Morgunblaðið - 16.03.1974, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. MARZ 1974
Meistarakeppnin
hefst í dag kl. 3
Valur og ÍBK leika fyrsta leikinn
FYRSTI leikur Meistarakeppn-
innar í knattspyrnu, og þá um
leið fyrsti opinberi knattspyrnu-
leikur ársins, fer fram í Keflavfk
1 dag og hefst kiukkan 15. Það
verða Valur og IBK, sem fyrst
leiða saman hesta sína og er ekki
að efa, að um skemmtilega viður-
eign verður að ræða.Itæði lið hafa
æft vel að undanförnu, en þó
kann það að há Valsmönnum, að
Jóhannes Eðvaldsson má ekki
leika þennan leik, vegna leik-
banns, sem hann fékk á sfðasta
keppnist ímabili, er honum var
vikið af leikvelli f sfðari viður-
eign IBK og Vals. Þá er einnig
óvíst hvort Hermann Gunnarsson
geti leikið, en Valur á að leika í 1.
deildinni í handknattleik á Akur-
eyri í dag.
Keflavíkurliðið vann meistara-
keppnina sfðast, vann alla sína
leiki, fBV hlaut 4 stig, en Fram
ekkert. Auk Vals og IBK taka
Framarar þátt í í meistarakeppn-
inni nú og þeir leika fyrsta leik-
inn í Reykjavík á árinu við Val,
væntanlega í næstu viku.
HINN júgóslavneski þjálfari
Standard Liege, Markovic hefur
nú sagt upp störfum hjá félaginu.
Ásta'ðan er sffelldir árekstrar
milli hans og stjórnar félagsins,
snmkomulag hans við leikmenn-
ina var hins vegar eins og bezt
varð á kosið að sögn Asgeirs Sig-
urvínssonar. Markovic var þrá-
beðinn um að vera út keppnis-
tímabilið, en var ekki fds til þess,
sagði að bezt væri að hætta strax,
ágreiningurinn væri orðinn það
mikill. Við starfi hans tekur að-
stoðarþjálfarinn og verður með
liðið fram á vor.
Karl Hermannsson og félagar hans f IBK leika fyrsta leikinn á
keppnistímabilinu.
r
að sigra Armann
fyrir frammistöðu sína i leiknum,
en sjálfur er hann ekki sérlega
hress. Hann fékk mikið högg í
leiknum frá danska landsliðs-
manninum Kresten Bjerre og sá
stjörnur það sem eftir var leiksins
og er nú bæði blár og bótginn í
andlitinu.
Tekst ÍR
Þjálfari Standard
segir upp störfum
— mikilvægir leikir um helgina
Við sögðum frá því í blaðinu í
gær, að mikil mannaskipti yrðu
hjá Standard með vorinu og lík-
lega yrðu einhverjir Danir keypt-
ir til liðsins. Auk þess eru einn-
ig uppi háværar raddirí Liege um
að hollenski landsliðsmaðurinn
og leikmaður Ajax, Neskens,
verði keyptur til liðsins.
1 síðasta leik Asgeirs með
Standard — gegn Molenbeck —
varð jafnt, 0-0, en agur Asgeirs og
félaga hefði þó gefið réttari mynd
af leiknum. Ásgeir fær góða dóma
Badminton
UM HELGINA fara fram fjórir
leikir í 1. deild tslandsmótsins f
körfubolta, og í 2. deild verða
tveir leikir. Allir cru leikirnir í 1.
deild afar mikilvægir, enda fer
nú senn að líða að þvf að lokabar-
áttan hefjist. Sá leikur sem beðið
er með hvað mestri eftirvæntingu
er leikur Armanns gegn IR, en
hann fer fram á Seltjarnarnesinu
f dag kl. 16. Og að lionum loknum
er annar stórleikur á dagskrá,
nefnilega leikur Vals og IS.
I fyrri umferðinni sigraði
Armann ÍR nokkuð örugglega, og
vissulega eru þeir sigurstrang-
legir í dag. ÍR-ingar hafa verið
mjög heppnir að undanförnu,
þeir áttu t.d. varla skilið að sigra
HSK um síðustu helgi. Bæði
Armann og IR hafa tapað fjórum
stigum, — eins og KR, svo leikur-
inn i dag er einn af úrslitaleikjum
mótsins. — IS hefur örugglega í
hyggju að fylgja eftir sigrinum
yfir KR frá síðustu helgi og vinna
Val f dag, Valsmenn sem eygja
enn von um íslandsmeistaratitil-
inn verða þó örugglega ekki
sigraðir átakalaust frekar en fyrri
daginn.
Á morgun heldur 1. deildar
keppnin áfram á Seltjarnar-
nesinu, og leika fyrst botnliðin
HSK og UMFS. Þessi lið eru lang-
neðst í deildinni, HSK með 2 stig,
UMFS ekkert stig. Og hér verður
örugglega barist til leiksloka.
Síðan leika KR-ingar gegn
UMFN, og hver ætlar að spá fyrir
með vissu um úrslit þessa leiks?
Ég treysti mér a.m.k. ekki tilþess.
Þessir leikir hefjast kl. 19.30.
í 2. deild verða tveir leikir.
I.M.A. leikur gegn Haukum í
Hafnarfirði kl. 14 í dag, og á
morgun leika UBK og Í.M.A. á
Seltjarnarnesi kl. 18. gk.
r
Islandsmótið
í lyftingum
ISLANDSMEISTARAMÓTIÐ í
lyftingum fer fram í dag f
Laugardaishöllinni. Verður
keppninni tvfskipt. Léttari
flokkarnir hefja keppni kl. 13.00,
þ.e. léttvigt og léttari, en kl. 15.00
hefst keppni 1 þyngri flokkunum,
þ.e. frá mi llivigt og upp úr.
Keppendur þurfa að mæta
klukkustund og stundarfjórðungi
fyrir keppni til vigtunar.
Allir beztu lyftingamenn lands-
ins eru skráðir til keppni á Is-
landsmótinu að þessu sinni, og
má því búast við harðri keppni og
góðum árangri. Munu keppend-
urnir ekki einungis gera atlögu
að Islandsmetum, heldur og lág-
mörkum fyrir Norðurlanda-
meistaramótið, en nokkrir kepp-
endur eiga góða möguleika á að
ná þeim.
r
Urslit hjá konum
og í 2. deild
Aðeins einn leikur fer fram i 1.
deild karla um helgina, Valur og
Þdr leika á Akureyri i dag. Eigi að
siður verður mikið um að vera i
handknattleiknum að venju og
úrslitin í 1. deild kvenna og 2.
deild karla ættu að liggja fyrir á
morgun. Fram nægir að fá eitt
stig í leik sínum við Víking i 1.
deild kvenna á morgun til að
tryggja sér íslandsmeistaratitil-
inn, hefst sá leikur um klukkan
16.30 f Höllinni á morgun. Að
þeim leik loknum mætast Þróttur
og KR í 2. deild karla og þurfa
Þróttarar að vinna þann leik til að
standa eins vel að vígi og Grótta í
2. deildinni. Auk þessa leika Val-
ur og FH í 1. deild kvenna í
Höllinni á morgun og Þor leikur á
Akureyri gegn KR í dag.
Skíðaganga
REYKJAVlKURMÓT í skíða-
göngu fer fram á funnu-
daginn við Skíðaskálann í
Hveradölum. Keppt verður í 10
km göngu 17—19 ára og 15 km
göngu 20 ára og eldri. Mótsstjóri
verður Jónas Ásgeirsson.
Nemarnir í ÍKÍ
blakmeistarar?
UNGLINGAMEISTARAMÓT Ís-
lands í badminton fer fram í Vals-
heimilinu um helgina. Hefst mót-
ið klukkan 13 í dag og á morgun
klukkan 14 hefjast svo úrslitin.
Mót þetta er fjölmennasta ungl-
ingameistaramótið, sem haldið
hefur verið, en rúmlega 100 kepp-
endur hafa tilkynnt þátttöku frá
10 félögum víðs vegar að af land-
inu. Sýnir þetta vel í hve mikilli
sókn badmintoníþróttin er um
þessar mundir.
Breiðholtshlaup
ÍR
ÞRIÐJA Breiðholtshlaup IR fer
fram á morgun og hefst eins og
venjulega kl. 14.00 á sparkvellin-
um við Breiðholtsskólann.
Bekkjakeppnin heldur áfram af
fullum krafti og er staðan nú eftir
tvær umferðir sú, að í fyrsta sæti
er 3. bekkur A með 12 stig, en 8.
bekkur H og 1. bekkur B hafa 5
stig. Efsti bekkur Fellaskólans
hefur hlotið 3 stig.
Skráning og númeraúthlutun
hefst kl. 13.30.
LAUGVETNINGAR hafa undan-
farin ár sýnt hlakinu mikinn
áhuga og liðin að austan hafa
skipað sér í fremstu röð íslenzkra
blakliða. 1 fyrravetur sigruðu
menntaskólanemar frá Laugar-
vatni í Islandsmótinu, en þeir
léku undir nafni Ungmenna-
félagsins Hvatar. Þcir héldu hóp-
inn er f bæinn var komið og gerð-
ust frumherjar í nýstofnaðri
blakdeild Víkings. Margir héldu
að þessir piltar yrðu Islands-
meistarar aftur f vetur, en sú
verður tæpast raunin á úr þvf sem
komið er. Allt bendir til þess að
tslandsbikarinn fari aftur austur
á Laugarvatn og lendi nú hjá
nemum Íþróttakennaraskólans,
sem keppa undir nafni Ung-
mennafélags Biskupstungna.
Nemendur IKI hafa unnið þá
þrjá leiki sem þeir hafa spílað í
úrslitakeppninni til þessa'og eiga
eftir að leika gegn liðunum að
norðan, IMA og UMSE, en þau
eru neðst liðanna í úrslitakeppn-
inni. Þá má einnig telja líklegt að
hitt Laugarvatnsliðið, UMFL,
verði í öðru sæti í þessu móti, en
keppnin um þriðja sætið kemur
til með að standa á milli Reykja-
víkurfélaganna Víkings og IS.
Urslitaleikirnir í blakinu fara
fram um helgina og þó svo að
ýmislegt bendi til þeirra úrslita,
sem nefnd eru hér á undan getur
allt gerzt. Blakleikir helgarinnar
verða sem hér segir.
Iþróttahöll, laugardag kl. 13.30.
ÍMA— UMFL
Vogaskóli, laugardag kl. 15.30.
UMSE — UMFB
Laugardalshöll, sunnudag kl.
19.00
UMFL — UMSE
ÍS — Víkingur
UMFB — IMA