Morgunblaðið - 14.09.1975, Blaðsíða 1
48 SIÐUR
209. tbl. 62. árg.
SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Stjórn USA ekki gísl
byssumanna segir Ford
St. Louis og Dallas,
13. sept. AP. Reuter.
FORD Bandaríkjaforseti sagði í
gærkvöldi i tilkynningu sem
skrifstofa hans gaf út að hann
mundi ekki láta „halda lýð-
ræðisstjórn í gíslingu með mið-
aðri byssu“ og að hann mundi
halda áfram að hitta fólk persónu-
lega á götum úti. Ummæli þessi
áttu að vera i ræðu sem forsetinn
flutti, en þeim var sleppt í flutn-
Ford
stöðvar
rannsókn
áCIA
Washington 13. september
AP—Reuter
FORD Bandaríkjaforseti
stöðvaði í dag rannsókn þing-
nefndar á starfsemi banda-
rísku leyniþjónustustofnan-
anna á þeirri forsendu að
uppljóstranir nefndarinnar
stofnuðu öryggi Bandarikj-
anna í hættu. Var nefndinni
skipað að afhenda Hvita hús-
inu þegar í stað öll leyniskjöl,
sem hún hafði fengið I hendur
frá ráðuneytum. Var sagt að
nefndin fengi ekki að halda
áfram störfum fyrr en breytt
hefði verið reglum um starf-
svið hennar, sem heimila birt-
ingu leyniskjala eftir að nefnd-
in hefur fjallað um þau.
ingi ræðunnar, þar sem öryggis-
verðir forsetans héldu að þau
væru ónauðsynlega ögrandi fyrir
þá sem kynnu að hafa hug á að
ráða forsetann af dögum. Ford fer
í dag til Dallas, borgarinnar i
Texas, þar sem Kennedy forseti
var skotinn til bana í nóvember
árið 1963. I gær fundu verðir
mann sem var á ferli við bygg-
inguna, þar sem Ford hélt ræðu í
st. Louis og var hann vopnaður.
Maðurinn komst undan og er ekki
vitað um áform hans og forsetinn
hefur gert lítið úr atvikinu. Hafi
maður þessi haft áform um að
skjóta Ford, er það annað tilfelli
af þvi tagi á einni viku.
Ford var I skotheldu vesti fyrir
nokkru á ferð sinni um ríkið New
Hampshire, en notaði það ekki í
gær í St. Louis, enda var ekki
búizt við að hann færi inn í mann-
fjölda. Sérfræðingar telja að litið
gagn sé af vestum þessum nema
þau séu úr stáli, en slík vesti eru
mjög þung og er erfitt að bera
þau á sér lengi. Léttari vesti eru
til, sem vega aðeins um eitt kiló,
en þau eru ekki örugg gegn öllum
skotum, t.d. ekki riffilskotum.
Einn aðstoðarmanna Fords lét
þess getið nýlega að til þess að
geta talizt alveg öruggur gegn
skotárás þyrfti forsetinn að
ferðast um i skriðdreka.
Gengið á fjöru við Stokkseyri. (Ljósm. Mbl. Ólafur K. Magnússon)
Indónesíumenn á Tímor?
Viðræður í Macao um eyna
Jafntefli í
4. skákiimi
Milanó, 13. sept.
KARPOV og Portisch gerðu jafn-
tefli f 4. einvígisskák sinni i loka
áfanga stórmeistaramótsins f Mil-
ano. Bauð Karpov jafntefli eftir
aðeins 20 mfnútur og 26 leiki.
Karpov hefur nú hlotið 2'A vinn-
ing er Portisch 1V4. Sá sem sigrar
hlýtur 12000 doilara f verðlaun.
Ljubojevic vann Petrosjan f 4.
skák þeirra og hafa þeir nú báðir
tvo vinninga.
Dili, Tfmor, 13. sept. Reuter
A.M.K. 20 indónesfskir hermenn
eru sagðir hafa laumazt inn fyrir
landamæri portúgölsku nýlend-
unnar Tímor og segir í fréttum að
hersveitir Fretilin-
hreyfingarinnar, sem ræður
mestu í nýlendunni, hafi um-
kringt þá og náð af þeim ein-
hverju af vopnum. Þetta er haft
eftir taismönnum Fretilin, sem er
vinstrisinnuð hreyfing og vill að
Vestur-Tfmor verði sjálfstætt rfki
þegar í stað. Hinar hreyfingarnar
tvær, sem sótzt hafa eftir völdum
f nýiendunni, UDT, sem áður
vildi náið samstarf við Portúgal,
og Apodeti hafa nú báðar lýst þvf
yfir að þær séu fylgjandi þvf að
vesturhfuti eyjarinnar verði
sameinaður austurhlutanum, en
honum ræður Indónesfa.
Leiðtogar Fretilin hafa óskað
eftir góðu samstarfi við stjórnir
Indónesíu og Ástraliu, en Adam
Malik utanríkisráðherra
Indónesíu sagði í dag, að
Indónesía gæti ekki liðið
núverandi ástand á Vestur-Tímor,
þar sem hundruð manna hefóu
látið lífið í bardögum undanfarið.
Malik sagði að þessi orð hans
væru aðvörun til stjórnar
Portúgals, sem enn ber formlega
ábyrgð á ástandinu á Tímor.
Malik hefur átt fund með fulltrúa
stjórnar Portúgals, dr. Antonio
Santos, og er verið að reyna að
koma á viðræðum í portúgölsku
nýlendunni Macao um framtíð
Vestur-Tímor, með þátttöku
Indónesíu, Portúgals og frelsis-
hreyfinganna þriggja á eynni.
Fulltrúar Fretilin segjast ekki
Nýr forseti í
Argentínu í dag
munu setjast niður til viðræðna
með fulltrúum UDT og Apodeti,
enda ráði þeir nú nýlendunni.
Enn eru einhverjir bardagar á
Tímor og er barizt um borgir og
landssvæði, sem UDT-menn og
Apodeti-menn hafa haldið til
þessa. Formaður UDT, Lopos de
Cruz, sagði í dag, að hersveitir
hreyfingarinnar væru að búa sig
Framhald á bls. 2.
Buenos Aires 13. september
— Reuter.
MARIA Estela Peron forseti
Argentfnu mun f kvöld Iáta af
Streita flugmanna oft
orsök mistaka í starfí
RUMLEGA 70% flugmanna
þjást af streitu vegna hjóna-
bandsvandamála, að þvf er dr.
Lionel Haward, sálfræðingur
við háskólann f Surrey á Bret-
landi, segir og fram kemur f
nýlegri frétt f The Times. Dr.
Haward telur ennfremur að
þessi streita geti haft aivarleg
áhrif á frammistöðu flug-
manna f starfi. Haward, sem
rekur leynileg heilsuhæli fyrir
flugmenn, sem þjást af streitu,
segir að rannsóknir sýni að
71% flugmanna konunglega
flughersins séu haidnir streitu
vegna fjölskyldu- eða hjóna-
bandsvandamála, og enginn
vafi leiki á að tfðnin sé hærri,
jafnvel mun hærri, hjá flug-
mönnum f farþegaflugi.
Dr. Haward segir að lfkur
bendi til að streita sé helzti
þátturinn í mistökum flug-
manna í flúgi, en í fyrra til-
kynnti Alþjóðasamband flug-
félaga, IATA, að helmingur
allra flugslysa væri af völdum
mistaka flugmannana, eins og
t.d. að gleyma að skipta á milli
eldsneytistanka, fylgjast með
mælum og tækjum og almennu
ónæmi fyrir umhverfinu.
Haward segir að sjálft flug-
mannsstarfið sé oft orsök
hjónabandsvandamálanna sem
svo væru orsök streitunnar.
Hann Iýsti því yfir á ársþingi
brezku vísindaþróunarsamtak-
anna að með tilliti til þess að
142 flugslys hefðu orðið á síð-
asta ári, þar sem um tvö þúsund
farþegar fórust, væri tímabært
að miklu meiri gaumur væri
gefinn að því vandamáli sem
streita flugmanna er, og víð-
tækari rannsóknir bæri að
hefja á eðli þess.
völdum „um stundarsakir" af
heilsufarsástæðum og Italo
Árgentino Luder öldunga-
deildarþingmaður verður svar-
inn inn f embætti við hátfðlega
athöfn. Frú Peron, sem er 44
ára, hefur á sfðustu vikum oft
brostið f grát eða fallið f yfir-
lið við opinber störf, og á hún
að taka sér hvfld og vera undir
læknishendi f einn til einn og
hálfan mánuð. Eftir 14
mánaða valdatíma hefur
stjórn hennar átt f höggi við
sfvaxandi stjórnmála,-
efnahags-, verkalýðs- og
hervandamál og er frú Peron
að mestu rúin völdum og
virðingu.
Luder öldungadeildaþing-
maður er 58 ára Perónisti og
forseti öldungadeildarinnar.
Hann verður fimmti forseti
Argentínu sfðan Perónistar
tóku völd á ný í maí 1973.
Hann er af ítölsku bergi
brotinn, sagður hægfara og
vilja samráð við stjórnar-
andstöðuna, en ekki er vitað
hversu mikil raunveruleg völd
hans verða.
Corvacho
rekinn
Lissabon 13. september
AP-Reuter.
EINI svæðisforingi portú-
galska hersins sem vitað er að
fylgir kommúnistum að
máium, Eurico Corvacho hers-
höfðingi, hefur verið rekinn
úr starfi og hefur hægfara her-
foringi komið f hans stað, að
þvf er áreiðanlegar heimildir
hermdu f dag. Eftirmaður
Corvachos, Antonio Pires
Velos hershöfðingi tók við
völdum f Oporto f gær. Hann
var einn helzti stuðnings-
maður Vasco Goncalves fyrr-
um forsætisráðherra og var
rekinn úr byltingarráðinu f
fyrri viku um leið og
Goncalves. öll fjögur svæðis-
fylki Portúgals eru nú undir
stjórn andkommúntskra hers-
höfðingja.
Áreiðanlegar heimildir
hermdu í morgun, að þjóð-
stjórn Portúgals yrði tilkynnt f
dag, en fréttamenn ýmsir
töldu líklegra að vegna þeirrar
hörðu afstöðu sem helztu
stjórnmálaflokkarnir hafa
tekið í stjórnarmyndunarvið-
ræðunum, þá kunni stjórnar
myndunin að dragast fram á
mánudag eða þriðjudag.