Morgunblaðið - 28.12.1974, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.12.1974, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER, 1974 17 I „Neue Cuxhavener Zeitung" 3. des. s.l. er þriggja dálka fyrir- sögn á þessa leið: „Það væri hörmulegt vegna gamallar góðrar vináttu." Segir Ernst Stabel um fiskveiðideiluna við ísland. „Eins og kunnugt er, mega ís- lenzk skip ekki lengur sigla inn á þýzkar hafnir til að selja afla sinn. Þessa ákvörðun tók stjórn Sambandslýðveldisins á föstudag- inn, eftir að íslenzkt varðskip stöðvaði „Arcturus" innan hinnar umdeildu 50-mílna Iandhelgi og dró hann til Reykjavíkur. Skip- stjóri togarans var dæmdur í 45.000 marka sekt. Skoðanir manna á þessari ákvörðun Sam- bandsstjórnarinnar eru skiptar. Við ræddum ítarlega við Stabel ræðismann. Ernst Stabel: „Fyrst vil ég taka það skýrt fram, að ég svara spurn- ingum yðar ekki sem ræðismaður Islands, heldur sem vinur þessa lands og íbúa þess, sem ég ber mjög mikla virðingu fyrir og eiga alla mína samúð. Þess vegna sær- ir það mig, og ég harma það stór- lega, þegar þetta fótk er kallað sjóræningjar og því ætlaðir hlut- ir, sem eru með öllu óviðeigandi. Það verður að gera mönnum það fyllilega Ijóst, að íslenzka þjóðin heyr bókstaflega baráttu fyrir til- veru sinni. Aðeins frá þessu sjónarmiði ættu menn til dæmis að geta skil- ið útfærslu fiskveiðimarkanna f 50 mílur, eins og nú standa sakir, og réttmæti þeirra að áliti ís- lendinga. Þessar ráðstafanir hafa vissulega ekki verið gerðar til að skaprauna öðrum þjóðum, heldur einvörðungu til að vernda fisk- stofnana gegn tortímingu. Þess vegna hafa Islendingar sjálfir sett verulegar takmarkanir á fisk- veiðar, ekki aðeins innan 12 mflna markanna, heldur einnig á hrygningarsvæðum utan þeirra. Tekið er mjög strangt á brotum gegn þessum fyrirmælum og það jafnt, þótt íslenzkir fiskimenn eigi í hlut. Þannig var íslenzkum togaraskipstjóra refsað strang- lega fyrir nokkru, er hann var staðinn að veiðum á þessum svæð- um.“ Siðar i viðtalinu segir Stabel: „Það er alla vega mjög athyglis- vert, að ekki skuli hafa tekizt hingað til að finna þá lausn til samkomulags milli Sambandslýð- veldisins og íslands, sem báðir aðilar mættu við una. Slíkir samn- ingar eru nú f gildi milli íslands og Stóra-Bretlands, Belgíu og Færeyja. Skyldi þetta aðeins vera Islendingum að kenna? Það er vitað, að íslendingar vilja sérstak- lega vernda fiskimiðin við landið gegn veiðum verksmiðjuskipa og frystiskipa, af þvi að þeir óttast, að skip þessi muni valda miklum usla í fiskstofnunum. Um þetta eru að vfsu skiptar skoðanir. En Englendingar hafa sýnt skilning á áhyggjum Is- lendinga og fallizt á að senda ekki verksmiðju- eða frystiskip til þeirra svæða, sem íslendingar hafa tiltekið, en þar að auki myndi það geta leitt til mikilla vandræða, ef einni þjóð yrði veittur einkaréttur til veiða með frystiskipum á miðunum um- hverfis island. Sjálfir eiga ís- lendingar engin verksmiðju- eða frystiskip. En aðrar miklar fisk- veiðiþjóðir eiga heila flota af slík- um skipum. Er ekki ástæða til að óttast, að þær þjóðir myndu þá einnig gera tilkall til réttar til að veiða með slfkum skipum á sömu miðum? Viðtalinu við Ernst Stabel ræðismann lýkur þannig: „Lokun þýzkra hafna fyrir íslenzkum fiskiskipum sem þvingunaraðferð er að minni hyggju allsendis ótæk ráðstöfun, ef á að fá Island til að fallast á samkomulag, sem báðir aðilar geti við unað. Viðskipta- Löndunarbannið 1 þýzkum blöðum CCXHAVEN Nokkrar fyrirsagnir úr „Neue Cuxhavener Zeitung" á fréttum þar sem sagt er frá löndunarbanninu. jöfnuður Sambandslýðveldisins og islands er óhagstæður fyrir eyrfkið. Það væri sorglegt og hörmulegt, ef gömul og góð vinátta milli þjóða okkar myndi bíða hnekki. Setning eins og þessi: „Hvað heldur 200 þúsund manna þjóð, að hún sé, að koma svona fram gagnvart 60 milljóna þjóð,“ úr munni virðulegs samborgara, er að mfnu viti hættuleg ummæli, og maður getur aðeins vonað, að slík- ur hugsanaháttur breiðist ekki út.“ Daginn eftir, 4. des., birtist grein í „Cuxhavener Presse“ und- ir þessari þriggja dálka fyrirsögn: „Uthafsveiðar Þjóðverja útilok- aðar án alþjóðlegra hafsvæða við Island." Síðan er frá því skýrt, að sósíaldemókratfski þingmaðurinn Horst Grunenberg hafi beint fyr- irspurn til sambandsstjórnarinn- ar á þingi varðandi þetta mál út frá þvi sjónarmiði, að nauðsyn beri til að herða löndunarbannið. Hann spurði meðal annars: „Telur Sambandsstjórnin það hugsanlegt, að til bráðabirgða væri hægt að girða fyrir innflutn- ing íslenzkra vara með þvf að við þýzku landamærin yrði krafizt upprunaskírteina fyrir þann fisk, sem landað hefði verið utan Sam- bandslýðveldisins, en flytja ætti þangaðinn?“ Blaðið bætir því við, að það muni vfst varla framkvæmanlegt án röskunar á reglum Efnahags- bandalagsins. Sfðan segir: „Eftir sjóræningjaaðgerðir ís- lenzka fallbyssubátsins „Ægis“ gegn þýzka togaranum „Arcturus“ finnst mönnum ekki um annað að ræða lengur í Cuxhaven og Bremerhaven: Agengni fslenzkra fallbyssubáta gagnvart þýzkum togurum á al- þjóðlegum hafsvæðum verður að stöðva. Það tjón, sem þýzkum út- hafsveiðum er bakað, er of mik- ið.“ Sambandsstjórnin svaraði fyrir- spurn Grunenbergs skriflega, og er að því svari vikið í blaðinu „Neue Cuxhavener Zeitung“ 6. des. s.l. Undir fjögurra dálka fyr- irsögn, „Sanibandsstjórnin harm- ar...“ segir m.a.: „Sambandsstjórnin bendir þó á, að möguleikar séu fyrir hendi til að stöðva innflutninginn gegnum Efnahagsbandalagið. En slíkt skref sé alla vega undir því kom- ið, hverjar verði frekari aðgerðir af Islands hálfu. Þar sem Island selji um 20% heildar ferskfiskframleiðslu sinn- ar f Sambandslýðveldinu og fái gott verð fyrir með beinum lönd- unum á þýzkum mörkuðum, sé löndunarbannið í sinni núverandi mynd „tilfinnanlegt". Miðað við núverandi aðstæður sé það vafasamt, hvort hinn óbeini innflutningur geti yfirleitt orðið nokkur að marki, þar sem hafnir nágrannaríkjanna séu ekki viðbúnar löndun. verulegs afla- magns fslenzks fisks. Orðrétt seg- ir í svari Sambandsstjórnarinnar til Grunenbergs: „Ef lokun þýzkra hafna .dregst á langinn, myndi hinn islenzki innflutning- ur til annarra hafna sennilega leiða til verulegrar verðlækkunar þar. Eins og fréttir bera þegar með sér, fékk fyrsta skipið, sem snúið var til Ostende, mun lægra verð fyrir aflann en fengizt hefði í Bremerhaven. Eftir þvf sem Sambandsstjórn- inni er kunnugt, hefur á síðustu tíu dögum eftir hina ólöglegu töku þýzka togarans „Arcturus“, sem Island mátti búast við að hefði löndunarbann í för með sér, aðeins verið landað um 270 tonn- um af ferskfiski f krókahöfnum og reyndar í Ostende.“ „Cuxhavener Presse“, sem áður er getið í sambandi við fyrir- spurn Grunenbergs, birti síðan viðtal við eða yfirlýsingu frá Hans Ebelt, talsmanni kristilegra demókrata í Cuxhaven, undir tveggja dálka fyrirsöng: „Hans Ebelt segir um tslandsvandamál: „Hvert mál hefur tvær hliðar“. Sfðan segir blaðið, að Hans Ebelt hafi hinn 1. ág. s.l„ er fisk- veiðideilan við Island hafði staðið i tvö ár, skorað á ambandsstjórn- ina að hefja nýjar samningavið- ræður, „svo að ekki komi til versnandi ástands á miðunum“. 1 dag segir Hans Ebelt: „Nú sjáum við, hversu komið er, og sam- bandsstjórnin er ráðþrota.“ (Jetzt heben wir den Salat, und die Bundesregierung ist ratlos.) Eins og Ebelt lagði ennft »mur áherzlu á, væri löndunarbí <nið á íslenzkan fiskafla engin lausn, hversu vinsælt sem það virtist, er menn létu í ljós álit sitt í fyrstu. Bannið verður sniðgengið gegn- um Belgíu og kemur þvf fyrst niður á hinum þýzka fiskmarkaði og þeim, sem þar vinna. Auk þess væri þýzkum fiskiðnaði brýn nauðsyn á sérstökum íslenzkum fisktegundum og þá sér f lagi ufsa fyrir þýzka sjólaxiðnaðinn. Hans Ebelt sagði: „Ef fiskiánað- urinn fær ekki þessar fisktegund- ir gegnum Ostende, veldur skort- ur á þeim óhjákvæmilegri verð- hækkun, og þar með verða hinar þýzku húsmæður að borga reikn- inginn fyrir deiluna. Þýzkri úthafsútgerð verður enginn ávinningur hvorki að íslenzkum lögbrotum né heldur háværum orðum sósíal- demókratíska þingmannsins Grunenberg, sem leggur jafnvel til, að landamærum sé lokað. Að áiiti Ebelts ætti Grunenberg þing- maður að tala minna, heldur f staðinn að hvetjasambandsstjórn- ina eindregið til að hefjast handa og leggja allt kapp á að ná sam- komulagi eins og öðrum þjóðum hefur þegar tekizt. Friðrik Einarsson dr. med.: Fyrirspurn til heilbrigðis- málaráðuneytisins A aðfangadag jóla 1971 þáði Landspitalinn að gjöf hjarta- lungnavél frá Seðlabankanum og Ásbirni Olafssyni heildsala til þess að hægt væri að hefja opnar skurðaðgerðir á sjúklingum hér á landi. Aður hafði Asbjörn Ólafsson óum- beðinn kallað mig á sinn fund og boðist til einn að gefa Borg- arspitalanum þetta tæki. "Borg- arspítalinn einn spítala var þá til þess fær að hefja slikar erfiðar aðgerðir, ekki sízt vegna þess að við höfðum þá komið á fót gjörgæzludeild, sem hinir spítalarnir hafa verið að þróa hjá sér síðar, en það tekur tfma. Hvernig standa þessi mál í dag? Ég er ekki að spyrja þessa opinberlega af því að ég viti ekki svarið. Landspítalinn hafði aldrei og mun ekki hafa um ófyrirsjáanlegan tfma, möguleika á að hefja þessar aðgerðir. Fyrirspurn mín er því til þess fram færð, að vekja athygli viðkomandi aðila á að láta ekki hroka einstakra manna og fyrirsvarsmanna deilda og stofnana, koma f veg fyrir að þörfum hlutum, sem varða kannski líf og heilsu manna sé komið áleiðis. A skurðlækningadeild Borg- arspítalans hefir verið komið á fót heila og tauga- skurðlækningum. Sú starfsemi hefir bjargað fjölda mannslífa, sjúklinga með t.d. skyndilega blæðingu í heila, sem alls ekki hefðu þolað flutning til Kaup- mannahafnar. — Að þessu starfa tveir sérfræðingar, sem þannig hafa bundnar vaktir í 24 klukkutima annan hvern sólarhring. A Borgarspitalanum hefir i samráði við skurðlækninga- deildina verið stofnuð háls-, nefn og eyrnadeild. Og þótt hún þrengi að okkur á hinni almennu skurðlækningadeild, þá sættum við okkur við það, þar sem við sáum nauðsynina vegna sjúklinganna. Þarna eru framkvæmdar um 1500 skurð- aðgerðir á ári. Þar á meðal eru um 130 aðgerðir á heyrnar- skertu fólki. Þessar aðgerðir eru ekki gerðar annars staðar hér á landi. Opnar hjartaskurðaðgerðir hefðu vissulega valdið okkur erfiðleikum vegna sjúkra- rúmaskorts og plássleysis á skurðstofum. Samt ætluðum við að taka á okkur þessa erfið- leika. Það er spá mfn að þessi starfsemi komist nú ekki f framkvæmd hér á landi næstu 15 — 20 árin. Vonandi ér það hrakspá. Það er mikil ábyrgð Páls Sig- urðssonar ráðuneytisstjóra og Hjalta Þórarinssonar yfirlækn- is, að hafa komið i veg fyrir á aðfangadag jóla árið 1971, að þessi starfsemi gæti hafist hér á landi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.