Morgunblaðið - 23.01.1975, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANUAR 1975
31
IMIWTTIR MORGOilABSIIIIS
Séð fram á Ármannssigur,
en Víkingur sneri taflinu við
Stefán Halldórsson er nú oró-
inn einn bezti maður Víkings-
lidsins, bæói í sókn og vörn.
Þessa mynd tók Friðþjófur
Helgason í leik Víkings og Ar-
manns í fyrrakvöld. Stefán
hefur snúió á Ármenningana
Hörð Harðarson og Kristinn
Ingólfsson og skorar eitt
marka sinna.
Skarphéðinn Öskarsson 3, Einar
Magnússon 3, Jón Sigurðsson 1,
Páll Björgvinsson 1, Erlendur
Hermannsson 1.
Mörk Armanns: Björn Jó-
hannesson 7, Hörður Harðarson 3,
Jón Astvaldsson 3, Hörður Krist-
insson 2, Pétur Ingólfsson 2, Jens
Jensson 1, Kristinn Ingólfsson 1.
Brottvlsanir af velli: Kristinn
Ingólfsson og Jón Astvaldsson, i 2
min. Björn Jóhannesson í 2x2
min. Páll Björgvinsson og Skarp-
héðinn Öskarsson, Víking i 2 mín.
Misheppnuð vitaköst: Engin.
Dómarar: Hannes Þ. Sigurðsson
og Valur Benediktsson. Var dóm-
gæzla þeirra ekki upp á það bezta
— of mikil ónákvæmni.
-stjl.
Unglingasundmót
UNGLINGASUNDMEISTARA-
MÓT Reykjavíkur verður haldið
sunnudaginn 26. janúar n.k. og
hefst kl. 15.00. Sundgreinar verða
samkvæmt reglugerð. Undanrásir
fara fr§m deginum áður í þeim
greinum sem þarf. Þátttaka til-
kynnist Flosa Sigurðssyni.
Sundknattleiksmeistaramót
Reykjavíkur hefst 31. janúar í
Sundhöll Reykjavikur.
Unglingamót
UNGLINGAMÖT í svigi verður
haldið við Skíðaskálann i Hvera
dölum n.k. laugardag 25. janúar.
Nafnakall verður við skálann kl.
13.00. Þátttökutilkynningar send-
ist til frú Ellen Sighvatsson,
Antmannstig 2, fyrir fimmtu-
dagskvöld 23. janúar., ásamt þátt-
tökugjaldi kr. 200,00 fyrir kepp-
anda. Keppl verður unt gla'sileg
verðlaun, sent verða bikarar til
eignar ásamt verðlaunapeningum
fyrir hvert mót, en unglingamót-
in i vetur ntunu verða þrjú. Sport-
val h.f. gefur verðlaunabikarana.
Mótið fer fram á vegum Skíða-
félags Reykjavíkur.
Ólafur,
Gunnar
og Pálmi
í NM-lands-
liðið
BIRGIR Björnsson, landsliðs-
þjálfari og landsliðseinr aldur í
handknattleik hefur nú valið tvo
markverði til keppni á Norður-
landameistaramótinu. Voru það
þeir Ólafur Benediktsson, \ al og
Gunnar Einarsson úr Haukum
sem fyrir valinu urðu. Þá hefur
Birgir valið einn útileikmann til
viðbótar þeim sem áóur höfðu
verið valdir, og er það Pálmi
Pálmason, Fram.
Birgir sagði í viðtali við
Morgunblaðið i gær. að hann væri
ekki endanlega ákveðinn í því
hvort hann veldi einn markvörð í
viðbót til fararinnar, en hins veg-
ar væri mjög sennilegt að einurn
útileikmanni yrði bætt við. Myndi
hann taka unt það ákvörðun fljót-
lega.
• ♦
Knattspyrnumót
INNANHUSSMöT í knattspynut
fer fram í lþróttahúsinu i Njarð-
vikuni 26. janúar n.k. og hofst kl.
10.00. Þátttökulið í karlaflokki
veröa Reynir, Viðir, Grindavik og
IBK. og i kvennaflokki keppa lið
frá Grindavik og IBK. Búast ntá
við skemmtilegri keppni i báðum
flokkum.
TVEIR slæmir kaflar Armenn-
inga f leik þeirra við Víkinga f 1.
deildar keppni Islandsmótsins í
handknattleik i Laugardalshöll-
inni í fyrrakvöld, varð þess vald-
andi, að þeir fengu hvorugt stigið
sem þarna var um barizt. Eftir
gangi leiksins hefði þó ekki verið
nema sanngjarnt að þeir fengju
a.m.k. annað, þar sem þeir voru
öllu skárri aðilinn, ef gera á upp
á milli liðanna. Þessir slæmu
leikkaflar Armenninga komu
báðir f seinni hálfleik. 1 byrjun
hans hafði Ármann komist 4
mörkum yfir, en á skammri
stundu tókst Víkingum að jafna,
og þegar leið að lokum leiksins og
staðan var jöfn, gerðu Armenn-
ingarnir sig seka um röð af mis-
tökum, sem færði Vfkingum
tveggja marka forystu f leiknum.
Hana tókst svo Ármenningum að
vinna upp, en Víkingarnir áttu
sfðasta orðið með mörkum Páls og
Sigfúsar.
Þess ber að geta, að þegar Ar-
menningar misstu niður fjögurra
marka forystu sína, voru þeir um
tíma tveimur færri á vellinum.
Orsakaðist það bæði af klaufaleg-
um brotum Ieikmannanna og
ákaflega ströngum dómum þeirra
Hannesar Þ. Sigurðssonar og Vals
Benediktssonar, sem voru ekki í
essinu sinu í þessum leik, og
gerðu jafnvel fleiri mistök en
leikmenn liðanna.
Leikurinn var annars heldur
misjafn að gæðum. Öðru hverju
náðu bæði liðin að sýna ágætan
leik og skora gullfalleg mörk, en
þess á milli, var sem um hreina
byrjendur í handknattleiksíþrótt-
inni væri að ræða. Er ekki óeðli-
legt að slíkt komi fyrir, þegar
tekið er tillit til þess, hve mikil
spenna er orðin f 1. deildar
keppninni, og er ekki ólíklegt að
þeir leikir sem eftir eru í mótinu,
kunni að bera keim af hinni æðis-
legu stigabaráttu.
Meðan Ármenningar voru
sæmilega rólegir, höfðu þeir
betur í leiknum. Þeir léku þá upp
á að skora i sóknum sínum, og
börðust vel i vörninni. Þrátt fyrir
að sóknarlotur Ármanns væru
nokkuð langar á meðan á þessu
stóð, var alltaf í þeim töluverð
ógnun, þannig að aldrei varð
deyfðarsvipur á leiknum. Þegar
svo Víkingar voru með knöttinn
var ,,keyrt“ á fullri ferð, en Vík-
ingar hafa tekið hraðann sem eitt
af vopnum sínum í leikjunum og
ber það greinilegan árangur, auk
þess sem andstæðingum Vikinga
virðist ákaflega erfitt að halda ró
sinni, þegar mesti fyrirgangurinn
er í þeim. Með hraðanum tókst
Víkingum lika oft að opna vel
Ármannsvörnina, og fékk t.d. Sig-
fús Guðmundsson góð tækifæri i
vinstra horninu, þegar Víkingum
hafði heppnast að leika án niður-
stungna fyrir framan vörnina, og
sendu siðan snöggar sendingar út
til hans.
Sem fyrr greinir höfðu Ar-
menningar lengst af forystu i
leiknum, og léku vel, sérstaklega i
fyrri hálfleiknum, er þeim tókst
að nýta hinn mikla stökkkraft og
skothörku hins unga leikmanns
liðsins, Harðar Harðarsonar.
Skoraði Hörður nokkur sérlega
falleg mörk í hálfleiknum, —
stökk upp fyrir utan punktalinu
og sendi sannkölluð þrumuskot í
markið. I seinni hálfleiknum tóku
Víkingar Hörð úr umferð, og við
það dofnaði mikið yfir Ármanns-
liðinu, sennilega mest af því að
þessi ráðstöfun Víkinga virtist
koma þeim á óvart. Eftir að Vík-
ingur hafði jafnað 14—14, hélzt
leikurinn í jafnvægi til loka og
var ■'íaðan t.d. 19—19, þegar
aðeins ein minúta var til leiks-
loka. Þá tókst Páli að skora fyrir
Víking og Armenningar reyndu
örvæntingarfullt að jafna, en
misstu þá knöttinn, Víkingur náði
hraðaupphlaupi og Sigfús innsigl-
aði sigurinn.
I STUTTU MÁLI:
Islandsmótið 1. deild.
Laugardalshöll 21. janúar
URSLIT: Vikingur — Armann
21—19 (10—12)
Gangur leiksins: 29. Sigfús 10:11
Mín. Víkingur Armann 30. 10:12 HörðurH.
Hálfleikur
M(n. Víkingur Árni ann .
3. Kinar 1:0 34. 10:13 Jón A.
4. 1:1 Pétur 36. 10:14 Hörður K.
5. 1:2 Björn 38. Stefán (v) 11:14
7. Kinar 2:2 39. Sigfús 12:14
8. 2:3 Pétur 41. Stefán (v) 13:14
9. 2:4 llörður II. 43. Stefán 14:14
9. Stefán 3:4 44. 14:15 Björn
10. 3:5 Björn 45. Sigfús 15:15
11. Sigfús 4:5 47. 15:16 Kristinn
13. 4:6 Jón 47. Jón S. 16:16
14. Stefán 5:6 48. 16:17 Björn
14. 5:7 Hörður II 52. Skarphéðinn 17:17
14- Skarphéðinn 6:7 54. Kinar 18:17
16. Krlendur 7:7 55. Stefán 19:17
17. 7:8 Björn 57. 19:18 Hörður K
18. Skarphéðinn 8:8 59. 19:19 Björn
21. 8:9 Jón 59. Páll 20:19
22. 8:10 Björn 60. Sigfús 21:19
24. 8:11 Jens Mörk Víkings : Stefán Halld(
27. Stefán 9:11 son 7, Sigfús Guðmundsson
LIÐ VlKINGS: Rósmundur Jónsson 1, Magnús Guðmundsson 2, Jón
Sigurðsson 2, Einar Magnússon 2, Skarphéðinn Öskarsson 2, Sigfús
Guðmundsson 3, Páll Björgvinsson 2, Erlendur Hermannsson 1,
Stefán Halldórsson 3, Þorbergur Aðalsteinsson 1, Ólafur Jónsson 1,
Sigurgeir Sigurðsson 2.
LIÐ Ármanns: Ragnar Gunnarsson 2, Olfert Naabye 1, Björn
Jóhannesson 3, Hörður Harðarson 3, Pétur Ingólfsson 2, Jón Ast-
valdsson 2, Jens Jensson 1, Hörður Kristinsson 3, Kristinn Ingólfs-
son 2.
Danir velja NM-lið sitt
DANIR hafa nú valið landslið sitt
fyrir Noróurlandameistaramótið
í handknattleik, en Danirnir Ifta
á mót þetta sem fyrsta verkefni
landsliðsins i undirbúningi þess
fyrir undankeppni næstu
Olympfuleika. Liðið verður
þannig skipað:
Flemming Lauritzen, Kay
Jörgensen, Anders Dahl, Uarsten
Lund, Jörgen Frandsen, Lars
Bock, Bent Larsen, Heine Sören-
sen, Palle Jensen, Sven O. Schink,
Arne Andersen, Ole Eliasen,
Thor Munkager og Boy Sten-
skjær.
Þegar dönsku blöðin skýrðu frá
vali liðsins, gátu þau þess jafn-
framt, að tvisýnt yrði að teljast að
Danir kæmust f úrslit i keppn-
inni. Norðmennirnir gætu verið
erfiðir, og það þyrfti að leika af
miklu öryggi gegn þeim. Hins
vegar væri ekkert vafamál hver
kæmist í úrslit i „veikari" riðl-
inum. Það yrðu Svíar, og sigruðu
Danir Norðmennina ættu þeir nú
að eiga góða möguleika á að sigra
Svia.
Svíar hafa einnig valið lið sitt
fyrir keppnina, en þvi miður
hefur ekki tekizt að fá uppgefin
nöfn leikmannanna. Vitað er þó,
að um helmingur leikmannanna
eru nýliðar, þar sem liðið sent
tekur þátt i Norðurlandamótinu á
aó vera að mestu óbreytt fram
ýfir næstu heimsmeistarakeppni.