Morgunblaðið - 21.12.1974, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 21.12.1974, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1974 Þegar húsálfarnir föru Leikrit fyrir börn frí eftir KARL ERIK JOHANSON Snöggur: Hvaö er aö heyra til þín, Fljótur. Það er alveg harðbannað að gera sig sýnilegan fyrir fólkinu. Það stendur í húsálfalögunum. Fljótur: Já, já, ég veit það. Ég sagði líka bara að mig langaði til þess. En auðvitað geri ég ekki það sem er bannað. Lipur: Fólkið í húsinu kann auðsjáanlega ekkert að meta það sem við gerum fyrir það. Snöggur: Nei, nei; þaó hlær bara aö öllu. Lipur: Mig langar ekkert að hjálpa þeim lengur. Snöggur: Ekki mig heldur. Fljótur: Heyrið þið, nú veit ég hvað við gerum. Við tökum okkur frí frá störfum. Snöggur: Já, en hvernig heldurðu að fari fyrir fólkinu þegar óknytta álfarnir leika lausum hala? Lipur: Fólkið verður aö sjá um þá sjálft. Mér finnst að vió eigum að fara í frí strax. Snöggur: Erum við þá komnir í frí? Lipur: Já, við ákveðum það. Ertu ekki samþykkur, Fljótur. Fljótur: Jú, ætli það ekki. Snöggur: Við skulum taka lagið upp á það- (Þeir syngja) Sögumaóur: En Glópur óknyttaálfurinn, sem Fljótur lokaði ekki inni með hinum, stóð á bak viö dyrnar og heyrði allt sem góðu húsálfarnir voru að tala um. Og nú tók hann til fótanna og ekki leið á löngu þar til hann hafði opnað fyrir félögum sínum. Órubelgur: (Önugur) Hvar hefur þú verið, Glópur? Þú áttir að standa vörð við dyrnar og svo stekkur þú burt og lætur læsa okkur inni. Glópur: Ég hef fréttir að færa ykkur... gleði- fréttir. Ærslakollur: Þú hefur auðvitað falið hníf ein- hvers staðar eða látið einhvern stinga sig á nál, eða eitthvaó þess háttar, sem varla er í frásögur færandi. Hugsaðu um allt það ógagn sem við hefðum getað komið til leiðar allan þann tíma sem við höfum setið innilokaðir hér. Glópur: Þegið þið nú og hlustió á mig. Ég hef verið að njósna. Hinir: í kór: Njósna? Glópur: Og ég get sagt ykkur að Snöggur og Lipur og Fljótur hafa tekið sér fri. Órabelgur: Frí? Hvað er það. Glópur: Þeir eru hættir að vinna. Þeir eru hættir að skipta sér af okkur. Allir: Húrrrrrraaaaaaaa. Órabelgur: Þá getum við sett allt á annan endann og komið öllu á ringlureið í húsinu. Púsluspil Nú líður að því, að pósturinn fer að bera út jólakortin. Jólasveinn- inn ætlaði að hjálpa póst- mönnunum og átti að koma stóru og fallegu jólakorti til skila. En þá kom fyrir óhapp hjá hon- um. Hann missti kortið og það brotnaði í marga hluta. Gaman væri að hjálpa jólasveininum að raða kortinu aftur sam- an og það gerið þið á þann hátt, að þið límið stóru myndina á þunnan pappa. Síðan farið þið fyrst með oddinum á skærum ofan í allar lín- urnar og klippið mynd- ina sfðan eftir línunum. Þannig fáið þið 28 litlar myndir og þá er bara að raða þeim saman. Á litlu myndinni sjáið þið hvernig kortið var, áður en það brotnaði hjá jóla- sveininum. jT -i>-v :usni?T „Ung stúlka á réttri leið” Skáldsaga eftir Margit Ravn SKALDSAGA Margit Ravn, „Ung stúlka á réttri leið“ er komin út í annarri útgáfu f íslenzkri þýðingu. „Sögur Margit Ravn voru svo vinsælar hér á landi fyrir 30—40 árum að þar kom eng- inn samjöfnuður til greina,“ segir f fréttatilkynningu frá Bókaútgáfunni Hildi, sem gef- ur bókina út, en þetta er 11. saga Margit Ravn, sem útgáfan gefur út í annarri útgáfu. Seg- ir í fréttatilkynningunni að það sýni, að lífsmagn þeirra hafi ekki dofnað, „enda er hressilegur frásagnarmáti og heilbrigt lífsviðhorf hinnar norsku skáldkonu, samfara næmleika hennar á tilfinn- ingalíf ungra stúlkna þess eðl- is að ekki fyrnist, þótt tímarnir breytist." Togara- taka þökkuð BÆJARSTJORN Seyðisfjarð- ar gerði eftirfarandi samþykkt á fundi sínum 9. des. 1974. Bæjarstjórn Seyðisfjarðar fagnar þvf, að lögum var komið yfir þýskan landhelgisbrjót og sendir þakkir til Guðmundar Kjærnested og skipshafnar hans. Mótmæla frjálsum innflutningi iðnaðarvara MBL. hefur borizt eftirfar- andi: Stjórnarfundur haldinn í Iðju, félagi verksmiðjufólks á Akureyri, haldinn 10. desem- ber 1974, mótmælir harðlega hugmyndum stjórnvalda um frjálsan innflutning iðnaðar- vara og telur, að honum sé stefnt gegn innlendri iðnaðar- framleiðslu, sem svarað geti eftirspurn og þörfum lands- manna og standist fullkomlega samanburð um verð og gæði. Þá mótmælir fundurinn einnig þeim áformum stjórn- valda að leyfa frjálsa álagn- ingu og afnema verðlagseftir- lit, sem valda muni stórfelld- um verðlagshækkunum á neysluvörum almennings. Þess í stað skorar fundurinn á ríkis- stjórnina að efla stórlega verð- lagseftirlit um land allt, og draga sem mest úr ónauðsyn- legum innflutningi. Akureyri 11. desember 1974. F.h. stjórnar Iðju. Jón Ingimarsson, formaður. Júorflnnölaöiíi margfaldar marhað vðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.