Morgunblaðið - 13.05.1975, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MAl 1975
Mínar innilegustu þakkir ti/ allra þeirra félaga-
samtaka og annarra vina minna sem heiðruðu
mig á margvíslegan hátt á 100 ára afmælisdegi
mínum 8. maí s.l. Guð blessi ykkur öll.
JónA. Ó/afsson,
fyrrv. húsgagnasmiður.
Til sölu
SAAB 99
árgerð 1970 bifreiðin hefur verið í góðri umhirðu og
litur þar af leiðandi vel út.
Upplýsingar i síma 25850 kl. 9—1 7 eftir kl. 1 7 í síma
27925.
LÆRIÐ VELRITUN
Ný námskeið eru að hefjast. Kennsla eingöngu á
rafmagnsritvélar Engin heimavinna. Innritun og
upplýsingar i simum
41311 og 21719.
Vélritunarskólinn.
Suðurlandsbraut 20,
Þórunn H. Felixdóttir
Ibúðir og hús
Höfum á söluskrá ýmsar stærðir fasteigna í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Hafnar-
firði. Komið og kynnið ykkur sölulistann. Tök-
um íbúðir á sölulista alla daga. Verðmetum
samdægurs, ef óskað er.
SKIPA & FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
Mjlstrzti 9 Midbzjarmarkjdinum
simí 17215 heimasimi 82457
Fyrirliggjandi:
Viðarþiljur og loftaklæðing:
Palisander, gullálmur, hvitt mahogni, birki og fura
Panelkrossviður:
Gullálmur, eik hnota og palisander
Heinola vegg- og loftplötur:
Undir málningu, fasaðar og nótaðar.
PÁLL ÞORGEIRSSON & CO.
Ármúla 27 —
Símar 86-100 og 34-100.
NYTT — NYTT
Þýskt patent
Megrunarfötin
sem grenna
yður á
þægilegan
hátt
UFSTYKKJABUÐIN
Laugaveg 4.
Jörundur Gestsson
á Hellu — 75 ára
I dag er 75 ára einn af forystu-
mönnum Strandamanna,
Jörundur Gestsson á Hellu. Hann
er fæddur á Hafnarhólmi í Kald-
rananeshreppi 13. maí árió 1900.
Þar i sveit hefir hann aliö aldur
sinn. Hann var bóndi á Hellu á
Selströnd frá 1921 þar til hann
fyrir nokkrum árum brá búi og
Ragnar sonur hans tók viö jörð-
inni. En enn á hann heima á
Hellu og enn vinnur hannþarað
bátasmíði, sem hann stundaði alla
tið með búskapnum.
Jörundur á Hellu er úr þeim
efnivið búinn, að á hann hafa
fallið mörg störf í þágu sveitung-
anna. Hann er hreppstjóri í Kald-
rananeshreppi frá 1950 og for-
maður sjúkrasamlagsins þar I
sveit frá 1955 svo að eitthvað sé
nefnt. Hann er áhugamaður mik-
ill um allt, er horfir til framfara
og hagsældar heimabyggó sinni.
Hann er hjálpfús og hollráður og
vill hvers manns vanda leysa.
| Margra leiðir hafa því legið að
En Jörundur á Hellu er ekki
staðbundinn við heimabyggðina í
áhugamálum sínum og athöfn-
um. Hann hefir látið þjóð-
málin til sin taka og verið i
baráttusveit sjálfstæðismanna
i Strandasýslu i blíðu
og stríðu. Þannig bar fundum
okkar Jörundar saman. Ég
sá hann fyrst á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins árið 1953.
Mér er minnisstæður maðurinn á
málflutningur hans á þeim fundi.
Þar fór saman sú glettni og
alvara, sem mér hefir síðan
fundist vera svo samtvinnað í
skapgerð og persónuleika
Jörundar á Hellu.
Enginn er tryggari hugsjónum
sjálfstæðisstefnunnar en Jör-
undur á Hellu. Skoðanir hans
standa á traustum mál-
efnagrundvelli. Málefni eru met-
in að verðleikum og menn
eftir manngildi, hvar í flokki sem
þeir standa. Þegar Strandamenn
kvöddu alþingismann sinn
Hermann Jónasson, fyrrv.
forsætisráðherra „að loknu starfi
fyrir Strandamenn á þingi“ var
það Jörundur á Hellu, sem flutti
honum kveðju Strandamanna í
ljóði.
Jörundi er margt til lista lagt og
kannski er hann fyrst og fremst
listamaður. Bátasmiði hans hefir
ekki einungis verið listasmiði
heldur er hann og skáld gott. Arið
1955 gaf hann út ljóðabók, Fjaðra-
fok, Ijósprentað handrit, skraut-
ritað af höfundi. Þar fór saman
efni og handbragð listaskrifarans.
Jörundur Gestsson er gæfu-
maður. Hann á góða konu og
mannvænleg börn. Hann kvæntist
Elínu Lárusdóttur árið 1921. Hún
hefir búið manni sínum heimilið
á Hellu, sem ber vott um mikla
smekkvísi og listhneigð og er
alrómað fyrir gestrisni við þá
mörgu, sem þar hafa boðið að
garði fyrr og siðar.
Jörundur á Hellu er traustur og
tryggur vinum sínum. Þess hefi
ég notið. Ég er einn þeirra mörgu
vina, sem færa honum þakkir og
heilla- og hamingjuóskir á afmæl-
inu i dag.
Þorv. Garðar Kristjánsson.
— Sólon
Framhald af bls. 29
S.I.B. og J. Riuttamaki og Krist-
ján Thorlacíus gáfu fána sam-
banda sinna.
Á Kjarvalsstöðum þáðu gestir
veitingar. Auk þess voru sögu-
sýningar af 200 skyggnum er
sýndu starfsemi samtakanna
undanfarin 40 ár.
Fimmtudaginn 24. aprll var
fundur I stjórn Norræna banka-
mannasambandsins. I því sam-
bandi komu til landsins 27
bankamenn frá norðurlöndum.
M.a. sem samþykkt var á fund-
inum f Reykjavík var að NBU
stæði fyrir könnun á stöðu kon-
unnar á vinnumarkaðnum á
norðurlöndum.
I 29. þingi S.I.B. voru sam-
þykktar nokkrar ályktanir og
fjölluðu þær um kjarasamn-
ingamál, kjaramál, jafnréttis-
mál, fjárhagsár og atvinnulýð-
ræði.
JHorgtmbTaMfc ^ «
mORCFRLDRR
mÖCULEIKR VÐRR
Hellu.
Hjartans þakklæti til allra, sem
glöddu mig á sjötíu ára afmæli
minu 9. maí.
Guð blessi ykkur
Kristín María Kristins-
dóttir,
Hringbraut 112.
Skaftfellingar
Mjög áríðandi fundur verður haldinn i Skaftfellingafélaginu fimmtudag-
inn 15. mai kl. 20:30 i félagsheimili Hreyfils. Gengið upp frá
Grensásvegi. Tekin verður ákvörðun um kaup á húsnæði fyrir félagið.
Stjórnin.
Leiguíbúð óskast
Óska eftir 4ra—5 herb. ibúð æskilegt að bilskúr fylgi. Helzt i
austurbænum t.d. í Hliðarhverfi. Há leiga i boði og fyrirframgreiðsla, ef
óskað er. Upplýsingar i sima 26085 frá 1 1—12 og 19—20 næstu
daga.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „sem fyrst — 6893".
Nýleg
traktorsgrafa
til sölu. Uppl. í síma 74870.
Nýtt fiskiskip til sölu
142 lesta byggt 1974.
207 lesta byggt 1 964.
105 lesta byggt 1 967. Mjög gott togskip.
101 lesta byggt 1960. Austur-þýzkur.
75 lesta með nýrri vél.
Eikarbátar:
103 lesta byggður 1963.
75 lesta endurbyggður 1971
30 lesta byggður 1973.
20 lesta byggður 1971,
12 lesta byggður 1972. Plankabyggður.
1 1 lesta Bátalónsbátur 1971.
Austurstræti 14, 3. haað,
, sími 22475 heimasími 13742.
Edda, Kópavogi
Bingó Bingó
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda, Kópavogi, heldur bingó i Sjálf-
stæðishúsinu við Borgarholtsbraut, miðvikudaginn 14. mai
n.k. kl. 20.30. Glæsilegir vinningar svo sem flugferð fyrir tvo
yfir Reykjavik og nágrenni. Símastóll o.m.fl. Allt sjálfstæðis-
fólk velkomið.
Stjórnin.
FISKISKIP
Félagslff
A
Farfuglar — Ferðafólk
17 —19 mai hvitasunnuferð
í Þórsmörk. Brottfararstaður
bilastæðið við Arnarhvol,
laugardag kl. 9.30.
Farfugladeild Reykjavikur,
Laufásveg 41, simi 24950.