Morgunblaðið - 21.12.1974, Page 4

Morgunblaðið - 21.12.1974, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 21. DESEMBER 1974 Fa j 7 ///#. «/./ /r. i v 'aiah: 22-0*22* RAUÐARÁRSTÍG 31 LOFTLEIÐIR BILALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 Lausn skipstjórans Hentugasti dýptarmælirinn fyrir 10—40 tonna báta, 8 skalar niður á 720 m dýpi, skiptanleg botnlína, er greinir fisk frá botni. Dýpislína og venjuleg botnlína, kasetta með 6" þurrpapplr, sem má tvlnota. SIMRAD Bræðraborgarstíg 1, s. 14135 — 14340. Verð frá 4485,- L AUGAVEG 13 Stundum með og stundum móti Það vakti verðskuldaða at- hygli f þingsölum, er Ragnar Arnalds, þingmaður Norður- landskjördæmis vestra, snerist gegn frumvarpi til iaga um happdrættisiðn til Norður- og Austurvegar. Að vfsu sagðist þingmaðurinn ekki vera á móti þessari vegagerð sem slfkri, en mælti hart gegn þeirri fjár- öfiunarleið, sem hún byggist á. Röksemdir þingmannsins gegn þessari þörfu framkvæmd f þágu landsbyggðarinnar, ekki sfzt Norðlendinga, vóru þær, að lánsfjármagn þetta væri það dýrt, að arðsemi framkvæmdar- innar samsvaraði ekki stofn- kostnaðinum. Hann væri þvf eindregið andvfgur þessari f járöflunarleið. Arðsemissjónarmið hefur ekki fyrr vcrið f gunnfána þessa andófsmanns norð- lenzkra hagsmuna og f tvfgang hefur hann nýverið samþykkt sams konar fjáröflunarleið til vegar yfir Skeiðarársand og Djúpvegar, sem hvorttveggja virðist f nægjanlegri fjarlægð frá umbjóðendum hans. Arðsemi fram- kvæmdar öruggt 1 umræðum á Alþingi kom glöggt fram það álit sérfræð- inga, að umferð um Norðurveg væri það mikil að framkvæmd- in teldist arðsöm. Með hliðsjón af ört vaxandi kostnaði f vega- gerð mætti ætla, að kostnaður yxi hraðar en sem næmi verð- tryggingu lánsfjár til fram- kvæmdanna. Slfkri vegagerð fylgdi verulegur sparnaður í vegaviðhaldi og snjóruðningi. Talið væri að það kostaði 6—10 krónum minna á ekinn kfló- metra að aka varanlegan veg en núverandi landsbyggðarvegi, f minna bensfni, minna viðhaldi og sliti bifreiða. Og gagnsemi slfkrar vegargerðar fyrir nú- tfma atvinnu- og þjóðlffshætti væri erfitt að reikna til f jár. Þær vegaframkvæmdir, sem hér um ræðir, eru eitt stærsta hagsmunamál landsbyggðar- fólks í dag, liður f framkvæmd byggðarstefnu, og vekur þvf andóf Ragnars Arnalds athygli um land allt. — Skoðanaágrein- ingur um fjáröflunarleið kann að eiga rétt á sér, en naumast hjá manni, sem telur hana við- eigandi sunnan jökla og vestur f Djúpi en óhafandi þar sem vötn falla f norður. önnur lánsf jármögnun til slfkrar vegagerðar, erlent lán, er lfka, þegar grannt er skoðað, verðtryggt (gengistryggð). Og vissulega er frjáls fjármögnun borgaranna í vegagerð við- feldnari leið en skattheimta. Framkvæmd, sem þjónar á löngum tíma, jafnvel kynslóð- um, má gjarnan dreifa kostn- aðarlega á allnokkurt árabil. Að hefna þess á Alþingi, sem hallaðist í héraði Þessi viðbrögð formanns Al- þýðubandalagsins eru Norð- lendingum engan veginn ný, né koma á óvart. öll vinstri- stjórnarárin sóttu Norðlend- ingar hart á úrbætur f orkumál- um, en þeir, rétt eins og Aust- firðingar, búa við óverjandi orkuskort. Þá, f upphafi vinstri stjórnar, vildu Norðlendingar virkjanir f landsfjórðungnum — og samtengingu landshlut- anna f kjölfar nýrra raforku- vera heima f héraði. Ragnar Arnalds mótaði gagnkvæma stefnu: fyrst „hundinn“ að sunnan, sfðan mátti huga að valkostum f virkjunargerð hjá umbjóðendum hans. En hvorugt kom! „hundurinn" eða heimavirkjun. Það þurfti nýja stjórn til að móta eitthvað já- kvætt f raforkumálum norðan og austan. Hvað liggur til grundvallar slfkri afstöðu hins norðlenzka þingmanns? Getur verið að af- staða hans mótist ekki af mál- efnunum sjálfum, heldur þvf, hverjir standa að þeim, hverjir frumvörpin flytja? Hversvegna er hann þeim verstur, er hann þykist unna mest? Eða á að hefna þess á Alþingi, sem hall- aðist f héraði? 18 nemendur í Lyfjatækniskólanum I V t' I 4 T /L' I V ólonn onnÁi nn • •• X 1 .1 ...JG •»! A LYFJATÆKNISKÖLI lslands var settur f fyrsta sinn f haust og eru nemendur 18 talsins. Ennfremur er nú við skólann námskeið fyrir starfsfólk lyfja- búða, sem hlotið hefur nokkra undirstöðumenntun á þessu sviði áður. Axel Sigurðsson, sem hefur verið ráðinn skólastjóri við s„ólann sagði er við ræddum við hann f gær, að lyfjatæknar yrðu útskrifaðir eftir þriggja ára nám, sem væri bæði verk- og bóklegt. Að námi loknu fengju lyfjatæknar leyfi til að afgreiða ákveðin lyf í dreifbýl- inu, en fyrst og fremst væri námið hugsað til að gera þetta fólk að góðum aðstoðarmönn- um lyfjafræðinga. Inntökuskil- yrði eru miðuð við gagnfræða- próf. Ríkið rekur skóla að öðru leyti en þvf, að apótekarar borga verklegt nám fyrir sitt starfsfólk. Ákvörðun um stofn- un þessa skóla var sett með lögum um tæknimenntað fólk til heilbrigðisstarfa, eins og sjúkraliða, röngtgentækna og þroskaþjálfa. AUGLYSIIMGATEIKIMISTOFA MYIMDAMÓTA Adalstræti 6 sími 25810 20 ára afmæli Islandia Mynd úr boðinu. Lengst til vlnstrl er frú Leena Juuranto, eiginkona Kurt Juuranto, núverandi ræðismanns, þá Rósa Ingólfsdóttir, eigin- kona Guðmundar 1. Guðmundssonar og loks Guðmundur. 1 TILEFNI 20 ára afmælis félagsins Islandia f Finnlandi hélt Guðmundur I. Guðmunds son sendiherra boð inni f veit ingahúsinu Royal f Helsinki 4 desember s.l. Þar voru saman komnir rúmlega hundrað félag ar auk annarra gesta. Prófessor Eino E. Suolathi, sem hefur verið formaður félagsins frá stofnun hélt ræðu og drap á sögu félagsins og það helsta sem það hefur beitt sér fyrir á þeim árum sem liðin eru frá stofnun þess, en upphafs- maður að stofnun þess var þá- verandi ræðismaður íslands í Helsinki Erik Juuranto. Sýnd var kvikmynd frá gosinu á Heimaey og loks flutti Guð- mundur I. Guðmundsson ávarp, þar sem hann ræddi um hið góða samband milli þessara tveggja þjóða. Messur á morgun Dómkirkjan. Jólaguðsþjónusta kl. 11 árd. fyrir börn og aðra. Lúðrasveit unglinga leikur. Kristinn Halisson syngur með börnunum. Stuttur helgileikur. Sr. Þórir Stephensen. Dómkirkja Krists konungs. Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10 árd. Lágmessa kl. 2 sfðd. Laugarnesprestakall. Engin messa. Sóknarprestur. Neskirkja. Helgistund kl. 2 sfðd. Æskulýðskór syngur. Guð- björg Þorbjarnardóttir les upp. Helga Jóhannsdóttir syngur með undirleik Mána Sigurjóns- sonar. Bræðrafélag Nessóknar. Arbæjarprestakall. Barnaguðs- þjónusta í Arbæjarskóla kl. 10.30 árd. Sr. Guðmundur Þor- steinsson. Hallgrfmskirkja. Jólaguðsþjón- usta kl. 4 sfðd. Sendiherrar Bretlands og Bandarfkjanna annast Ritníngarlestur. Fólk af öllum kirkjudeildum velkomið. Dr. Jakob Jónsson. Breiðholtssókn. Barnaguðs- þjónusta kl. 10.30 árd. í Breið- holtsskóla Sr. Lárus Halldórs- son. Digranesprestakall. Fjöl- skyldumessa f Kópavogskirkju kl. 2 sfðd. Skólahljómsveit Kópavogs og helgileikur. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Kársnesprestakail. Barnaguðs- þjónusta f Kársnesskóla kl. 11 árd. Jólatónleikar Tónlistar- skólans f Kópavogskirkju kl. 5 síðd. Sr. Arni Pálsson. Asprestakall. Barnasamkoma kl. 11 árd. f Laugarásbfói. Kvik- myndasýning. Sr. Grfmur Grfmsson. Lágafellskirkja. Barnaguðs- þjónusta kl. 2 sfðd. Sr. Bjarni Sigurðsson. Háteigskirkja Ilelgistund fyrir börn og fullorðna kl. 2 sfðd. Jólasöngvar — Barnakór Illfða- skóla syngur undir stjórn Guð- rúnar Þorsteinsdóttur. Sr. Jón Þorvarðsson. Fíladelfia Reykjavík. Almenn guðsþjónusta kl. 8 sfðd. Einar Gfslason. Bústaðakirkja. Jólasöngvar kl. 2. Kór og hljómsveit Breiða- gerðisskóla flytja jólalög. Japanski guðfræðincminn Miako Þórðarson talar. — Sr. Ólafur Skúlason. Garðasókn. Barnasamkoma f skólanum kl. 11.00 árd. Sr. Bragi Friöriksson. Langholtsprcstakall. Barna- samkoma kl. 10.30 árd. Sr. Ar- elfus Nielsson. Jólasöngvar verða æfðir kl. 2 sfðd. og eru allir velkomnir en kór kirkj- unnar aðstoðar og Jón Stefáns- son stjórnar. Keflavfkurkirkja. Jólasöngvar kl. 2 e.h. Fjölbreytt dagskrá, mikill söngur. — Sr. Björn Jónsson. Frfkirkjan. Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðni Gunnarsson. Frfkirkjan í Hafnarfirði. Guðs- þjónusta kl. 14.00. Hvalneskirkja. Barnaguðsþjón- usta kl. 11 árd. Sr. Guðmundur Guðmundsson. Utskálakirkja. Barnaguðsþjón- usta kl. 11 árd. Sr. Guðmundur Guðmundsson. Grensáskirkja. Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Sr. Halldór S. Gröndal. Hafnarfjarðarkirkja. Barna- guðsþjónusta kl. 11 árd. Messa kl. 2 sfðd. Minnst 60 ára afmæl- is kirkjunnar. Sr. Garðar Þor- steinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.