Morgunblaðið - 13.06.1975, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.06.1975, Qupperneq 24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚNl 1975 24 In memoriam: Hróbjartur Bjarna- son, stórkaupmaður Fæddur 1. janúar 1913 Dáinn 5. júnf 1975. I dag fer fram útför Hróbjarts Bjarnasonar stórkaupmanns frá Fríkirkjunni i Reykjavík. Hann lézt 5. júni síðastliðinn í Borgar- spítalanum, eftir langa og þunga sjúkdómslegu. Hróbjartur Bjarnason var fæddur 1. janúar 1913 á Stokks- eyri. Foreldrar hans voru sæmdarhjónin Jóhanna Hró- bjartsdóttir frá Grafarbakka i Hrunamannahreppi og Bjarni Grímsson formaður í Þorlákshöfn og verzlunarmaður á Stokkseyri og siðast fiskimatsmaður í Reykjavik. Bjarni var orðlagður afla- og dugnaðarmaður, glöggur og far- sæll formaður. Svo segir i for- mannavisu: „Siglir Feng og eitthvað er, ef öðrum gegnur betur." Hann var formaður á áraskip- um frá Þorlákshöfn í margar ver- tiðir, og reyndist happasæll með afbrigðum. Hann var mikill vinur háseta sinna, reyndist þeim nær- gætinn, hollráður og hjálpsamur. Tryggð hans við þá var alveg sér- stök. En það sem lengst mun halda minningu Bjarna Grimssonar uppi i sunnlenzkri sögu, er af- skipti hans og stjórnarstörf í Fló- áveitufélaginu. Þar reyndist hann framsýnn og hygginn, sá fram á veg í þróun þorpanna á strönd- inni, Stokkseyrar og Eyrarbakka. Jóhanna móðir Hróbjarts var mikil sæmdar- og myndarkona. Ættir hennar stóðu föstum rótum í Hrunamannahreppi, og voru margir forfeður hennar miklir dugnaðarbændur. Einkenni Hreppamannsins eru mörkuð sterkt hvar sem þeir fara. Þau verða ávallt til afburða á hvaða sviði sem er. Börn Jóhönnu frá Grafarbakka eiga þessi einkenni í ríkum mæli. Þau bera líka sanna og hreina ást til uppruna síns, sveitarinnar fögru í Árnesþingi. Hróbjartur heitinn var mjög líkur móður sinni, hægur og gæt- inn. greindur vei, og sérstaklega laginn að umgangast fólk og laga sig að vilja þess og skoðunum. Einkenni þessi endurnýjuðust i hollum uppeldisáhrifum og um- gengni við sjómenn í verplássi á æskuárunum. Hann minntist oft á það við mig, hve holl áhrifin urðu honum, er hann varð fyrir á æskuárunum heima í þorpinu á ströndinni, en ríkust urðu áhrif- in, er hann fékk frá móður sinni, sterk og traust, mótuð af rótgró- inni menningu kynslóðanna, sveitafólksins i uppsveitum Ár- nessþings.. Hróbjartur var alinn upp við aðstæður alþýðumannsins, eins og þær eru gleggstar í vitund þeirra er mótast af hinu daglega starfi. Hann lærði f æsku að stunda þau störf er til féllu á hverjum tíma. Hann fluttist ung- ur með foreldrum sínum í nýtt umhverfi, til Reykjavíkur. Þá voru erfiðir tímar, en þrátt fyrir það, lagði hann á braut sérnáms, og bjó sig undir ákveðið lífsstarf. Hann útskrifaðist úr Verzlunar- skóla Islands árið 1933. Að námi loknu hóf hann sjálf- stæðan atvinnurekstur. Hann gerðist stórkaupmaður og rak um- boðs- og heildverzlun lengst af frá því, eða meðan heilsan leyfði. Hann varð fyrsti formaður nemendasambands Verzlunar- skóla Islands, og síðan í skóla- nefnd hans og formaður hennar um skeið. Ég var oft var þess, að hann unni skóla sínum mjög, og fann það vel, að hann átti honum skuld að gjalda. Eins og að líkum lætur, var Hróbjartur mikill áhugamaður um mörg málefni samtíðar sinnar. Hann starfaði í mörgum félögum og varð í þeim mörgum til for- ustu. Hann var formaður Ár- nesingafélagsins í Reykjavík í tólf ár. Hann lagði mikla vinnu í það starf og kom mörgum nýjungum til leiðar í formannstíð sinni. Hann gerði félagið að stórveldi meðal átthagafélaga höfuðborgar- innar. Hann var alltaf boðinn og búinn að sinna málefnum Arnes- inga, hvort heldur var h^r í borg- inni eða þeirra er fyrir austan bjuggu. Hann átti rfk tengsl í hér- aðinu, jafnt vináttu við fólkið og rækt við sögu héraðsins og minj- ar. I Stokkseyringafélaginu var hann virkur þátttakandi, en það hefur unnið mikið fyrir byggðar- lag sitt. Hann gekkst fyrir stofn- un Kolviðarhólsfélagsins, þegar skammsýnir menn ætluðu að jafna hinum merku mannvirkjum þar við jörðu. Hróbjartur var for- maður félagsins, og náði ótrúleg- ur árangri i því að endur reisa staðinn á Kolviðarhóli, og bjarg- aði þar með mannvirkjunum þar frá glötun. Hróbjartur hóf máls á því í Ar- nesingafélaginu í Reykjavík, að hafist yrði handa um endurreisn Skálholtsstaðar, en staðurinn var þá i mikilli niðurníðslu. Upp ur þeim umræðum, var stofnað Skál- holtsfélagið, og sat Hróbjartur í stjórn þess og vann þar að áhuga- málum sínum I sambandi við upp- byggingu Skálholts. En eins og kunnugt er, var það upphaf hinn- ar miklu uppbyggingar, sem þar hefur átt sér stað. Hinn 26. febrúar 1938 kvæntist Hróbjartur Bjarnason Evelyn Þóru Hobbs. Þau eiga einn son: Hróbjart arkitekt hér í Reykja- vík. Hann er kvæntur þýzkri konu, Karínu Stuart. Einnig eiga þau fósturson, Skúla. Hann er kvæntur Svölu Steingrímsdóttur. Eg minnist af mikilli ánægju margra ánægjustunda á heimili Evelfnar og Hróbjarts. Þar var ánægjulegt og gaman að vera. Húsfreyjan átti ekki síður þátt f því. Hún gerði heimilið sérstak- lega vistlegt og skemmtilegt, sér- kennt af smekkvísi og fegurð. Ég minnist líka glæsibrags þeirra á Arnesingamótum, þegar þau voru f hátíðarskapi og skörtuðu sfnu bezta. Hún í íslenzkum búningi, er hún bar sérstaklega vel, af tign og virðingu fyrir hinum þjóðlega kvenbúningi tslands, sem er ein- hver glæsilegast þjóðbúningur kvenna, sem ég þekki. En svo fer oft i mannlegu lífi, að vegir skilja fyrr en varir. Þau Evelýn og Hróbjartur átti ekki skaplyndi saman. Þau slitu sam- vistum. Samt sem áður held ég að vináttuböndin hafi aldrei brostið. Að minnsta kosti veit ég, að hún reyndist honum góður vinur í veikindum hans. Jafnframt er ég líka vitandi þess, að vinátta er full og sönn með henni og systkin- um Hróbjarts sáluga. Ég þekkti Hróbjart Bjarnason um langan tíma. Oft áttum við saman ánægjulegar stundir, sem aldrei gleymast mér. Hann var alltaf sannur og heill, sterkur og traustur, sérstaklega þegar á þurfti að halda. Hann þoldi hin erfiðu og löngu veikindi sérstak- lega vel, bar þau af æðruleysi og karlmennsku. Hann var sannur trúmaður, og ef til vill hefur það verið það bjarg, sem traustast var. Að Iokum sendi ég aðstandendum hans minar fyllstu samúðarkveðj- ur. Jón Gfslason frá Reykjum. Með Hróbjarti stórkaupmanni Bjarnasyni er genginn ágætur nemandi og velunnari Verzlunarskóla Islands, sem mér mun jafnan verða ljúft að minnast. Hróbjartur lauk burtfararprðfi skólans árið 1933, tvftugur að aldri. Að prófi loknu sótti hann framhaldsdeild, sem á þeim árum var rekin við skólann. Taldi Hróbjartur sig hafa haft mikið gagn af því viðbótarnámi. Hróbjartur starfaði lengi af lífi og sál fyrir Nemendasamband V.I. og var I mörg ár formaður þess. A þeim vettvangi bar fundum okkar fyrst saman, þó að báðir værum við Árnesingar og rætur okkar beggja stæðu aðallegaí sömu byggðarlögum. Eigi gat mér lengi dulizt, er kynni okkar hófust, hve annt Hróbjartur lét sér um Verzlunarskóla Islands og vildi veg hans og sóma sem mestan. Er skólinn hélt hátíðlegt hálfrar aldar afmæli sitt, árið 1955, var Hróbjartur kjörinn f ritstjórn minningarrits þess, er þá var gefið út. Beitti hann sér manna mest fyrir því, að nemendatal fylgdi minningarritinu. Þó að hugmyndir hans í þvi efni kæmust ekki að öllu leyti í framkvæmd vegna ýmissa vandkvæða, t.a.m. skorts á tíma mannafla og fé til að vinna verkið, þá birtist eigi að siður nemendatal í afmælisritinu. Er það ómetanleg undirstaða, svo langt sem það nær, þó að því hafi af fyrrgreindum ástæðum orðjð að sníða þrengri stakk en Hróbjartur hafði upphaflega hugsað sér. Hróbjartur ritaði á sínum tíma inngang að nemendatali þessu. Þar kemst hann m.a. svo að orði: „Nú á hálfrar aldar afmæli Verzlunarskólans verður vafalaust eldri og yngri nemendum hans hugsað til hans með hlýjum hug og þakklæti fyrir veganestið, er hann lét þeim í té, sem að mínum dómi hefur reynzt flestum, ef ekki öllum, vel, er út i lífið kom.“ Þessi tilvitnan lýsir að mínum dómi vel ræktarsemi þeirri, sem Hróbjartur bar jafnan í brjósti til síns gamla skóla og oft birtist bæði í orði og verki. Árið 1951 var Hróbjartur kjörinn í skólanefnd V.I. og átti þar sæti samfellt i 6 ár a.m.k. Reyndist hann þar jafnan tillögugóður og eygði oft möguleika, þegar úr vöndu var að ráða. Hróbjartur bar einnig fölskvalausa tryggð i brjósti til átthaga sinna austan Fjalls. Þurftu Arnesingar eigi lengi við hann að ræða til að verða þess áskynja, enda var hann um langt skeið meðal þeirra manna, sem af mestum áhuga störfuðu fyrir Árnesingafélagið og Skálholtsfélagið, sem hafði það markmið að endurreisa Skálholtsstað. I rauninni var það ofur eðlilegt, að Hróbjartur væri tengdur Árnesþingi traustum böndum. Þegar foreldrar hans, Bjarni útvegsbóndi Grímsson og frú Jóhanna Hróbjartsdóttir, fluttu frá Stokkseyri árið 1926, hafði sama ættin setið heimajörðina Stokkseyri í 460 ár. Árið 1464 eignaðist Jón sýslumaður Ölafsson í Klofa, faðir Torfa ríka i Klofa, hálfa Stokkseyri. Sú grein Klofaættar, sem fór að búa á Stokkseyri, nefnist Stokkseyrarætt. Hróbjartur var einnig af hinni alkunnu Bergsætt, sem dr. Guðni Jónsson, prófessor, hefur gert svo merkileg skil í riti sínu samnefndu. Bjarni Grímsson, faðir Hróbjarts, var afkomandi Bergs bónda Sturlaugssonar í Brattsholti, sem orðið hefur mjög kynsæll, t.a.m. eru ýmis helztu tónskáld og tónlistarmenn þjóðarinnar af þessari ætt, enda er sagt, að Bergur bóndi hafi verið forsöngvari góður á sinni tíð. Móðir Hróbjarts var sem fyrr segir, frú Jóhanna Hróbjartsdóttir bónda á Grafarbakka I Hrunamannahreppi Hannessonar, sem einnig bjó á Grafarbakka, en var sonur Torfa bónda á Gamla-Hrauni. Eru ættir þessar alkunnar og samgrónar Arnesþingi. Það var því sízt að undra, að Hróbjarti yrði oft hugsað hlýtt til átthaganna. Létu þeir Hróbjartur og bræður hans eigi sitja við orðin tóm í því efni, keyptu þeir jörðina Sóleyjarbakka í Hrunamannahreppi og hafa síðan í mörg ár rekið þar bú. Á Grafarbakka byggðu þau systkinin sumarbústað. Tengslin við átthagana rofnuðu því aldrei. Framan af ævi var Hróbjartur maður heilsuhraustur. Var hann jafnan hress og glaður í bragði, hrókur alls fagnaðar á mannfundum, hið mesta prúðmenni og snyrtimenni, vel máli farinn og ritfær. Hin síðari ár hrakaði heilsu hans mjög og siðasta árið, sem hann lifði, var hann oft sárþjáður. Lausnin hefur því verið honum kærkomin. Kona Hróbjarts var frú Evelyn, f. Hobbs. Einkasonur þeirra er Hróbjartur arkitekt Hró bjartsson, sem á sínum tíma lauk stúdentsprófi við Verzl unarskóla Islands. Þau hjón áttu einnig kjörson, Skúla að nafni. Hróbjartur átti því láni að fagna, að synir hans báðir eru miklir efnis- og dugnaðarmenn. Að leiðarlokum er margs að minnast. Fyrst og fremst vil ég þakka vináttu Hróbjarts Bjarnasonar og staðfasta tryggð við Verzlunarskóla Islands og störf hans i þágu skólans. Votta ég eftirlifandi ástvinum hans innilega samúð. Jón Gfslason Ver jarðneskt gervi, heiiagt hús, þar hugur uni sæll og fús. ó, hugur þínaskyggðu skál, I skfrum hreinleik geymdu sál. ó, sál ver lær og lygn sem lind og Ijúfa spegla sólarmynd. I byrjun þriðja tugs þessarar aldar hittist lítill hópur ungra manna neðst á Laufásveginum. Flestir ef ekki allir voru þeir i félagsskap skáta og nemendur í •Verzlunarskóla Islands, innan- búðarpiltar úr miðbænum — og ég að ljúka iðnnámi í ísafoldar- prentsmiðju. Einn þessara pilta var Hróbjartur Bjarnason, sem ég nú kveð og þakka með ófullkomn- um orðum, að lokinni samfylgd hátt I hálfa öld. Ekki er hann sá fyrsti úr þessum hópi er hverfur af sviði hins daglega lffs, því það er meir en helmingur þessara félaga horfinn, en minningar lifa í brjósti mér. Sumir þessara ungu manna eru horfnir fyrir tugum ára. Þetta eftirminnilega Reykja- víkur-júlíkvöld var ekkert frábrugðið öðrum stefnumótum ungmennanna að öðru leyti en því, að náttúran var öll slfk, að hennar hlutur gleymist trauðla. Ihluta þeirra grósku- sinfóniu er þarna ómaði skipuðu þessir aðilar. Það er ekkert leyndarmál að öfund blundaði f hug mér til þessara félaga minna, skólapiltanna úr Verslunar- skólanum, fannst þeir hafa höndl- að eftirsóknarvert hlutskipti, ómarkaða námsbraut í skóla, góð og hlý foreldrahús. Hvað vantaði? Ekkert var mér ljósara en lífið á þessari stund, en í fjarska hinar óráðnu brautir hvers og eins, en allar sveipaðar bjartsýni vaxandi sálna er þrá átök við lifið i bláma framtíðarinnar. Að vitum manns barst jarðvegsilmur — lykt hinna stritandi örvera moldarinnar í miðbæ Rtykjavfkur blandin birkiangan og blóma frá hinum mörgum prýðigörðum fólksins i þessum byggðarhluta. Ekki skemmdi krían í Tjarnarhólman- um samfellu þessa lifs, er þarna óf sína samfellu milli hins sýni- lega og áþreifanlega, og þess er til verður I brjósti hverrar sálar er lftur opnum augum umhverfi sitt f litum þess og hljómum, auðvitað uppljómuð skapgerðareinkennum persónunnar. Ennþá ómuðu f lofti miðbæjarins áhrif frá ljóði Davíðs og lagi Páls er halda vakandi minningu Alþingishátíðarinnar frá liðnu ári, 1930. „Þú mikli eilífi andi, sem I öllu og allsstaðar býrð...“. Andrúmsloft þessara ára magnar ennþá minningarnar og hljómarnir bergmála ferskir i brjóstum okkar er vorum að búa okkur undir lffið. Þarna skópust ævilöng kynni, tryggðir og vin- átta. Einn meðal þessara vina minna varð Hróbjartur — Batti. Hann varð fljótlega hinn trausti stofn þessa hóps, sá er myndaði samstöðu og einingu, og virðist mér að strax þá hafi komið fram hinir ákveðnu eiginleikar i skap- gerð hans, þrá til félagsstarfa, uppbygginga- og umbótahyggja, er voru honum framar öðru eigin- legir. Aldrei datt mér í hug að unglingsár okkar myndu verða eins og inngangur að ævilöngum kynnum og rótföstu sambandi er ekki brast i sviptivindum lifsbar- áttunnar er okkur óraði ekki fyrir í bláma æskuvonanna. Hróbjartur fæddist 1. janúar árið 1913 á Stokkseyri. Foreldrar hans voru Bjarni Grímsson og Jóhanna Hróbjartsdóttir. Hvort- tveggja persónur sterkra stofna, er skilið hafa eftir djúp og eftir- tektarverð spor f íslenskri þjóðar- sögu. Það þarf ekki að hafa mikið fyrir þvi að finna alla þætti er mest voru áberandi f skaphöfn Hróbjartar, ef borið er saman það sem kunnugt er um sögu ættar þessa bændafólks. Mikilfengleg átök við störf til sjós og lands. Virðist svo sem hver ættarmeiður hafi skilað hinum næsta óska- steini sínum til varðveizlu og ég sé hann ganga frá kyni til kyns. I skauti góðra foreldra óx þessi vinur minn upp á Stokkseyri, foreldra sem áttu vaxtarþrá til handa þessum efnilega syni ásamt fimm öðrum mannvænleg- um börnum. Mér er sem ég heyri brim strandöldunnar f skerja- garði Stokkseyrar, er þessi hópur mannvera gerði að hluta af sjálf- um sér I uppvextinum. Formaður- inn á Stokkseyri vissi vel hver kveður svo þungt, og húsfreyjan og móðirin vissi hvað það gat þýtt ef fleytan kom ekki að landi á eðlilegum tíma — og börnin, þau urðu aðalþáttur tilgangsins með stritinu og nautnarinnar að lifa og vera til; draumurinn var að rætast, óskasteinninn hafði hlust- að á bæn foreldranna. Systkinahópurinn — Grfmur, Haraldur, Dagbjartur, Elin, Sig- ríður. Þessi hópur flyst til Reykja- vikur og skapar nýtt umhverfi undir forsjá og umhyggju foreldr- anna, á Barónsstig 59. Hvernig er ástatt í þessum hópi I dag? Foreldrarnir eru horfnir, Dag- bjartur stýrimaður einnig, Grím- ur pípulagningameistari einnig horfinn fyrir skömmu, og nú er Hróbjartur kaupmaður ekki leng- ur meðal okkar í klið lífsgæða- leitar. Þessi hópur hefur þrátt fyrir allt stækkað og óskasteinn- inn færst yfir á nýjar hendur. Ættin vex. Stokkseyrarheimilið stækkar. Vináttu þessarar fjölskyldu varð ég aðnjótandi fyrir kynni mín af syninum og bróðurnum Hróbjarti Bjarnasyni. Hafi hún öll þökk mína. — Minningin er mín og minna. Hróbjarti skilaði ört áfram á lífsbrautinni. Eðlisþættir hans sögðu til sfn á flestum sviðum. Hann var allt líf sitt sinn eigin herra, að mestu leyti, ef ég má taka svo almennt til orða. Hann opnaði smásöluverslun á Baróns- stígnum undir handarjaðri foreldranna og er sú verslun enn starfrækt, en undir annars nafni i dag. Heildverslun rak hann i félagi við annan, en síðar á eigin vegum er meðeigandinn féll frá. Bæði þessi fyrirtæki gengu ágæt- lega undir stjórn hans allt þar til heilsa hans lét undan. Þetta var hluti af lffsstarfi hans, er hann hafði lifibrauð sitt af. Hitt mun þó siður en svo minna að vöxtum, þótt allir ekki þekki. Ahugamálin utan lifsstarfsins, þau voru svo mörg og eru mér þau alls ekki öll ljós, tala eða umfang. En annað veit ég. Hann átti hugsjónir er oft tóku hug hans allan og þá um leið stundir heimilis og lífsstarfs. Svo lítill sjálfsánægjumaður var hann, að það kom aldrei fram, hvort eitthvert áhugamál hefði skilað honum þeirri gleði, er erfitt dagsverk stundum launar iðkanda. Þetta taldi ég ávallt ættareinkenni forfeðranna. Hann var í mörg ár f skólanefnd Verslunarskóla Islands. Einnig var hann um margra ára skeið aðaldrifkraftur Nemendasam- bands Verslunarskólans. Man ég

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.