Morgunblaðið - 13.05.1975, Side 40
IWIHIKÐIK
Cæði i fyrirrúmi
,(f% SIGURÐUR
I *4*- á ELÍASSONHF.
X%w°£/ AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGF,
SÍMI 41380
ÞRIÐJUDAGUR 13. MAl 1975
Reykjavíkurflug-
völlur lokaífist
— vegna veikinda eins flugumferðarstjóra
MIKLAR tafir urðu á innanlands-
flugi í gær vegna veikinda sem
herjuðu á starfslið flugumferðar-
stjórnarinnar á Reykjavíkurflug-
velli. tlm þverbak keyrði I gær-
kvöldi þegar eini flugstjórnar-
maðurinn á næturvakt mætti ekki
vegna veikinda og enginn gat
hlaupið I skarðið vegna yfir-
vinnubanns flugumferðar-
stjóra. Var Reykjavíkurflugvelli
algerlega lokað klukkan 19.30 (
gærkvöldi og hann ekki opnaður
Kennaraháskólinn:
Ráðuneytið stað-
festi aðgerðir
skólastjórnar
Mcnntamálaráðuneytið hefur
ritað skólastjóra og nemendum
Kennaraháskólans bréf og stað-
fest þar þá ákvörðun scm stjórn
skólans tók varðandi próf I skól-
anum og aðgerðir hennar. Stað-
festi ráðuneytið að þau lög og þær
reglur sem skólast jórnin fór eftir
séu I fullu gildi.
Engin lausn hefur enn fengist á
hinu viðkvæma deilumáli sem
upp hefur komið milli skóla-
stjórnar og nemenda. Nemendur
halda uppteknum hætti og mæta
ekki til prófa og t.d. mættu aðeins
5 til prófa sem áttu að vera i
gærmorgun. I dag er ráðgerður
fundur í skólastjórninni og er
þess að vænta, að fundurinn taki
ákvörðunuem teljast megi stefnu-
markandi í málinu.
fyrr en klukkan 7.30 I morgun.
Varð að snúa allri flugumferð til
Keflavlkurflugvallar, þar á meðal
þremur flugvélum frá Flugfélagi
tslands sem voru að koma úr
innanlandsflugi.
Mbl. fékk þær upplýsingar í
flugturninum í gærkvöldi að þrir
af þeim fjórum flugumferðar-
stjórum sem vinna áttu við innan-
landsflug á dagvakt hefðu verið
veikir. Af þessum sökum urðu
mjög miklar tafir á innanlands-
flugi og margvisleg vandræði.
Klukkan 19.30 kom svo í ljós að
eini flugstjórnarmaðurinn á næt-
urvakt var einnig veikur. Ekki er
gert ráð fyrir neinni bakvakt og
þvi ekki annar maður til að
hlaupa i skarðíð til að stjórna
umferðinni um Reykjavikurflug-
völl. Vegna yfirvinnubanns gátu
aðrir flugumferðarstjórar ekki
gengið í verkefnið. Tók Gunnar
Sigurðsson flugvallarstjóri þá
ákvörðun að loka vellinum alveg.
Var þremur Flugfélagsvélum og
þremur smærri vélum beint til
Keflavíkurflugvallar.
Mbl. fékk þær upplýsingar hjá
afgreiðslu Flugfélagsins í gær-
kvöldi að miklar tafir hefðu orðið
Framhald á bls. 39
Fá óblíðar
viðtökur
veðurguða
SAUÐBURÐUR er hafinn víða um land og hafa litlu lömbin fengið
heldur óblfðar móttökur hjá veðurguðunum. Á föstudaginn snjóaði
á Norð-Austurlandi enda blés hann þá beint af norðri. Áttin varð
austlægari um helgina og birti þá til fyrir norðan en kuldinn hefur
haldist. Hefur verið vægt frost á daginn, þetta I—4 stig en á
nóttunni hefur frostið farið i 10 stig á láglendi. Lítil breyting er
fyrirsjánleg á veðrinu og verður því einhver bið á þvf að gróðurinn
taki verulega við sér en hann hefur verið seinni að taka við sér en
venjulega. Snemmbærum er vfðast haldið i húsi en þessa rakst
Sveinn Þormóðsson Ijósmyndari þó á er hann átti leið um Garða-
hrepp í gær.
Auglýsendur athugið
Morgunblaðið kemur ekki út
hvítasunnudag 18. maf n.k.
Þær auglýsingar, sem birtast
eiga í laugardagsblaðinu 17.
maí, þurfa að hafa borizt aug-
lýsingadeildinni sem fyrst og í
síðasta lagi fyrir kl. 18.00
fimmtudaginn 15. maí.
Verkföllin í ríkisverksmiðjunum draga dilk á eftir sér:
1.500-2.000 manns gætu misst atvinnu
í byggingariðnaði ef deilan leysist ekki
VERKFALLIÐ, sem skall á að-
fararnótt mánudagsins f þremur
rfkisverksmiðjum, Aburðarverk-
smiðjunni, Kfsiliðjunni og f
Sementsverksmiðjunni virðist
ætla að draga talsverðan dilk á
eftir sér og þó sérstaklega verk-
fallið f Sementverksmiðjunni.
Steypustöðvarnar fylltu alla
geyma sína af sementi áður en til
verkfallsins kom, en birgðir
stöðvanna eru nú brátt á þrotum
og samkvæmt upplýsingum Vfg-
lunds Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra hjá B.M. Vallá, má
búast við þvf, ef ekki semst, að
atvinnuleysis fari brátt að gæta f
byggingariðnaði, þar eð steypa
verður ófáanleg. Má búast við, að
á næstunni kynnu 1.500—2.000
byggingarstarfsmenn að missa at-
vinnu sfna vegna þessa. Mun
verkfallið í Sementsverksmiðj-
unni koma harðast niður á bygg-
ingariðnaði, framkvæmdum Hita-
veitu Reykjavfkur og fram-
kvæmdum f Sigöldu.
Gunnar Thoroddsen iðnaðar-
ráðherra sagði i viðtali við Mbl. í
gær að auðvitað væri það mjög
alvarlegt fyrir byggingariðnað-
inn, þegar sementsverksmiðjan
stöðvaðist og að sjálfsögðu mikið
alvörumál fyrir landbúnaðinn,
þegar hið sama gerðist í Aburðar-
verksmiðjunni. „Það er ákaflega
Geir Hallgrímsson forsætisráðherra:
Höfum sterka stöðu til
útfærslu í 200 sjómílur
GEIR Hallgrfmsson forsætis-
ráðherra sagði f samtali við
Morgunblaðið f gær, að ákvörð-
un um útfærslu fiskveiðiland-
helginnar f 200 sjómflur yrði
tekin þegar landhelgisnefndin
hefði fengið og rætt skýrslur
fulltrúanna, sem setið hafa haf-
réttarráðstefnuna f Genf. For-
sætisráðherra sagði ennfrem-
ur: „Ég tel tslendinga hafa
sterka stöðu til útfærslu f 200
sjómflur eins og málum lauk á
Genfarráðstefnunni."
1 framhaldi af þessu sagði
forsætisráðherra: „Að vfsu
hefðum við kosið, að lokaniður-
staða fengist á ráðstefnunni f
Genf. En við þvf var ekki búizt,
þannig að vonbrigði okkar fel-
ast helzt f þvf, að fyrirsjáanlegt
er, að lengri tfmi Ifði en áætlað
var þar til lokaniðurstaða fæst,
þar eð nú verður fundum ráð-
stefnunnar ekki framhaldið
fyrr en á næsta ári og ekki er
gert ráð fyrir að það verði loka-
fundurinn.
Hins vegar liggja fyrir drög
að hafréttarsáttmála, sem birt-
ur var f lok ráðstefnunnar. Þar
er gengið út frá þvf, að 200
sjómflur verði gildandi efna-
hagslögsaga. Og að þvf er fisk-
veiðarnar snertir, er ráð fyrir
þvf gert, að strandrfkið sjálft
ákveði hversu mikla veiði fisk-
stofnarnir þoli og hverjum
skuli leyft að veiða innan lög-
sögunnar.“
Aðspurður sagði forsætisráð-
herra ennfremur, að boðaður
hefði verið fundur f landhelgis-
nefnd stjórnmálaflokkanna f
dag, þriðjudag. Þar yrðu við-
horfin eftir Genfarráðstefnuna
rædd. Greinargerðir frá full-
trúum tslands á ráðstefnunni
hefðu ekki borizt enn. Þegar
nefndin hefði fengið þessar
greinargerðir og rætt þær yrði
tekin ákvörðun um útfærslu f
200 sjómflur.
mikilvægt, að sem fyrst takist að
leysa þessar deilur og verður lögð
á það megináherzla að svo megi
verða," sagði ráðherrann.
Morgunblaðið ræddi í gær við
forráðamenn verksmiðjanna og
spurði um áhrif verkfallsins. Guð-
mundur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sementsverksmiðj-
unnar, sagði að alvarlegast fyrir
verksmiðjuna væri framleiðslu-
tap. Gjallframleiðslan sagði hann
að væri um 300 tonn á dag og
næmi verðmæti þess á aðra
milljón króna. Á móti því kæmi
hins vegar að ekki þyrfti að
greiða laun, olíu og annað. Verk-
smiðjan á bæði birgðir af gjalli og
sementi, en það er ekki unnt að
afgreiða það, þar sem fólk við
afgreiðslu er einnig í verkfalli.
Á sfðastliðnu ári var fram-
kvæmt starfsmat i verk-
smiðjunum þremur og hefur
verið unnið að undanförnu
að því að raða mönnum
i launaflokka og finna launa-
hlutföll og aðrar launatölur.
Vegna þessa hafa erfiðleikarnir
verið. Skapazt hafði ákveðin hefð
um laun í fyrirtækjunum áður og
þegar á að fara að endurskoða allt
kerfið, koma upp vandamál sem
eru torleyst. Guðmundur Guð-
mundsson sagði að ef tækist að
leysa þessi vandamál ætti launa-
vandamál verksmiðjanna að
verða mun auðveldara i framtíð-
inni.
Hjálmar Finnsson, forstjóri í
Áburðarverksmiðjunni, sagði að
öll framleiðsla og afgreiðsla á
áburði hefði stöðvast. Hjálmar
sagði: „Þegar gerð er áætlun um
svokallað áburðarár, þá er það
magn miðað við það sem framleitt
Framhald á bls. 39