Morgunblaðið - 23.01.1975, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANUAR 1975
13
Fjarskyggni
Hollendingurinn fjarskyggni,
Gerard Croiset, hefur orðiö fyrir
þvi að undanförnu, að nafn hans
hefur verið nefnt í ekki allfáum
blaðagreinum reykviskum og er
um megnið af þeim greinum að
segja, að þær hafa verið höfund-
um sinum til lítillar sæmdar. En
ekki munu þær ritsmíðar skaða
Croiset, þvi að hann nýtur alþjóð-
legrar viðurkenningar fyrir þenn-
an hæfileika, sem margir kannast
við i sambandi við menn eins og
Þorleif í Bjarnarhöfn, Emanúel
Swedenborg og Helga Njálsson á
Bergþórshvoli.
Um Croiset er það annars að
segja, aó sagnir af fjarskyggni-
gáfu hans hafa víða farið, en hitt
er ekki eins kunnugt öllum þorra
manna, að gerðar hafa verið vand-
aðar tilraunir með skyggnihæfi-
leika hans, að viðhöfðum ströng-
um varúðarráðstöfunum.
Menn spyrja stundum: hvers-
vegna að vera að leita til útlends
miðils, þar sem margir telja sig,
eða eru af öðrum taldir, slíkum
hæfileikum gæddir hér á meðal
vor. Þessu er auðsvarað. Áhrifin
af skrifum eins og þeim, sem haf-
izt hafa upp í sambandi við þetta
mál, ná sér miklu meir niðri á
heimamönnum en þeim sem i
fjarlægð búa. Miðillinn þarf þess
með, ef gáfa hans á að njóta sín,
að greind, hófsemi og gott líf þró-
ist i nánasta umhverfi hans
(Stilliáhrif). Framhaldábls.18
TILKYNNING
til launagreiðenda er hafa í
þjónustu sinni starfsmenn
búsetta í Hafnarfirði
og Kjósarsýslu.
Samkvæmt heimild í 7. tölulið 103. gr. reglu-
gerðar nr. 245/ 1 963, er þess hér með krafist,
af öllum þeim er greiða laun starfsmönnum
búsettum í Hafnarfirði og Kjósarsýslu, og ekki
hafa skilað starfsmannalistum í Janúar, að þeir
skili nú þegar skýrslu um nöfn starfsmanna hér
í umdæminu, sem taka laun hjá þeim, nafn-
númer heimilisfang og gjalddaga launa.
Jafnframt skal vakin athygli á skyldu kaup-
greiðanda til að tilkynna er launþegar hætta að
taka laun hjá kaupgreiðanda og þeirri ábyrgð,
er kaupgreiðandi fellir á sig ef hann vanrækir
skyldur sínar samkvæmt ofansögðu, eða van-
rækir að halda eftir af launum upp í þinggjöld
samkvæmt því sem krafist er, en í þeim tilvik-
um er hægt að innheimta gjöldin hjá kaupgreið-
anda, svo sem um eigin skuld væri að ræða.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Sýs/umaðurinn í Kjósarsýs/u.
Strandgötu 3 1, Hafnarfirði.
Hdlfæða ©
UFR4KÆFA
SÍLD & FISKUR
Bergstaðcistræti 37 sími 24447
Rýmingarsala
Seljum nokkuð lítið gölluð raðstóla- og horn-
sófasett með miklum afslætti. Höfum einnig
ódýra svefnbekki og skrifborðssett.
MÝSMÍÐII SF.
Auðbrekku 63, sími 44600.
MOSKVICH
sendibifreið er svarið
ef þig vantar bil fyrir:
Sendisveininn. viðgerðarmanninn. verkstjórann.
mælingamanninn, sölumanninn. lagermanninn,
bóndabýlið, reksturinn og sjálfan þig.
Vegna þess að hann er
lipur sparneytinn og
ódýr i innkaupi.
Burðarþol: 400 kg.
Rúmmal farangursrýmis:
Lenqd: 1.53
Breíad: 1.25
Hæð: 0.80
HUSGAGNAVERZLUN
KRISTIÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
Laugavegi 13 Keykjavik sími 25870
ný húsgögn frá
Svíþjóð