Morgunblaðið - 16.03.1974, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ.LAUGARDAGUR 16. MARZ 1974
Þrír opinberir há-
skólafyrirlestrar
HÁSKÖLI Islands og Félag há-
skólakennara gangast nú á vor-
misseri eins og á síSastliðnu
haustmisseri fyrir opinberum
háskólafyrirlestrum. Verða
haldnir þrír fyrirlestrar um lög-
fræði, hagfræði og efnafræði, að
því er segir í fréttatilkynningu
frá Háskólanum.
Verður sá fyrsti fluttur 17.
marz. Fyrirlesari er próf.
Sigurður Líndal og nefnir hann
fyrirlestur sinn Sjálfstæðisbar-
átta og söguskoðun, og fjallar
hann um réttarstöðu íslands
1262—1662.
Annar fyrirlesturinn verður hald-
inn 31.3 Fyrirlesari er próf. Guð-
mundur K. Magnússon og nefnir
hann fyrirlestur sinn Skilyrði
hagvaxtar og fjallar nánar tiltekið
um framleiðsluþætti, þ.e. fjár-
magn, vinnuafl, menntun o.s.frv.,
samkennd þessara þátta og áhrif
þeirra á hagvöxt.
Þriðji fyrirlesturinn verður
haldinn 5.5. Fyrirlesari er próf.
Sigmundur Guðbjartsson og
nefnir hann fyrirlestur sinn
Framtíð fífefnaiðnaðar og fjallar
nánar tiltekið um ummyndun
verðlítilla hráefna frá landbúnaði
og fiskiðnaði í verðmeiri efni til
lyfjagerðar og matvælaiðnaðar.
Fyrirlestrarnir verða allir
fluttir í Norræna húsinu kl. 15 þá
daga, sem að ofan greinir.
Fyrilestrarnir verða frekar
auglýstir í fjölmiðlum nokkrum
dögum áður en þeir verða
haldnir.
LESIO
“—— Jlío
MíB.omtai,.
DHCIECR
Minnismerki um Jón Ei-
ríksson konferensráð
Lionsklúbbur Horna-
fjarðar hefur ákveðið að
hafa forgöngu um að
reist verði minnismerki
um Jón Eiríksson kon-
ferensráð, að Skálafelli f
Suðursveit. — Fer hér á
eftir bréf, þar sem heitið
er á landsmenn að veita
þvf máli stuðning:
„Eins og kunnugt er hafa
mörgum sonum íslenzku þjóð-
arinnar verið reist minnis-
merki. Einn þeirra hefur þó
hingað til hvað þetta snertir
legið óbættur hjá garði, en
hann er Jón Eiriksson kon-
ferensráð. Hlýtur það þó að
vera samróma dómur allra,
sem vilja kynna sér sögu okk-
ar, að fáum eigum við meiri
þakkir að gjalda.
Nú er ætlunin að reisa þess-
um landa vorum verðugan
bautastein, er á að rísa hjá
fæðingarstað hans, Skálafelli i
Suðursveit. Er þess vænzt, að
hann geti risið í sumar eða
haust, ef þær áætlanir, sem
gerðar hafa verið, standast.
Það eru tilmæli okkar til
þeirra, er þetta bréf lesa, að
þeir leggi eitthvað af mörkum
til þessa fyrirtækis, en for-
göngu um það hefur Lions-
klúbbur Hornafjarðar.
Minnismerkið verður gert af
Sigurjóni Ólafssyni mynd-
höggvara, og til þess að fram-
kvæmdir geti hafizt er mjög
áríðandi, að fjárframlög eða
loforð um stuðning berist okk-
ur sem allra fyrst.
Höfn, Hornafirði
12. marz 1974.
Guðm. Jónsson,
Aðalsteinn Aðalsteinsson,
Skarphéðinn Pétursson.“
Sölumaöur óskast
Okkur vantar duglegan sölumann til
starfa að Reykjalundi. Starfið er
m.a. fólgið í umsjón með reikninga-
útskrift og birgðabókhaldi auk sölu-
mennsku. Reynsla í skrifstofustörf-
um nauðsynleg. Framtíðarstarf.
Skriflegar umsóknir, með upplýs-
ingum um aldur, menntun og fyrri
störf, skal póstsenda Vinnuheimil-
inu að Reykjalundi í Mosfellssveit.
Heimilisstörf
Dveljið í Danmörku í vor og lærið
heimilisstörf. 10 vikna námskeið frá
1. apríl og 18 vikna frá 16 apríl. Frá
ágúst 12 eða 20 vikna. Bæklingur
sendur.
Hedsten Husholdningsskole,
8370 Hedsten, Danmark
sími 06 980145.
Matsveinn
2. vélstjóra
og háseta vantar á 150 tonna neta-
bát.
Uppl. í síma 52170 eða um borð í
Steinunni, sem liggur við Granda-
garð. Kvöldsími 37115.
Skrifstofustarf
Opinber stofnun óskar eftir að ráða
rnann til skrifstofustarfa nú þegar
eða á næstunni. Góð enskukunnátta
æskileg.
Umsóknir merktar „Framtíðar-
starf“ — „1384“ sendist afgreiðslu
Morgunblaðsins fyrir mánudags-
kvöld 18. marz n.k.
Verkamenn vantar
til vinnu í Hafnarfirði, Norðurbæ.
Upplýsingar á skrifstofunni,
Bolholti 4. Sími 31166.
Völur h.f.
Vanur
togaraskipstjóri
óskar eftir skipstjóra- eða stýri-
mannaplássi. Helzt á skuttogara, má
vera úti á landi.
Tilboð legginst inn á afgr. Mbl.
merkt „1385“ fyrir 29. marz.
Beitingamenn
vantar á 250 rúmlesta landróðrabát.
Uppl. hjá Landssambandi fsl.
útvegsmanna eftir helgi og í símum
94-7200 og 94-7128, Bolungarvík.
Einar Guðfinnsson h.f.
AÖstoÖarmenn
Óskum eftir að ráða aðstoðarmenn í
járniðnaði.
Vélaverkstæði
Sig. Sveinbjörnssonar h.f.,
Arnarvogi, Garðahreppi.
Rannsóknarmaöur
Starf rannsóknarmanns við jarðvisindastofu Raunvís-
indastofnunar Háskólans er laus til umsóknar.
Menntun eða áhugi í raungreinum æskileg.
Umsækjendur þurfa að vera það vel færir að þeir geti
unnið sjálfstætt að verkefnum.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist skrifstofu Raunvísindastofnunar
Háskólans fyrir 5. apríl 1974.
Skrifstofustúlka
óskast sem fyrst. Verzlunarskóla- eða hliðstæð mennt-
un æskileg.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist Rafmagnsveitum ríkisins, Laugavegi 116,
Reykjavík, fyrir 25. þ.m.
Rafmagnsveitur rfkisins,
Laugavegi 116,
Reykjavík.
Rafmagnsveitur
ríkisins
Egilsstaðakauptúni óska eftir að ráða skrifstofu-
stúlku.
Upplýsingar hjá rafveitustjóranum Egilsstaðakaup-
túni, sími 97—1300 og hjá Rafmagnsveitum ríkisins,
Laugavegi 116, Reykjavík.
Austurrísk
fjölskylda
búsett í Graz (húsmóðirin íslenzk) óskar að ráða
vandaða stúlku á aldrinum 18—25 ára til að gæta
tveggja drengja, 3 og 4 ára. Þýzkukunnátta æskileg.
Nánari uppl. 1 síma 24805.
Háseta
vantar á netabát, sem rær frá.
Grindavík.
Upplýsingar í síma 52820.
1. vélstjóri
óskast á olíuskipið „Kyndil“.
Upplýsingar í síma 18071.
Afgreiðslustarf
Afgreiðslustúlka óskast i sérverzlun við Laugaveg.
Tungumálakunnátta æskileg.
Tilboð með upplýsingum sendist afgr. Morgunblaðsins
merkt: „4586" fyrir hádegi mánudag.
Múrarameistarar
19 ára piltur óskar eftir að komast í
iðnnám.
Upplýsingar í síma 22751 og 42007.
Vélaverkfræðingur
frá U.S.A. óskar eftir góðri atvinnu.
Hefur reynslu sem vélvirki og véltæknifræðingur.
Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „M.I.T. — 1284“.