Morgunblaðið - 21.12.1974, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1974
23
Pólitísk ofbeldisverk í Argentínu:
191 hefur far-
izt á 5 mánuðum
Norðfjörður er fjörðurinn til hægri og sést Neskaupstaður f útjaðri myndarinnar. Heilisfjörður er til
vinstri, en myndin er tékin af Sandfelli. — Ljðsm. Bj. Björnsson.
— Miklir mannskaðar
Buenos Aires, 20. des. Reuter.
OFBELDISVERK af pðiitfskum
toga ollu dauða fimm manns f
Argentfnu f gær, særðu einn og
Ieiddu til handtöku 19 manna.
Gððar heimildir herma að lög-
reglu- og hersveitir hafi barizt við
vinstrisinnaða skæruliða náiægt
borginni Santa Fe. Voru 19 hand-
„Vers og vísur”
Ljóðabók eftir Bjarna
Th. Rögnvaldsson
KOMIN ER út ljóðabók eftir
Bjarna Th. Rögnvaldsson, og
nefnist hún Vers og vfsur.
I bókinni eru 10 ljóð og bera
þau heitin: Aðfangadagskvöld,
Bæn, Hvert ætlar þú? Surtseyjar-
vísa, Bros, Minning, Þú og ég og
tveir hljómar, Andvaka, A
Færeyjarsundum og Ólafur Lilju-
rós.
Bókin er 57 bls. að stærð, og
gefur höfundur hana út.
Ritgerðir
kandídata
gefnar út
NVUTKOMIÐ er safn prðfrit-
gerða búfræðikandfdata frá
Hvanneyri vorið 1973. Safnið er f
bókarformi og er þetta f fyrsta
sinn, sem prófritgerðir eru
gefnar út á þennan hátt.
I ritinu eru fimm beztu rit-
gerðir kandidata birtar í heild
sinni, en þar að auki eru úr-
drættir úr ritgerðum hinna sjö
kandídatanna, sem prófi luku frá
Framhaldsdeild Bændaskólans á
Hvanneyri vorið 1973. Ritgerð-
irnar fimm eru eftir Ara Teitsson,
sem fjallar um Másvatn og fisk-
stofna þess, Bjarna Maronsson,
sem gerir samanburð á sæðingar-
hrútum og heimahrútum á fjór-
um bæjum í Skagafirói, Jónatan
Hermannsson, sem ritar um
veðurfarsleg skilyrði heyskapar,
Þorstein Kristjánsson, sem fjallar
um rannsóknir á gróðurfari og
kali túna í Borgarfirði eystra og
loks Þórð G. Sigurjónsson, en
hann skrifar um fyrsta kálfs
kvígur í Eyjafirði.
I ritinu er að finna skrá yfir
aðalritgerðir til kandídatsprófs
frá Framhaldsdeild Bændaskól-
ans á Hvaneyri allt frá árinu 1959.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson yfir-
kennari Framhaldsdeildar rit-
stýrði útgáfunni.
Ritgerðir búfræðikandídata
hafa ekki til þessa verið gefnar út
á prenti, en frumkvæði að útgáf-
unni átti Gísli Sigurbjörnsson.
Vió skólaslit á Hvanneyri vorið
1973 bauðst hann til að kosta
þessa útgáfu og var boðið þegið
með þökkum. Gisli hefur sem
kunnugt er látið landbúnað sig
miklu varða og rekur Rannsókna-
stofnunina Neðri-As í Hveragerði.
Á vegum stofnunarinnar hafa
ýmsar visindaritgerðir verið gefn-
ar út á síðari árum, t.d. um kal-
rannsóknir, en einnig hefur Gisli
fengið hingað til lands marga vís-
indamenn til rannsókna og fyrir-
lestrahalds.
Ritgerðasafnið kemur út í 600
eintökum. Forráðamenn bænda-
skólans kváðust hafa fullan hug á
að halda þessari útgáfustarfsemi
áfram. I mörgum tilvikum væri
um að ræða frumrannsóknir á
hinum ýmsu sviðum, sem verk-
efnin taka til, og þvi kærnu rit-
gerðirnar að notum við kennslu.
1 Bændaskólanum á Hvanneyri
eru nú alls 60 nemendur, auk þess
sem 17 eru utanskóla. Þar af eru
25 nemendur i búvisinda- og
franjhaldsdeild, en búfræðikandí-
datar næsta vor munu verða 11
talsins.
teknir, og 30 til viðbótar var
leitað. Verkamaður einn I
grenndinni varð fyrir skoti og
særðist alvarlega.
Heimildir innan lögreglunnar
sögðu að þrfr menn sem grunaðir
voru um aðild að vinstrisinnuðum
skæruliðasamtökum hefðu verið
skotnir til bana f tveimur bar-
dögum við lögreglu f Buenos
Aires.
Samtals hefur nú 191 maður
beðið bana af völdum pðlitfskra
ofbeldisverka f Argentfnu frá 1.
júlfs.l.
Slegist um
bíla í Tékkó
Prag, 20. desember — AP.
Á MEÐAN bifreiðasölur vfðast
hvar f heiminum hafa tekið geig-
vænlega kollsteypu f kjölfar
orkukreppunnar standa viðskipt-
in f þessari grein með mesta
blðma f Tékkðslðvakfu. Biðraðir
tðku að myndast fyrir utan Moto-
techna-bflabúðina f Prag á þriðju-
dag, og f morgun biðu 200 manns
eftir þvf að búðin opnaði til þess
að láta skrá nöfn sfn á lista fyrir
þá bfla sem fáanlegir verða fyrstu
þrjá mánuði næsta árs. Skiptust
fjölskyldumeðlimir og vinir á að
leysa menn af f biðröðinni.
Að sögn blaðsins Lidova
Demokracie er skortur á Skoda og
Zhilugibifreiðum, en ódýrustu
gerðirnar seljast á 4,500 til 5,800
dollara. Er eftirspurninni ekki
nærri því fullnægt. Þá er einnig
skortur á vinsælum austur-
þýzkum bílum eins og Wartburg
og Trabant. Aðrir innfluttir bílar
eru til í meira mæli. Er gert ráð
fyrir að bifreiðasölur i Tékkósló-
vakíu slái öll met í ár og nemi
148.000 bifreiðum, sem er 30,000
fleiri en í fyrra. Á næsta ári er
ráðgert að salan nemi 191,000 bif-
reiðum.
Framhald af bls. 3
ósködduðum, en maðurinn var þó
talsvert langt leiddur af kulda. I
svokölluðum tækjaklefa voru
fjórir menn við vinnu. Einn
þeirra fannst látinn, annar hefur
ekki fundizt, en fundust um
hálftíuleytið f gærkvöldi með lífs-
marki og var vonað að þeir lifðu
hörmungarnar af. I frystihúsinu
hafði frystikerfi hússins skemmzt
mjög og lak ammoníak út úr þvf.
Gerði það björgunarmönnum
mjög óhægt um vik.
Þess má geta að svo fáir voru í
frystihúsinu, þar eð allur afli
hafði þegar verið verkaður. í
fyrradag var verið að vinna afla í
frystihúsinu og voru þá þar hátt á
annað hundrað manns við vinnu.
Gífurlegt eignatjón hefur orðið á
frystihúsinu
Samkvæmt upplýsingum
Ásgeirs Lárussonar var hræðilegt
um að litast við sfldarbræðslu
Síldarvinnslunnar í gær eftir að
ósköpin höfðu dunið yfir. Þar
voru fimm menn við vinnu, þar af
þrír í vélasai. Var þeirra allra
saknað lengi vel, en fimm fundust
látnir seint f gær.
Allnokkru ofan við síldar-
bræðsluna stóðu þrír lýsistankar
og svartolíutankur, sem nýlega
hafði verið fylitur með 800 lestum
af olíu. Olíutankurinn barst tals-
vert með flóðinu og hafði í gær-
kvöldi öll olían lekið f sjó fram.
Lýsistankarnir fóru allir fram
með flóðinu, tveir yfir bræðsluna
og var hluti eins tanksins uppi á
húsinu. Er talið að einn tankur-
inn hafi farið yfir húsið. Sildar-
bræðslan er gjöreyðilögð og er
eignatjón þar gífurlegt og reyk-
háfar verksmiðjunnar hallast f
allar áttir.
Norðfirðingar gerðu í gær ráð-
stafanir til þess að fólk’ yrði flutt
úr húsum, sem stóðu þannig í
bænum, að það var ekki talið
öruggt, ef fleiri snjóskriður féllu.
Fólkið var flutt í Gagnfræðaskól-
ann og íþróttahúsið, þar sem það
átti að vera í nótt. Hótelið á Norð-
Morðinginn
tekinn af lífi
Seoul, 20. desember — NTB.
KÓREUMAÐURINN Mun Se-
Kwang, sem dæmdur var fyrir
morðið á forsetafrú S-Kóreu i
ágúst s.l., var tekinn af lffi f dag,
að því er talsmaður dómsmála-
ráðuneytisins í Seoul upplýsti.
Hann var hengdur. I testamenti
sfnu kvaðst Mun, sem var 22 ára
að aldri, hafa verið heimskur að
láta sig hafa að reyna að myrða
forseta landsins og hann ætti ekk-
ert betra skiiið en að deyja
sjálfur.
firði ætlaði að sjá fólki þessu fyrir
mat.
Einn þeirra, sem fórust, var bif-
reiðastjóri, er ók starfsfólki fisk-
verkunarhússins til og frá vinnu í
fólksflutningabíl, 17 manna
Mercedes-Benz. Hann var á ferð-
inni, þegar ósköpin dundu yfir.
Bflstjórinn fannst látinn f sjón-
um, en fólksflutningabíll hans
hvergi. Talið er að maður hafi
verið með honum í bílnum og
hefur hann ekki fundizt.
Þess má að lokum geta, að 8
manns áttu að vera að vinna f
síldarbræðslunni í gær. Maður í
Neskaupstað hafði hringt í verk-
stjóra bræðslunnar og beðið hann
um að aðstoða sig við viðgerð á
miðstöðvarkerfi húss hans. Fóru
3 menn til þess að aðstoða þennan
mann. Því voru ekki allir í
bræðslunni, sem þar áttu að vera,
þegar flóðið hljóp fram.
Þess má að lokum geta, að
leitarflokkarnir leita með þeim
hætti, að bambusstöngum er
stungið niður i fönnina. Með þess-
um hætti fundust mennirnir
tveir, sem fluttir voru i sjúkra-
húsið, klukkan 21.30, og enn var
leitað týndra á þennan hátt í nótt.
Alþingi kemur
saman á ný 27.
janúar nk.
GEIR Hallgrfmsson, forsætisráð-
herra, mælti fyrir tillögu til
þingsályktunar f gær, til frestun-
ár á fundum Álþingis, skv. 23.
grein stjórnarskrárinnar, 20.
desember (þ.e. í gær) eða sfðar,
enda verði það kvatt saman á ný
eigi sfðar en 27. janúar 1975. Sam-
komulag var um framangreint
milli allra þingflokka og þings-
ályktunin samþykkt samhljóða.
Ég hef verið I söfnuði f mörg ár, en óvirkur. Nú hef ég
nýlega snúið mér til Drottins, og hann hefur veitt mér mikla
gleði. Gætuð þér sagt mér, hvað ég get gert fyrir söfnuð
minn?
Það gleður mig að heyra um nýlega reynslu yðar.
Já, það er dásamlegt að vera trúaður, kristinn
maður. Þér eruð kristinn og þér elskið Drottin, og
þvíégvissum, að það er margt, sem þér getið gert
söfnuði yðar til hagsbóta.
Eitt er það, að þér getið beðið fyrir söfnuði yðar á
nýjan hátt og fyrir prestinum yðar. Það er áhrifa-
mesta framlag yðar. Biblían segir: „Kröftug bæn
réttláts manns megnar mikið“ (Jakobsbr. 5,16).
Látið ekki undir höfuð leggjast að taka þátt í
bænasamkomunni og annarri starfsemi safnaðarins.
Hafið reglu á þátttöku yðar í guðsþjónustunni. Látið
áhuga yðar á því, sém heyrir Guðs ríki til, vera
öðrum til fyrirmyndar. Takið aldrei undir söguburð
og bakmælgi. Spyrjið prestinn yðar, hvort það sé
eitthvert sérstakt starf, sem þér getið innt af hendi,
eða hvernig þér megið verða honum.að liði.
Og að sjálfsögðu: Reynið að koma með þá vini
yðar, sem hafa ekki tekið sinnaskiptum, i söfnuðinn,
svo að þeir fái líka heyrt fagnaðarboðskapinn. Jesús
vill gera yður að mannaveiðara. Nú hafið þér tekið
hann um borð í bátinn yðar. Leggið þá út á djúpið og
varpið netum yðar til fiskjar.
HOBGQirBLAfla
fyrir 50 árum
Samningar hafa nú tekist milli stjórnar útgerðarmannafjel. og
verkakvennafjel. ..Framsóknar'' um kaupgjald fyrir sunnudaga-
vinnu á fiskþurkunarstöðvunum. Hafa aðiljar orðið ásáttir um kr.
1,25 fyrir klst. í aukavinnu og helgidagavinnu.
í Olvesholti I Holtum fann maður nýlega á annað hundrað
gamalla peninga I moldarflagi. Voru peningarnir umbúðalausir og
dreifðir yfir ferálnarstóran flöt. Voru þetta 40 spesíur, 21
rikisdalur, 30 hálfir dalir og 24 skildingamyntir. Yngsta myntin er
frá árinu 1 828.
LaxveiðafjelagiS hjer hefir gert 3500 kr. tilboð í veiðirjettinn í
Elliðaánum. Rafmagnsstjórnin hefir samþykt að leigja fjelaginu
árnar, ef það vill greiða 4000 kr. auk vörslu.
500 krónur hefir rafmagnsstjórnin samþykkt að greiða Margrjeti á Árbæ
fyrir jarðrask og átroðning vegna rafveitunnar.
Svartur ullarsokkur fanst á götu í gær. Vitjist til A.S.Í.
Barnavagn óskast leigður. A.S.Í visar á.