Morgunblaðið - 13.06.1975, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚNt 1975
19
tilefni 1 100 ára byggðar í Reykjavík.
Þessa samvinnu metum við mikils.
Við gerum okkur grein fyrir, að í
samstarfi hinna norrænu þjóða er
Svíþjóð stóri bróðirinn, en ísland litli
bróðirinn, en slík bræðrabönd eru oft
einmitt þau mikilvægustu.
Yðar hátign sækir borg okkar og
land heim á þeim árstíma, þegar
náttúran skartar sínu fegursta og
landið virðist blítt og eftirlátt íbúum
sinum. Náttúran hefur þó á sér aðra
og óblíðari hlið og víst er, að ekki
hafa allir Svíar, sem hingað hafa
komið, verið á einu máli um íslenzkar
aðstæður. Á árunum milli heims-
styrjaldanna kom sænski rithöfundur-
inn Harry Martinsson sem ungur sjó-
maður á skipi til Reykjavíkur. Skipið
varð að halda kyrru fyrir í ytri höfn-
inni í mikilli hríð í fimm sólarhringa,
áður en það gat haldið leiðar sinnar
út á Atlantshafið aftur. Athugasemdir
Martinssons um þessa heimsókn eru
á þessa leið: „Island er et land man
skal læse om."
góðar leiðbeiningar og þess er vert að
minnast, að Stokkhólmur var fyrsta
höfuðborg Norðurlanda til að bjóða
sendinefnd frá Reykjavík i kynnisferð
til sín, og þar með var brautin rudd
fyrir þeim nánu samskiptum, sem nú
eru á milli höfuðborga Norðurlanda.
Hér vil ég og minnast á menningar-
miðstöðina Hasselby i Stokkhólmi,
sem er sameign höfuðborga Norður-
landa og stofnsett var fyrir frumkvæði
Stokkhólmsborgar. Stofnunin er á
fögrum stað skammt frá Málaren í
einni af útborgum Stokkhólms. Það
frumkvæði Svía hefur gert ibúum i
öllum höfuðborgum Norðurlanda
kleift að kynnast menningu hver ann-
ars og er skemmst að minnast þess,
að á s.l. hausti hélt Reykjavík þar
sýningu um þróun Reykjavíkur í
1100 ár.
En Reykjavik hefur einnig átt góða
samvinnu við aðra stóra borg í Sví-
þjóð, en það er Gautaborg, en borg-
arstjórnin þar sendi sérstaka fulltrúa
til Reykjavíkur á s.l ári til að vera við
hátíðahöldin, sem hér voru haldin í
Borgarstjórahjónin, frú Sonja Backmann og Birgir ísl., Gunnarsson, fylgja Karli Gústaf Svíakonungi inn á Kjarvalsstaði í gær.
Hér fer á eftir ræða Birgis ísl.
Gunnarssonar borgarstjóra í hádegis-
verðarboði, sem borgarstjórn Reykja-
víkur hélt Karli 16. Gústaf Svía-
konungi til heiðurs að Kjarvalsstöðum
í gær:
Yðar hátign, Karl 16. Gústaf
konungur Svíþjóðar. Herra forseti Is-
lands, virðulega forsetafrú,
Borgarstjórn Reykjavíkur og allir
íbúar borgarinnar bjóða yðar hátign
innilega velkominn til Reykjavíkur, og
ég vona, að þessir dagar hafi sann-
fært yðar hátign um, að hér eruð þér
aufúsugestur, og að við íslendingar
lítum á hina sænsku þjóð sem eina af
okkar nánustu vinaþjóðum. Um aldir
hafa Islendingar og Sviar átt náin og
góð samskipti. Sænska konunga hafa
íslendingar reyndar þekkt allt frá því,
er Snorri Sturluson ritaði Heims-
kringlu, þar sem hann í Ynglingasögu
ritaði frásagnir um hina mörgu
sænsku konunga af Ynglingaætt,
sem ríktu mann fram af manni allt frá
Yngva-Frey, sem setti höfuðstað sinn
að Uppsölum. „Á hans dögum hófst
Fróðafriður" segir í Heimskringlu og
„varð landsfólkit auðgara en fyrr af
friðinum ok ári." Þessi frásögn sýnir,
að snemma gerðu menn í Svíþjóð sér
grein fyrir því, að friður er grund-
völlur velmegunar, og þótt stríð hafi
geisað i Svíþjóð og á Norðurlöndum
oft síðan eftir daga Yngva-Freys, þá
vitum við, að í dag er Svíþjóð frið-
arins þjóð og þjóð mikillar velmegun-
ar. Hugmyndir okkar um margt, sem
horfir til aukinnar velferðar, áækjum
við einmitt til Svíþjóðar í dag.
Milli Stokkhólms og Reykjavíkur er
gott samstarf. Borgarstjórnin í Stokk-
hólmi hefur oft veitt okkur holl ráð og
(Ljósm. Mbl. Ól. K. Mag.)
Vi8 háborðiS [ veizlu borgarstjórnar (talið frá vinstri): Fru Sonja Backmann, Karl Gústaf Svíakonungur, Birgir Isleifur Gunnars-
son borgarstjóri og frú Halldóra Eldjárn.
Víst getur hinn dimmi norræni
vetur verið óblíður, en það þekkja
Svíar lika af eigin raun frá sínu landi
Veturinn hefur án efa áhrif á skap-
gerð beggja þjóðanna, enda fyrir-
ferðarmikill vorskáldskapur eitt af
sameiginlegum einkennum bók-
mennta þjóða okkar, þar sem skáldin
hylla vorið og hækkandi sól. Baráttan
við náttúruöflin um aldaraðir hefur
styrkt frelsisþrá okkar og virðingu
fyrir lífi og helgi hvers einstaklings.
„Frihet bor í Norden", sagði Wenner-
berg. í þeim atriðum gætum við verið
öðrum til fyrirmyndar i heimi, þar
sem alltof algengt er, að mannhelgi
og frjáls hugsun sé fótum troðin.
Þótt ég hafi minnzt hér á óblíð
náttúruöfl, vitum við íslendingar, að
íslenzk náttúra er gjöful og reyndar
grundvöllur lífs okkar. Einum þessara
gæða hefur yðar hátign kynnzt í
morgun, þar sem voru hinar heitu
laugar í Laugardal. Þar hafa verið
heitir hverir frá örófi alda og talið er,
að það hafi verið gufan, sem frá þeim
lagði, er varð tilefni nafns borgarinn-
ar, Reykjavík — Rökviken —. Heita
vatnið notum við nú til að hita upp
slíkar sundlaugar, eins og yðar hátign
reyndi í morgun, borgarbúum til
endurnæringar og heilsubótar. Við
hitum líka alla borgina upp með
þessu vatni, eins og yðar hátign mun
fá tækifæri til að kynnast síðar.
Yðar hátign. Heimsókn yðar er
okkur fagnaðarefni og mun treysta
vináttubönd íslands og Svíþjóðar.
Leyfist mér að lyfta glasi og skála fyrir
yðar hátign og sænsku þjóðinni.
„Heimsókn yðar er
okkur fagnaðarefni”
— sagði Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri
í ræðu í veizlu borgarstjórnar til heiðurs konungi