Morgunblaðið - 28.12.1974, Blaðsíða 23
fögru Katlafossa, sem Jóhannes
skáld úr Kötlum kenndi sig viö.
Faðir Jóhannesar bjó á þessu ör-
reytiskoti, sem er smábýli úr
landi Ljárskóga og heitir Ljár-
skógasel. I einu bezta kvæði
Jóhannesar „Karl faðir minn“,
lýsir hann högum kotbóndans
snilldarlega, svo og baráttu hans
við óbiíð náttúruöflin á Ljár-
skógaheiðinni.
Eins og byssuskotið í Sarajevo
árið 1914 umbreytti hinum
rómantíska blæ Mið-Evrópu má
segja að heimsstyrjöldin síðari
hafi þurrkað út heim sveita-
rómantikurinnar. Hinn hugljúfi
tónn rómantísku skáldanna allt
frá dögum Jónasar til Stefáns frá
Hvítadal, sveif yfir Ljárskóga-
heimilinu. Heimilisfólkið, 8
systkini, foreldrar og aðkomufólk
lifði og hrærðist í hinni ljóðrænu
veröld, sem einkenndi þessi
siðustu ár fyrir seinni heims-
styrjöldina. Að dagsverki loknu
settust allir, ungir sem gamlir, við
gamla eldhúsborðið. Anna hús-
freyja stóð við gömlu AGA koks-
eldavélina, sem eldur logaði í dag
og nótt. Hún bar á borð það sem
tilreitt var hverju sinni. Það voru
færri kvöldstundirnar, sem ekki
var sungið eða lesin ljóð og þá oft
fram á rauða nótt, enda öll fjöl-
skyldan ljóðræn og söngelsk.
A þessum árum var yngsti
sonurinn Jón að ljúka mennta-
skólanámi, en dvaldist heima á
sumrum. Hann var þá orðinn
landsfrægur fyrir söng sinn með
M.A. kvartettinum. Söngrödd
Jóns frá Ljárskógum þarf ekki að
lýsa, hana þekkja flestir. Tryggð
hans við landið og æskustöðvarnir
kemur fram í flestum hans
ljóðum. Hin mjúka bassarödd
AMERÍSKAR
NOMA
JÓLATRÉS-
PERUR
(Bubble light)
SÖLUSTAÐIR:
Hekla h.f.,
Laugavegi 1 72, R.
Lampinn, raftækjaverzlun,
Laugavegi 87, R.
Raflux, s.f.,
Austurstræti 8 R.
Rafmagn,
Vesturgötu 1 0, R.
Heimilistæki s.f.,
Hafnarstræti 3, R.
Lýsing s.f.,
Hverfisgötu 64, R.
Raftækjaverzlun Kópavogs,
Álfhólsvegi 9,
Raftækjaverzlun Hafnarfjarðar,
Strandgötu,
Vikurbær,
Hafnargötu 28, Keflavik,
Verzlunin Kjarni,
Vestmannaeyjum.
HEKLAH.F.
LAUGAVEGI 1 70—1 72 — SIMI 21240
O
Jfltjrflimblaíúb
nucivsincflR
4Ö*-»224B0
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER, 1974
23
hans seiddi fram hina fegurstu
tóna. Hann gat gert einföld þjóð-
lög að perlum. Næmi hans fyrir
ljóðum og tónum var einstök, eins
og vel sést í þeim ljóðum er hann
gerði við lög Stephans Foster, svo
og mörg fleiri sem M.A. kvart-
ettinn söng og urðu strax fleyg
um landið. Þrátt fyrir það, að
flest ljóða hans voru ort yfir 25
ára aldur, liggja eftir hann 3
ljóðabækur. Væri það mikill
fengur ef út yrðu gefin á ný bestu
ljóð hans, þar sem ljóð hans eru
aðeins í fárra höndum. Þeir sem
nutu návistar hans á heimili hans
í Ljárskógum, munu honum seint
gleyma.
Við fráfall Guðmundar eru
aðeins þrír Ljárskógabræðra á
lífi. Þeir Hallgrímur fyrrverandi
simstöðvarstjóri, skáld og fræði-
maður í Búðardal, Ingvi, búsettur
í Grindavik og Bogi, er dvelst nú
að Fellsenda í Dölum. Hallgrímur
er annar Ljárskógabræðranna
sem eftir liggur töluvert af rituðu
máli, m.a. ljóðabók, er út kom árið
1958. öll voru þau systkin vel
skáldmælt. Þau sem látin eru auk
Guðmundar eru Jón, Sólveig,
Ragnheiður og Fríða, sem var
yngst systranna. Öll þessi systkini
báru ættarmót foreldranna,
hávaxin, björt yfirlitum með
fallegan andlitssvip.
Stærð Ljárskógajarðarinnar
gerir hana að einni beztu fjárjörð
landsins, enda var stolt Guð-
mundar hið fallega fé, er hann
ávallt átti. Við umhirðu þess fékk
hann notið hæfileika sinna. Hesta
átti hann yfirleitt góða og hafði af
þeim yndi.
Því miður varð Guðmundur
fyrir því áfalli, eins og flestir f jár-
bændur landsins, að verða að sjá
á eftir bústofni sínum vegna
niðurskurðarins og skeði það
fljótlega eftir að hann tók við
jörðinni. Þegar hann hafði með
ærinni fyrirhöfn komið sér upp
nýjum bústofni, gaus upp sami
sjúkdómurinn að nýju í því
gönguhólfi sem hans fé var í og
varð hann því fjárlaus aftur um
sinn, þó ekki fyndist ein einasta
kind sýkt hjá honum. Þetta hafði
mikil áhrif á hans viðkvæmu lund
og má telja að þetta hafi haft
varanleg áhrif á heilsu hans og
starfskraft. Þrátt fyrir erfiðleika
þessa, tókst honum að ná upp
afbragðs fjárstofni, sem hann gat
verið stoltur af, enda margverð-
launaður fyrir.
Guðmundur var vel gerður
maður. Hvers manns hugljúfi,
hjálpsamur og raungóður. Hann
varð ungur grenjaskytta með
föður sfnum og tók við þvl starfi
af honum. Guðmundur var ráðu-
nautur um ref'arækt hjá Búnaðar-
félagi Islands og ferðaðist mikið
um landið sem slíkur. Kynnti
hann sér þau fræði f Noregi, þar
sem hann dvaldist tvisvar. Einnig
nam hann ljósmyndun hjá föður
sfnum og síðar hjá Jóni Kaldal.
Stundaði hann þessa iðn lftillega.
Guðmundur var vel hagmæltur,
þó hann flikaði því lítt. Guðmund-
ur Jónsson, bóndi í Ljárskógum,
hefir lokið löngum starfsdegi.
Samferðamenn hans þakka góða
samfylgd og munu sakna vinar í
stað. En mestur er þó söknuður
Ástriðar og barna hans. Þeim er
vottuð innileg samúð.
Þórir Jónsson.
Góður drengur er genginn. Guð-
mundur Jónsson óðalsbóndi f
Ljárskógum, kvaddi þennan
heim, ættingja og vini þann 17.
des. s.l.
Guðmundur fæddist að Ljár-
skógum 24. júní árið 1900. Margs
er að minnast frá liðnum ævidög-
um í sambandi við þennan hug-
ljúfa og geðþekka mann. — Þegar
hinn aldni heiðursmaður Jón
Guðmundsson og Anna kona hans
hurfu héðan, tók sonurinn Guð-
mundur forráðin; og við búinu
ásamt systkinum sínum, og ráku
þau það sameiginlega um sinn,
unz Guðmundur keypti jörðina og
búið af systkinunum — og rak
það einn til dauðadags.
Kona mín, Sólveig Jóhannsdótt-
ir, er nákomin frænka þeirra
Ljárskóga-systkina. Við hjónin
vorum því mjög kunnug þessu
heimili. Eldri börn okkar Sólveig-
ar, höfðu notið þeirrar hamingju
að vera f „sveitinni“ hjá hinum
öldnu foreldrum og börnum
þeirra, meðan þau störfuðu og
stjórnuðu búinu. — En svo þegar
Framhald á bls. 18
Málaskóli1
DANSKA, ENSKA, ÞÝZKA FRANSKA, SPÆNSKA, ÍTALSKA OG
ÍSLENZKA FYRIR ÚTLENDINGA.
KVÖLDNÁMSKEIÐ.
SÍÐDEGISTÍMAR.
INNRITUN DAGLEGA.
KENNSLA HEFST 13. JANÚAR.
SKÓLINN ER TIL HÚSA í MIÐSTRÆTI 7.
SÍÐASTA INNRITUNARVIKA.
Halldórs
KR. KRISTJÁNSSON H.F.
UMBORIR SUDURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 5300
TAKIÐ EFTIR!
Vegna sérstakra samninga viö
verksmiðjurnar fengum viö síö-
ustu sendingu af Bronco bifreiö-
um á sérstöku verði, sem ekki
anir verksmiðjanna, sem oröid
hafa á þessu ári.
Auk þess bjóöum við hagstæö
greiðslukjör!
innifelur þær þrjár veröhækk-
Gangið frá Bronco kaupunum strax.