Morgunblaðið - 28.12.1974, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER, 1974
| íhíimiAIRITIIB MOBEIlMBLAflSIMS
Fjórir skíðamenn á
stórmót í Ölpunum
ÞAÐ sem af er vetri hefur verið
heidur hljótt um íslenzka skfða-
menn. Eigi að síður hafa þeir þó
æft af krafti og strax með nýju
ári hefjast punktamótin svoköll-
uðu. Þá munu fjórir fremstu
skíðamenn iandsins halda utan til
keppni í byrjun janúar og taka
þátt f fimm sterkum skfðamótum.
Eru það þeir Hafsteinn Sigurðs-
son frá Isafirði og Akureyring-1
arnir Haukur Jóhannsson, Árni
Óðinsson og Tómas Leifsson.
Mótin sem þeir félagar taka
bátt í fara fram i Frakklandi,
Austurríki og á Italíu, það fyrsta
5.—6. janúar og það síðasta 30. og
31. janúar. Eru mót þessi liður í
Evrópubikarkeppninni. Þeir Haf-
steinn, Haukur og Árni fóru einn-
ig utan í fyrravetur og tóku þátt í
sambærilegum mótum. Frammi-
staða þeirra var hin ágætasta mið-
að við hin slæmu rásnúmer sem
þeir fengu.
Þá má geta þess að Sigrún
Grimsdóttir, skíðakona frá Isa-
firði, er nýkomin heim frá æfing-
um í Austurriki. Þar dvaldist hún
í rúman mánuð undir leiðsögn
góðra þjálfara og æfði við mjög
góðar aðstæður. Lét Sigrún vel af
dvölinni og sagðist ákveðin í að
klekkja á hinum sterku Akureyr-
arstúlkum, sem undanfarin ár
hafa verið langsterkastar ís-
lenzkra skíðakvenna.
Týr gefur
út félagsblað
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Týr í
Vestmannaeyjum hefur hafið út-
gáfu nýs félagsblaðs. Ábyrgða-
maður blaðsins og ritstjóri er
Hermann Jónsson. I fyrsta tölu-
blaði Týs er meðal annars efnis
viðtal við Snorra Rútsson íþrótta-
kennara og leikmann með 1.
deildarliði ÍBV. Snorri hefur yfir-
umsjón með öllum æfingum á
vegum Týs og kemur fram í við-
talinu við hann að alls eru það 265
ungmenni, sem æfa blak, knatt-
spyrnu og handknattleik hjá
félaginu.
JACKIE Charlton hefur átt
mikilii velgengni að fagna
sem framkvæmdastjóri hjá
Middlesbrough. Síðastliðið
keppnistfmabil sigraði liðið
f 2. deild og nú er liðið f
efsta sæti 1. deildarinnar
ásamt Liverpool.
Liverpool í efsta sæti
Innanhúss-
knattspyrna
yngri flokkanna
REYKJAVÍKURMÓT yngri
flokkanna í innanhússknatt-
spyrnu hófst f Laugardalshöllinni
í gær með keppni í þriðja flokki.
Mótið heldur áfram í dag og
keppa þá 5. flokkur og kvenna-
flokkarnir. Á morgun lýkur mót-
inu með keppni 2. og 4. flokks.
Keppnin hefst báða dagana
klukkan 10.00.
Naumur sigur
V-Þjóðverja
HEIMSMEISTARAR V-Þýzka-
lands sigruðu lið Möltu að-
eins með einu marki gegn engu í
leik liðanna í forkeppni Evrópu-
meistarakeppninnar í knatt-
spyrnu. Leikurinn fór fram á
Möltu á laugardaginn og skoraði
Cullmann eina mark Þjóðverj-
anna.
Danskir lyftinga-
menn óhressir
DANSKIR lyftingamenn eru
ekki sérlega ánægðir með
það að Norðurlandamótið í
lyftingum skuli fara fram
hér á landi i apríl eins og
ákveðið hefur verið. Finnst
Dönum kostnaðurinn vegna
íslandsferðarinnar of mikiil
og segjast ekki geta sent
nema fáa keppnismenn
hingað til lands.
Hafsteinn Sigurðsson og
Haukur Jóhannsson, þeir
hafa æft vel að undanförnu
og halda utan til keppni í
byrjun janúar.
Úrslita-
leikir á
Akureyri
ÞRlR leikir fara fram f 2. deild
um helgina. KR-ingar fara norður
og leika gegn Akureyrarliðunum
og Stjarnan mætir Breiðablik.
Leikir KR gegn KA og Þór eru
mjög mikilvægir þar sem öll þessi
lið eiga möguleika á sigri í 2.
deildinni. Fari svo að KR-ingar
tapi þessum leikjum má afskrifa
þá í keppninni, en sigri þeir hins
vegar þá er keppnin í 2. deild á ný
orðin jöfn og fjögur lið ættu þá
orðið möguleika. KR leikur gegn
Þór í dag og gegn KA á morgun.
Kvennaflokkur KR fer einnig
norður og leikur gegn Þór í dag.
Kvennalands-
leikir við
Bandaríkin
BANDARÍSKA kvennalandsliðið
í handknattleik kemur hingað til
lands 2. janúar og leikur hér tvo
landsleiki. Fyrri leikurinn fer
fram 2. janúar í Laugardalshöll-
inni og sá síðari í íþróttahúsinu í
Njarðvíkum þann 5. janúar. Is-
lenzka liðið hefur æft af krafti
yfir hátíðarnar og verður liðið
sem leikur fyrri leikinn endan-
lega valið í dag.
LIVERPOOL tók að nýju forystu
f 1. deildar keppninni f Englandi
er liðið sigraði Manchester City
með 4 mörkum gegn 1 á annan
dag jóla. Varla hefur umferð far-
ið fram f deildinni án þess að
breytingar yrðu á röð toppliðanna
og sama liðið hefur sjaldnast
setið lengur en f eina viku f efsta
sætinu. Þau þrjú lið sem voru f
efsta sætinu fyrir leikina á 2.
jóladag töpuðu öll og með sigrum
sfnum komust Liverpool og Midd-
; lesbrough f efsta sætið. Bæði eru
j með 29 stig, en Liverpool hefur
! hagstæðari markatölu.
I Luton, sem flestir höfðu dæmt
til að falla niður i 2. deild fyrir
nokkru síðan, kemur nú á óvart í
hverjum leiknum á eftir öðrum. A
laugardaginn gerði Luton sér lítið
fyrir og vann Ipswich, sem var á
toppnum fyrir þessa umferð, með
einu marki gegn engu og það á
heimavelli Ipswich. Með þessum
sigri sínum varð Luton fyrsta lið-
ið til að sigra Ipswich á heima-
velli. Ron Futcher skoraði eina
mark leiksins þegar þrjár mfnút-
ur voru komnar fram yfir venju-
legan leiktíma.
Liverpool lék Manchesterliðið
sundur og saman i fyrri hálfleikn-
um og skoraði þá þrjú mörk. Voru
þar að verki þeir Brian Hall, John
Toshack og Steve Heighway. I sfð-
ari hálfleiknum skoraði Hall aft-
ur áður en Manchester setti sitt
eina mark í leiknum.
Everton tapaði 0:2 i Wolver-
hampton og Stoke mátti sjá af
báðum stigunum í Coventry. Af
úrslitum I 2. deild má nefna að
Manchester sigraði WBA 2:1 og
er nú með fimm stiga forystu í 2.
deildinni. Sunderland er í öðru
sæti, liðið sigraði York 2:0 á 2. í
jólum og þá gerði Norwich jafn-
tefli við Notts County.
Urslit í 1. deildinni i Englandi
urðu annarsþessi:
Arsenai—Chelsea 1:2
Carlisle — Newcastle 1:2
Coventry — Stoke 2:0
Derby — Birmingham 2:1
Ipswich — Luton 0:1
Leeds — Burnley 2:2
Liverpool — Manehester City 4:1
Middlesbrough — Sheffield 1:0
QPR—Leicester 4:2
West Ham — Tottenham 1:1
Wolves — Everton 2:0
Messur á morgun
Dómkirkjan. Messa kl. 11
árd. Sr. Þórir Stephensen.
Klukkan 5 síðd. Jólaoratoríum
Bachs flutt af Oratoríukór
Dómkirkjunnar og hljómsveit
undir stjórn Ragnars Björns-
sonar dómorganista.
Árbæjarprestakall. Barna og
fjölskyldusamkoma í Árbæjar-
skóla klukkan 11 árd. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
Laugarneskirkja. Hátíðar-
messa klukkan 2 síðdegis í til-
efni af 25 ára vigsluafmæli
kirkjunnar. Herra biskupinn
Sigurbjörn Einarsson prédikar.
Sr. Gísli Brynjólfsson og sr.
Garðar Svavarsson þjóna fyrir
altari. Sóknarprestur.
Langholtssókn. Jólafagnaður
barna klukkan 3 síðd. —
Sóknarnefnd.
Dómkirkja Krists kongungs f
Landakoti. Lágmessa kl. 8.30
árd. Hámessa kl. 10.30 árd. —
Lágmessa kl. 2 síðd.
Neskirkja. Barnasamkoma
kl. 10.30 árd. — Jólatréshátíð
barna. Sóknarprestar.
Digranesprestakall, Barna-
guðsþjónusta kl. 11 árd. í Víg-
hólaskóla. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
Kársnesprestakall. Barna-
guðsþjónusta í Kársnesskóia kl.
11 árd. Sr. Árni Pálsson.
Bústaðakirkja. Barnasam-
koma kl. 11 árd. Sr. Ölafur
Skúlason
Hallgrfmskirkja. Messa kl. 11
árd. Sr. Ragnar FHalar Lárus-
son.
Grensáskirkja. Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Sr. Halldór
S. Gröndal.
Kirkjuvogskirkja. Gamlárs-
dagur. Guðsþjónusta kl. 3 síðd.
Sr. Jón Árni Sigurðsson.
Eyrarbakkakirkja. Barna-
guðsþjónusta kl. 10.30 árd. Kl. 4
siðd. Jóiahelgileikur í kirkj-
unni. Sóknarprestur.
Fíladelffa. Klukkan 2
síðdegis safnaðarguðsþjónusta.
Klukkan 8 .síðd. almenn guðs-
þjónusta. Einar Gíslason.