Morgunblaðið - 13.05.1975, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MAl 1975
LOKSINS TOKST AÐ LJUKA
REYKJAVÍKURMÓTINU í SVIGI
Kristinn Sigurðsson — einn
hinna efnilegu skíðamanna.
ÞAÐ hefur ekki hlásið byrlega til
þess að halda Reykjavfkurmótið f
svigi. Alls varð að fresta mótinu
fjórum sinnum vegna veðurs, og
þegar það loksins fór fram voru
skilyrði afleit, svo ekki sé meira
sagt. Fyrri hluti mótsins fór fram
fimmtudaginn 8. maí, og var þá
látlaus snjókoma í Bláfjöllum og
skyggni eftir þvf slæmt. Keppt
var þá f flókkum 13 ára og eldri,
og fór svo að mikill fjöldi
keppenda heltist úr lestinni, aðal-
lega vegna hinna slæmu skilvrða.
S.l. laugardag fór svo fram
keppni í flokkum 12 ára og yngri.
KEFLVIKINGAR KRÆKTU
í LITLA-RIKARINN
KEFLVlKINGAR báru sigur úr
býtum f Litlu-bikarkeppninni f
knattspyrnu sem lauk með leik
þeirra og Akurnesinga f Keflavfk
á laugardaginn. Þetta var þriðji
sigur Keflvíkinga í röð í Litlu-
bikarkeppninni og unnu þeir þar
með til eignar bikar þann sem
Axel Kristjánsson og Albert Guð-
mundsson gáfu til keppninnar.
Til þess að sigra í keppninni
þurftu Keflvíkingar að vinna
sigur í leiknum við Akurnesinga.
Hefði orðið jafntefli voru þrjú lið
jöfn að stigum, og Akranessigur í
leiknum hefði fært þeim bikar-
inn.
Akurnesingar léku á móti vindi
í fyrri hálfleik, og flestum á óvart
áttu þeir þá meira í leiknum.
Héldu knettinum allvel niðri og
náðu góðum sóknarlotum, án þess
þó að skora. Var jafnt í hálfleik,
0—0. I byrjun seinni hálfleiksins
höfðu Skagamenn svo öll völd á
vellinum, og fengu þá tvö mjög
góð tækifæri, en lánleysi þeirra
var hið sama og áður. Knötturinn
vildi ekki í Keflavfkurmarkið.
Smátt og smátt tóku Keflvíking-
ar svo að ná tökum á leiknum, og
þar kom að Jón Ölafur skoraði
með fallegu skoti, og skömmu
seinna bætti Steinar Jóhannsson
öðru marki við. Þar með mátti
segja að úrslit leiksins væru ráð-
in. Keflvikingar lögðu áherzlu á
að halda sínu, og tókst það án
mikillar fyrirhafnar.
Beztu menn Keflavikurliðsins i
þessum leik voru þeir Þorsteinn
Ólafsson, markvörður, Gísli
Torfason og Einar Gunnarsson,
en í liöi Akurnesinga bar Jón
Gunnlaugsson af, en Björn Lárus-
son átti einnig góðan leik.
Lokastaðan i keppninni varð
sem hér segir:
Keflavfk
Hafnarfjörður
Akranes
Kópavogur
6 3 2 1 6—4 8
6 2 3 1 11—7 7
6141 6—6 6
6 0 3 3 6—12 3
Þrátt fyrir mjög óhagstætt veð-
urfar alla siðustu viku, féllu aug-
lýst mót ekki niður, en kuldinn og
veðrahamurinn settu að sjálf-
sögðu sinn svip á þátttökuna.
I Nesklúbbnum létu menn þó
ekki rok og rigningu á sig fá og
kepptu um svonefnda Nesbjöllu á
uppstigningardag. Þetta er gömul
skipsbjalla, sem varðveitt er í
klúbbhúsinu á Nesinu og fær sig-
urvegarinn ár hvert nafn sitt
grafið á hana. Samtals mættu 48
kylfingar til leiks og léku 18 holu
höggleik.
Sá sem fær nafn sitt grafið á
bjölluna i þetta sinn er gamal-
reyndur golfleikari frá þeim tíma
er gamli Reykjavíkurvöllurinn
var starfræktur á öskjuhlíð:
Helgi Jakobsson. Lék hann á
39+41 eða 81 höggi. Frá því
dregst forgjöfin 14, svo nettóút-
koma Helga varð 67. Annar í röð-
inni varð Bert Ilanson á 70 högg-
um nettó og þriðji Valur Jóhanns-
son á 71 höggi nettó.
Án forgjafar sigraði Jóhann Ó.
Guðmundsson á 76 höggum, en
Pétur Björnsson varð annar á 79.
Laugardaginn 9. maf voru inn-
anfélagsmót hjá Keili á Hvaleyri
og Golfklúbbi Reykjavíkur á vetr-
arvellinum að Korpúlfsstöðum.
Þann dag var nálega ófært veður,
hiti um frostmark og norðan rok.
Af þeim sökum varð lítil sem eng-
in þátttaka f þessum mótum. Hjá
Keili fór fram svonefnd punkta-
keppni, en leiknar voru 18 holur.
Aeins 12 manns lögðu í það harð-
ræði og svo skemmtilega vildi til,
að einn af yngstu mönnunum i
klúbbnum, Rúnar Þór Halldórs-
son, vann sigur. 1 öðru sæti varð
Magnús Halldórsson, sem sigraði i
Uniroyalkeppninni fyrr i vor.
Á innanfélagsmóti Golfklúbbs
Reykjavíkur varð Geir Svansson
sigurvegari.
Á sunnudaginn fór fram opin
tvfmenningskeppni á Hólmsvelli í
Leiru. Þá leika tveir saman, en
hér var leikið sérstakt afbrigði;
sem sé þannig að báðir slá af teig.
I stað þess að leika sinn eigin
bolta, er bolti samherjans leikinn
f öðru höggi, en úr því er leikið
með einum bolta og sá betri val-
inn. Veður var ögn skárra á
sunnudaginn, sólskin en hvasst og
kalt i Leirunni.
Urslit: 1. Þorbjörn Kjærbo og
Guðni Kjærbo 65—74 högg.
2. Karl Hólm og Magnús Halldórs-
son, Keili, 77 högg.
3 Omar Kristjánsson og Óskar
Sæmundsson GR á 78 höggum.
Þátttakendur voru 68.
Æfingagallar
Nylon æfingagallar, vatns- og vindþéttir.
Æfingagallar úr stretch, og stretch/bóm-
ull. Yfirleitt allar stærðir fyrirliggjandi.
Einnig gallar m/hettu hentugir fyrir úti-
iþróttir.
Þá voru aðstæður heldur betri, en
þó jökulkuldi og hvassviðri.
Mótsstjóri i keppr.i þessari var
Egill Ásgrimsson, en Sigmundur
Ríkharðsson var brautarstjóri.
Þátttaka í mótinu var sem hér
segir:
1 flokki drengja 10 ára og yngri
kepptu 28, en 20 luku keppni. 1
flokki stúlkna 10 ára og yngri
kepptu 12, en 9 luku keppni. I
flokki drengja 11—12 ára kepptu
13, en 9 luku keppni. 1 flokki
stúlkna 11—12 ára kepptu 8 en 5
luku keppni. 1 flokki stúlkna
13—15 ára kepptu 7 og luku allar
keppni. I flokki drengja 13 og 14
ára kepptu 16 og luku 10 keppni. I
flokki 15—16 ára pilta kepptu 6
og luku 3 keppni. I kvennaflokki
mættu aðeins tvær til leiks og
luku báðar keppni, og í karla-
flokki voru keppendur 11, en að-
eins 2 luku keppni, enda veður
orðið afleitt, er karlarnir fóru
brautina.
Helztu úrslit i mótinu urðu sem
hér segir:
Drengir 10 áraog yngri: sek.
Örnólfur Valdimarsson, iR 106,05
Sigurjón Geirsson, ÍR 115,18
örn Sigurðsson, Á 115,64
Stúlkur 10 ára og yngri:
Þórunn Egilsdóttir, Á 115,23
Sigríður Sigurðardóttir, A 119,66
Guðrún Björnsdóttir, Vlkingi 138,36
Drengír 11—12 ára:
Ríkharður Sigurðsson, Á 93,58
Haukur Bjarnason, KR 96,77
Rúnar Rúnarsson, Á 102,03
Stúlkur 11—12 ára:
Ása Hrönn Sæmundsd. A 96,44
Asdís Álfreðsdóttir, Á 107.72
Áuður Pétursdóttir, Á 108,42
Stúlkur 13. 14 og 15 ára:
Steinunn Sæmundsdóttir, A 103,11
Svava Viggósdóttir, KR 127,88
Berglind Friðþjófsdóttir, Á 140,19
Drengir 13 og 14 ára:
Kristinn Sigurðsson, A 102,53
Helgi Geirharðsson, A 112,82
Páll Valsson, lR 118,67
Piltar 15—16 ára:
Magnús Benediktsson, Á 160,40
Steinþór Skúlason, iR 202,32
Gunnar Eysteinsson, (R 210,27
Karlar
Jóhann Vilbergsson, KR 100,03
Tóm as J ónsson, Á 117,19
Konur:
Ánna DfaErlingsdóttir, KR 133,56
Guðbjörg Árnadóttir, Á 138,16
mr m.m*m
1. DEILD TYRKLANDI:
Fenerbahce — Besiktas 0—0
Altay — Bursaspor 3—1
Trabzonspor — Ankaragucu 0—0
Kayserispor — Eskisehirspor 0—0
Adamadspor — Ghztepe 0—0
Samsunspor — Giresunspor 2—0
Boluspor—Adanaspor 0—2
Zonguldakspor — Galatasaray 3—0
1. DEILD JÚGÓSLAVfU:
BOR — Radnicki Kragujevac 0—1
Sarajevo — OFK Belgrad 2—0
Slobada — Celik 0—0
Red Star — Radnicki 3—2
Vardar — Partizan 2—4
Proleter — Hajduk 2—O
Olympia — Velez 2—0
Rijeka — Zeleznicar , 4—0
Vojvodina — Oinamo 3—0
1 DEILD ÍTALÍU:
Ascoli — Cagliari 0—0
Cesena — Sampdoria 1 — 1
Fiorentina — Juventus 4—1
Vicenza — Varese 1—1
Milan— Lazio 1 — 1
Napoti — Bologna 1—0
Roma — Ternana 4—2
Torino — Inter 2—3
1. DEILD PORTÚGAL:
Belenenses — Sporting 2—0
Olhanense — Oriental 2—0
Academico — CUF 1—2
Porto — Espinho 4—0
Guimaraes—Boavista 1—2
Atletico — Farense 2—1
Benfica — Tomar 3—1
Setubal — Leixoes 8—0
1. DEILD GRIKKLANDI:
Atromitos — AEK 2—2
Paok — Etnikos 3—0
Panathinaikos — Panserraikos 1 — 1
Aris—Olympiakos 1—0
Panionios—Egaleo 1—1
Panachaiki — Kalamta 3—0
Kavala — Kastoria 6—1
Larisa — Heraclis 0—2
Olympiakos Piraeus —
Yannina 3—1
1. DEILD BELGÍU:
Molenbeek — Beveren 1 —0
FC Brúgge — Standard Liege 2—0
Winterslag — Beringen 1—1
Mechelen — Ostend 2—4
Charleroi —
Olympic Montignies 7—1
Beerschot — Lierse 2—0
Diest — FC Antwerpen 0—2
FC Liege — CS Brúgge 2—0
Lokeren — Anderlecht 1—0
Waregem — Berchem 1 — 1
1. DEILD HOLLANDI:
FC Amsterdam —
Roda Kerkrade 2—2
FC Twente — Feyenoord 1 — 1
Telstar—Go Ahead 2—1
Wageningen — FC Utrecht 1—0
NAc Breda — Haarlem 3—1
Excelsior — AZ 67 1 — 1
Sparta — de Graafschap 4—0
MVV Maastricht — Ajax 0—0
PSV Eindhoven — FC Haag 3—1
Lokastaðan: PSV Eindhoven 55
stig, Feyenoord 53 stig, Ajax 49 stig.
1. DEILD UNGVERJALANDI:
Bekescsaba — Ferencvaros 1—0
MtkVM — Raba 1—0
Csepel — Haladas 2—1
Diosgyoer — Ujupest Dosza 0—0
Tatabanya — Saltogarjan 3—1
Honved — Videoton 4—1
Staðan að fjórum umferðum
óloknum: Ujpest Dozsa 41 stig,
Honved 38 stig, Ferencvaros 30
stig.
Mót hjá Ármeimingum
Skiðadeild Ármanns gekkst fyrir
stórsvigskeppni i Bláfjöllum um
helgina. Var þarna um að ræða
innanfélagsmót, og var allgóð þátt-
taka í þvi. Sigurvegarar i einstökum
flokkum urðu eftirtalin:
Vormót ÍR
Vormól IR í frjálsum fþróttum fer ad
þessu sinni fram fimmtudaginn 15. maf
n.k., eóa nokkru fyrr en verió hefur
undanfarin ár, og er það gert að óskum
FRl, þar sem stórverkefni frjálsfþrótta-
fólksins hefjast fyrr f ár en oftast áður.
Keppnisgreinar f mótinu verða: 110
metra grindahlaup, 100 metra hlaup, 400
metra hlaup, 800 metra hlaup, 3000
metra hlaup, hástökk, kúluvarp, kringlu-
kast karla. 100 metra og 800 metra hlaup,
hástökk og kúluvarp kvenna, 100 metra
hlaup telpna og 800 metra hlaup pilta
Þátttökutílkynningar þurfa að berast
tíl þjálfara frjálsfþróttadeildar IR, Guð-
mundar Þórarinssonar.
Drengir 10 ára og yngri: Tryggvi
Þorsteinsson 42,14 sek.
Stúlkur 10 ára og yngri: Þórunn
Egilsdóttir 45,33 sek.
Drengir 11 og 12 ára: Einar Úlfs-
son 49,63 sek.
Stúlkur 11 og 12 ára: Ása Hrönn
Sæmundsdóttir 50,70 sek.
Stúlkur 13—15 ára: Steinunn
Sæmundsdóttir 44,18 sek.
Drengir 13—14 ára: Kristinn
Sigurðsson 43,95 sek.
Piltar 15—16 ára: Björn Ingólfs
son 46,32 sek.
Kvennaflokkur: Guðbjörg Árna-
dóttir 148,11 sek.
Karlaflokkur: Guðjón Ingi Sverris
son 115,46 sek.
Vilmundur
Vilhjálmsson
VILMUNDUR Vilhjálmsson frjáls-
Iþróttamaður úr KR er á förum til
Englands þar sem hann mun
dvelja við æfingar um tíma.
Verður Vilmundur ekki einn á
ferð þar sem einnig fara utan
hlaupararnir Jón Diðriksson, Sig-
urður P. Sigmundsson og Gunnar
Páll Jóakimsson. Verða þeir
félagar i Durham I Englandi, en
þar dvelja ÍR-hlaupararnir Sigfús
Jónsson og Ágúst Ásgeirsson við
nám, og hafa þeir annazt fyrir-
greiðslu fyrir landa sína.
Þá fóru Stefán Hallgrimsson
tugþrautarmaður úr KR og Einar
Óskarsson úr UMSK nýlega til
Spánar þar sem þeir verða i
æfingabúðum, og auk þess dvelja
svo ytra Lilja Guðmundsdóttir og
Júlíus Hjörleifsson i Sviþjóð og
Friðrik Þór Óskarsson og Ragn-
hildur Pálsdóttir i Noregi. Af
þessari upptalningu má sjá að
frjálsíþróttafólkið leggur nú á sig
gifurlegar æfingar, og stendur í
ströngu, þar sem það verður
sjálft að sjá um fjármögnun að
mestu leyti. En vonandi lætur
árangurinn ekki á sér standa. Það
kom t.d. berlega i Ijós i fyrra að
utanferðir frjálsiþróttafólks til
æfinga höfðu gffurlega mikið að
segja og skiluðu sér í stórbættum
árangri.
Jóhannes
Eðvaldsson
Jóhannes Eðvaldsson og félag-
ar hans I Holbæk höfðu ekki
heppnina með sér [ úrslitaleik
dönsku bikarkeppninnar i knatt-
spyrnu sem fram fór á
Idrætsparken [ Kaupmannahöfn
i fyrri viku. Þar léku þeir til
úrslita við Vejle, sem sigraði i
leiknum 1—0. Skoraði Vejle
mark sitt þegar á fyrstu minútu
leiksins, og virtist Holbæk-liðið
aldrei jafna sig eftir það áfall. Það
sótti þó nær stanzlaust það sem
eftir var leiksins, og átti fjölmörg
mjög góð tækifæri. En það var
ekki nóg. Aldrei tókst að koma
knettinum i netið hjá and-
stæðingunum. Jóhannes átti
þarna mjög góðan leik, en var
eins og félagar hans mjög óhepp-
inn uppi við markið. Átti hann
t.d. tvivegis skot i stöng í leikn-
um.
Kraftlyftingar
HIÐ árlega kraftlyftingamót KR
verður haldið í KR-húsinu sunnu-
daginn 25. maí n.k. Þátttaka til-
kynnist í sima 19484 fyrir 18. mai
n.k.
Fótboltar,
handboltar,
körfuboltar,
blakboltar,
sundpólóboltar.