Morgunblaðið - 14.09.1975, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 14.09.1975, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1975 45 VELVAKAINIDI Velvakandi svarar í slma 10-100 kl 14—15, frá mánudegi til föstu- dags 0 Læknaþjónusta í Hafnarfirði Björn Jóhannsson skrifar og beinir hann máli sínu einkum til bæjarstjórnar Hafnarf jarðar: „Fyrir nokkru tók til starfa svo- nefnd læknamiðstöð i Hafnarfirði og að vonum taldi bæjarstjórn sig hafa unnið þarft og gott verk með því að verja 4.5 millj. króna af fé bæjarbúa til að leggja læknum til húsnæði og aðstoðarfólk. Hafnfirðingar fögnuðu því framtaki að hafa loksins fengið miðstöð, þar sem unnt væri að leita til lækna ef mikið lægi við. Hafnfirðingar hafa löngum orðið að leita til heimilislækna sinna við meiri og minni slys, en að sjálfsögðu hefur þetta orðið erfið- ara er bæinn byggja yfir 12 þús- und manns. Læknamiðstöð var því fagnaðarefni. Tveggja ára dóttir mín varð fyrir þvi slysi að skerast á enni við fall fyrir hádegi sl. föstudag. Það var farið með hana í skyndi á læknamiðstöðina, en þar var enga hjálp að fá og þurfti að aka til Reykjavíkur til að fá læknishjálp i Slysavarðstofunni. Þar sem ég var heima er slysið v„arð gat ég ekið barninu til Reykjavíkur. Annars hefði eiginkonan orðið að taka leigubii fram og aftur. Er það hugsanlegt, að bæjarfulltrúar ætlist til þess að sérhver umráða- maður barns hafi tvö þúsund krónur i vasanum til reiðu er smá- slys verður? Telja þeir forsvaran- legt að leggja á börn og fuliorðná þær tafir. Aukinn sársauka og fjárútlát sem því fylgir að þurfa að aka til Reykjavíkur. Það fer ekki minna en hálf klukkustund í að fá leigubíl og aka þangað. Sá hálftími getur reynzt afdrifa- ríkur. Bæjarstjórn til upplýsinga skal loks skýrt frá móttökum þeim, sem slasað tveggja ára barn hlaut i „læknamiðstöðinni" sem kostuð er af fé bæjarbúa. Vinsemd var sýnd af stúlkunum í móttöku og reyndu þær að fá lækna til aðstoðar. Tveir voru á staðnum. Annar þeirra kvaðst ekki hafa tæki til að sauma saman skurðinn á enni hennar. Hinn læknirinn kom fram, því hann hefur líklega heyrt illa i síman- um. Þegar hann heyrði hvers kyns var hreytti hann út úr sér hranalega: „Ég hef engan til að halda á krakka.“ Og gekk snúðugt aftur inn til sín. Læknir þessi var kona, sem kom fram i sjónvarpsviðtali ekki alls fyrir löngu og kvaðst þar alltaf líta á veröldina með hinum glaðværu og mildu augum ungl- ingshetjunnar Pollyönnu. Líklega hefur það gleymzt í þetta sinn. fullorðins nianns, en Timothy var nú orðinn 24 ára og hafói hreytzt í fullorðinn mann á þessum árum, sem liðin voru. David læddist gætilega með- fram skúrnum og í áttina að horn- inu. Unterwood hlaut að vera kominn inn f íhúðina nú — það var tími til kominn að hefjast handa. Hljóðlega heddist David fyrir hornið. Höggið skall á honum eins og þruma úr heiöskíru lofti og úr myrkri umhverfisins hvarf hann ofan f enn dimmara myrkur, sem ha-gt sveipaðí sig um hann. 13. KAFLI. David reis upp kaldur og gegn- votur — og fannst sem hann hefði orðið að fullkomnu fffli. Að láta strákling koma sér svona á óvart og slá sig f rot! Hann snarsvimaði enn og varð að ríghalda sér til að detta ekki. Ilvernig hefði verið skynsamiegra að halda á málum? Jú, vfst hefði verið viturlegra að hlýða fyrra hugboði sfnu og hringja eftir liðstyrk, en ef það hafði verið nauðsynlegt áður var það beinlfnis aðkallandi nú. An þess að hirða um dynjandi rigninguna staulaðist hann yfir í Slysadeild Borgarspítalans i Reykjavík var hins vegar tekið á móti barninu af mildum og nær- færnum höndum. Við foreldrar hennar erum þakklát fyrir það. Mér skilst að læknarnir f „læknamiðstöðinni“ f Hafnarfirði greiði enga húsaleigu né fyrir ýmsa aðra þjónustu þar, en hins vegar standi til að semja um það sfðar. Hvernig væri að bæjar- stjórn semdi um væga húsaleigu gegn þvf, að læknar visuðu ekki á dyr slösuðum börnum. Gangi samningar erfiðlega mætti kannski setja aldurstakmörk — börnum innan 5 ára aldurs yrði veitt skyndihjálp í viðlögum. Þetta fyrirkomulag gæti gilt þangað til kjörnir fulltrúar fólks- ins f bænum teldu tíma til þess. kominn að koma á fót slysavarð- stofu — jafnvel bara pínulítilli slysavarðstofu. Björn Jóhannsson." % Andaofsóknir Við gerum það ekki enda- sleppt við Hafnfirðinga f dag, því að hér er bréf frá Jóni Jónssyni, Álfaskeiði 84, Hafnarfirði: „Ég var á gangi rétt fyrir hádegið yfir brúna á læknum við tjörnina hér f Hafnarfirði, en þar stendur Lækjarskóli, sem kunn- ugt er, og varð ég þar vitni að heldur hvimleiðum atburði, sem því miður er ekkert einsdæmi. Tveir ungir drengir, á að gizka 6—7 ára, voru að koma úr skólan- um með skólatöskur á bakinu. Þeir gengu niður að tjarnar- bakkanum, hentu sandi út i vatnið, svo að endurnar komu syndandi f hópum og héldu að þeir væru með brauðmola. Þegar þær voru komnar nálægt bakkanum tóku þeir steinhnull- unga og hentu í þær. Þeir hittu nokkra fugla og skemmtu sér við að sjá þá flögra veinandi í burtu. Að minnsta kosti ein hefur væng- brotnað, þvf að hún gat ekki lagt að sér vænginn. Ég gekk til þeirra og bað þá að hætta þessu, en þeir brúkuðu munn og sögðu að ég ætti ekki tjörnina, svo ég rak þá i burtu, en þeir færðu sig þá aðeins til og héldu áfram að hrella fugl- ana. Mér fyndist það ekki óviðeig- andi, að kennarar og náttúrlega foreldrarnir kenndu börnunum að umgangast dýr með virðingu." HÖGNI HREKKVISI Þú hefur munað að láta Ilögna út fyrir nóttina? Vl\v(\9 KÍVOt0 VEÍÍA CÓf)At WfoOLLQft %%% y/. sw/ tQ SAúQKYIMV m/ika- LAOOr VOtú VE1TA GÓ9AY tlorOOLWOj m etta gerðist líka... Nánast úrelt neyðarástand Fulltrúadeild bandariska þingsins hefur samþykkt að fella úr gildi neyðarástand, . . sem Franklin D. Roosevelt lýsti yfir fynr. ” 42 árum til að berjast gegn áhrifum heims- kreppunnar, og talið er að óldungadeildin fari að dæmi hennar. Hingað til hefui þingið aldrei bundið enda á nevðarástanri sem forseti hefur lýst yfir. Fræðilega séðiMiÉÉkrik er neyðarástandið frá 1933 þvt enn I fullu gildi og sömuleiðis neyðar ástand, sem Harry Truman forseti lýsti yfir 1950 vegna Kóreustriðsins, neyðarástand, sem Richard Nixon forseti lýsti yfir 1970 vegna póst- mannaverkfalls, og neyðarástand, sem hann lýsti yfir einu ári siðar vegna halla á greiðslujöfnuði. En þótt fulltrúadeildin hafi samþykkt með 388 atkvæðumgegn 5 að fella niður allar þessar tilskipanir forsetanna um neyðarástand, kemur ógildihgin ekki til framkvæmda fyrr en að tveimur árum liðnum. Ástæðan er sögð sú, að stjórnarstofnanir þurfi aðlögunar- tima til að leiðrétta skýrslur sínar. Kóngalíf á Kókoseyjum fyrir bí Kókos-eyjar eru 27 talsins og um 2.500 km norðvestur af Perth í Ástraliu. Ókrýndur konungu þeirra heitir John Clunies-Ross sem á þær flestar. Eyjarnar hafa verið i ætt hans i eina og hálfa öld, g Viktoria drottning afhenti ættinni þær til eignar „um aldur og ævi" 1886. Þess vegna hafa Ástraliumenn ekki getað tekið stjórnina þar i sinar hendur. þótt þeir hafi haft yfirráð yfir eyjunum siðan 1955. Nú verður þess þó skammt að biða, að hinum ókrýnda konungi verði steypt af stóli. Ástraliustjórn hefur ákveði að kaupa þær fyrir tvær milljónir punda og Clunies Ross virðist ætla að samþykkja kaupin þótt upphaflega muni hann hafa farið fram á 18 milljónir fyrir eyjarnar. Clunies-Ross kveðst hafa séð eyjarskeggjum fyrir fullkomnu velferðarþjóðfélagi, svo sem ókeypis læknisþjónustu, ellilaun- um og húsnæði, en þó aðeins barnaskólamenntun af ótta við fólksflótta. Eyjarskeggjar eru aðeins um 650, stunda kókoshneturækt að sjálfsögðu og hafa unað glaðir við sitt og greitt fyrir allar vörur sinar i verzlunum Clunies-Ross með plastpeningum, sem hafa verið lausn hans á efnahags vandamálum eyjanna og framlag hans til heimsmenningarinnar. f vXajWRTA ' JLJZT -INDONKI4 !sk| IX&JAN QCMN 0 Wilœ* í AUSTRALIA Indíánar setja Ford úrslitakosti Þrjátíu Sioux-lndiánar hafa verið i Washington. barið þar striðsbumbur sinar og lýst þvi yfir að þeir ætli að setja Ford forseta úrslitakosti Þeir eru frá Pine Ridge, svæði skammt frá Rapid City i Suður-Dakota, þar sem um 16.000 Indíánar búa, og krefjast þess, að endi verði bundinn á brot á samningi. sem vai geður við Indiána á þessu svæði 1868 ’ tf, Þeir ætla að senda Ford forseta bréf, þar sem þess verður farið á leit, að Indianar fái i sinar hendur stjórn eigin mála og endi verði bundinn á „átroðning" alríkislögreglunnar, FBI, og starfsmanna annarra rikisstofn ana á yfirráðasvæði þeirra. Þeir bentu á það að tveir menn frá FBI og einn Indiáni hefðu fallið I skotbardaga i Indiánanýlendunni 26. júnf og sögðu að um 26 Indiánar hefðu dáið með dularfullum hætti á svæðinu siðan 1972. Fulltrúar Indiánanna segja að samkvæmt samningnum frá 1868 megi enginn utanaðkomandi fara inn á yfirráðasvæði þeirra nema með sérstöku leyfi og þetta ákvæði hafi starfsmenn FBI og aðrir löggæzlu menn brotið hvað eftir annað. Ráðherra mœlti með Guillaume Landvarnarráðherra Vestur Þjóðverja, Hans Georg Leber, hefur lýst þvi yfir fyrir rétti að hann hafi „varla getað imyndað sér mann með eins góða skipulagshæfi- leika" og Gunter Guillaume, manninn, sem var hægri hönd Willy Brandts og hefur verið dreginn fyrir rétt ákærður fyrir njósnir. Leber kveðst þvi hafa mælt með þvi að Guillaume yrði ráðinn starfsmaður Brandts eftir kosningasigur sósfaldemókrata 1969. Guillaume aðstoðað Leber I kosningabaráttunni. Leber var svo ánægður með frammistöðu hans, að hann taidi sig geta treyst honum „fullkomlega i alla staði" og sendi bréf, þar sem hann mælti með þvi að Guillaume yrði ráðinn til starfa I forsætisráðuneytinu. Leber er í hægra armi flokksins og mætti harðri mótstöðu vinstrisinna, en Guiliaume hjálpaði honum að brjóta mót stöðuna á bak aftur. A? W/' 'Qi'tfk KlöTftOUO^

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.