Morgunblaðið - 13.06.1975, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JUNl 1975
35
- Jackie
Framhald af bls. 5
að konan hans hafSi undirritað
skjal I New York þar sem hún
afsalaði sér öllum réttindum til
erfða á eignurn manns slns.
SkilnaSur
i erfðaskránni segir Onassis að
ef frúin geri kröfu um meiri arf,
falli niður árlegar greiðslur til
hennar. Ef hún vinnur málið og
ekki verður haegt að áfrýja þá fái
hún ekki meir en áttunda hluta
af þeim eignum sem til Kristlnar
ganga.
Kuldinn sem orðin var á milli
þeirra hjóna endurspeglast I erfða-
skránni. Niu mánuðum eftir að
hún var rituð fól Onassis þekktum
lögfræðingi i New York, Roy
Chon, að undirbúa skilnað þeirra.
Erfðaskráin var að mörgu leyti
eins og einkabréf til dóttur hans.
Hún byrjaði svona: „Til ástkærrar
dóttur minnar", og endaði:
„Siðasti kossinn frá pabba".
Onassis gerði það fyllilega Ijóst
að hann vildi að umsjónarmenn
eignanna berðust fyrir dómstólum
af hörku gegn öllum tilraunum
konu sinnar til að ná stærri hluta
auðæfa hans en þau hefðu áður
um samið.
En hann veitti ekkju sinni þó
nokkra vörn gegn verðbólgu og
hnignandi gildi dollarans. Hann
fyrirskipaði að sú árlega upphæð,
sem sjóðurinn i Lichtenstein
skyldi greiða henni, yrði visitölu-
bundinn og miðaður við verðgildi
dollarans árið 1974. Frú Onassis
skyldi árlega fá 100 þúsund dali
auk 25 þúsund dala fyrir hvort
barna sinna. Og að auki skyldu
koma 100 þúsund dalir, sem
greiddust I skattfrjálsum skulda-
bréfum. Þetta er svipuð upphæð
og frúin fékk á meðan maður
hennar lifði.
Það eru tvö atriði i erfða-
skránni, sem talin eru geta orðið
erfið i framkvæmd.
Onassis lét konu sinni eftir
fjórðung eyjarinnar Skorpios i
Eyjahafi og fjórðung snekkju
sinnar. Dóttir hans fékk þá þrjá
fjórðu, sem eftir urðu af eyjunni
og snekkjunni.
Erfðaskráin gaf þau fyrirmæli að
ef konurnar kærðu sig hvorki um
eyna né snekkjuna, þá skyldi
eyjan ganga til gríska rikisins en
snekkjan til þjóðhöfðingja Grikk-
lands. Ef griska stjórnin vildi ekki
taka við gjöfinni, skyldi eyjan
gefin Olympic Airlines sem sumar-
dvalarstaður fyrir starfsfólkið.
Frú Onassis naut mjög lifsins
um borð í snekkjunni Kristinu og
þótti gott að draga sig i hlé á
Skorpios, þar sem hún eyddi frium
i kyrrð með börnum sfnum og
bandariskum og evrópskum
vinum.
En sá orðrómur hefur komizt á
kreik að i april hafi Kristin beðið
Jackie að fjarlægja allar eigur
sinar frá eynni og úr snekkjunni.
Bandarikjamenn, sem þekktu til
fjölskyldumála Onassishjónanna
álíta að minnihlutaeign frú Onass-
is i eynni og snekkjunni geti ekki
gengið vandræðalaust til lang-
frama. Líklegasta lausnin er þvi
álitin vera sú að Kristina reyni að
kaupa upp hlut stjúpu sinnar.
Felagslíf
FERDArfLAG
ISLANDS
Laugardagur kl.
13.30
Ferð á Geldinganeseyðið, og
lifriki fjörunnar kannað. Leið
beinandi er Jónbjörn Páls-
son, liffræðingur. Hafið með-
ferðis ílát og litla spaða. Verð
300 krónur. Farið verður frá
Umferðarmiðstöðinni.
Ferðafélag íslands.
B|B]B]E]E]G]G]E]G]G]B]B]E]E]G]E]G]B]E]E]Q|
K51
51
51
51
51
51
51
OPIÐ í KVÖLD TIL KL.
PÓNIK OG EINAR
51
51
51
51
51
51
51
B1ElEnE]EgEgEi|Elb|b|ElElE151l3|Blla|l3lE]l51lal
Stangveiðimenn
Nokkur veiðileyfi eru laus í Miðfjarðará í júlí
Leyfin eru seld hjá Böðvári Sigvaldasyni, Barði,
sími 95-131 1, og á skrifstofu Landssambands
veiðifélaga, Hótel Sögu, sími 15528, opið kl.
16—19, nema laugardaga kl. 9—12.
cr>
cö
*
1
cc
r Hey! strákar \
hafið þið séð sumar
jakkana og blússurnar
í Adam.
TIZKUVERZLUN LAUGAVEGI 47
I/ 'WSk HP' ■ 'Wifl WŒm' WmM 1
mgB'. v. ■ fúl 1
1 wm
I F ágÉ JíÆ
Á
Barnafatnaður í úr-
vali.
Nýkomið fallegt úrval af sundfatnaði á börn og
fullorðna. Póstsendum.
Bella,
Laugavegi 99.
Strásykur 1 kg. kr. 210
Gr. baunir Ora 1/1 kr. 130
Smjörlíki 1 stk. kr. 138
Hveiti 10 Ib. kr. 397
Ritskex kr. 86
Yfir 20 teg. af kexi á kjarapöllum
Fiskibollur 1 /2 kr. 88
Úrbeinað hangikjöt á kjarapöllum
Kaffi einn pakki á kr. 109
Kjöt í heilum skrokkum
Opið til kl. 10 í kvöld
og til hádegis á morgun
Kostaboð á
kjarapöllum
KJÖT OG FISKUR
SELJABRAUT 54,SlMI: 74200