Morgunblaðið - 13.05.1975, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MAl 1975
37
Velvakandi svarar I slma 10-100
ki. 10.30 — 11.30. frá mánudegi
til föStúdags.
0 Lffríki Hvalf jarðar
og Breiðaf jarðar
Arni Helgason i Stykkishólmi
skrifar:
„Nú er mikið talað um mengun
og lifríki og það sjálfsagt ekki að
ástæðulausu. Mengun um allan
heim vekur ugg i sambandi við
framtið lífs á jörðu og þvi er bezt
að fara að með gát.
En í sambandi við þetta hefur
áróðurinn keyrt svo úr hófi fram,
að hann fer langt yfir mark. Sann-
ast þetta bezt með umræðum um
málmblendiverksmiðjuna í Hval-
firði og hringsnúning
kommúnista, enda er fólk orðið
öllu vant frá þeirra hendi, og veit
að þar er það austan kaldinn, sem
segir fyrir verkum.
Það er ekki vafi á því, að í
framtíðinni verður landið að
byggja á iðnaði i stórum stíl og
þeir, sem nú eru að búa í haginn
vita, að þeir eru að tryggja öryggi
I framtfð. Ég minnist ekki annars
en að allar verulega framkvæmd-
ir hafi mætt mótspyrnu og sumar
þannig, að menn eru nú hissa á
skilningsleysi fyrri tima. Má þar
nefna símamálið á sinni tíð o.fl.
o.fl.
Það er rætt um að gæta að líf-
riki Hvalfjarðar. Hér við Breiða-
fjörð og í er mikið lifríki. Sjávar-
gróðurinn er svo mikill, að nú á að
reisa stóra verksmiðju á Reykhól-
um til að nýta hann. Þá kemur
spurningin: Hefir lífríkið verið
athugað nægilega vel, og hvaða
áhrif hefur þessi verksmiðja á
það?
Lítið hefur farið fyrir umræð-
um um það, en gott væri að fá
þetta upplýst. Var þetta atriði t.d.
rætt á þingi Náttúruverndarráðs,
sem haldið var nú fyrir skömmu?
0 Menningar-
veitingahús
Þjóðleikhúsið- átti og á að vera
musteri andlegrar menningar.
Indriði Einarsson, fruinkvöðull
þess, gerði sér miklar vonir um,
að þarna væri til frambúðar búið
svo að andlegum verðmætum, að
þangað væri hægt að sækja það
bezta og varanlegasta i heilbrigðu
menningarlífi í landinu. Víst er
og um það, að margt hefur Þjóð-
leikhúsið vel gert, en það hefir
lfka kostað sitt.
þið væruð komin heim. En ég
gekk eigi að sfður yfir flötina og
þá heyrði ég allt í einu manna-
mál. Já, þið vitið sjálfsagt að það
voru raddir þeirra Agnetu og
Tommy niðri á árbakkanum, en
ég held þið skiljið ekki, hvernig
mér varð innanbrjósts. Eg varð
svo heitur af bra'ði að hefði ég
haft þau innan seilingar hefði ég
sjálfsagt kálað þeim báðum.
Eiginlega var ég reiðastur út f
Agnetu, en þegar þau lögðu bátn-
um upp að bakkanum skömmu
sfðar ákvað ég engu að siður að
lála hana hlaupa sina leið. Þá
stundina fannst mér meira um
vert að ná lali af Tommy og það
væri að líkindum bezt við töluð-
um saman undir Ijögur augu. Eg
beið þangað til hann hafði bundið
bátinn og kom glaðlegur og blístr-
andi eftir flötinni. Þá gekk ég
fram og gal' honum löðrung, svo
að hann féll um koll. liann hafði
verið með jakkann á handleggn-
um og þegar hann missli jafn-
va'gið sá ég eitthvað skreppa upp
úr vasanum. Það blikaði i tungls-
ljösinu og í næsta andartaki hélt
Tommy á hnffnum reiddum. Þá
skildi ég hvað hann var með,
varla fyrr. Eg kastaði mér á hann
ug við slógumst tryllingslega, en
aðeins örstutta stund .. . þrált fyr-
En nú fer maður að hugsa. Er
þetta Þjóðleikhús f dag? Nú er
búið að innleiða í menninguna
bari þar sem áfengi er alltaf á
boðstólum. Hingað til hafa menn
verið sammála um, að áfengi og
menning fari ekki saman. Og
hvað skyldi Indriði hafa sagt i
dag, gengi hann nú um Þjóðleik-
húsið? Maðurinn, sem barðist
harðri baráttu til að sannfæra
þjóðina um, að áfengið væri ekki
aðeins friðarspillir, heldur eyði-
legði það bæði lif og heilsu,
heimilisgæfu, og flestir, ef ekki
allir, sem ánetjuðust því, glötuðu
sönnu lifi og lífshamingju.
En nú setur Þjóðleikhúsið þetta
á svið. Það getur ekki hugsað sér,
að fólk fái menninguna
ómengaða. Nei, þar þarf mengun
að vera eins og annarsstaðar. Og
er þá ekki svo komið, að húsið
megi frekar kallast vínveitinga-
hús en Þjóðleikhús?
Og svo er það hin hlið málsins. I
lögum er gert ráð fyrir því að
unglingar undir 18 ára aldri sæki
ekki vinveitingahús. Er þetta þá
ekki lögbrot? Er þá Þjóðleikhúsið
komið svo langt f „mfnus-
menningu"?
Arni Helgason."
0 Hver stal hjólinu?
Hjalti Guðmundsson, Hvassa-
leiti 16, skrifar á þessa leið:
„Mig langar til að koma því á
framfæri, hvort þeir, sem stálu
hjóli átta ára teipu í geymslu í
kjallara við Hvassaleiti f vetur,
vilji ekki skila þvf aftur. Foreldr-
ar þeirra barna, sem taka það,
sem þau eiga ekki, hljóta að verða
varir við það þegar komið er heim
með hluti eins og reiðhjól.
Þetta hjól var samanskrúfað í
miðju. Það var með háu stýri,
ljósum og bögglaberum að aftan
og framan. Ég myndi þekkja hjól-
ið hvar sem ég sæi það. Það er
dökkgult að lit. Stuldurinn hefur
verið kærður til rannsóknarlög-
reglunnar.
Hjalti Guðmundsson,
Hvassaleiti 16.“
Velvakanda hefur stundum
dottið i hug, hvort ekki svaraði
kostnaði fyrir eigendur reiðhjóla
að láta grafa nafn og heimilisfang
ásamt simanúmeri sínu á
áberandi stað á farartækjum þess-
um. Svo algengir eru reiðhjóla-
stuldir orðnir f þessari ágætu
borg, að nauðsynlegt er að gera
eitthvað róttækt f málinu. Það
ætti eins að vera hægt að grafa
áletranir á reiðhjól, eins og silfur-
skeiðar og skrautmuni.
0 Á kvennaári
Auðbjörg Albertsdóttir á
Akranesi skrifar:
„Nú stendur yfir kvennaár og
eru nú liðnir af þvi f jórir mánuð-
ir. Ekki veit ég hvaða tilgangi það
hefur átt að þjóna sérstaklega, og
ennþá hefur ekki borið á neinu
úrlausnarefni, sem gæti lyft kven-
þjóðinni hærra en verið hefur,
nema síður sé, samanber undir-
skriftir 100 kvenna i Reykjavík,
sem þær sendu Alþingi út af
fósturey.ðingafrumvarpinu.
Þarna gengu fram fyrir skjöldu
konur af þéttbýlissvæðinu, og
þær hafa verið að gera kröfur um
fleira en fóstureyðingar. Þær
gera kröfur um aukið jafnrétti,
en alveg sérstaklega að fóstur-
eyðingar verði gefnar frjálsar.
Margir læknar eru á móti þessu
frumvarpi, góðu heilli, og hafi
þeir þökk fyrir, — og einnig
nokkrir þingmenn.
En það er eins og ekkert geti
stöðvað þessar konur, sem eru
haldnar þeim rauðagaldri að
reyna að troða þessu frumvarpi
gegnum þingið. En hafið þið fhug-
að það, islenzkar konur og mæð-
ur, hvað við mættum allar vera
óendanlega þakklátar fyrir það að
hér á okkar blessaða landi er eng-
in herskylda. Við höfum ekki
þurft að horfa á eftir sonum okk-
ar á vígvöllinn, eins og svo mikill
fjóldi mæðra þarf að gera enn
þann dag í dag.
Ættum við ekki heldur að reyna
að stuðla að því á kvennaári að
tekinn verði upp sérstakur
þakkardagur í kirkjunum til að
þakka og lofa Drottin fyrir þá
miklu náð, sem við verðum að-
njótandi í frjálsu og blessuðu
landi?
0 Friðarhugsjónin
Ennþá hef ég ekkert heyrt um
það i útvarpi eða séð um það í
blöðunum, sem hnigi í þá átt að
konur ætli sérstaklega að láta
friðarhugsjónina verða fyrst og
fremst á dagskrá á þessu ári. Það
ætti þó að vera efst í hugum allra
kvenna að vinna að þvi og biðja
þess, að friður verði ríkjandi i
heiminum.
Við eigum ekki að byrja þetta
ár á því að gera kröfur, og allra
slzt kröfur til aukins frjálsræðis
til fóstureyðinga. Það yrði
ævarandi blettur á kvenþjóðinni i
framtíðinni.
Við skulum heldur vinna að
friði og þvi, sem gott er og göfugt
á þessu kvennaári og á næstu
árum.
Peugeot 404 Diesel árg. 1971 í góðu lagi til sýnis og
sölu.
Peugeot 504 Diesel árg. 1971
Peugeot 504 árg. 1974.
HAFRAFELL HF.
GRETTISGOTU 2I SIMI 235II
Týli h.f.,
Austurstræti 7.
Gevafoto
Austurstræti 6.
Fótóhúsið
Bankastræti 8
Filmur
& vélar,
SkólavörSustlg 41.
KYNNINGAR- “'l
VILJIÐ ÞÉR GRÆÐA 100.00 KR ?
Næstu daga verður kynningarsala á Afgacolor Insta-
matic litfilmum fyrir pappír.
Áður 378 kr.
*Mú 278 kr.
KÓRÓNABÚÐIRNAR