Morgunblaðið - 22.06.1975, Side 1

Morgunblaðið - 22.06.1975, Side 1
40 SIÐUR 138. tbl. 62. árg. SUNNUDAGUR 22. JUNÍ 1975 PrcntsmiSja Morgunblaðsins. Brellanfl á neiiarpröm launaverðbólgan reisar óeim áDvrgÖartullu en veröiaunar Da elglngjdrnu og samvlzkulausu FYRIR RÉTTI, AKÆRÐUR UM ÞJÓFNAÐ. — Þessi mynd barst til Bangkok í Thailandi á miðvikudag og sýnir 22 ára gamlan mann, Tran Tien Dung, sem ásakaður hefur verið um þjófnað, handjárnaðan við steinsúlu. Hann var yfirheyrður af alþýðudómstóli I þorpinu Tam Hiep, norðaustur af Saigon 9. júnf. Mörg hundruð manna söfnuðust saman til að fylgjast með réttar- höldunum. Tveim klukkustundum seinna var Dung leiddur á brott til „endurmenntunar og til að öðlast skilning á hversu alvarlegt brot hans var“, en Iffi hans var þyrmt. Dæmd fyr- ir njósnir Lausanne21. júnf — Rcuter. HÆSTIRÉTTUR Sviss dæmdi f dag austur-þýzk hjón f 7 ára fangelsi fyrir njósnir f þágu lands síns. Er mál þeirra mesta njósna- mál, sem upp hefur komið í Sviss eftir stríð. Akærandinn fór fram á 8 ára fangelsi fyrir Hans-Guenther Wolf, og 7 ár fyrir konu hans Giesel. Bæði voru fundin sek um hernaðarlegar, pólitískar og efna- hagsleg'ar njósnir, fyrir birtingu á iðn- og viðskiptaleyndarmálum og falsanir. Erfiðar viðræður við Sýrlendinga Washiniilon, 21. júní. .\P. Utanrfkisráðherra Sýrlands, Abdel Halim Khaddam, og Hnery Kissinger, utanrfkisráðherra Bandaríkjanna ákváðu að halda áfram viðræðum sfnum um frið- arhorfur f Miðausturlöndum í dag þótt við þvf væri ekki búizt. Það var gert að ósk Kissingers, sem vildi fá nánari skýringu á afstöðu Sýrlendinga gagnvart Israelsmönnum. Talið er að i viðræðum þeirra hafi Khaddam látið i ljós ugg um að Sýrlendingar einangrist þegar nýjar og óbeinar viðræður hefjast að nýju milli Egypta og Israels- manna fyrir tilstilli Bandarikja- manna. Hann mun einnig hafa látið i ljós ugg vegna þeirrar yfir- lýsingar Verkamannaflokksins i Israel, stærsta stjórnarflokksins, að Golan-hæðirnar verði innlim- aðar í Israel. Bandariskir embættismenn eru þögulir um viðræðurnar en hafa ekki minnzt á það að áfram hafi miðað i samkomulagsátt. Kissing- er sagði að viðræðunum við Sýr- lendinga yrði haldið áfram og þó er vitað að hann og Ford forseti telja að árangur verði að nást Framhald á bls. 39 HÆSTA LAUSNAR- GJALD SÖGUNNAR Bucnos Aircs 21. júní — Rcuter. Tveim argentfnskum auðmönnum var sleppt í gær eftir að alþjóð- legt fyrirtæki þeirra hafði greitt 60 milljón dollara, sem álitið er vera hæsta lausnargjald sem greitt hefur verið til vinstri sinn- aðra Montoneros skæruliða, sem rændu þeim fyrir 9 mánuðum sfð- an. Juan Born og bróður hans Jorge Born var rænt 19. september í fyrra í úthverfi Buenos Aires. Drápu viðhald forsetafrúar Cotonou, Dahomcy, 21. júní. AP. MENN úr lífverði forset- ans í Vestur-Afríkurikinu Dahomey skutu innanríkis- ráðherra landsins til bana í nótt þegar þeir komust að því að hann hélt við konu Mathieu Kerekou forseta. Tilkvnnt var í útvarpi landsins að Kerekou hefði verið tjáð að kona hans væri heima hjá innanríkis- ráðherranum, Michel Aipke höfuðsmanni. Kerekou fór sjálfur til heimilis Aipke ásamt lífverðinum, sem brauzt inn, og sá konu sína þar með innanríkisráðherranum, sem var nakinn. Sagt var að Aipke hefði verið skotinn til bana þegar hann reyndi að flýja. Þeir eru synir stofnanda og stjórnarformanns Bunge et Born, sem er þriðja stærsta kornverzl- unarfyrirtæki heims. Við ránið voru bflstjóri þeirra og yfirmaður f fyrirtækinu drepnir. Góðar heimildir segja að Montoneros hafi skýrt frá lausn- argjaldinu á leynilegum blaða- mannafundi, sem leiðtogi þeirra, Mario Firmenich, mest eftirlýsti maður Argentfnu, hélt í gær. Segja heimildirnar að Jorge hafi verið sleppt i gær, en Juan hafi losnað fyrir nokkrum dögum, eft- ir að fyrirtækið hafði fallizt á kröfur um að það dreifði fatnaði og mat, meira en einnar milljón dollara virði, meðal fátækra. Á BLS 10 birtist viðtal Matthíasar Johannessen, ritstjóra, við rússneska rithöfundinn Andrei Sinjavskí, „Einn góðan veðurdag munu þeir iðr- ast þess að hafa ekki drepið mig.“ Á BLS. 18—19 birtist hin víðfræga grein Paul Johnsons, fv. ritstjóra New Statesman, þar sem hann tekur brezku verka lýðshreyfinguna til bæna. Paul Johnson er einn skeleggasti málsvari brezkrar verkalýðshreyf- ingar, sem hann telur nú á hættulegri braut. Greinin nefnist: „Bretland á heljarþröm." Sjúkur um borð London 21. júnf — Rculcr. BREZKA lystiskipið Qucen Elisabet II breytti stefnu á miðju Atlandshafi til að taka um borð mann af sovézkum togara, sem nauðsynlcga þurfti að komast undir læknis- hendur. Skipið, sem er með tvo lækna um borð og fullkomna skurðstofu, var á leið til New York, þegar það var kallað upp af sovézka togaranum Luga Esgy. Var maðurinn með innvortis blæðingar. Ofgahópum hótað hörðu 1 Portúgal Lissabon, 21. júnf. Rculcr. AP. BYLTINGARRAÐIÐ I Portúgal boðaði f dag strangar ráðstafanir gegn vopnuðum hópum öfgasinn- aðra vinstrimanna og takmarkaði völd st jórnlagaþings landsins. Ráðið boðaði jafnframt sparnað- arráðstafanir f cfnahagsmálum og aukið eftirlit með skrifum dag- blaða. I tilkynningu sem ráðið birti sagði að vopnavaldi yrði beitt ef nauðsynlegt reyndist gegn hópum sem trufluðu almannafrið. Því var lýst yfir að stefnt væri að stéttlausu þjóðfélagi og sagt að ný lög yrðu sett til að stuðla að fram- gangi stefnumála portúgölsku byltingarinnar. Byltingarráðið ítrekaði stuðn- ing sinn við lýðræði margra flokka i Portúgal og lagðist þar með gegn kröfum vinstrimanna um myndun byltingarstjórnar óháða stjórnmálaflokkum og til vinstri við kommúnista, sósialista og miðdemókrata sem nú deila völdunum með hreyfingu hersins. Tekið var fram að sósíalisma yrði framfylgt án ofbeldis og gerræðis- aðferða. Tilkynningin var gefin út að loknum fundi sem stóð i alla nótt og var haldinn að loknum viku- löngum viðræðum sem leiddu til götubardaga milli vinstrisinna og hægrimanna í Lissabon. I tilkynningunni sagði að stuðn- ingur byltingarráðsins við margra flokka lýðræði fæli i sér að sam- vinna yrði að vera milli stjórn- málaflokkanna og hersins. Jafn- framt mundi herinn leyfa að kom- ið yrði á fót verkamannaráðum og ráðum sem íbúar hverfa i borgum og til sveita fengju aðild að til að tryggja bein áhrif borgara á stjórn landsins. Hins vegar mættu Framhald á bls. 39 McNamara og Dean Rusk til yfirheyrslu Wastiington 21. júní — Rcuter. HATTSETTIR embættismenn úr stjórn John F. Kennedys, þar á meðal Dean Rusk utanrfkisráð- herra, koma fyrir þingnefnd, sem fjallar um málefni leyniþjónust- unnar, CIA, á mánudag. Hefur stjórnin verið sett I samband við samsæri til að myrða stjórnmála- mennina Fidel Castro forsætis- ráðherra Kúbu, Ngo Dinh Diem fyrrum forseta Suður Vietnam og Rafael Trujillo fyrrum forseta Dominfkanska lýðveldisins. Auk Rusks mun Robert McNamara fyrrum landvarnaráð- herra og ráðgjafar Kennedys koma fyrir nefndina, en formaður hennar Frank Church, segir að óvefenganlegar sannanir tengi CIA við morðsamsæri. CBS sjónvarpið hefur sagt frá því að dr. Henry Kissinger utan- ríkisráðherra og Nelson Rocke- feller varaforseti vilji losna við William Colby sem yfirmann CIA. Hefur sjónvarpið eftir Rockefell- er að Colby vanti þann persónu- styrk sem þarf til að geta gegnt þeirri stöðu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.