Morgunblaðið - 21.12.1974, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1974
FYRIR árið 1922 var sjúkdóms-
greiningin „sykursýki" sama og
dauðadómur. En það ár var insúlín
framleitt I fyrsta sinn, og slðan
hefur þessi hormón bjargað lifi
óteljandi fjölda manna.
Hins vegar er einnig unnt að
nota insúlinsprautuna sem morð
vopn, og það uppgötvuðu menn
ekki fyrr en 1957. Siðan hafa
komizt upp fjölmörg slik morð.
Þegar þetta er skrifað var síðasti
insúlinmorðinginn 34 ára
hjúkrunarkona. sem dæmd var í
ævilangt fangelsi i Englandi.
Hún hafði drepið áttræða konu,
alvarlega sjúka, sem var i gæzlu
hennar á sjúkrahúsi. Hún var einn-
ig grunuð um að hafa gefið um tiu
öðrum sjúklingum of stóran
skammt af insúlíni, og þeir létust
einnig
ÁHRIF INSÚLÍNS.
Insúlin myndast í briskirtlinum.
Það fer út i blóðið og temprar
sykurinn (glúkósuna) i þvi, þannig
að magnið er að meðaltali
80—120 milligrömm i hverjum
100 milliltrum blóðs.
Sykursýkissjúklingar þjást af
insúlínskorti. Þvi kemst sykurinn i
blóðinu á sjúklegt stig, ef sjúkling-
arnir fá ekki insúlín með spraut-
um. Ef sykursjúk manneskja fær
of mikið insúlin, fær hún insúlin-
áfall. Það lýsir sér með þreytu.
uppköstum. svita, skyndilegum
slappleika og að lokum meðvit-
undarleysi. í alvarlegustu tilvikum
getur þetta leitt til dauða, ef sjúkl-
ingurinn kemst ekki undir læknis-
hendur.
Fái heilbrigð manneskja
insúlínsprautu er henni hættara
við insúlináfalli en sykursjúkri, þar
eð aukasakammtur bætist við það
insúlin, sem briskirtillinn framleið-
ir. Þar fyrir utan verða einkennin
alvarlegri en hjá sjúklingi, sem er
vanur að fá insúlin.
FYRSTA MORÐIÐ
Þar eð insúlín er efni, sem fyrir
er i líkamanum og því erfitt að
úrskurða hvort látinn maður hafi
fengið of stóran skammt af þvi.
hlýtur insúlinsprautan að teljast
tilvalið morðvopn. Samt sem áður
eru aðeins 1 7 ár sfðan upp komst
um fyrsta insúlinmorðingjann.
Það kann einmitt að sýna hversu
„happileg" þessi morðaðferð er!
Morðinginn var 38 ára
hjúkrunarmaður sem starfaði við
St. Luke's Hospital í Huddersfield
á Englandi. Aðfararnótt 4. mai
1957 hringdi hann upp hjá ná-
grönnum sinum og sagði konu
eftir ERIK
MÚNSTER
það honum á óvart, að náttföt
Barlows voru alveg þurr, og að
ekki var vatn á gólfinu eða á
veggjum baðherbergisins.
Réttarlæknirinn, dr. David
Price, var tilkvaddur, og sagði
hann fátt benda til, að eiginmað-
urinn hefði reynt blástursaðferð-
ina. Í eldhúsinu fann lögreglan
tvær sprautur, og var önnur
þeirra blaut. Barlow sagðist hafa
fengið sér pensilinsprautur sjálfur
af þvi að hann hefði igerð. Hann
neitaði að hafa gefið konu sinni
sprautur.
Kl. 5.40 um morguninn var likið
krufið af dr. Price. Öll liffæri voru
með eðlilegu móti og ekkert benti
til sjúkdóms. í móðurlffi var um
tveggja mánaða gamalt fóstur, og
virtist það einnig vera eðlilegt.
Price fann engin merki eftir
sprautur á húð frú Barlows.
STÆKKUNARGLERIÐ.
Næstu daga á eftir fór fram
nákvæm könnun á hugsanlegri
eitrun allra stærstu liffæra og
vefja, en allt kom fyrir ekki. i
sprautunum fannst ofurlftið af
pensflini, sem kom heim og saman
við upplýsingar Barlows.
8. mai notaði dr. Price sterkan
Morð með ínsúlínsprautum
sina hafa veikzt i baðkerinu. Þeir
hringdu á lækni, og þegar hann
kom á vettvang fann hann
Elizabeth Barlow, 30 ára að aldri,
látna f tómu baðkerinu.
DAUOINN j BAÐKERINU
Barlow skýrði svo frá, að kona
hans hefði farið snemma i rúmið
af þvi að henni hefði liðið illa. Um
það (eyti hefði hún kastað upp.
Þegar hann hefði sjálfur farið i
háttinn hefði hún kvartað yfir
miklum svita, og sagzt ætla i bað.
Hann sofnaði en vaknaði rétt fyrir
kl. 11 um kvöidið og fann hana
drukknaða i baðkerinu.
Fyrst reyndi hann að taka hana
upp úr baðkerinu, en þar eð hún
var of þung, tæmdi hann baðkerið
og reyndi blástursaðferðina.
Læknirinn tók eftir þvi, að Ijós-
op augans var óvenjulega mikið
opið, og fannst allar kringumstæð-
ur látsins svo sérkennilegar, að
hann gerði lögreglunni viðvart.
ÞURRU NÁTTFÖTIN.
Þegar Naylor. lögregluforingi,
kom skömmu siðará staðinn, kom
lampa og stækkunargler við að
fara gaumgæfiiega yfir alla húð
hinnar látnu. Eftir tveggja tima
vinnu fann hann tvö örsmá sár á
vinstri og hægri rasskinn — sem
gátu stafað af sprautum. Þetta
hafði ekki fundizt við fyrstu yfir-
ferð vegna óhreininda.
Með varúð skar dr. Price gegn-
um húðina á þessum tveimur stöð-
um niður i fitu- og vöðvavefina.
Þar fann hann smábólgur, sem eru
merki þess, að hin látna hefði
verið sprautuð.
HVAÐA EITUR7
Allt benti nú til þess, að Barlow
hefði gefið konu sinni sprautur
með einhverju efni, sem gæti ver-
ið tengt dauða hennar. Dr. Price
skar vefjabitana með sprautu-
stungunum og setti þá í frysti til
geymslu fyrir frekari rannsóknir.
Þrátt fyrir það, að ekki hefði
fundizt eitur annars staðar I likam-
anum, kynnu að vera sneflar af
því á sprautustöðunum. En vefja-
sýnin voru svo lítil. að menn gátu
ekki leyft sér að setja þau i hinar
og þessar eitrunarrannsóknir.
Finna varð rétta stefnu fyrir rann-
sóknina.
GÖMUL GREIN.
Barlow hafði sagt, að kona sin
hefði sagzt slöpp. hefði svitnað og
kastað upp kvöldið, sem hún lézt.
Ýmsir sérfræðingar i læknisfræði,
sem spurðir voru álits, voru sam-
mála um, að þetta gæti verið
merki um of litinn sykur i blóðinu.
Á móti þessu mælti hins vegar
blóðsýni úr hægra hjartahólfi liks-
ins, sem hafði 210 milligrömm i
hverjum 100 millilitrum blóðs.
Blóðsykurinn var þvi of mikill, en
ekki öfugt. Réttarlæknarnir fundu
Blóðsykurinn er mældur með þvl að
tekið er sýni úr éyranu.
við frekari eftirgrennslan grein frá
árinu 1940, sem skýrði frá þvi að
nokkrir visindamenn hefðu tekið
blóðsýni úr hjörtum 38 nýlátinna
sjúklinga, sem ekki voru sykur-
sjúkir. Þeir sýndu öll óvenjulega
mikinn blóðsykur.
Höfundar greinarinnar skýrðu
þetta með þvi, að lifurin, sem er
aðalsykurgeymsla líkamans, send-
ir á dauðastundinni siðustu sykur-
birgðirnar út í bióðrásina, og þær
nái inn i hægra hjartahólf áður en
hringrás blóðsins stöðvast.
TILRAUNIR MEÐ MÝS.
Blóðsykurmagnið i hjarta frú
Barlow benti því ekki gegn
insúlinmorði, og grunurinn óx þeg-
ar lögreglan komst að þvi, að
Barlow hafði eitt sinn sagt við
starfsbróður sinn, að með insúlini
væri unnt að f remja hið fullkomna
morð.
Menn þekktu ekki þá efnafræði-
legar aðferðir til að sanna tilvist
insúlins i vefjasýnum. Þess vegna
varð að reyna að finna insúlin í
húð frú Barlow með liffræðilegum
tilraunum, þ.e. með tilraunadýr-
um.
Fyrst var sprautað insúlini i mis-
miklu magni inn i mýs, og athugað
einkenni insúlináfalla þeirra. Sið-
an var smábútum vefjasýnanna úr
húð frú Barlow sprautað inn i
mýsnar. Þetta gaf alveg sömu
sjúkdómseinkenni. Tilraunin var
siðan endurtekin á marsvfnum og
rottum með nákvæmlega sama
árangri.
Ef hins vegar vefjasýnin fengu
pepsinmeðhöndlun áður, komu
ekki fram einkenni of mikils
insúlinsmagns hjá dýrunum. Við
erum með pepsin i magasafanum,
og það er þetta enzým, sem hefur
þau áhrif, að insúlin virkar ekki
þegar það er tekið inn gegnum
munninn.
HANDTAKAN.
Enn fleiri tilraunir voru gerðar,
sem bentu til, að það hlyti að vera
insúlin f litlu sárunum f húð frú
Barlows. Að endingu voru menn
svo vissir f sinni sök, að lögreglan
handtók Barlow. Fyrst neitaði
hann að hafa gefið konu sinni
sprautu, en eftir nokkra daga
viðurkenndi hann að hafa gert
það. Hins vegar sagði hann, að
efnið hefði verið ergometrin og
tilgangurinn hefði verið að fram-
kalla fósturlát. Þessari staðhæf-
ingu var unnt að visa á bug þegar i
stað, þar eð þetta efni hefði fund-
izt I þvagi hinnar látnu.
Barlow kom fyrir rétt og var
ákærður fyrir morð á konu sinni
með isútíni. Hann neitaði blákalt.
En hann var engu að síður dæmd-
ur sekur.
Dómarinn, sem dæmdi fyrsta
insúlinmorðingjann i ævilangt
fangelsi, sagði við það tækifæri:
„Þér eruð fundinn sekur um blá-
kalt, grimmilegt, gaumgæfilega
skipulagt morð, sem aldrei hefði
komizt upp ef ekki hefði komið til
óvenjulega mikil visindaleg og
lögregluleg athugun."
Frímerkja
verðlistar
Hingað til lands hafa nú borizt
flestallir erlendir alþjóða-
frimerkjaverðlistar ársins 1975,
og virðist svo sem verðbreytingar
á frimerkjum hinna ýmsu landa
séu frekar litlar. Þó er þvi ekki að
neita, að nokkur islenzk frímerki
hafa hækkað I verði frá fyrri
skráningum, en það eru þá helzt
hinar eldri útgáfur, t.d. þau frí-
merki, sem út voru gefin fyrir árið
1940. Nokkrar verðbreytingar
hafa átt sér stað í franska verðlist-
anum Yvert & Tellier á islenzkum
frimerkjum, en ef litið er yfir
sænska Facit-verðlistann, þá má
með sanni segja, að þar hefur
skráning íslenzkra frimerkja farið
heldur hækkandi frá þvi sem var,
þegar miðað er við, að nú er verð-
skráningin án söluskatts i Sviþjóð,
en söluskattur af frimerkjum var
afnuminn þar fyrir nokkru.
Hér á landi nota frimerkjasafn-
arar mikið þá verðlista, sem gefnir
eru út I Reykjavik, þ.e. íslenzk
frimerki, sem Isafoldarprent-
smiðja gefur út árlega, og verð-
1975
lista sem gefinn er út af K. Árdal
og nefndur er íslenzki frimerkja-
verðlistinn. Hins vegar eiga
margir frimerkjasafnarar skiptivini
erlendis. og eru þá i flestöllum
tilfellum notaðir erlendir verð-
listar i þeim skiptum En þeim,
sem slík skipti stunda og eigi hafa
eignazt þessa nýju erlendu fri-
merkjaverðlista, ef til vill vegna
þess, hve dýrir þeireru, skal á það
bent. að i skrifstofu Félags frf-
merkjasafnara að Amtmannsstíg
2, liggja þessar bókmenntir
frammi til afnota á miðvikudögum
kl. 17—19, svo og erlend frí-
merkjatimarit, þar sem margan
fróðleik um frimerki og söfnun
þeirra er að finna.
NOKKRAR RÁÐLEGGINGAR
FYRIR FRÍMERKJASAFNARA,
SEM ERU BYRJENDUR
Það sem mestu máli skiptir i
frimerkjasöfnun, er smekkiegur
frágangur á merkjunum, þegar
þeim er raðað i frimerkjaalbúmið
Svo skal auðvitað einnig varast að
safna frímerkjum, sem að ein-
hverju leyti teljast gölluð vegna
þess, að þau eru öllum verðlaus.
Mjög dökkir póststimplar á fri-
merkjum eru t.d. illa séðir i söfn,
og vandlátir safnarar vilja helzt
ekki frímerki I söfn sin, sem
stimpluð eru I póststimplunar-
vétum vegna þess, að hand-
stimpluð frimerki eru ávallt
smekklegri, þegar þau eru komin f
frimerkjaalbúmið. Ungum söfn-
urum og byrjendum skal á það
bent, að nota ekki límmiða
(hengsli) á ÓNOTUÐ frímerki.
eftir JÓNAS
HALLGRÍMSSON
þegar þau eru látin i albúm, þvi að
límmiðarnir skerða þá verðmæti
frtmerkisins. Er ráðlegast að nota
klemmuvasa fyrir einstakt merki
eða albúm. sem eru með inn-
greyptum hólfum, en hlutir þessir
ásamt öðrum hjálpargögnum við
söfnun frimerkja fást i öllum fri-
merkjaverzlunum landsins. Það er
einnig mjög algengt, að byrjendur
noti innstungubækur, meðan söfn
þeirra eru i mótun.
Varðandi söfnun á íslenzkum fri-
merkjum byrja safnarar nú á
dögum að safna frimerkjum þeim,
sem út hafa verið gefin frá stofn-
un lýðveldis á jslandi, þvi að það
má telja I of mikið ráðizt að ætla
sér að safna öllum frimerkjum,
sem út hafa verið gefin frá þvi, að
fyrst voru gefin út frimerki hér á
landi árið 1873, vegna þe>s að
fjöldi frimerkja frá fyrri árum
kosta stórfé. En það eru til þeir
möguleikar, ef safnarar eiga mikið
magn af frimerkjum siðari ára, að
skipta þeim t.d. hjá frimerkjakaup-
mönnum hér eða erlendis. Á þann
hátt geta þeir ef til vill eignazt
frimerki af eldri árgöngum.
Ég minnist þess, þegar ég byrj-
aði frimerkjasöfnun árið 1924, að
þá var hér i borginni vísir að fri-
merkjaverzlunum, sem höfðu til
Nýju Færeyjarfrimerkin.
Hér birtist mynd af nýju 5 aura
frímerki, sem út kemur 30. janúar
nk., og er eitt þeirra fjórtán
frímerkja, sem út verða gefin i Fær-
eyjum þennan dag.
sölu frimerki, aðallega erlend,
sem raðað var upp í þar til gerðar
smábækur (úrvalshefti). En pen-
ingaráð voru ekki mikil hjá ungl-
ingum þeirra tima, og verð þess-
ara frimerkja var heldur ekki hátt,
t.d. var mikið af merkjunum verð-
lögð á 2 aura og uppí 15 aura
stykkið. Ef unglingur eignaðist
1—2 krónur var farið vestur i
gamla Stýrimannaskólann, en þar
bjó Baldvin Pálsson Dungal, sem
þá var byrjaður að höndla með
frimerki og siðar varð þekktur frf-
merkjakaupmaður hér og erlendis.
Fyrir 1 — 2 krónur gat hinn ungi
safnari, sem lagði leið sina til
Baldvins, oft eignazt frímerki i
safn sitt. og jókst ánægjan með
hverju nýju frfmerki, sem við
bættist i safnið. Þótt verð þessara
frimerkja væri ekki mikið á þess-
um árum. þá er það nú svo, að
núna eru mörg þeirra töluvert
verðmæti, og séð hefi ég söfn,
sem hér eru I eigu manna, er
snemma byrjuðu þessa vinsælu
tómstundaiðju af litlum efnum,
sem nú eru orðin mjög verðmæt.
Af þessu má þvi sjá, að frimerkja-
söfnun getur verið arðvænleg, og
svo er þess einnig að gæta, að
fyrir unga og aldna er mikinn fróð-
leik að finna af myndskreytingum
frimerkja. þvi að mörg þeirra segja
oft hluta af sögu þjóðanna. Það er
þvf ábending til ungs fólks, að
halda saman öllum frimerkjum,
því að þau geta myndað byrjun að
góðu frimerkjasafni með tið og
tima.
Frimerkjaþáttur þessi mun við
og við reyna að miðla yngri les-
endum og byrjendum I frímerkja-
söfnun ábendingum og fróðleik
um ýmis efni, eins og getið var
um, þegar þátturinn hóf göngu
sina hér á blaðinu. Einnig eru
aðsendar greinar og fyrirspurnir
varðandi f rimerkjasöfnun ávallt
vel þegnar.