Morgunblaðið - 13.05.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MAl 1975
13
Hliómdeild
Will o'the wisp
Straight shooter
Pretty
foot
Ian Hunter
Playing
possom
^An evening
with
John Denver
Wizard of OS
KARNABÆR
Híjómdeíid.
Austurstræti 22
Laugaveg 66
h,. Sími 28155^
bók Eggerts
og Bjarna
Dagsferðir Kynnis-
ferða árið um kring
Aftari röð frá vinstri: Tómas Zoéga. Ferðaskrifstofa Zoéga, Steinn Lárusson, Ferðaskrifstofan
Úrval; Kristján Jónsson, Kynnisferðir s.f.; Jón Guðnason, Ferðaskrifstofan Sunna; Fremri röð
frá vinstri: Kjartan Lárusson, Ferðaskrifstofa rfkisins; Birgir Þorgilsson, Flugleiðir H.F. og
örn Steinsen, Ferðaskrifstofan Útsýn.
Styður breytingar-
tillögur við fóstur-
eyðingafrumvarpið
Félagsfundur I Suðurlands-
deild Hjúkrunarfélags Islands,
sem haldinn var á Selfossi fyrir
skömmu, hefur lýst yfir sam-
þykki sfnu við þær breytingar,
sem fram hafa komið við „Frum-
varp til laga um ráðgjöf og
fræðslu varðandi kynlff og barn-
eignir og um fóstureyðingar og
ófrjðsemisaðgerðir".
I fréttatilkynningu frá félaginu
segir, að fundurinn styðji enn-
fremur greinargerð Læknafélags
tslands um þetta mál. Þá vikfund-
urinn koma á framfæri þökkum
til þeirra mörgu, sem lagt hafa
máli þessu lið, og sérstaklega
Guðmundi Jóhannessyni lækni og
Huldu Jensdóttur forstöóukonu.
FYRIRTÆKIÐ Kynnisferðir s.f. í
Reykjavfk var stofnað árið 1968 í
þvf augnamiði að annast dags-
ferðir með ferðafólk um Reykja-
vfk og nágrenni og um suður-
landsundirlendið. Fyrirtækið er
sameignarfélag sem heldur uppi
útsýnisferðum allan ársins hring
og er sú þjónusta mikið notuð, t.d.
af viðdvalarfarþegum Loftleiða.
Á framhaldsaðalfundi félagsins
Danir gefa
frummyndir
úr Ferða-
John Lennon — Rock 'n Roll
Barry White — Ný plata
America — Hearts
Lynard Skynard — Nothing Fancy
Humble Pie — Street rats
Led Zeppelin — Ný plata
Joan Baes — Dimonds
Sunshine — Soundtrack
Sting — Soundtrack
More American Graffiti.
í gær var formlega gengið frá
eignaraðild Flugleiða H.F. að
Kynnisferðum s.f., en aðrir eig-
endur sameignarfélagsins eru,
Ferðaskrifstofa rikisins, Ferða-
skrifstofan Sunna, Ferðaskrif-
stofa Zoéga, Ferðaskrifstofan Ut-
sýn og Ferðaskrifstofan Urval.
Stjórn fyrirtækisins skipa aðilar
frá öllum þessum fyrirtækjum.
Stjórnarformaður er Birgir Þor-
gilsson, varaformaður Kjartan
Lárusson og ritari Örn Steinsen.
Framkvæmdastjóri Kynnisferða
s.f. er Kristján Jónsson.
Afgreiðsla fyrirtækisins er í
Hótel Loftleiðum.
HIÐ KONUNGLEGA danska vís-
indafélag (Det kongelige danske
Videnskabernes Selskab) hefur
með bréfi til forseta Islands, dr.
Kristjáns Eldjárns, hinn 17. mars
sfðastliðinn tilkynnt honum þá
ákvörðun vísindafélagsins að gefa
islensku þjóðinni allar frum-
myndir úr Ferðabók Eggerts
Ólafssonar og Bjarna Pálssonar.
Forseti Islands þakkaði þessa
merku og mjög svo höfðinglegu
gjöf með bréfi til forseta danska
vísindafélagsins prófessors Bengt
Strömgren hinn 7. apríl síðastlið-
inn. Menntamálaráðherra hefur
þegar ákveðið I samráði við for-
seta tslands að gjöf þessi verði
varðveitt f Þjóðminjasafni Is-
lands.
Ferðabók Eggerts og Bjarna
kom fyrst út á dönsku á vegum
danska vísindafélagsins í Sorö ár-
ið 1772. Gerhard Schöning sagn-
fræðingur og Jón Eiríksson kon-
ferensráð bjuggu handritið til
prentunar. Á næstu þremur ára-
tugum kom Ferðabókin út á
þremur höfuðtungum Vestur-
Evrópu: þýsku, frönsku og ensku.
Bókin kom fyrst út á íslensku árið
1943 í þýðingu Steindórs Stein-
dórssonar frá Hlöðum og í annað
sinn á síðastliðnu ári í sérstakri
viðhafnarútgáfu. I öllum fyrri út-
gáfum höfðu birst eirstungur af
frummyndunum en í áðurnefndri
þjóðhátíðarútgáfu voru flestar
myndanna prentaðar i litum i
fyrsta skipti. Danska vísindafé-
lagið hafði lánað Bókaútgáfunni
Erni og Örlygi myndirnar hingað
til lands i þeim tilgangi. Nokkrar
myndanna höfðu þó birst i litum í
afmælisriti danska vísindafélags-
ins árið 1973 og í Arbók Hins
islenska fornleifafélags árið 1972.
Alls eru frummyndirnar um
120 auk uppdráttarins af Islandi.
Það er mikil vinsemd af hálfu
danska visindafélagsins í garð
íslendinga að færa þjóðinni þessa
höfðinglegu gjöf.
Menntamálaráðuneytið, 25. aprfl
1975.
Fulltrúaráðið vill
listdreifingarstöð
Fulltrúaráð Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga kom saman
til fundar dagana 29. og 30. apríl.
Á fundinum var lýst stuðningi við
þá hugmynd Bandalags íslenzkra
listamanna, að komið yrði á fót
sérstakri listdreifingarmiðstöð og
talið að slik miðstöð auðveldaði
mjög dreifingu listar um landið.