Morgunblaðið - 21.12.1974, Síða 25

Morgunblaðið - 21.12.1974, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1974 25 Indriði Gíslason, lektor: Enn um móðurmálið EKKI virðist lengur eiga við mál- tækið: „Seint er um langan veg að spyrja tíðinda." Prentsvertan er vart þornuð á greinum Mbl. um fslenskt mál og móðurmáls- kennslu þegar þær koma fyrir augu min hér austan Atlantsála. Hefur margt hrotið úr pennanum í skrifum þessum og ekki er ætl- unin að bæta hér miklu við. Mig langar þó að drepa stuttlega á eitt eða tvö atriði, sem fram hafa kom- ið í umræðunum. Þvi er haldið fram að of litlum tíma sé varið til móðurmáls- kennslunnar og ráðlegt talið, að fjölga þar kennslustundum. Ekki hefur þó verið bent á hvar eigi að taka þessa viðbót, hvaða náms- grein eða námsgreinar skuli skera niður í hinni yfirfylltu stunda- skrá skólanna. — Kannski er ætl- unin að lengja skólatímann af þessum sökum? Það virðist oft gleymast í um- raeðum af þessu tagi, að móður málið er iðkað í hverri einustu námsgrein sem kennd er (nema ef vera kynni í erlendum málum, þar sem notuð er hin svonefnda „beina aðferð“ sem þó mun sjaldnast beitt að öllu leyti). — Allar námsgreinar útheimta þvi þekkingu á móðurmálinu, eðli þess og tjáningarmætti (þetta orð — þó flatt sé — vonandi skiljan- legra en orðakraftur); kunnáttaX notkun móðurmálsins alls staðar jafn mikilvæg. Hvað sem námsgreinin heitir verður nemandinn fyrst og fremst að þekkja merkingu orðanna, geta skýrgreint hug- tökin, sem um er fjallað. Þetta er að sjálf- sögðu grundvallaratriði, en auk þessa verður nemandinn að gera greinarmun á stað- reynd, ályktun, skoðun; hann verður að kunna einhver skil á rökleiðslu, skýrslugerð, útdrætti — og þannig mætti lengi telja. Hver námsgrein hefur sérstakt málsnið — ef svo mætti segja — þar sem reynir meira eða minna á slíka málþekkingu. — Mér virðist sem stundum sé gengið út frá því sem gefnu (já, ég hef staðið sjálf- an mig að þessu!) að nemandinn sé vel að sér í merkingum orða og kunni skil á öllum mögulegum málsniðum og notkun þeirra. Líklega hættir okkur oft til að gleyma því, að íslenska er ekki einungis sagnamál og ljóða. Mál- snið dýrafræði er ólíkt Njálustil. Og stærðfræðingur notar ekki sama mál og sonnettuskáldið. — Allt er þetta þó íslenska. Og kannski varðar jafn miklu að nemandinn ráði við málið á mann- kynssögubókinni og að hann geti tíundað líkingar í Tímanum og vatninu. Hér er ég engan veginn að gera lítið úr lestri og kennslu fagur- bókmennta. Slíkt sé fjarri mér. Hinu vildi ég haida fast fram, að hver og einn einasti kennari hlýt- ur að vera móðurmálskennari hvort sem hann gerir sér það ljóst eða ekki. Hugmyndaheimur af- markaðs þekkingarsviðs (stærð- fræði, sögu, landafræði, ljóðs o.s.frv.) verður til og skýrist fyrir tilstyrk móðurmálsins (eða ein- hvers annars máls). Þess er ekki að vænta, að nemandinn tileinki sér þekkingu ef hann kann ekki að beita tækinu sem til þess þarf — málinu. Þetta veit ég að barnakennarar gera sér ljóst, enda eru hjá þeim hæg heimatökin; þeir eru bekkjarkennarar, þ.e. kenna flestar greinar í sinum bekk. Mig grunar aftur á móti að stundum verði annað uppi á teningnum, þegar ofar dregur í skóla- kerfinu. Þá er móðurmálskennsl- unni ætlaður sérstakur dilkur á stundatöflunni og sómasamléga íslensku þarf þá ekki að nota ann ars staðar í réttinni. — Og þegar sögukennarinn hittir íslensku- kennarann í löngufriminútunum spyr hann súr á svip: Hvað ertu eiginlega að kenna maður, ís- lensku? Krakkarnir kunna bara ekki neitt! (Ég hef orðið fyrir slíkum spurningum) — Slík ein- angrun móðurmálsins verður að teljast afar óheppileg. Ég er alls ekki viss um að við þurfum á að halda auknum tima til móðurmálskennslunnar. — Við verjum nú meiri tima til slíkr- ar kennslu en þær nágrannaþjóð- ir, sem ég hef spurnir af. Ég tel aftur á móti að við þurfum að gerbreyta aðferðum í þessari kennslu einkum á gagnfræðastig- inu: Við þurfum að leggja áherslu á þjálfun í málnotkun; við þurf- um að efla skilning á því undur- samlega tæki sem málið er, tæki til að tjá margvíslega reynslu, tæki til að víkka og endurnýja þekkingu á umheiminum. — Og hér ættu helst allir kennarar að taka höndum saman. Þeir eru all- ir á sama báti. En þetta er auðvitað hægara sagt en gert. Fyrsta skrefið gæti þó verið að veita öllum verðandi kennurum, hvaða grein sem þeir hyggjast kenna, staðgóða fræðslu um eðli tungunnar, gildi hennar fyrir almennan andlegan vöxt og viðgang. Eg get ekki látið hjá liða að minna hér á þann skerf, sem Baldur Ragnarsson, Núver- andi námsstjóri i islensku hefur lagt til þessara mála. Fyrir um það bil áratug sendi hann frá sér kennslu- I bókina Mál og málnotkun, þar sem hann sveigir inn á | nýja braut; reynir að gera nokkra grein fyrir eðli tungumálsins og gildi þess í andlegum samskipt- um. Bók þessi, sem þegar hefur haft holl áhrif markar raunar timamót í móðurmálskennslu hér á landi. Hér gefst ekki tóm til að gera þessari bók þau skil sem vert | væri, en trúa min er sú, að hún eignist sess I sögunni. Indriði Gfslason. Baldur Ragnarsson hefur og rit- að af raunsæi og skýrleika um viðhorf I móðurmálakennslu, þar sem er hin merka álitsgerð er hann samdi um þetta efni á veg- um Skólarannsóknadeildar. Og svo er það nýjast, að Sverrir Hermannsson alþingismaður ætl- ar að koma á fót nefnd (rétt einni enn) til að rannsaka móðurmáls- kennsluna og meðhöndlan íslensks máls almennt(?). Sverrir er málafylgjumaður mikill og mælskur vel, svo vafalaust tekst honum þetta. Feginn vildi ég verða Sverri Hermannssyni að liði varðandi er- indisbréf nefndarinnar og langar til að stinga hér upp á eftirfar- andi atriðum: Nefndinskaltafarlaust beita sér fyrir rannsóknum og tilraunum á sviði móðurmálskennslu. Þar yrði efst á blaði rannsókn á málþroska (málskilningi, orðaforða) og orð- tfðni. 1 annan stað skal nefndin beita sér fyrir tilraunakennslu er skeri úr um gildi málfræði- kennslu í notkun móðurmálsins og einnig skal hún láta kanna vfsindalega ýmsar aðferðir við stafsetningarkennslu. — Auðvelt væri að bæta við þennan lista, en þetta tel ég mestu varða í svipinn. Það þykir hafa komið ljóslega fram í blaðaskrifum um móður- mál nú undanfarið, að okkur sé tamara að fullyrða en að beita röksemdafærslu. Svo verður að likindum enn um sinn, þar til Sverrisnefnd hefur birt niður- stöðu rannsókna þeirra, sem nefndar voru. Þess háttar rann- sóknir taka óhjákvæmilega nokkurn tíma og kosta drjúgan skilding, en ekki trúi ég einum útgerðarmanni verði skotaskuld úr því að útvega peningana. Annars rekur mig minni til að einhvers staðar sé til — á pappír- um — gott ef ekki í lögum um Kennaraháskóla Islands, svo- nefnd Rannsóknarstofnun í upp- eldis- og kennslumálum. Sverrir gæti kannski sparað sér nefndina með því að láta Alþingi blása lífi i þessa stofnun. Nefnd Sverris má auðvitað ekki flana að neinu. Lestrarefni henn- ar til að byrja með gætu orðið þau verk Baldurs Ragnarssonar sem ég nefndi, en auk þess mun ég góðfúslega láta i té lista upp á svo sem fjórar siður af skrifum inn- lendra og þó aðallega erlendra fræðimanna um þessi efni. Öska ég svo þessari nefnd — enn í móðurkjviði — allra heilla. London, 15. nóv. 1974 Indriði Gislason. Matthías Johannessen: Hin siðlausa samkvœmni 1 skemmtilegum og fróðlegum háskóla- fyrirlestri Þorsteins Gylfasonar, sem hann hélt í tilefni af 250 ára afmæli þýzka heimspekingsins Kants, minnti hann á grundvöll allrar siðfræði: kröfuna um fullkomna samkvæmni. Þessi krafa hefur orðið fleiri en mér áleitið umhugsunarefni, þegar beztu menn breytast I ofstækismenn og helzt af engu tilefni. Þannig hafa öskur um fas- isma ekki farið framhjá neinum, sem fylg- ist með svokallaðri þjóðmálabaráttu hér á landi. Og fyrir stuttu, eða 1. des. s.l., sá ég í grein eftir annars dagfarsprúðan vin minn, að víða gæti tilhneiginga til fasisma á sfðum Morgunblaðsins — en það merkiX auðvitað ekki annað en við ritstjórar þess séum óeinkennisklæddir, blóðþyrstir brúnstakkar.l) Þessu var skolið inn I kuldalega grein um þjóðhátíðina! Auðvitað eru slikar upphrópanir ekki svaraverðar, þó að hér sé um að ræða þjóðfélagsböl, eða mengun af mannavöld- um eins og útvarpsstjóri orðaði svo ágæt- lega mannleg samskipti ýmisleg á islandi um þessar mundir, af öðru tilefni þó. Við ritstjórar Morgunblaðsins erum ýmsu van- ir og kippum okkur ekki upp við pólitísk krampaflog af néinu tagi. Ég minnist þess að hafa verið kallaður McCartýisti mán- uðum saman í Þjóðviljanum 1953 eða ’54. Þá var ég ungur blaðamaður og enn við nám í Háskólanum. Síðar átti ég samtal við Arthur Miller, sem lenti í klónum á McCarty. Ef ég man rétt var SAM fenginn 1) SAM: Þjóðhátíðarraus, Þjóðviljinn 1. des. YehudiMeuuhiu til að snara þessu samtali á ensku, svo að bandaríska leikskáldið gæti notað það i vörn sinni gegn óamerfsku nefndinni svo- kölluðu. Ástæða þess að ég hripa niður þessar linur i jólaönnum er sú, að ég rakst á tvö athyglisverð greinarkorn fyrir skemmstu, sem minntu mig í senn á „hina siðferði- legu samkvæmni" og þá staðreynd, að þetta fasistahjal er síður en svo einangrað fyrirbrigði í okkar þrönga, ónærgætna og oft kutdalega þjóðfélagi, heldur virðist um að ræða ofsóknaræði og andlegt of- beldi, sem fer eins og farsótt um heiminn og engum þyrmir. Dæmin tvö eru þessi: Rétt fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna i Grikklandi um það, hvort landið skyldi vera konungsriki eða lýðveldi, var Yehudi Menuhin, mesti fiðlusnillingur heims, i hljómleikaferð þar í landi. Hann er einn mesti mannúðarmaður og mannvinur, sem nú er uppi, eins og alkunnugt er, ekki sfzt okkur Islendingum frá þvi hann sótti land okkar heim og lék hér á listahátíð. Þá kynntumst við einnig viðhorfum hans og drengskap. Á blaðamannafundi í Aþenu hafði hann sagt, að sögn The Times frá 5. des. s.l., að hann hefði vonir um, að þjóð- aratkvæðagreiðslan færi vel og konungs- riki yrði áfram í Grikklandi. Snillingurinn hafði þá skoðun að bezt færi á því, og hlýtur hann að hafa haft fullan rétt til þess. Hann sagði: „Ég veit að gríska þjóð- in, sem hefur ávallt snúizt gegn öfga- öflum, kann að meta gildi konungdæmis." En hvað gerist? Þegar hann kemur inn á sviðið til að leika á tónleikum sfnum, hrópuðu nokkrir úr áheyrendahópnum: „Biðstu afsökunar", „skammastu þin“ og svo auðvitað hinn sígilda, innantóma og þvælda frasa: „Fasisti". Þessir mótmælendur, segir brezka blaðið, voru úr hópi lýðveldissinna. Ungur maður hóf að dreifa blöðum með mótmæl- um og var hann sá eini, sem hvarf úr salnum. Það þarf varla að taka fram, að Menuhin kom til Aþenu í því skyni að afla fjár til tónlistarnema i Grikklandi. Þegar hann fékk hljóð, lék hann verk eftir César Franck við undirleik pianóleikarans Louis Kentners. Hitt dæmið er frá Þýzkalandi, þar sem ég þykist vera þó nokkuð kunnugur, svo það kom mér ekki oins á óvart: I brezka blaðinu The Times frá 9. des. segir frá þvi, að einasta leikrit Alexanders Solzhenitsyns, Vinnulýðveldið, hafi verið sýnt í Essen í fyrsta skipti tveimur dögum Alexander Solzhenitsyn áður, en hávaðasamir, róttækir vinstri sinnar, eins og blaðið kemst að orði, hafi tafið sýninguna um 15 mínútur með ólát- um, m.a. útbýtt dreifiblöðum, þar sem rússneska Nóbelsskáldið var kallað „afturhaldsagent". Á vígspjöldum var sagt, að stuðningsmaður fasista (auð- vitað), eins og komizt var að orði, hefði engan rétt á þvi að ráðast á Stalinisma. Ölætin hófust þegar júgóslavneskur út- flytjandi, sem verið hafði í fangelsi i Sovétríkjunum, reif niður vígspjald. Þessi dæmi tala sínu máli. Fleiri eru óþörf. En við ritstjórar Morgunblaðsins og aðrir, sem öskrað er á: „Fasisti“ virðumst vera í allsæmilegum félagsskap nú um stundir, ef marka rná heimsfréttirnar. En þvi miður er þetta orð, fasisti, að verða merkingarlaust í munni öfgamanna hinnar nýju landfarsóttar. Það er skaði.og fasistar eiga síður en svo skilið að orðið fái að glata merkingu sinni. Þessi dæmi og önnur sýna að vísu „sið- ferðilega samkvæmni" — en hvers virði mundi það siðferði vera, sem styðst við öfugmæli og andlegt ofbeldi — hversu samkvæmt sem það er?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.