Morgunblaðið - 13.05.1975, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MAl 1975
Bóas Jónsson skip-
stjóri — Minning
F. 7. janúar 1916.
D. 5. maf 1975.
Bóas Jónsson skipstjóri var til
moldar borinn á Reyðarfirði
mánudaginn 12. maí 1975. Bóas
var fæddur áStuðlum við Reyðar
fjörð 7. janiiar 1916, sonur hjón-
anna Benediktu Jónasdóttur og
Jóns Bóassonar er þar bjuggu.
Hann var elstur fjögurra systk-
ina, en það yngsta lést i bernsku.
Þau eru Jónas skipstjóri á Reyð-
arfirði, Jóhanna húsfrú á Stöðvar-
firði og uppeldisbróðir Jóhann
Valdórsson vélstjóri á Reyðar-
firði, sem var í nærri þrjá áratugi
vélstjóri hjá Bóasi. Sjómenn hafa
misst góðan dreng úr sínum hópi,
aldraðir foreldrar son sinn og
systkini bróður, löngu fyrir aldur
fram. I sorginni fá menn huggun
við upprifjun góðra minninga um
hina látnu vini. Slíkar minningar
eigum við margar um Bóas Jóns-
son.
Hann byrjaði snemma að róa til
fiskjar, fyrst á trillu sem gerð var
úl frá Eyri sunnanvert við Reyð-
arfjörð, en þar átti Bóas heima
lengst af ævinnar á búi foreldra
sinna, en með þeim bjó liann til
hinstu stundar. Vélstjóra- og
minna fiskimannapróf tók Bóas í
Vestmannaeyjum 1936—7. Hann
byrjar sinn skipstjóraferil árið
1943 með vélbátinn Reyni frá
Eskifirði sem var einn samvinnu-
félagsbáta þar. Arin 1947—48 sit-
ur Bóas i stýrimannaskólanum og
tekur hið meira fiskimannapróf.
Frá þessum árum er nafn Bóas-
ar tengt Snæfugli SU-20. Bóas fær
einn þeirra sænsku báta um 80
lestir sem fluttir eru inn í lok
styrjaldaráranna. Ekki hef ég töl-
ur yfir það aflaverðmæti sem
Bóas og félagar á Snæfugli komu
með að landi, fullyrða má að það
yrðu álitlegar tölur. Snæfugl var
fljótlega eftir að hann kom til
landsins gerður út frá Vest-
mannaeyjum á vetrarvertið og
var þá alltaf með í baráttunni um
toppinn. Bóasi var einatt hlýtt til
Vestmanneyinga og var þeim
þakklátur fyrir margra ára gott
samstarf. Sildveiðar stundaði
Bóas á Snæfugli og var þar jafnan
vel í meðallagi og hugsaði meira
um að koma síldinni í tunnur en
bræðslu og lét sig litlu skipa afla-
magnið, en lét verðmatið sitja í
fyrirrúmi.
I septembermánuði 1963 er
Snæfugl á leið til Reyðarfjarðar
með síldarfarm. Þá fer eitthvað
úrskeiðis í lest, báturinn leggst á
hliðina og sekkur. Giftusamlega
tókst til með mannskap, það kom-
ust allir heilir í björgunarbátana
og var bjargað um borð I Guð-
mund Péturs IS, skipstjóri
Trausti Gestsson. 1964 sækir Bóas
250 lesta stálskip til Noregs, sem
hann átti i smiðum þar. Þessu
skipi stjórnaði Bóas fram að sið-
ustu áramótum og þá orðinn fár-
veikur maður. Hann var farsæll i
starfi, alvarleg slys urðu ekki um
borð hjá honum. Bóas var léttur i
skapi dagfarslega, en var harður i
horn að taka og fastur fyrir ef því
var að skipta. Hann var sérlega
greiðvikinn, mörgum sjómannin-
um gerði hann greiða ef þá van-
hagaði um eitthvað. Lagði hann
þá lykkju á leið sína fyrir aðra, ef
svo bar undir.
Einn allra verðmætasti farmur
er Bóas flutti að landi, en þá var
hann i sildarleit hjá Hafrann-
sóknastofnuninni 1967, var áhöfn-
in á Stiganda frá Ölafsfirði sem
Snæfuglsmenn fundu i gúmbát-
um eftir nokkurra daga hrakn-
inga norður í Dumbshafi.
Á meðan saga íslenskra sjó-
manna er skráð á blað verður
nafn Bóasar Jónssonar í hópi
fengsælustu og farsælustu afla-
manna sinnar samtíðar.
Áhöfnin á Snæfugli vottar for-
eldrum Bóasar, systkinum og öðr-
um vandamönnum samúð sína og
þakkar Bóasi gott samstarf. Bless-
uð sé minning hans.
Guðmundur Helgason.
Þegar ég frétti um lát Bóasar
Jónssonar skipstjóra frá Reyðar-
firði varð mér fyrst i huga mitt
fagra byggðarlag Reyðarfjörður.
Það var einfaidlega vegna þess að
þar missti þetta Iitla pláss einn af
sinum bestu sonum og min skoð-
un er sú að það skarð verði erfitt
að fylla við fráfall hins dugmikla,
góða drengs. Ég tel það ekki
ofmælt og á engan hallað þótt ég
segi að Bóas vinur minn hafi ver-
ið frumkvöðull að uppbyggingu
atvinnulífsins á Reyðarfirði.
Hann stundaði sjóinn alla sina
ævi frá blautu barnsbeini, hann
var skipstjóri í það minnsta
þrjátiu ár eða kannski lengur og
lagði alltaf upp sinn afla i heima-
höfn að undanskildum nokkrum
vetrarvertíðum í Vestmannaeyj-
um og hann var góður aflamaður,
og lagði oft harf að sér að koma
t
Maðurinn minn,
SÉRA JÓN GUÐNASON.
fyrrverandi skjalavörSur,
er látinn.
Guðlaug Bjartmarsdóttir.
t
HELENA FRIÐRIKSSON, FÆDD JÓNSSON,
andaðist í Kaupmannahöfn 13. aprfl.
Fyrir hönd fjærstaddra,
dóttur og sonar,
Anna Árnadóttir,
Margrót Helgadóttir.
með aflann í sína heimahöfn, og
þar með að auka atvinnulífið á
staðnum, og ég fullyrði að aðrir
hafi ekki gert það betur. Engan
skipstjóra þekki ég sem hefur tek-
ið sér eins lítið fri á löngum
sjómannsferli eins og Bóas. Sjór-
inn heillaði hann og ég gæti látið
mér detta í hug að hann hefði
viljað stíga sitt síðasta spor um
borð i Snæfuglinum, honum þótti
vænt um sitt skip, og það var hans
heimili. Bóas var mjög vel gerður
maður, hann var einn af þeim
mönnum sem mátti aldrei aumt
sjá án þess að rétta hjálparhönd,
enda var hann annálaður fyrir
greiðasemi og hjálpsemi.
Ekki er það ætlun mín að skrifa
ævisögu þessa látna vinar, en
hinsvegar tel ég mig gæfumann
að hafa átt þess kost að hafa
kynnst slikum mannkostamanni
og virkilega góðum dreng sem
Bóas var. Bóas var i stuttu máli sá
persónuleiki sem var mikið prúð-
menni og lét ávallt litið yfir sér,
hann var mjög heiðarlegur og
ábyggilegur bæði til orðs og æðis,
slíkum mönnum er gott að
kynnast. Reyðfirðingar standa í
mikilli þakkarskuld við þennan
látnavin ogég vonaað Reyðfirð-
ingar reisi honum þann minnis-
varða sem hann hefur til unnið,
og sýna þar með að honum sé
veittur sá virðingarvottur er þetta
byggðarlag varð aðnjótandi af
hans dugnaði og hinu mikla fram-
lagi er hann veitti sinni heima-
höfn. Um leið og ég kveð þennan
látna vin minn sendi ég foreldr-
um hans og öllum aðstandendum
minar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Jóhann Þórólfsson.
Bóas var jarðsettur frá Búðar-
eyrarkirkju mánudaginn 12.
þessa mánaðar að viðstöddu
miklu fjölmenni.
Jóhanna Jónsdóttir
frá Hemru—Minning
Fædd 21. okt. 1883.
Dáin 3. maf 1975.
Aðfararnótt Iaugardagsins 3.
maí andaðist á Hrafnistu í
Reykjavík Jóhanna Jónsdóttir frá
Hemru i Skaftártungu.
Með frú Jóhönnu er gengin ein
af minnisstæðustu vildarkonum
þeirrar kynslóðar sem hér fædd-
ist og ólst upp laust fyrir og um
síðustu aldamót, en sem nú er
óðum að hverfa af sjónarsviði
þessa jarðlifs.
Jóhanna var fædd 21. október
1883 í Hemru í Skaftártungu,
dóttir þeirra merku hjóna Hildar
Vigfúsdóttur hreppstjóra Bótólfs-
sonar á Flögu og Jóns Einarsson-
ar dannebrogsmanns og hrepp-
stjóra í Hemru. Jón var sonur
Einars Bjarnasonar bónda i
Hrifunesi og seinni konu hans
Guðrúnar Jónsdóttur frá Bakka i
Landeyjum. Að þeim hjónum
stóðu merkar ættir þó ekki verði
raktar hér. Hjá foreldrum sínum
dvaldi hún sín bernsku- og æsku-
ár i stórum systkinahópi. Á þeim
árum má segja að Hemruheimilið
hafi verið menntasetur. Þó Jón i
Hemru hafi aldrei á skólabekk
setið þá var hann vel menntaður
maður, enda landskunnur bæði
úthéraðs og innan. Jón i Hemru
verður öllum, sem honum kynnt-
ust, ógleymanlegur: mikill að
vallarsýn, friður maður og bar
fyrirmannlegan svip. Þau Jón og
Hildur eignuðust 7 börn og voru
þau í þessari aldursröð: Þorgerð-
ur, giftist Einari Einarssyni
hreppstjóra i Vestri-Garðsauka i
Hvolhreppi, dáin 1967. Sigrún,
t
Eiginmaður minn,
SIGURÐUR ÞÓRÐARSON,
leigubif reiðastjóri,
Hamrahlið 17.
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 14. mal kl.
1.30.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeir, sem vildu minnast hins látna er
vinsamlega bent á Blindrafélagið Hamrahllð 1 7.
Fyrir mína hönd og barna hans,
Stefania Pétursdóttir.
Lokað í dag
frá kl. 3—5 vegna jarðarfarar.
giftist ekki, dvaldi hjá Þorvaldi
bróður sinum, dáin 1958. Guðrún,
ógift, dvaldi alltaf i Hemru, dáin
1951.Vigfús, dó tveggja mánaða.
Jöhanna, sem hér er minnst. Þor-
valdur, giftist Ólöfu Jónsdóttur
frá Hlið, bjó á Skúmsstöðum i
Landeyjum, dáinn 1962. Valdimar
kennari, giftist Sigurveigu Guð-
brandsdóttur.tók við búi og jörð
eftir foreldra sina og stundaði
kennslu jafnframt, dáinn 1948.
Öll þessi systkin voru mjög vel
greind og báru svipmót foreldra
sinna, og er sá ættarsvipur sterk-
ur og nú er þessi systkinahópur
allur burtfluttur af þessa heims
jarðlifi.
Árið 1912 giftist Jóhanna Ein-
ari Bergssyni frá Kálfafelli i
Fljótshverfi, miklum dugnaðar-
manni. Byrjuðu þau búskap á
Svartanúpi í Skaftártungu og
bjuggu þar i 2 ár. Vorið 1915
kaupa þau jörðina Mýrar í
Álftaveri og flytja þangað. Sú
jörð var þá talin mjög góð bújörð
vegna ýmissa hlunninda sem
henni fylgdu. Þar búnaðist þeim
vel, enda bæði afburðaddugleg.
Sýndist nú bjart framundan.
Eignuðust þau tvö efnileg börn,
Guðrúnu og Bjarna. En skjótt
getur sól brugðið sumri. Árið
1918 missir hún mann sinn, hann
drukknaði I Kúðafljóti, og var það
mikill harmur fyrir hana og
sveitarfélagið að missa jafn
mætan mann. Áfram hélt hún bú-
skap þar í nokkur ár og búnaðist
vel. Var þar alltaf frekar veitandi
en þiggjandi. Á þeim árum sem
hún bjó þar voru margir efnalitlir
búendur i Álftaveri, og mun hún
oft hafa rétt þeim hjálparhönd.
Þegar heilsa Jóhönnu fór að
bila mun hún hafa séð að bezt var
að hætta búskap. Leigði hún þá
jörðina um tima, en seldi síðar.
Dvaldi þá hjá systkinum sínum
Þorgerði og Þorvaldi á tímabili,
hafði alltaf Bjarna son sinn með
sér, en Gúðrún ólst upp i Hemru
og var mikið afa- og ömmubarn.
En ekki voru hennar mæðuhret
úti. Árið 1941 drukknaði sonur
hennar Bjarni, fórst með togaran-
um Sviða; mikill efnismaður, 26
ára gamall. Og þó höggið væri
stórt þá hefur hana sem og öðrum
fleiri verið gefinn styrkur til að
bera það, enda hún skýr og reind
kona, svo að aftur birti yfir. Um
þetta leyti flytur hún til Reykja-
víkur, er þá Guðrún dóttir hennar
nýflutt i bæinn og gift Ólafi Guð-
mundssyni lögregluþjóni. Átti
hún heimili hjá þeim nokkur
fyrstu árin, en síðar átti hún
heimili að Njarðargötu 33 og
Sjafnargötu 2, þar sem hún dvaldi
hjd góðu fólki sem reyndist henni
mjög vel. Hún flyzt að Hrafnistu
fyrir nokkrum árum og þar and-
aðist hún laugardaginn 3. maí
92ja ára að aldri.
Þegar ég nú lít til baka yfir
æviferil þessarar vinkonu minnar
t
EiginmaOur minn
GÍSLI VILHJÁLMSSON.
Vesturgötu 70. Akranesi,
lézt 10. mat.
Fyrir hönd ættingja
Karen Vilhjálmsson.
t
Eiginkona mln, móðir, tengdamóðir, systir, og amma,
SIGRÍÐUR HAFSTEIN GRÖNDAL
Hitún 8, Rvk.
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 1 3 mal, kl. 3 e.h
Blóm og kransar afþökkuð, en þeir sem vildu minnast hennar eru
beðnir að láta llknarstofnanir njóta þess
HAUKUR GRÖNDAL
Páll Gröndal Valgerður Gröndal,
Guðfinna Gröndal. Helgi Victorsson,
Benedikt Gröndal,
Gunnar Gröndal, Oddný Björgvinsdóttir,
Haukur H. Gröndal, Margrét Gunnlaugsdóttir,
Hanes Hafstein
og barnabörn.
Helgakjör, Hamrahlíð 25.
Lokað í dag
frákl. 1 e.h. vegna jarðarfarar.
Smjörlíki h.f.,
Sól h.f.
S. Helgason hf. STEINIÐJA
llnholtl 4 Slmar 14477 og U1S4