Morgunblaðið - 13.05.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MAl 1975
7
Nú eru liðin 50 ár síð-
an Alfred Wegener gaf út
„Uppruni meginlanda og
úthafa". Þar kynnir
hann og rökstyður þá
kenningu, að meginlönd-
in hafj í öndverðu mynd-
að heild, sem síðan hafi
rofnað og flotið sundur.
Auðvelt er að sjá
hvernig strandlengjur
Afríku og Suður-
Ameríku mynda eins og
samlæga bita í púslu-
spili, en hugmynd Weg-
eners sætti heiftarlegum
andbyr jarðfræðinga.
Scientific American
(febrúar 1975) birtir
grein eftir enskan jarð-
fræðing, A. Hallam að
nafni, sem freistar þess
að skýra hversvegna
kenningin mætti jafn
harðri og óbilgjarnri af-
stöðu.
Alfred Wegener, faðir einnar
glæsilegustu hugmyndar jarðvis-
indanna. Hvers vegna brugðust
jarðfræðingar jafn illa við henni
og raun varð á?
ir hana vísindalegum stoð-
um.
1912 varpaði hann fram
kenningunni opinberlega og
1915 gaf hann út „upphaf
meginlanda og 'úthafa'' (Die
Entstehung der Kontinente
und Ozeane). Viðtökurnar
voru í fyrstu frekar neikvæð-
ar, en það gerist ekki fyrr en
aldarfjórðungi síðar, að jarð-
vísindamenn snúast sem
einn maður gegn Wegener.
1 928 birtir H. Jeffreys við
Cambridge-háskóla ritgerð
um kenninguna og tætir
sundur aflfræðilegar for-
Baídur Hermannsson
FÓLK OG VÍSINDI
)
Alfred Wegener og
rek meginlandanna
Wegener fæddist í Berlín
1880, nam raunvisindi. við
háskólana í Heidelberg,
Innsbruck og Berlín. Hann
hlaut doktorsgráðu sína fyrir
rannsóknir í stjörnufræði en
starfaði obbann af lifi sinu
við veðurfræði, sem þá var
barnung vísindagrein. Gull-
öld sérfræðinganna var ekki
runnin upp, og snjall vís-
indamaður sinnti iðulega
verkefnum úr greinum sem
nú þættu harla fjarskyldar.
Wegener kynnti sér aldrei
jarðfræði að neinu ráði. Það
er alveg öruggt að sá hat-
rammi andróður, sem kenn-
ing hans hlaut meðal jarð-
fræðinga stafaði að miklu
leyti frá menntunarleysi
hans í fagi þeirra.
Þegar horft er um öxl virð-
ist okkur Wegener einmitt
njóta góðs af þessari gloppu
í menntun sinni: Hann til-
einkaði sér hvorki vafasamar
kennisetningar jarðfræðinn-
ar né varð samdauna íhalds-
semi og hleypidómum stétt-
arinnar, heldur nálgaðist
verkefnið með fersku hugar-
fari.
Vitnisburður
steingervinga
Wegener studdi hugmynd
sína ýmiskonar náttúru-
fræðilegum rökum. Talandi
dæmi eru steingervar leifar
lítillar eðlu, Mesosaurus,
sem lifði fyrir 270 milljón
árum. Þær finnast I Brazillu
og Suður-Afríku og hvergi
annars staðar. -Þær eru vís-
bending um að þessi lands-
svæði hafi legið saman end-
ur fyrir löngu.
Jarðfræðingar hneigðust
til að skýra svona fundi með
landhryggjum eða brúm,
sem sokkið hefðu I jarð-
skorpuna. Wegener hafnaði
þessum skýringum og sýndi
að þær brytu í bág við ýms
grundvallaratriði jarðeðlis-
fræðinnar.
Wegener benti ennfremur
á samsvörun bergtegunda i
Afríku og Suður-Ameríku,
m.a. sérstakar klappir æva-
fornar, sem falla eins og flís
við rass ef maður hugsar sér
álfurnar lagðar hlið við hlið.
Syndaflóðið
Víst má telja að menn hafi
veitt athygli samsvörun
strandlengjanna við Atlants-
haf um leið og sæmileg
landakort lágu fyrir. Árið
1858, ári áður en Darwin
hnekkti sköpunarsögunni,
fitjaði Antonio Snider-
Pellegrini upp á þeirri skýr-
ingu að meginlöndin hafi
upphaflega legið saman, en
flotið sundur I syndaflóðinu.
Eflaust hafa margir fræði-
menn gælt við hugmyndina
um rek meginlandanna fyrir
daga Wegeners, en hann
varð fyrstur til að renna und-
sendur hennar, þ.e.a.s. út-
listanir Wegeners á þeim
kröftum sem stíað hefðu álf-
unum sundur. Þessi atriði
höfðu raunar. alltaf verið
veikasti hlekkur kenningar-
innar. Um svipað leyti þing-
uðu bandarískir jarðfræðing-
ar og fundu henni þá flest til
foráttu.
Staðreyndir bera
fordóma ofurliði
Wegener lézt 1 930 og þá
stóðu leikar þannig, að eftir-
lætisbarn hans, kenningin
um rek meginlandanna var
almennt fordæmd af jarð-
fræðingum. Þeir hikuðu ekki
við að lýsa henni sem óvís-
indalegri hégilju og grautar-
legum heilaspuna. Einkum
kvað rammt að þessari öfga-
fullu afstöðu í Bandaríkjun-
um.
Wegener sjálfur virðist
hafa tekið mótlætinu með
stakri ró og treyst þvl að
fordómarnir myndu að lok-
um víkja fyrir sannleikanum.
Sú varð líka raunin. Snjallir
vísindamenn tóku upp þráð-
inn, endurbættu hugmyndir
Wegeners, söfnuðu ríkuleg-
um vitnisburði og leiddu
fram skotharðar röksemdir.
Á síðustu 10—20 árum
hafa svo jarðvisindin gert
kenninguna um rek megin-
landanna að grundvallaratr-
iði í þróunarsögu jarðskorp-
unnar. Samhliða hafa
vísindin ánafnað Alfred
Wegener verðugan sess í
sögu sinni. Hann er fallegt
dæmi um það, hvernig
ferskur og skapandi hugur
leiðir hjá sér ríkjandi for-
dóma og fæðir frjósamar
hugmyndir.
Viðbrögð jarðfræðinga
þeirra tíma eru víti til varn-
aðar, dæmi þess hvernig
tröllatrú á kennisetningum,
íhaldssemi og ósanngirni
hindra eðlilegar framfarir.
Nudd- og snyrtistofa
Ástu Baldvinsdóttur
Hrauntungu 85, Kópavogi.
Andlitsböð,
húðhreinsun,
fót- og handsnyrting.
Megrunar- og
afslöppunar-
nudd og nudd
við vöðvabólgum.
VIL VEKJA SERSTAKA
ATHYGLI Á:
10 tíma megrunar- og afs/öppunar-
kúrum.
Nudd, sauna, vigtun mæling og
matseði/l.
OPiÐ TIL KL. 10 ÖLL KVÖLD.
Bílastæði. Sími 40609.
0STRATFORD
E N S K I R
PENINGASKÁPAR
þjófheldir — eldtraustir
heimsþekkt —
viðurkennd framleiðsla.
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919
ÞESSIORÐ YIÐ
HURÐASMIÐI ?
Zig—Zag er aðferð við spón-samlímingu, sem
þýðir raunverulega minni slípun og þykkari
spón. Þykkur og fallegur spónn gerir muninn
þegar um útlit hurðarinnar er að ræða.
Krullur má finna innan í hurðum okkar, þar sem
krullur í fylkingu gera hurðarflötinn jafnari og
hurðina traustari.
Bakstur á hins vegar við lakkið. Allar okkar
hurðir eru lakkaðar í lökkunarvél, og síðan er
lakkið bakað í ofni við 80° hita. Innbakað lakk
skilar yfirborðinu sterku og áferðarfallegu.
Komið og skoðið framleiðsluna fáið verðtilboð
— kynnið yður afgreiðslutímann.
SELKÓ INNIHURÐIR — GÆÐI í FYRIRRUMI
frn SIGURÐUR
Wj) ELÍASSON HE
AUÐBREKKU 52,
________KÓPAVOGI, SÍMI 41380_