Morgunblaðið - 15.10.1974, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. OKT0BER 1974
Edward Heath segir
sennilega af sér
Spurningin aðeins
hvenœr, aðsögn
fréttaskgrenda
formaður flokksins er einnig 56
ára og hefur notið mikils álits
síðan hann var ráðherra mál-
efna Norður-írlands. Ýmsir
velta því fyrir sér hvort hann sé
nógu harðskeyttur til að berjast
við Wilson.
Whitelaw lýsti yfir stuðningi
við Heath eftir kosningarnar
eins og ýmsir aðrir foringjar
flokksins. Margir óbreyttir
íhaldsmenn eru einnig sagðir
halda tryggð við hann. Enn
öðrum íhaldsmönnum finnst að
ekkert liggi á að finna nýjan
leiðtoga og að Heath hafi staðið
sig vel í kosningunum þrátt
fyrir allt.
En almennt vex þó þeirri
skoðun fylgi að Heath eigi að
segja af sér strax með góðu,
þannig að flokkurinn geti mætt
til þings eftir hálfan mánuð
undir forystu nýrra leiðtoga.
Edward Heath
greina.
Samstarfsmenn Heaths segja
að fyrstu viðbrögð hans við
kosningaúrslitunum hafi verið
á þá lund áð hann yrði að halda
áfram sem foringi flokksins, en
síðan hafi verið lagt æ fastar að
honum að hætta þótt ýmsir fé-
lagar hans hafi lýst yfir stuðn-
ingi við hann.
Sennilegast er talið, sam-
kvæmt áreiðanlegum heimild-
um, að hann tilkynni skömmu
eftir að Neðri málstofan kemur
saman 29. október að hann sé
fús til þess að víkja, þegar það
henti flokknum bezt.
Sá möguleiki er ræddur að
Heath fari að dæmi Sir Alec
Douglas-Home fv. forsætisráð-
herra og verði talsmaður
flokksins í utanríkismálum,
einkum málum sem varða Efna-
hagsbandalagið.
Jock Bruce-Gardyne, sem tap-
aði þingsæti sínu fyrir íhalds-
flokkinn í Skotlandi, sagði í
gær: ,,Það hefði átt að vera búið •
að skipta um foringja flokksins,
og við vitum það allir.“
Þótt kröfurnar um að Heath
segi af sér verði æ háværari
vilja fáir leggja nöfn sín við
þær enn sem komið er. Hátt-
settur maður í flokknum sagði í
dag að næsti foringi flokksins
yrði að eiga léttar með að
komast í samband við fólk með
persónuleika sínum.
„Festa Heaths nýtur aðdáun-
ar og stefna hans getur reynzt
rétt — en honum hefur ekki
tekizt að fá almenningsálitið á
sitt band.“
Auk Josephs og Whitelaws er
talið að fyrrverandi formaður
flokksins, Edward Du Cann,
komi til greina. Hann er fimm-
tugur og nýtur vinsælda meðal
óbreyttra flokksmanna.
Sir Keith Joseph er 56 ára og
er talsmaður flokksins í innan-
ríkismálum.
William Whitelaw núverandi
William Whitelaw
London, 14. okt. Reuter. AP.
EDWARD Heath lætur af
forystu brezka Ihaldsflokksins
fyrir næstu kosningar — spurn-
ingin er aðeins hvenær.
Þetta er einróma álit frétta-
skýrenda eftir brezku kosing-
arnar, þriðju kosningarnar af
fjórum sem Heath tapar sfðan
hann varð foringi flokksins
1965, ekki sfzt þar sem sýnt
þykir að honum hafi enn ekki
tekizt að koma nógu vel út í
augum kjósenda.
Margir virtust sammála um
það í dag að Heath mundi ekki
segja af sér fyrr en eftir áramót
svo að leiðtogum flokksins
gæfist tími til þess að finna
annan foringja, en aðrir telja
að hann segi af sér áður en þing
kemur saman eftir hálfan mán-
uð.
Daily Telegraph sem styður
Ihaldsflokkinn skýrði frá því í
dag að Sir Keith Joseph fyrr-
verandi ráðherra, sem hefur
harðlega gagnrýnt efnahags-
stefnu Verkamannaflokksins,
nyti víðtæks stuðnings í röðum
flokksmanna. Samkvæmt frétt-
inni hefur hann meira fylgi en
formaður flokksins, WíIIiam
Whitelaw, sem hefur almennt
verið talinn koma helzt til
Sir Keith Joseph
Nóbelsnefndin
segist ekki hafa
látið „gabba sig
Ósló, 14. október. Reuter.
FRIÐARNEFND Nóbels segist
ekki hafa látið gabba sig til þess
að veita Eisaku Sato, fyrrverandi
forsætisráðherra Japans, friðar-
verðlaunin 1 ár að sögn ritara
nefndarinnar, Tim Greve.
Hann kvaðst ekki telja að
nefndin kæmi saman til formlegs
fundar til að ræða fregnir frá
Tokyo þess efnis, að japanskir
kaupsýsiumenn og embættis-
menn hafi staðið fyrir herferð til
þess að fá nefndina til að veita
Sato verðlaunin.
„Nefndin telur ekki að hún hafi
á nokkurn hátt verið göbbuð til
þess að veita Eisaku Sato verð-
launin. Nefndin hefur heldur
ekki verið beitt þrýstingi,“ sagði
Greve.
Japanski auðjöfurinn Morion-
suka Kajima hefur staðfest þá
frétt Washington Post, að hann
hafi staðið fyrir 14 mánaða her-
ferð til þess að tryggja Sato verð-
launin. „Mérfannst mál til komið,
að Japani fengi verðlaunin, full-
trúi lands sem hefur unnið að
friði samkvæmt stjórnarskrá sem
hafnar striði og kjarnorkuvopn-
um,“ sagði hann í viðtali við
Reuter.
Kajima er stofnandi friðar-
stofnunar, sem er kennd við hann
og var sett í bók 1967. Hann sagði,
að þegar japanska utanríkisráðu-
neytið frétti, að sú stofnun stæði
að herferðinni, hefði það fengið
áhuga á málinu, einkum eftir að
Toshio Kimura, fyrrverandi að-
stoðarmaður Satos, varð utan-
ríkisráðherra í júlí. Hann hefði
skipað fulltrúum Japans erlendis
að vinna að úthlutuninni.
Kajima staðfesti að Toshikazu
Kase, fv. sendiherra hjá S.þ. og
forseti stofnunarinnar, hefði
gegnt mikilvægu hlutverki í her-
ferðinni. Hann benti á, að marg-
ir fulltrúar friðarnefndarinnar
væru fyrrverandi sendiherrar hjá
S.þ.
Framhald á bls. 39
Rockefeller fyrir
nefnd þingsins
ef tir kosningar?
Nikita Krúsjeff
Washington, 14. október.
Reuter. AP.
ÞÆR kröfur verða æ háværari að
Nelson Rockefeller væntanlegur
varaforseti verði aftur kallaður
fyrir til þess að gera grein fyrir
tæpum tveimur milljónum doll-
ara sem hann hefur gefið opin-
berum embættismönnum og fyrr-
verandi aðstoðarmönnum á und-
anförnum 17 árum.
Rockefeller neitar því að gjaf-
Falls Krúsjeffs
minnzt með árás
Moskvu, 14. okt. Reuter.
SOVÉZKI kommúnistaflokkur-
inn hefur minnzt þess með Iftt
dulbúinni árás á Nikita Krúsjeff
að tfu ár eru liðin sfðan honum
var steypt af stóli.
Flokksmálgagnið Pravda segir 1
langri forystugrein að „sannar
lenfnfskar meginreglur um for-
ystu flokksins" hafi sigrað á mið-
stjórnarfundinum þarsem ákveð-
ið var að vfkja Krúsjeff 14. októ-
ber 1964.
Blaðið endurtekur gagnrýnina
á Krúsjeff, en án þess að nefna
hann á nafn.
Nafn Krúsjeffs hefur aðeins
tvisvar sinnum verið nefnt í
sovézkum blöðum síðan hann
missti völdin — þegar hann gaf út
tvíræða yfirlýsingu um endur-
minningar þær, sem voru gefnar
út eftir hann á Vesturlöndum og
þegar hann lézt 1971, 77 ára að
aldri.
Pravda segir að á undanförnum
tíu árum hafi kommúnista-
flokkurinn „fest grundvallar-
atriði sósíalistísks lýðræðis og
samvirkrar forystu i sessi“, en
arftakar Krúsjeffs hafa gefið til
kynna að þær meginreglur hafi
ekki verið hafðar í heiðri á valda-
árum Krúsjeffs.
Blaðið sagði að allt fiokks-
starfið einkenndist sífellt meir af
„samvirkri, vísindalegri og mál-
efnalegri afstöðu“ og reynt væri
að forðast allan „leikaraskap".
irnar, þar á meðal 50.000 dollara
gjöf til dr. Henry Kissinger utan-
ríkisráðherra, hafi verið ólögleg-
ar eða ósiðlegar. En ýmsir þing-
menn hafa krafizt nánari skýr-
inga og unnið er að þvf að kalla
Rockefeller aftur fyrir nefndina,
sem sker úr um, hvort hann er
hæfur til að gegna embætti vara-
forseta.
í fyrri yfirheyrslunum minntist
Rockefeller ekki á gjafirnar og
hann var heldur ekki spurður um
þær. Gjafirnar komu fram í dags-
ljósið, þegar skattframtöl hans
voru könnuð.
Þingkonan Bella Azbug frá
New York, gamall andstæðingur
Rockefellers, hefur krafizt þess,
að Ford forseti dragi tilnefningu
hans til baka þar sem gjafirnar
valdi hættu á alvarlegum hags-
munaárekstrum.
James Allen, öldungadeildar-
maður demókrata frá Alabama og
fulltrúi í nefndinni, telur að yfir-
heyrslur um tilnefninguna verði
teknar upp að nýju eftir þing-
kosningarnar og Rockefeller
verði kallaður sem vitni.
Stjórnmálafréttaritarar telja
ólíklegt að þingið komi í veg fyrir
skipun Rockefellers nema aðrar
og skaðlegri upplýsingar komi
fram. En þingmenn eru sagðir
forvitnir.
NIÐRANDI BÓK
Rockefeller sagði um helgina að
Framhald á bls. 39