Morgunblaðið - 13.05.1975, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MAl 1975
27
— Þingfréttir
Framhald af bls. 26
veróa starfi svo aö fullnægjandi
sé.
0 Samþykktar
þingsályktanir.
Sl. miðvikudag voru sam-
hljóða samþykktar 3 þings-
ályktunartillögur: um nefndar-
skipan um áfengis-
mál (flutningsmaður Helgi F.
Seljan), um öryggisbúnað flug-
valla (flutningsmaður Friðjón
Þórðarson) og um land-
mælingastjórn rlkisins
(flutningsmaður Ölafur G.
Einarsson).
% Frumvarp um
„Stofnunina“.
Gylfi Þ. Gfslason o.fl. hafa
lagt fram frumvarp um Fram-
kvæmdastofnun rlkisins. Er
þar lögð til sú skipan, að rlkis-
stjórnin skipi framkvæmda-
stjóra stofnunarinnar, er annist
daglegan rekstur hennar og
myndi, ásamt forstöðumönnum
deilda, framkvæmdaráð stofn-
unarinnar.
0 Skákfrumvarpi
vel tekið.
Frumvarpi Gylfa Þ. Gfslason-
ar um skákkennslu Islenzkra
stórmeistara var vel tekið á Al-
þingi, er það kom til fyrstu um-
ræðu. Þingmennirnir Pétur
Sigurðsson (S), Sverrir Berg-
mann (F) Tómas Árnason (F)
og Garðar Sigurðsson (K)
mæltu allir eindregið með því
en enginn i móti.
Fréttahréf úr
Rauðasandshreppi
SUMARIÐ er komið og heldur
góður vetur liðinn, snjóþungur að
vfsu um 3ja mánaða skeið, eink-
um á fjöllum er hann yfir 400 m
hæð, en frekar snjólétt i byggð.
Allur snjór er horfinn I byggð,
nema einn og einn skafl I lautum,
klaki þó nokkuð i jörðu.
Nú á dögunum komu tvær ær
og einn hrútur til byggða eftir
útigöngu veturlangt i Látrabjargi
og Saxagjá, en það er annar úti-
gönguveturinn annarrar ærinnar,
en þær eru systur. Móðir þeirra er
enn i Saxagjá og er það fjórði
útigönguvetur hennar, og eru nú
sennilega borin. Báðar ærnar sem
heim komu eru fengnar og hnaus-
feitar, einnig hrúturinn, sem er
lamb undan annarri frá í fyrra.
Mikill hugur er nú í mönnum
með hrognkelsaútgerð og sumir
þegar byrjaðir, en veiði er sára-
treg. Aðal útgerðarstaðurinn eru
Gjögrar i Örlygshöfn, þar er
bryggja og öll aðstaða í húsum
Sláturf. Örlygs.
Fyrir nokkru er byrjað að vinna
við raflínuna og vonandi verður
því verki lokið í sumar.
Grænar gróðurnálar eru farnar
að skjóta upp kollinum og vorhug-
ur kominn í fólkið, en við vonum
að vorið sé í alvöru komið.
Gleðilegt sumar.
Látrum á sumardaginn fyrsta
1975.
Þórður Jónsson.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir aprílmánuð er 1 5. maí
1975. Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þrí-
riti.
Fjármálaráðuneytið 12. maí 1975.
Óbreytt álagning á allar vörur til 17. maí
Opið til 10 föstudagskvöld
Vörumarkaðurinn hf.
Armúla 1A Húsgagna og heimilisd S-86 112
Matvorudeild S 86 1 1 1 Vefnaðarv d S 86 113
v.
.7
Það er alveg sama hvernig litið er
á Golf-inn, þá er hann óvenjulegur
bíll.
Þó hann sé aðeins 3.70 m. á
lengú, þá er hann rúmgóður fimm
manna bíll.
Þetta er mögulegt vegna þess, að
hjólhaf jð er langt og vélin er stað-
sett þversum. Ennfremur vegna
þess, að Golf-inn er óvenjulega
breiður eða 1.60 m.
Golf er fáanlegur þriggja eða fimm
dyra, að meðtalinni stórri aftur-
hurð. 350 lítra farangursrými, sem
er hægt að stækka í 698 lítra með
einu handtaki.
Það er ekki einungis í farþega- og
farangursrými sem Golf-inn býður
upp á óvenjulega kosti heldur
einnig undir vélarlokinu. Þar er
vélin sem liggur þversum með
yfirliggjandi kambás, tvær stærðir
50 ha — eða 70 ha. sem eyðir 8
iítrum á 100 km.
Aflið sem vélin framleiðir svo auð-
veldlega kemur að fullum notum í
akstri.
Golf hefur óvenjulega mikla spor-
vídd og hjólhaf. Hann er fram-
hjóladrifinn.
Óvenjulega stórar dyr.
Óvenjulega örugg og aflmikil vél.
Óvenjulegt rými inni.
Óvenjuleg sporvídd og hjólhaf.
Óvenjulega hagkvæmur í rekstri.
yOv Óvenjulega vel fjaðrandi.
Óvenjulega auðveldur
í hleðslu og afhleðslu.
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
Golf
ÓVENJULEGA ÓVENJULEGUR
HEKLAH.F.
fAUGAVEGI 170—172 — SÍMI 21240.