Morgunblaðið - 13.05.1975, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MAl 1975
21
Kristinn Björnsson pressuliðsmaður sem
\I SIGllR
irusson nær að skalla frá, en Guðjón
óhann Torfason, pressuliðsmaður er við
Gunnarsson.
Keppt við 13 bióðir í sumar
Keppnistlmabil frjáláþróttafólks verður óvenjulega umfangsmikið
STJÓRN Frjálsfþróttasambands lslands hélt nýlega blaðamanna-
fund, þar sem kynnt var það helzta sem framundan er hjá fslenzku
frjálsíþróttafólki. Verður komandi keppnistfmabil mjög urnfangs-
mikið — sennilega það umfangsmesta í sögu fslenzkra frjálsfþrótta.
Kemur sér vel, að frjálsfþróttafólkið hefur f vetur búið sig sérstak-
lega vel undir komandi tfmabil. Má vænta þess, að næsta sumar
verði gott frjálsíþróttasumar, og mörg ný Íslandsmet lfti þá dagsins
ljós. Með æfingum sínum stefnir frjáfsfþróttafófkið að sjálfsögðu
að Olympíuleikunum í Montreal 1976, en að sögn Arnar Eiðssonar,
formanns Frjálsfþróttasambandsins, er vonazt eftir þvf að 8—10
fslenzkir frjálsfþróttamenn verði sendir á leikana. Frjálsfþrótta-
sambandið hefur enn ekki sett lágmörk fyrir keppni á leikunum, en
það verður gert alveg á næstunni. Verða þau lágmörk sennilega
svipuð þeim lágmörkum sem Alþjóða-Olympíunefndin hefur sett
sem skilyrði fyrir þátttöku fleiri en eins keppanda frá fandi f hverri
grein.
KEPPT VIÐ 13 ÞJÓÐIR
I sumar mun íslenzkt frjáls-
íþróttafólk keppa við 13 þjóðir í
landskeppni, og er þá talin með
þátttaka í Evrópubikarkeppni
karla, svo og landskeppni við
Skota í karla- og kvennagreinum
hér heima, keppni við Finna, Svía
og Norðmenn í Kalottkeppninni
og loks landskeppni í tugþraut við
Breta og Frakka og þátttaka í
Evrópubikarkeppni í tugþraut.
Þátttaka í Evrópubikarkeppni
kvenna og í fimmtarþraut kvenna
hefur hins vegar verið afþökkuð.
— Það er slæmt að þurfa að gera
slíkt á sjálfu kvennaárinu, sagði
Örn Eiðsson, — en ástæðan til
þess að við gerðum það er ein-
göngu sú að fjárskortur sniður
okkur þröngan stakk. Við getum
ekki tekið þátt í öllum þeim mót-
um semviðeigumvöláog vildum
vera með í, og við töldum réttast
að skera þennan þátt niður, enda
sennilega minnstir möguleikar
þar.
Auk þátttöku í áðurnefndum
mótum er áformuð þátttaka i
Norðurlandamóti unglinga i fjöl-
þrautum, sem haldið verður að
þessu sinni i Finnlandi og I
Evrópumeistaramóti unglinga
sem haldið verður í Aþenu, en
fjöldi þátttakenda í mótum þess-
um fer eftir afrekum keppenda.
Landskeppni byrjar óvenjulega
snemma í ár, þar sem fyrsta stór-
verkefnið verður þátttaka i
Evrópubikarkeppni karla sem
fram fer í Lissabon i Portúgal, 14.
og 15. júní. Auk íslendinga keppa
þar Belgia, Irland, Holland,
Portúgal, Spánn og Sviss. Þrjár
fyrstu þjóðirnar fara í undanúr-
slit, sem fram eiga að fara 12. og
13. júli. Litlar líkur eru á þvi að
tslendingum takizt að skipa sér í
þann hóp, en hins vegar ættu að
vera möguleikar á að sigra Irana í
keppninni og hefna þar með fyr-
ir naumt tap i landakeppni fyrir
þeim í fyrra.
Evrópubikarkeppni í tugþraut
fer svo fram i Barcelona 19. og 20.
júli. Þar keppa auk Islendinga:
Belgía, Irland, A-Þýzkaland, Bret-
land, Spánn og Sviss. Kalotten-
keppnin fer fram i Tromsö í
Noregi að þessu sinni laugardag
inn 26. og sunnudaginn 27. júli,
og að þessu sinni ættu tslending-
ar að eiga nokkra sigurmöguleika
í keppninni.
Aðalviðburðurinn hér heima i
sumar verður svo landskeppni við
Skotland með fullskipuðum
landsliðum bæði karla og kvenna,
en sú keppni fer fram á Laugar-
dalsvellinum þriðjudaginn 19.
ágúst og miðvikudaginn 20. ágúst.
Ef dæmt er eftir afrekum frjáls
íþróttafólks þjóðanna í fyrra,
ættu Islendingar að eiga nokkra
sigurmöguleika i þessari keppni.
Lokaverkefni frjálsiþrótta-
manna verðursvolandskeppni í
tugþraut sem fram fer í Wales 4.
og 5. október og verða keppinaut-
ar okkar þar frá Bretlandi og
Frakklandi.
30 ÁRA AFMÆLI FRl
Frjálsiþróttasamband Islands á
30 ára afmæli árið 1977, og er
þegar hafinn undirbúningur að
þvi að minnast þeirra tímamóta í
sögu sambandsins á veglegan
hátt. Er það draumur þeirra FRl
manna að minnast afmælisins
með þvíaðsjáum framkvæmd á
einum riðli Evrópubikarkeppn-
innar, en með því yrði tryggt að
hingað kæmi hópur frjálsíþrótta-
manna í fremstu röð. Á þessu er
þó sá annmarki, að hérlendis er
ekki lengur til völlur, sem þykir
boðlegur til sSlíkrar keppni. Til
þess að unnt sé að halda slíkt mót
þarf að vera fyrir hendi völlur
með gerviefni á hlaupabrautum
og atrennubrautum.
Á 800. stjórnarfundi sinum í
vetur gerði FRl samþykkt um að
skora á borgaryfirvöld í
Reykjavík að setja slíkt gervi-
efni á hlaupabrautir Laugar-
dalsvallarins og auk þess
hafa svo forráðamenn sam-
bandsins rætt um máf* þetta
við borgarstjóra, sem tekið hefur
málaleitan þeirra vel. Talið er að
slíkar gervibrautir séu fljótar að
borga sig, þar sem þær þurfa
mjög lítið viðhald, og hafa t.d.
Norðmenn reiknað það út, að
brautirnar borgi sig upp á 2—3
árum.
FRÆÐSLUMÁL
OG DÖMARANÁMSKEIÐ:
Skortur á leiðbeinendum er
alvarlegt vandamál hjá FRl eins
og öðrum sérsamböndum ISl.
Grunnskóli ISl var þvi kærkomið
verkeíni og nú er stjórn FRI að
undirbúa námskeið fyrir þá sem
ljúka a-stiginu, sem er alhliða
undirbúningur fyrir allar
íþróttagreina. Sigurður Helgason,
formaður útbreiðslunefndar FRI,
er að vinna að þessu máli og er
hann á förum til Noregs um þess-
ar mundir til að afla sér fróðleiks
hjá norska sambandinu. Vænta
má námskeiðs frjálsíþróttaleið-
beinenda siðla sumars eða næsta
haust.
Þá hefur stjórn FRl ákveðið að
senda hæfa menn út á land til að
mennta frjálsíþróttadómara og
veita íþróttakennurum og öðrum
áhugamönnum upplýsingar um
grunnskóla ISI. Ákveðið hafði
verið að efna til
dómaranámskeiðs i frjálsum
íþróttum í Leirárskóla dagana 24.
til 29. mai, en þar sem mjög lítil
þátttaka var boðuð í námskeiði
þessu utan að landi, var ákveðið
að halda námskeiðið i Reykjavik.
og ferþaðframískrifstofuFRl i
íþróttamiðstöðinni. Þeirsem hug
hafa á þátttöku geta enn tilkynnt
sig á skrifstofu FRI, í síðasta lagi
þó fyrir 15. maí.
Þá má og geta þess að
leikreglur i frjálsum íþróttum
komu út í vetur. Þær er hægt að
fá keyptar hjá ISI og kostar hvert
eintak kr. 500.00.
Þeir verda I sviðsljösinu I sumar. FrjálsIþröUa-landsliðsmennirnir Friðrik Þör ðskarsson, Slefán Hallgrlmsson og Agúst Asgeirsson fá mörg
erfið verkefni ad glíma við.
FIFA setur á fót eftirlitsnefnd. sem
mun verða áhrifalaus frá upphafi
Áhugamannareglurnar í knatt-
spyrnu komu mjög til umræðu á
nýafstöðnum fundi framkvæmda-
nefndar FIFA, alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins. Tilefnið var
keppnin í knattspyrnu á Olym-
píuleikunum í Montreal 1976, en
undankeppnin er þegar hafin f
Afrfku og S-Ameríku, og fer senn
að hefjast í Evrópu. Ástæðan til
þess að þessi mál voru tekin til
svo ítarlegrar umræðu er sú, að
aðildarlönd FIFA telja sig ekki
öll sitja við sama borð í keppni
þessari. Telja Vestur-
Evrópulöndin það hart aðgöngu
að Austur-Evrópulöndin fái að
tefla fram hreinum atvinnu-
mannaliðum, meðan þau verða að
tefla fram liðum skipuðum
áhugamönnum, og telja að með
þessu móti sé keppni leikanna
hreinn skrfpaleikur.
Á umræddum FIFA-fundi var
tekin um það ákvörðun að fram-
vegis gætu knattspyrnusambönd
viðkomandi landa ekki sjálf
ákveðið hverjir væru áhugamenn
og hverjir atvinnumenn, heldur
yrði það sérstök nefnd sem FIFA
skipaði til þess að fjalla um mál
þetta sem kvæði upp úrskurð.
Lengra fékkst ekki gengið, þrátt
fyrir itrekaðar tilraunir fulltrúa
Vestur-Evrópu i framkvæmda-
nefndinni.
Það má ljóst vera, að þarna get-
ur aldrei orðið um annað að ræða
en dauðan bókstaf. Enginn trúir
því raunverulega að Austur-
Evrópuþjóðirnar láti segja sér
fyrir verkum i þessu efni. Þær
viðurkenna alls ekki að knatt-
spyrnumenn þeirra séu atvinnu-
menn i íþróttinni og munu örugg-
lega neita að viðurkenna úrskurð
nefndarinnar, verði hann á þá
leið að þeir séu ekki gjaldgengir,
og þar með draga sig frá keppn-
inni. Slíkt mundi FIFA ekki þola,
eða það verður a.m.k. að teljast
harla óliklegt á meðan Havelange
er forseti samtakanna, en hann
virðist vilja fórna öllu til þess að
halda sæmilegum friði við A-
Evrópurikin.
En það má líka ljóst vera aö
haldi svo sem horfir verður geng-
ið af knattspyrnukeppni Olympiu-
leikanna dauðri. Lönd A-Evröpu
munu þar halda áfram að hirða
verðlaunin á meðan lönd eins og
England og Vestur-Þýzkaland
komast ekki einu sinni nálægt að-
alkeppninni.
Auglýsingastarfsemi
Fundur framkvæmdstjórnar
FIFA ákvað að gera nokkrar
breytingar á reglum þeim sem
gilt hafa um auglýsingastarfsemi
áhugamanna i knattspyrnu, en
hingað til hafa þeir ekki mátt
þiggja fé fyrir að koma fram í
auglýsingum. Reglur um þetta
voru þó ekki fullmótaðar, en til
stendur að slaka á þeim, innan
ákveðinna marka.
16 lið í Argentínu
Þá var á fundinum ákveðið að
16 lið tækju þátt í lokakeppni
næstu heimsmeistarakeppni i
knattspyrnu sem haldin verður í
Argentínu, en það er sami liða-
fjöldi og verið hefur i lokakeppn-
inni að undanförnu. Argentínu-
menn höfðu óskað eftir þvi að
liðunum yrði fjölgað i 20 og Have-
lange, forseti FIFA, hafði einnig
lýst yfir áhuga sinum á því, með
því fororði þó að það yrðu lönd
frá Asiu, Afriku og Ameriku sem
bættust við.