Morgunblaðið - 14.09.1975, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.09.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1975 7 8r. BOLLI GÚSTAFSSON í Laufási: himninum. Hversu fagurlega skartar þjáningin. Dauði í nánd og undanfari hans er kvíði, þessi óumflýjanlega þjáning. Samt er allt svo fagurt hér við Eyjafjörð eða austurí heiðalöndum Þing- eyjarsýslu. Mjúkar mosa- þembur, fjalldrapi og víðir. Blöðin dimmgræn, gul, fjólu- blá, fölrauð og dumbrauð. Engin árstíð býr yfir svo margslungnum litbrigðum og jafnmikilli kyrrð hérá norður slóð. En safinn rennur ekki lengur frjáls um æðar blað- anna, líf þeirri er að fjara út. Á morgun falla þau hægt til jarðar, til þess að samlagast moldinni. Og þó, þau eru lífsmagn I stundarviðjum, þeirra bíður hlutverk við upp- risu nýs vors,— Þegar Jesús Kristurfann dauðann nálgast bjó hann postula sína undir viðskilnaðinn. Honum virtist þá innanbrjósts líkt og for- eldri, sem er að kveðja börn sín, þegar ótímabæran gest hefur borið að garði, er kallar það á brott með sér. Ekkert vitum við jafn öruggri vissu, að öll bíðum við þessa dular- fulla gests, sem vekurgeig og síðan trega, sára sorg, jafnvel örvæntingu. Jesú Kristi var eins farið og góðu foreldri. Er hann fann dauð- ann nálgast, varði hann nokkrum tíma að undirbúa börnin sín. Þau vildi hann ekki skilja eftir munaðarlaus. En postularnir virtust tapa áttunum, þegar hann var svo handtekinn og leiddurá brott. Þeir sáu sitt óvænna og flýðu út í næturmyrkrið. En orð Jesú gleymdust ekki. Þeir tóku þau með sér á flóttanum. „Það er ykkur til góðs, að ég fari burt; því fari ég ekki burt, mun huggarinn ekki koma til yðar." Þegar hann talar um huggarann, á hann við heilagan anda. Hann sér fyrir, að kirkjan samfélag lærisveinanna, verður farvegur andans til mannanna. — Um þessar mundir eru skólar að hefjast. Víðs vegar um landið búa ungmenni sig undir að yfirgefa heimili sín og halda mislangan veg til náms. Sum þeirra munu jafn- hliða skólanámi búa sig undir fermingu, ganga til prests- ins. Allt frá því þau fóru að gera sér grein fyrir umhverfi sínu og höfðu fundið orðabrú yfir í huglönd ástvina sinna, þá hafa þau notið leiðsagnar þeirra. Þeim varsnemma gerð grein fyrir skírninni, að við laugina voru þau tekin inn í kirkju Krists. Brátt lærðu þau fyrstu bænirnar og glöddust, voru talsvert hreykin yfir þeim áfanga að geta hjálparlaus spennt greipar og borið fram bæna- vers. Þá vöknuðu ýmsar spurningar, sem hiklaust voru bornarfram. Þótt marg- ar þeirra reyndust fullorðna fólkinu ofviða, þá var trúnaðartraust barnsins svo sterkt,að það lokaði augun- um ánægt að kveldi í trausti þess, að mamma og pabbi gætu leyst úr spurningunum síðar. Þau höfðu sagt: ,,Þú veizt það, er verður þú stór". — Árin liðu í öryggi innan heimilisveggjanna og sjón- deildarhringurinn sýndist svo nærri í fljótu bragði. En er fram liðu stundir virtist sjónarröndin fjarlægjast, myndflöturinn víkkaði og þá „Mig skelfir ei þó skyggi að” fóru ýmsir nýir drættir að bætast í myndina, er við barninu blasti, sumir fíngerð- irfagrirog haganlega gerðir, aðrir grófir og Ijótir. Það kviknaði efi um ýmis atriði, sem fyrstu árin virtust óbif- andi staðreyndir, m.a. var óskeikulleiki þess fróðleiks, sem mamma og pabbi höfðu veitt, dreginn mjög í efa. Pabbi var ekki lengur sterkasti maður heims og mamma gerði sig seka um alls kyns vitleysu. Og þegár nær dregur því tímabili, sem við köllum gelgjuskeið, þeg- ar barnið breytist í ungling, þá skortir í mörgum tilvikum mjög á jafnvægi sálarlífsins og öfgafullar myndir eru dregnar upp af ástvinum, sem eru allt í einu og að ósekju sagðir gjörsamlega ómögulegt fólk, sem ekkert skilureða a.m.k. vill ekkert skilja. Það er vorleysing ævi- skeiðsins, þegarlæknir breytast allt i einu í fljót, byltast fram eins og þeir ætli engu að eira. — Það er um það leyti, sem gengið er til spurninga og presturinn ber fram öll þessi hátíðlegu og háfleygu orð um Guð og góða siðu. Afneitunin er á næsta leiti, löngunin til að vísa þessu málrófi um mann- gildi, skyldur og trúartraust veg allrar veraldar og stand á eigin fótum, þarsem brjósk hafði breytst í bein. „Það er ykkur til góðs, að ég fari burt," sagði Jesús. Við get- um sagt við unglingana: „Það er ykkur til góðs, að þið reynið að standa á eigin fót- um og glímið af djörfung og bjartsýni við lífið. Ástvinanna nýtur heldur ekki að eilífu. En gætið að einu. Það er erfitt, hvort heldur þið veljið að sæka á brattann eða hald- ið undan brekkunni. Hið síðarnefnda er auðvelt og Ijúft i upphafi. Lífsreynsla manna hefur ótvírætt leitt það í Ijós, að ávextir erfiðisins eru misjafnir, eftir því hvor leiðin er valin. — Á dögun- um hitti ég mann á förnum vegi. Atvikin höguðu því svo, að fyrir fáum árum tókst með okkur tveim allgóð vinátta, þótt hann sé reyndar tveim áratugum eldri en ég. Þessi kynni eru mér þakkarefni, því ég hefi lært eitthvað nýti- legt í hvert sinn, sem við höfum tekið tal saman, enda þótt við séum ekki endilega alltaf sammála.Það er vegna þess, að vinur minn hefur glímt knálega við lífið, og leitaðá brattann. Þótt líkamleg heilsa þessa manns sé biluð, þá verður það ekki fundið, ef þú réðir við hann. Hann er skáld. Hugmyndaauðgi, andleg alúð og fögnuðurinn yfir dásemdum lífins bera allt annað ofurliði, þótt skugga- hliðar dyljist honum ei. „Meðan við sleppum ekki þeirri trú, að unnt sé að gera heiminn betri og hægt er að sætta andstæðinga og kveikja lítil kærleiksljós, enda þótt geislar þeirra dragi kannske skammt, þá er lífið hér á jörð einhvers virði." Þetta sagði hann við mig á dögunum. Ég spurði hann þá hvort hann ætti ekki eitthvað í fórum slnum, sem ætti erindi til ungmenna, sem ég þyrfti að ræða við innan skamms. „Á liðnum vetri varð til lítið Ijóð". Hann hafði kvæðið hægt yfir og þegar kom að síðasta erindinu, stanzaði hann og sagði: „Kannske þú leggir þetta á minnið og flytjir þeim þetta, sem kveðju mína: Mig skelfir ei þó skyggi að og skaflar tefji spoo því ég á næga sumarsól í sinni fram á vor." Vinur minn, skáldið frá Djúpalæk, kvaddi og gekk brosandi sina leið. Það er einmitt þetta innra sólskin, andle.gt lífsfjör, sem við öðlumst, ef við veljum ekki auðveldustu og auvirðulegustu leiðina, heldur sækjum á brattann. Þá erum við ekki ein, heldur finnum við glögglega til návistar sannleiksandans. Það er æðsta hnossið i þessum heimi að finna sig leiddan af anda Guðs til þess að starfa og tjá sig óhræddur. Þá skelfumst við „ei þó skyggi að" hið ytra „og skaflar tefji spor". Það kraftaverk Guðs styður trú okkar og gæðir hana lifsmagni, að hann hefur i sannleika gefið okkur anda sinn til huggunar í raunum og til allra góðra athafna og manndóms, en um fram allt til eilífs lífs fyrir drottin vorn, Jesúm Krist, hinn krossfesta og upprisna frelsara. leÉur, Ijósmynair ný Ijósmyndastofa TÖKUM EINGÖNGU LITMYNDIR LeÉur. Ijósmyndir BARNAMYNDIR FJÖLSKYLDUMYNDIR BRÚÐARMYNDIR FERMINGARMYNDIR PASSAMYNDIR meðan beðið er. Laugavegi 96. Simi 21151. NU ER m OTSOLU MARKAÐURINH J^\\ I NYJU HUSNÆÐI AÐ LAUGAVEGI 66 I sama huslvló miólna a verzlun okkar Ótrúlegt vöruúrval á frábærlega góðu iii | j Terelyne & ullarbuxur í miklu úrvali Q Föt með vesti Pils og kjólar i Bolir [~l Stakir kvenjakkar j | UFO fíauelisbuxur. Nú er hægt að gera reyfarakaup Laugavegi 66, sími 28155 /f\

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.