Morgunblaðið - 15.10.1974, Side 40
DUCLVSinCRR
(sg.v-^22480
GNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SIMI: 26660
RAFIÐJAN SIMI: 19294
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1974
Islenzka landsliðið f knattspyrnu kom heim um kvöldmatarleytið f gær, eftir frækilega
keppnisferð til Austur-Þýzkalands, en þar gerði liðið jafntefli við heimamenn, 1:1. Þess
má geta, að Austur-Þjððverjar voru þeir einu sem sigruðu sjálfa heimsmeistarana frá
Vestur-Þýzkalandi í heimsmeistarakeppninni f sumar. Á myndinni eru frá vinstri
Matthfas Hallgrfmsson, sá sem skoraði markið gegn Þjóðverjunum, Þorsteinn Ólafsson
markvörður og Atli Þór Héðinsson. Frásögn og viðtöl eru f fþróttablaði Mbl. f dag.
Ljósm. Heimir Stfgsson.
Hagbarður SF 15
snarfyllti og sökk
Höfn í Hornafirði, 10. okt.
HAGBARÐUR SF 15 sökk um 2
mflur vestur af Ingólfshöfða um
kl. 23 á sunnudagskvöld eftir að
báturinn hafði rekizt á eitthvað f
sjónum með þeim afleiðingum að
óstöðvandi leki kom að skipinu.
Mannbjörg varð.
Hagbarður, sem var 45 tonn að
stærð, smíðaður 1946, var á
vesturleið, þegar slysið varð.
Fjórir menn voru á bátnum og
voru tveir þeirra sofandi frammi i
lúkar þegar óhappið varð, en
hinir voru á vakt. I. vélstjóri var
sofandi í lúkarnum, en hann
vaknaði við áreksturinn og fór
samstundis aftur í vélarrúmi. Þá
þegar var vélin farin að ausa yfir
sig sjó og sýnt var, að dælurnar
mundu ekki hafa undan.
Var þá strax sent út neyðarkall
og svöruðu Fylkir NK og Horna-
fjarðarradíó strax. Fylkir var með
trollið úti að toga, en sleppti
þegar úr pokanum og hífði trollið
inn til þess að geta haldið á slys-
staðinn. Skipverjar á Hagbarði
losuðu annan gúmmíbátinn og
fóru um borð í hann. Tóku þeir
með sér skipsskjölin og handtösk-
ur ásamt neyðartalstöð, en aðeins
liðu nokkrar mínútur frá því
Framhald á bls. 39
Hættan af sprenging-
unum orðum aukin
— segir Jón Jónsson forstöðumað-
ur Hafrannsóknastofnunarinnar
Aukadælustöð fyrir hitaveitu
Hveragerðis
HELMINGUR AF VATNINU
GUFUHITAÐ KALT VATN
ORKUSTOFNUN hefur nú ákveð-
ið aðgerðir til þess að reyna að
leysa vandamálið sem upp kom f
hitaveitukerfi Hvergerðinga, er
kfsill úr hveravatninu tók að
stffla inntök og leiðslur f dreifi-
kerfinu, en Orkustofnun mun
standa straum af úrbótum sem
þarf að gera.
Samkvæmt upplýstngum Karls
Ragnars verkfræðings hjá Orku-
stofnuninni voru i sumar gerðar
tilraunir til að leysa þetta vanda-
mál með því að hita upp kalt
vatn með hitaorku, sem áður var
ekki nýtt, og þegar kalda
vatnið var orðið 100 stiga heitt
var því hleypt inn á dreifi-
kerfið. Reynslutími var ekki
Paradísarheimt
Grímseyinga
Grfmsey — 14. október
NÚ hefur nýr sjónvarps-
sendir á Húsavíkurfjalli
verið tekinn í notkun, og
þar með höfum við Gríms-
eyingar fengið okkar vissu
fyrir því sem okkur
grunaði raunar áður, að
þulirnir í sjónvarpinu eru
mannlegar verur, já og hið
myndarlegasta fólk. Fram
að þessu höfðum við aðal-
lega heyrt til þeirra og
þekktum raddir þeirra
nokkuð vel.
Vígslubiskupinn var hér um
helgina og messaði yfir okkur.
Okkur duga ekki neinir poka-
prestar heldur er sjálfur vfgslu-
biskupinn, hann sr. Pétur Sigur-
geirsson, okkar prestur. Hann
skírði eitt barn og pússaði saman
ungt par. Hér má enginn lifa í
synd. Ungu hjónin áttu barnið
sem var skfrt, svo að þetta voru
sfðustu forvöð.
— Alfreð.
nógu langur til að óyggjandi nið-
urstaða fengist, en nú hefur
Orkustofnunin ákveðið að reisa
dælustöð við kaldavatnsból vest-
an árinnar í Hveragerði. Þar er
nóg kalt vatn og kvað Karl áætlað
að setja upp dælustöð og lögn til
þess að dæla inn á hitaveitukerfið
vatni, sem hitað verður upp
með gufu. Þannig á að reyna að
koma i veg fyrir kísilmyndunina í
dreifikerfinu. „Þetta er nokkuð
mikið fyrirtæki“, sagði Karl, „en
áætlað er að það kosti um 2,5
millj. kr. að reisa dælustöðina.
Þessi tilraun verður aliavega í
gangi í vetur, en við reiknum með
að þessi dælustöð dæli 20—25 lítr-
um af vatni á sek, inn á kerfið, en
það er um helmingur þess, sem
hitaveitan notar. Dælustöðin
kemst í gagnið einum mánuði eft-
ir að búið er að útvega fjármagn,
en það hefur ekki verið gert enn-
þá. Hins vegar hefur iðnaðarráðu-
neytið beðið okkur að gera kostn-
aðaráætlun með það fyrir augum
að vinna síðan að útvegun fjár-
magns, og allir vilja leysa þetta
vandamál sem fyrst.“.
„ÉG HELD að sú hætta, sem
menn segja að sfldinni stafi af
sprengingum, sé heldur orðum
aukin“, sagði Jón Jónsson, fiski-
fræðingur og forstöðumaður Haf-
rannsóknastofnunarinnar, er
Mbl. spurði hann um áhrif þess á
sfldina, ef sprengt yrði til þess að
fæla á brott háhyrninga, sem
angrað hafa sfldveiðisjómenn út
af Ifornafirði. Sagði Jón að áhrifa
sprengjanna gætti aðeins f mik-
illi nálægð við sprengjustaðinn
og auðvelt ætti að vera að varpa
sprengjunum ekki þar sem lóðað
væri á sfldartorfur.
Fyrir nokkrum árum var gripið
til þess ráðs að varpa í sjó
sprengjum til þess að fæla á brott
háhyrninga. Varð þá allmikið um-
tal um skaðsemi þessara aðgerða
Hornafjörður:
Tvö viðlagasjóðshús að
hjúkrimar- og elhheimili
Höf n Hornafirði 10. okt.
AFLI hefur verið frekar tregur
hér upp á sfðkastið, en einn lfnu-
bátur hefur þó aflað vel. Er það
Gœsir frá
komu að
Mið-Kína
Svínafelli
FEIKNA merkilegir fuglar
náðust f Svfnafelli f Öræfum
fyrir skömmu, en það voru
tvær gæsir komnar alla
leið frá Mið-Asfu eða nán-
ar tiltekið Mið-Kfna, þar
sem þær verpa. Þessi
gæsategund, sem nefnist Taum-
gæs, fer frá Kfna á vetr-
um til Indlands, en sumarheim-
kynni hennar eru við Tfbet. Við
höfðum samband við Hálfdán
Björnsson f Kvfskerjum og
inntum eftir fréttum af þessum
merkilegu fuglum. Hann kvað
þrjár gæsir hafa sézt f Svfna-
felli og hefði ungur Vest-
mannaeyingur, Ragnar Jónsson
frá Látrum, náð að skjóta tvær
þeirra, sem nú væru komnar til
Náttúrugripasafns Islands, en
Hálfdán kvað gæsir af þessari
tegund ekki hafa náðst fyrr í
Evrópu. Þó kvaðst hann vita til
þess, að þær hefðu sézt í Svf-
þjóð einu sinni.
„Þetta eru feikna merkilegir
fuglar“ sagði Hálfdán, „og með
merkilegri gripum, sem hafa
komið hingað af stærri fuglum.
Þær eru Ijósgráar á búk með
svartar vængjafjaðrir, dökkan
háls með ljósum hliðarrákum.
Höfuðið er hvftt með tveimur
svörtum skellum að aftan, nef-
ið gult, en fætur rauðgulir. Eg
hef nú leitað að þeirri einu,
sem ekki náðist, en ekki orðið
hennar var“.
Hálfdán kvað annars lftið að
frétta af sérstökum viðburðum
f náttúrulffinu þarna, utan það
að fiskiörn, eða gjóður, hefði
verið á slóðunum þarna við
Kvfsker f vikutfma f sumar.
Hann sást lfka f Skaftafelli og
hefur Ifklega komið frá Noregi.
Gissur hvfti og hefur hann verið
með upp í 9 tonn f róðri af stór-
þorski, ýsu og vænni keilu. Gissur
hvíti rær með 32 dalla.
Búið er að selja hér 17 Viðlaga-
sjóðshús af þeim 20 sem hér voru
reist. Hafa Vestmannaeyingar
keypt nokkur, heimamenn önnur
og aðkomufólk hefur einnig fest
kaup á húsum. Þá hafa hrepp-
urinn og sýslan keypt tvö hús,
sem búið er að gera að
fæðingar-, hjúkrunar- og elli-
heimili. Rúm verður fyrir 14 á
elliheimilinu og hjúkrunarstofa
og fæðingarstofa eru í öðru
húsinu. Þá eru einnig herbergi
fyrir starfsfólk, en slfk þjónusta,
sem nú er tekin upp hér, hefur
ekki verið áður, nema vfsir að
fæðingarstofu.
— Elfas.
og sagðist Jón þá hafa aflað sér
upplýsinga um rannsóknir á
slíkum fyrirbærum frá Banda-
ríkjunum. Þegar Bandaríkja-
menn leituðu olfu í Mexikóflóa og
úti fyrir ströndum Kaliforníu,
voru notaðar til þess sprengingar
til bergmálsathugana og komust
þá á kreik þar vestra sögur um að
þetta stórskaðaði fiskstofnana.
Voru þá gerðar allítarlegar athug-
anir á þessu og voru fiskar settir í
nokkur búr í mismunandi fjar-
lægð frá sprengjustaðnum. Niður-
Framhald á bls. 39
Byggt eftir teikn-
ingu frá 1913
Um þessar mundir er verið að
bæta einni hæð ofan á hús Félags
fsl. stórkaupmanna við Tjarnar-
götu 14. Þegar verkinu verður
lokið verður húsið þrjár hæðir.
Þetta hús var upprunalega byggt
árið 1913 og í þvf bjó lengi
Ólafur heitinn Lárusson, prófess-
or. Sá, sem teiknaði húsið og
byggði var Jens Eyjólfsson, einn
kunnasti byggingameistari bæjar-
ins á sínum tíma.
Skipulagsyfirvöld Reykjavikur-
borgar samþykktu stækkun húss-
ins með þeim skilyrðum að farið
yrði eftir upprunalegri teikningu
og verður það gert. Búið var að
skipta um alla glugga f framhlið
hússins fyrir nokkru, en það verð-
ur nú gert aftur, og þeir hafðir
eins og þegar húsið var reist.
Sæmilegt verð
í Þýzkalandi
TOGARINN Maí seldi 95,5 lestir f
Cauxhaven f gærmorgun fyrir 7,6
millj. kr. Þá seldu einnig tveir
bátar: Glófaxi seldi 44 lestir fyrir
3.2 millj. kr. og tsleifur IV. seldi
54.2 lestir fyrir 4 millj. kr.
16 ára brugg-
arar teknir
FYRIR nokkru tók rannsóknar-
lögreglan í Hafnarfirði 16 ára
pilta fyrir brugg. Höfðu þeir
skroppið til Reykjavfkur og keypt
þar í búð duft til bruggunarinnar.
Þegar tilskilinn tími var liðinn,
var vökvinn soðinn á eldavél móð
ur höfuðpaursins, að henni fjar-
verandi. Fengust út nokkrar
flöskur af 10—12% sterku víni.
Eitthvað drukku piltarnir sjálfir,
en 6 flöskur seldu þeir, og þannig
komst lögreglan í málið. Við yfir-
heyrslur sagðist höfuðpaurinn
ekki hafa haft hugmynd um, að
bruggun væri óleyfileg í landinu
og því síður kvaðst hana hafa haft
um það vitneskju að „rikið" hefði
einkaleyfi á sölu áfengis. Fannst
honum hvorttveggja hið mesta
óréttlæti.