Morgunblaðið - 23.01.1975, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANUAR 1975
23
öllu heldur að standa frammi
fyrir því almætti, sem hann trúði
svo einlæglega að stjórnaði lífi
okkar hér á jörð og einnig eftir
dauðann. Ég veit lika og trúi að
honum munu nú ljós ýmis sann-
indi sem hann leitaði eftir hér í
heimi, en hann var mikill leitandi
á sviði guðspekinnar. Og ekki
mun hann hafa verið óviðbúinn
þegar hann var kallaður burt.
Engum einum manni eigum við
hjónin og börnin okkar eins mikið
að þakka og Héðni mági og
„frænda“. Og ég trúi því staðfast-
lega að á því tilverusviði, sem sál
hans dvelur nú, skynji hann
hjartans þakklæti okkar allra
fyrir ógleymanlega, trausta vin-
áttu og bróðurþel i gegnum árin.
Góður Guð styrki nú eiginkonu
hans, son og tengdadóttur, barna-
börn, systkini og alia aðra ástvini
hans.
Mágkona.
Kveðja frá starfsfélögum.
Okkur setti hljóða á skrifstofu
Fasteignamats rikisins, miðviku-
dagsmorguninn 15. þ.m., þegar
okkur barst fregnin um andlát
starfsbróður okkar, Héðins
Friðrikssonar, sem andaðist á
heimili sínu að Goðatúni 21 í
Garðahreppi að kvöldi þess 14.
þ.m. á fimmtugasta aldursári.
Það var að vísu á allra vitorði að
Héðinn hafði ekki gengið heill til
skógar nokkur liðin ár. En engu
að síður finnst okkur að brottför
hans nú úr þessum heimi hafi
borið svo brátt að, að við eigum
erfitt með að trúa.
Engu að síður liggur staðreynd-
in fyrir, stóllinn hans Héðins er
auður.
Hlýju handtökin hans verða
ekki fleiri að þessu sinni. Blómin
sem hann færði okkur úr garðin-
um heiman frá sér úr Goðatúninu
eru fölnuð og við getum ekki
vænzt fleiri að sumri. Viðkunnan-
lega og velviljaða brosið hans
mætir okkur ekki oftar. Allt þetta
eru staðreyndir, sem við eigum
bágt með að sætta okkur við, en
ekki verða umflúnar.
Við höfum séð á bak starfs-
félaga, sem við söknum. En eftir
situr þó minningin um góðan
dreng og hún verður ekki frá
okkur tekin.
Við sendum konunni hans, syni
og öðru venzlafólki okkar dýpstu
samúðarkveójur og biðjum Guð
að styrkja þau i djúpri sorg.
Útsala
Karlmannaföt frá kr. 3.500.-. Stakir jakkar frá
kr. 1.975.-. Terelynebuxur frá kr. 1.375.-.
Úlpur frá kr. 2.000.-. Sokkar kr. 80.-. Skyrtur
o.fl. Karlmannaföt nýkomin, glæsilegt skandin-
avískt snið kr. 8.990. —
Andres, Skólavörðustíg22.
Pípuorgel til sölu
Til sölu er orgel Fíladelfíukirkjunnar í Reykjavík.
Orgelið hefur 5 raddir og er frá Orgelverksmiðj-
unni Steinmeyer & Co í Vestur Þýskalandi.
Nánari upplýsingar veitir Orgelleikari safnaðar-
ins Árni Arinbjarnason, sími 23702.
Ævintýraheimur
húsmæðra
Kryddhúsið í verzl. okkar í Aðalstræti 9.
Dröfn Farestveit leiðbeinir um notkun
hinna ýmsu kryddtegunda kl 2—6 í
dag. Verið velkomin.
Matardeildin,
Aöalstræti 9.
m
Matarpeningamir ná
lengra í Kaupgarði
Libby's tómatsósa ................ Kr. 119,-
Ritz kex .......................... — 78,-
Jacob'stekex ....................... — 73,-
Molasykur ........................ — 214,-
Hveiti 5 Ibs........................ — 178,-
Hveiti 10 Ibs....................... — 359,-
Saltkjöt í 2 og 4 kg. plastfötum.
Saltað folaldakjöt.
Úrval kjötvöru
Opið í dag: 9 — 1 2 og 1 3 —18.
Á morgun: 9 — 1 2 og 1 3 — 22.
Laugardag: 9 —12.
Kaupgardur
Smiöjuvegi 9 Kópavogi
MÓÖAKVÖLD
STJORNUSALUR
Franskur kvöldverður í kvöld
Menu
Matseðill
Le feuilletté de crevettes Nantua
Bakaðar rækjur í smjördeigi
La darne de saumon á l 'auragaise
/nnbakaður lax
0
Le filet de renne á l armagnac
et porto
Hreindýrafillet
0
Les paupiettes de veau Arlésienne
Fylltar kálfakjötsneiðar
0
Fromages et fruits assortis
Úrval íslenskra osta — ávextir
0
Le vacherin glace á l'orange
Appelsínu — ísterta
0
Les crépes flambées au Grand Marnier
Logandi pönnukökur
é
Jónas Þórisson
við orgelið.
Borðapantanir
í sima 25033.
BtJTASALA - ÚTSALA
allt á ‘2 virði