Morgunblaðið - 21.12.1974, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 21.12.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1974 3 — Miklir mannskaðar Framhald af bls. 1 að bræðslu Síldarvinnslunnar. Samkvæmt upplýsingum Ásgeirs Lárussonar, fréttaritara Mbl. í Neskaupstað, má áætla svæðið um 800 til 900 metra breitt. Féll það yfir eitt íbúðarhús, frystihúsið og sfldarbræðsluna, en á öllum þeim stöðum urðu mannskaðar. Einnig gjöreyddi snjóflóðið bifreiðaverk- stæði Eiríks Asmundssonar, en í þvf var einn maður, þegar ósköp- in dundu yfir, sonur Eiríks, Ás- mundur, en hann bjargaðist með undraverðum hætti, svo sem greint er frá á öðrum stað í blað- inu. Á svæðinu, sem snjóflóðið féll á, var eitt íbúðarhús og tók snjó- dyngjan það með sér, en það var kjallari, hæð og ris. I risi hússins var ung kona með barn. Þau fund- ust í flaki hússins, sem borizt hafði niður að sjó, konan mikið slösuð, en barnið svo til óskaddað. Konan liggur í sjúkrahúsinu. Á hæð hússins bjuggu hjón með tveimur sonum sinum. Konan var ein heima með börnunum og grófust þau öll í flóðið. Þau fundust fljótlega eftir að björgunarflokkar hófu leit og eru öll látin. Þá var kona við vinnu í húsinu. Hún fannst látin í braki þess. I steinsteyptum kjallara hússins var maður. Hann meidd- ist ekki og tókst honum að komast út um kjallaraglugga og grafa sig út úr fönninni. Næsta hús fyrir vestan þetta var bifreiðaverkstæði Eiríks Ás- mundssonar, sem var nýreist. Þar stóð einnig annað hús, sem bar nafnið Skuld. Einn maður var í verkstæðinu, sem áður er getið, og bjargaðist hann. Þar rétt hjá stóð einnig jarðýta, sem maður var að vinna við. Sá maður hafði ekki fundizt í gærkvöldi, en ýtan barst niður að sjó og var brotin mjög. Snjóflóðið skall á frystihúsinu, sem var mjög mikið hú^fjögurra hæða. Þar voru menn að vinna við frystingu, alls 5 að tölu. Einn þeirra var lokaður inni í frysti- klefa, en var bjargað þaðan Framhald á bls. 23 Á myndinni sést sfldarverksmiðjan f Neskaupstað, þar sem manntjónið varð mest. Menníöndvegi Hallgrímur Pétursson Sálin í útlegð er æ meðan dvelst hún hér f*í" ý*f '*fr~ Höfundur Passíusálm- anna hefur um aldir tryggt sér það öndvegi í hjörtum trúaðra og þeirra er list unna sem óbrotgjarnt mun standa, meðan til er leitandi sál sem íslenskt mál skilur. Sjálfur skrifaði Hallgrím- ur Pétursson: Það verður dýrast sem lengi hefur geymt verið og gefur tvöfaldan ávöxt á hentugum tíma frambor- ið, sagði Markús Varro. Bókin um Hallgrím Pétursson er ÖND- VEGISBÓK. Gott er að geta gefið góða gjöf. ísafoldarbók er góð bók.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.