Morgunblaðið - 16.03.1974, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MARZ 1974
23
nóg hefði hann annað að starfa.
En hann var mjög vel íþróttum
búinn og hið mesta karlmenni,
sem og Páll heitinn Kolka gat eitt
sinn um, fyrir allmörgum árum í
útvarpserindi.
Það var árið 1929 heima á
Reykjum þann 19. júní, að þau
gengu í hjónaband Páll Kristjáns-
son og Sólveig Erlendsdóttir frá
Stóru Giljá. Og einnig systir Páls,
Kristín og Páll Sigfússon frá
Mælifelli, síðar bóndi að Hvíteyr-
um í Skagafirði. Faðir Páls Sig-
fússonar, séra Sigfús Jónsson, gaf
brúðhjónin saman. Það hefur
áreiðanlega verið mikill dagur,
þessi júnídagur heima á Reykj-
um við Reykjabraut. Og kannski
stærstur Kristjáni bo'nda, sem þá
var orðinn ekkjumaður að sjá
börn sín tvö ganga út í lífið. Og
vissulega var þetta tákn þess, að
yngri kynslóðin tekur við af
þeirri eldri til yrkingar jarðar og
lífs.
Páll og Sólveig hafa nú búið á
Reykjum í meira en fjörutíu ár.
Og nú við fráfall Páls.geta margir
sveitungar hans og aðrir minnst
góðra stunda af heimili einyrkj-
ans, því Páll var mörgum fremur
einyrki sökum þess, að þeim Sól-
veigu varð ekki barna auðið. Þau
tóku kjörson eftir margra ára
búskap, Kristján að nafni. En
hann var ekki gefinn fyrir það,
sem að búskap laut, og hefur ekki
hin síðari ár komið þar nema sem
gestur. Og í ljósi þessa eru því
störf Páls enn stærri i sniðum.
Hann var sannur fulltrúi islenzkr-
ar bændastéttar. Hann ræktaði
jörð sina og land mjög vel. Hann
var fljótur að tileinka sér nýjung-
ar i búskaparháttum. Hanp var og
mikill fjárræktarmaður að sögn
sveitunga hans. Páll var unnandi
alls þess, sem laut að fræðslu og
líkamsrækt eins og áður er drepið
á. Húnavallaskólinn hefði aldrei
risið við túnfótinn á bæ hans, ef
hann hefði verið þvi andsnúinn.
Skólinn er því útaf fyrir sig tákn
framfarahugar bóndans á Reykj-
um.
Þegar þetta er skrifað, er Sól-
veig kona Páls, ein i Reykjabæn-
um. Þö er henni huggun, að hún á
góða nágranna, skólastjórahjónin
i Húnavallaskóla.
Við fráfall Páls, vil ég votta
Sólveigu hluttekningu mína og
einnig systur háns Kristinu, og
öllum öðrum aðstandendum.
En Páll á Reykjum lézt á
Héraðshælinu á Blönduósi 14.
janúar s.l. eftir sjúkleika, sem
hann bar með slíkri karlmennsku,
að glaðværð heiðrikjunnar i svip
hans ætlaði naumast að hverfa.
Og 19. sama mánaðar fór útför
hans fram að Þingeyrum.
Að lokum vil ég segja um Pál á
Reykjum, að hann lifir áfram af
verkum sínum. Hann bar ís-
lenzkri bændastétt gott vitni.
Hann braut ávallt nýtt óræktað
land. Hann ræktaði einnig upp-
vaxandi kynslóð i sundmennt,
sem kölluð hefur verið iþrótt
íþróttanna. Ég vil segja að verkin
standi, þótt maðurinn falli. Og
einu sinni var sagt um menn,
sem eyddu öllu lífi sínu í að yrkja
jörðina, að þeir væru ljós heims-
ins og salt jarðar.
Ef svo er, þá var Páll á Reykj-
um vissulega einn slíkur.
Gísli T. Guðmundsson.
Eglisstaðlr - Fljótsdalshérað
Aðalfundur sjálfstæðisfélags Fljótsdalshéraðs, verður haldinn I
barnaskólanum, sunnudaginn 24. marz '74 kl. 2 e.h.
Dagskrá:
I. Venjuleg aðalfundarstörf.
II. Stofnun Egilsstaðadeildar.
III. Únnur mál.
Stjórnin.
Slálfstæðlsféiag Mlðneshrepps
heldur fundi í Leikvallarhúsinu I dag laugardaginn kl. 2. e.h.
Fundarefni:
Athugun úrslit nýafstaðins prófkjörs og væntanlegur framboðslisti.
Stjórnin.
Félag sjálfstæðlsmanna I Langholtshverfl
Skrifstofa félagsins að Langholtsvegi 124 verður fyrst um sinn
opin daglega frá kl. 1 7:00 og 1 9:00 eftir hádegi.
Umdæmafulltrúar eru vinsamlegast beönir að hafa samband við
skrifstofuna. Sími 34814.
Stjómin.
Hafnartlorður
Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboði heldur fund i sjálfstæðishúsinu
mánudaginn 1 8. marz kl. 8.30.
Fundarefni:
Fyrirhugaðar byggingaframkvæmdir aldraðra í Hafnarfirði. Ræðumenn
Pétur Sigurðsson alþingism. og Eggert (saksson bæjarfulltr.
Frjálsar umræður
Kaffi.
Stjórnin.
Hvöt, félag sjálfstæðlskvenna
heldur fund mánudaginn 1 8. marz kl. 20.30
! Þingholti, Bergstaðastræti 37.
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, talar um stjórnmálaviðhorfið.
Félagskonur fjölmennið
Stjórnin.
Hafnarfjörður
Landsmálafélagið „Fram" heldur almennan
fund f Skiphóli n.k. laugardag 16. þ.m. kl. 2
e.h.
Fundarefni: Skattamálin.
Frummælendur verða formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins Gunnar Thoroddsen, al-
þingismaður og Matthlas Á. Mathiesen. al-
þingismaður.
Er fundurinn opinn öllum, konum jafnt sem
körlum, og er þess vænst að fólk fjölmenni á
fundinn. Nýir félagar teknir inn á fundinum.
Kaffi og aðrar veitingar verða á boðstólum
fyrir þá sem þess óska.
Stjórnin.
ísafförður
ísaflörður
Almennur fundur um öryggis- og varnarmál (slands verður haldinn
laugardaginn 1 6. marz kl. 2 i Sjálfstæðishúsinu ísafirði.
Ræðumenn:
Arnór Sigurjónsson
menntaskólanemi.
Björn Bjarnason
fréttastjóri,
Styrmir Gunnarsson
ritstjóri.
Allt áhugafólk um öryggis- og varnarmál velkomið
S.U.S. og Fylkir félag ungra sjálfstæðismanna á (safirði.
Akranes
Prófkiör vegna bæjarstjórnakosninganna 26/5, fer fram á vegum
Sjálfstæðisfélaganna i Sjálfstæðishúsinu, Heiðabraut 20, laugardag og
sunnudag frá kl. 2 —10 báða dagana. Kjósa skal minnst 6 og mest 9
af prófkjörslistanum. Merkja skal við nöfn þau, sem eru á prófkjörs-
listanum þannig: að setja tölustafinn 1 fyrir framan nafn þess, sem
kjósandi vill hafa númer eitt á listanum og 2 fyrir framan þann, sem
kjósandi vill hafa i öðru sæti á prófkjörslistanum o.s.frv. Öllum er
heimil þátttaka í prófkjörinu, sem hafa náð kostningaaldri 26/5 '74.
Einnig er heimil þátttaka í prófkjörinu, félögum Þórs F.U.S þótt þeir
hafi ekki náð kosningaaldri.
I prófkjörinu eru eftirtöld nöfn:
Ásthildur Einarsdóttir forstöðukona, Suðurgötu 1 7.
Ástriður Þórðardóttir frú, Suðurgötu 99
Björn Pétursson skrifstofumaður, Háholti 1.
Gisli Sigurðsson húsasmíðameistari, Hjarðarholti 5.
Guðjón Guðmundsson skrifstofustjóri, Suðurgötu 34.
Halldór Sigurðsson skrifstofumaður, Vesturgötu 1 60.
Hróðmar Hjartarson rafvirkjameistari, Esjubraut 1 5.
Hörður Pálsson bakarameístari, Bjarkargrund 22.
Hörður Sumarliðason rannsóknarmaður (S.R).
Inga Jóna Þórðardóttir viðskiptafræðinemi, Skólabraut 29.
Jósef H. Þorgeirsson lögfræðingur, Kirkjubraut 2.
Sigurður Ólafsson sjúkrahúsráðsmaður, Deildartúni 2.
Valdimar Indriðason framkvæmdastjóri, Háteig 14.
Viðar Karlsson skipstjóri, Brekkubraut 28.
VIÐtAlSTIMI
- 'i . r*
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
SjálfstæðisfloKKsins
i Reykjavik
Viðtalstimar alþingismanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
verða á laugardögum frá kl. 14.00 til 16.00 i Galtafelli, Laufásveqi
46
Laugardaginn 16. marz verða til viðtals: Ellert B. Schram, alþingis-
maður, Ólafur B. Thors, borgarfulltrúi og Elín Pálmadóttir, vara-
borgarfuHtrúi.
I
■v
Hjartanlega þakka ég öllum mínum börnum, tengdabörn-
um, barnabörnum og öðrum mlnum kæru vinum fyrir
heimsóknir, gjafir og heillaskeyti á 80 ára afmæli mínu.
Guð launi ykkur það allt.
Lifið heil
Ólöf Gísladóttir,
Gröf.
TilboÓ óskast
í nokkrar fólksbifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi
9, þriðjudaginn 19. marz kl. 12 — 3. Tilboðin verða
opnuð í skrifstofu vorri kl. 5.
Sala Varnarliðseigna.