umferðarskólanum
SJÖTTA starfsár umferðarskól-
ans Ungir vegfarendur er hafið
og fyrstu verkefni ársins hafa
verið send út. Nemendur eru
16.298 börn á aldrinum 3—7 ára í
37 sveitarfélögum. Bættust sjö
sveitarfélög f hópinn á sfðasta
Francis Hope látinn
MÖNNUM er eðlilega i fersku
minni flugslysið óhugnanlega við
París í byrjun mánaðarins, þegar
tyrknesk risaþota af gerðinni DC-
10 fórst og með henni 344 manns.
Meðal farþeganna var Francis
Hope, aðalfréttamaður brezka
blaðsins The Observer fyrir Vest-
ur-Evrópu.
Hope var 35 ára, kvæntur og
átti tveggja ára dóttur. Hann
stundaði nám við Eaton og Oxford
og lauk námi með ágætiseinkunn
árið 1960. Að því loknu hóf hann
blaðamennsku, fyrst hjá tímarit-
inu Encounter og síðan hjá tíma-
ritinu New Statesman. Á þeim
árum kom út ljóðabók hans
Instead of a Poet. Einnig starfaði
hann fyrir þáttinn Panorama á
vegum BBC og skrifaði bók-
menntagagnrýni fyrir Observer
áður en hann réðst til blaðsins í
apríl 1973. Hafa greinar hans í
Observer birzt í blöðum úti um
allan heim.
ári: Neskaupstaður, Búðahrepp-
ur, Flateyrarhreppur, Grfmsnes-
hreppur, Laxárdalshreppur,
Norðfjarðarhreppur og Vatns-
leysustrandarhreppur.
Áætlaður kostnaður við starf-
semi skólans er tvær milljónir
króna og greiða sveitarfélögin
1500 þús. kr., en 500 þús. kr. eru
greiddar af starfsfé Umferðar-
ráðs. Áætiaður fjöldi verkefna-
sendinga á þessu ári er um 90 þús.
verkefni. — Umferðarskólinn er
fyrir börn á aldrinum 3—7 ára.
Fá þau send verkefni, mismun-
andi mörg eftir aldri, sem þau
eiga að leysa með aðstoð foreldr-
anna. Á afmælisdaginn fá allir
þátttakendur á aldrinum 4—7 ára
kveðju frá skólanum.
Með fyrstu verkefnasendingu
skólans i ár fylgdi foreldrabréf,
þar sem starfsemi skólans er út-
skýrð oggetið um fjölda sendinga
til hvers aldursárgangs.
Brezhnev boðar:
35 milljarðar rúblna í
ræktun Síberíusvæða
Moskvu, 15. marz AP —
LEONID Brezhnev, leiðtogi
sovézka kommúnistaf lokksins,
skýrði í dag frá fyrirætlun stjórn-
valda um meiriháttar ræktunar-
framkvæmdir f vesturhluta
Síberíu á árabilinu 1976—80. í
áætlun þessari, sem Brezhnev
sagði, að hefði verið samþykkt
nýlega af miðstjórn flokksins, er
gert ráð fyrir að verja 35
milljörðum rúblna til ræktunar-
framkvæmda en það er fjórðung-
ur þeirrar fjárupphæðar, sem
Sovétmenn verja til landbúnaðar-
framkvæmda 1 Sovétríkjunum
öllum samkvæmt yfirstandandi
fimm ára áætlun 1971—75.
Talið er, að þessar nýju
framkvæmdir eigi að verða á víð-
áttumiklu svæði austan Ural-
fjalla, allt til Yakutiu og norður
til Mið-Asiu, en Brezhnev skýrði
ekki nánar, hvernig framkvæmd-
um yrði hagað eða hvaða svæði
væri um að ræða.
Vestrænir fréttamenn segja, að
komist þessi áætlun til fram-
kvæmda, muni hún fara langt i að
létta af Sovétmönnum áhyggjum
þeirra af landbúnaðarfram-
leiðslunni.
Flotaheim-
sóknum aflýst
London, 15. marz AP—NTB
BREZKA ríkisstjórnin tilkynnti í
dag, að aflýst hefði verið brezkri
flotaheimsókn til Chile. I gær var
aflýst brezkri flotaheimsókn til
Grikklands og mun tilgangur
stjórnarinnar sá, að sýna andúð
sina á herforingjastjórnunum í
löndum þessum.
— Sóttkví
Framhald af bls. 15
með sér, að hin íhaldssama ríkis-
stjórn Perons getur stjórnað
háskólunum aan.k. í ár.
M.a. fela lögin í sér, að stjórnin
getur útnefnt bráðabirgða yfir-
stjórn háskólanna í eitt ár áður en
lögin taka að fullu gildi, en enn er
eftir að ganga frá þeim í einstök-
um atriðum. Er gert ráð fyrir, að
vinstri sinnaðir rektorar, sem eru
í miklum meiri hluta í landinu,
verði bráðlega settir af, og I stað
þeirra komi þægari ihaldsmenn.
Umdeildasta ákvæði laganna er
það, sem bannar allan pólitískan
áróður eða alla pólitíska starfsemi
í háskólunum, sem er í andstöðu
við hugmyndir yfirvalda um
„þjóðaruppbyggingu okkar“.
Telja vinstri menn, bæði úr hópi
peronista og marxista, að þetta
muni leiða til pólitískra ofsókna.
— Flugslys
Framhald af bls.l
leið logaðí vélin öll. Ekki tókst að
opna hurðir á farþegarými henn-
ar sökum bilunar, er varð i þrýsti-
kerfi og varð að beita logsuðu-
tækjum til að ná farþegunum út.
Hlutu margir þeirra slæm bruna-
sár en aðrir beinbrotnuðu, er þeir
köstuðu sér út úr vélinni.
Forstjóri Sterling Airways,
Anders Helgestrand, sagði i
Kaupmannahöfn í dag, að sögn
NTB, að hann gæti ekki útilokað,
að slysþetta hefði orðið af völdum
skemmdarverka, en ekki kvaðst
hann hafa um það neinar óhyggj-
andi upplýsingar.
— Nixon
Framhald af bls.l
Af hálfu Bandaríkjastjórnar
hefur að undanförnu gætt
vaxandi gagnrýni á stjórnir
Evrópuríkja. Henry Kissinger,
utanríkisráðherra, sagði fyrir
nokkru, að samskiptin við banda-
lagsríkin í Evrópu væru erfiðasta
vandamál Bandaríkjanna í utan-
ríkismálum einsog nú væri komið
málum. Sömuleiðis viðhafði hann
á fundi með eiginkonum banda-
riskra þingmanna vafasöm um-
mæli um stöðu ríkisstjórna
Evrópu, en reyndi síðan á blaða-
mannafundi að draga úr þeim og
kvaðst hafa átt við ríkisstjórnir
landanna í stríðsbyrjun.
Á fundinum í dag kom Water-
gatemálið einnig til umræðu og
itrekaði Nixon, forseti, fyrri stað-
hæfingar sinar þess efnis, að
hann hygðist ekki láta af
embætti, enda mundi koma í ljós
þótt síðar yrði, að allar ásakanir í
hans garð væru tilhæfulausar.
Hann kvaðst ekki mundu mæta
fyrir rétti í eigin persóni, því þar
með mundi hann gefa fordæmi,
sem síðar yrði harmað.
— Lýsi ábyrgð
Framhald af bls. 32
m.a. með atkvæði forsætisráð-
herra.
Geir sagði, nú væri frumvarp
sjálfstæðismanna um lækkun
tekjuskatts í nefnd í neðri deild.
Það væri krafa sjálfstæðismanna
og það væri krafa allrar þjóðar-
innar, að það frumvarp yrði af-
greitt á Alþingi þegar í stað og ný
tekjuskattslög sett, sem unnt væri
að beita við skattaálagningu nú í
ár, svo að forða mætti þjóðinni frá
þeirri skattkúgun, sem vinstri
stjórnin bæri alla ábyrgð á, „Með-
ferð þessa frumvarps rikisstjórn-
arinnar um skattkerfisbreytingu,
aðdragandi þess, efni og af-
greiðsla, er með þeim endumum,
að í ljös er leitt, að rikisstjórnin
hefur hvorki getu, vilja né vald til
þess að koma málum fram og ber
henni því að segja af sér þegar í
stað.
Þegar Morgunblaðið fór í prent-
un stóð ennþá yfir 3. umræða i
efri deild, og átti þá eftir að ljúka
henni og taka málið til einnar
umræðu á ný í efri deild. Hafði sá
fundur verið boðaður að loknum
fundinum i efri deild.
Hestamannafélaglð Fákur
KAFFISALA
Konur í félaginu sjá um kaffihlaðborð sem verður í
Félagsheimilinu við Elliðaár, sunnudaginn 17. marz.
Húsið opnað kl. 1 4.30. Allir velkomnir.
Börnum verður gefinn kostur á að koma á hestbak,
ókeypis. Fáksfélagar komið með hesta ykkar og teymið
undir börnunum.
Kvennanefndin.