Morgunblaðið - 02.12.1975, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.12.1975, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1975 31 PHIUPS KANN . -------- — - hnetuolía Royal |rl ML FLAVORS Skyndikaffi Lyftiduft Skyndibúðingar Ávaxtahlaup (Instant kaffi) Fimm Margar Einnig-grófmalað bragðtegundir bragðtegundir Hann var stundum fenginn til að temja hesta og tókst það með ágætum. Hann var rómaður fyrir glaðværð og heyrðist alltaf hvar hann var á ferð þó í fjölmenni væri, því hann var hávær mjög og hress í bragði. Foreldrar mínir voru bæði sérstaklega gestrisin, það má með sanni segja, „þau Foreldraminning: Hjónin frá Litlu-Reykj- um Páll Ámason og Vil- borg Þórarinsdóttir reistu bæ sinn á þjóðbraut miðri“. Margir áttu erindi að Litlu- Reykjum, öllum var boðið uppá kaffi, og þótti þeim báðum miður ef sá sem að garði bar mátti ekki vera að því að ganga í bæinn og þiggja hressingu. Þau voru aldrei rík af veraldar auði. En þau voru höfðingjar í reynd og raun, og auðæfin geymdu þau I hjarta sér, og gátu alltaf miðlað öðrum af því litla sem þau áttu; og mörg góð ráð voru sótt til þeirra beggja. Mér dettur í hug vísa úr kvæðinu Húsmóðirin eftir Davlð Stefáns- son sem mér finnst eiga vel við þau bæði Framhald á bls. 38 Hnetusmjör. — Saltaðar hnetur í dósum og pokum. Einnig ósaltaðar bökunarhnetur í pokum. Vörur í bezta gæðaflokki „Þið fæddust saman, og saman 1 skuluð þið verða að eilífu. Saman skuluð þið verða, þegar hvítir vængir dauðans leggjast yfir daga ykkar. Já, saman skuluð þið verða jafnvel í þögulli minningu guðs“. Fyrir nokkrum árum dreymdi mig að ég væri stödd uppá Hellis- heiði, þar sem nýi vegurinn liggur nú. Sé ég þá langa brúðarfylkingu koma að austan. Ég staldra við og bíð. Þegar gangan kemur nær sé ég að brúðhjónin eru foreldrar mínir, og ber faðir minn brúðar- vönd, og ljómaði friður og ham- ingja af þeim báðum. Ég réð j drauminn þannig að það yrði skammt á milli þeirra, og faðir minn yrði á undan þegar þau kveddu þennan heim. Enda varð sú raunin á, þvf faðir minn andaðist aðfaranótt 24. júní en móðir mín hálfum mánuði seinna, þann 7. júlí. I fögru og blíðu vor- veðri voru þau til moldar borin, með viku millibili. Og stór var vina- og ættingjahópurinn sem fylgdi þeim hinsta spölinn. „Þetta var góður endir,“ sagði einn sveit- ungi þeirra við mig, við jarðarför móður minnar. Og sannarlega var það satt. Þau voru búin að skila erfiðu og löngu dagsverki og voru hvíldar þurfi. Ég minnist þeirra með þakklátum og hrærðum hug og langar að minnast þeirra með nokkrum fátæklegúm orðum. Móðir mín Vilborg Þórarins- dóttir Öfjörð var fædd I Austur- hlíð í Gnúpverjahreppi 12. febrúar 1892, dóttir Guðnýjar Oddsdóttur og Þórarins M. Öfjörð. Þau fluttust nokkrum árum síðar að Fossnesi og bjuggu þar sfðan. Faðir minn var fæddur á Hurðabaki í Villingaholtshreppi 27. október 1889, sonur Guðrúnar Sigurðardóttur og Arna Páls- sonar. Nánar mun ég ekki fara útl ættir þeirra. Þegar ég minnist æskuáranna kemur margt I hug- ann, og allt stendur ljóslifandi eins og það hafi gerst I gær. Ég man er ég staulaðist örþreytt eftir langan dag og klifraði uppá bring- una á pabba og hann háttaði mig með ást og umhyggju og stakk mér svo undir sængina í handar- krika sinn, þar sem ég sofnaði örugg og ánægð, Og ein af mínu bestu minningum er um það þegar mamma safnaði okkur krökkunum í kringum sig I rökkrinu á kvöldin og söng fyrir okkur og lét okkur syngja með sér og kenndi okkur kvæði og bænir. Hún vandi okkur á að fara aldrei að sofa án þess að lesa bænirnar okkar. Hún var sönn I sinni trú, þó hún flíkaði því ekki. Og jólin voru sannarlega hátíðleg, þó þar væri ekki sá íburður eða kostnaður sem nú tiðkast. Pabbi skammtaði hangikjöt og heima- bakað brauð, sem mamma bak- aði á sérstakan hátt um jólin. Svo sátu allir hver með sinn disk, síðan var jólagjöfum úthlutað, það voru 3 stór kerti og 5 lítil og spil, þau voru ómiss- andi. Pabbi var mikill spila- maður, og var jafn viljugur að spila marías og fant við okkur krakkana og eins vist og bridge við þá fullorðnu, og virtist skemmta sér jafn mikið í báðum tilfellum. A jólamorguninn vakti mamma alla með súkkulaði og kökum, sem hún færði okkur i rúmið og sagði „Góðan dag og gleðilega hátíð.“ Þá var sönn hátíð i litla bænum. Foreldrar mínir varðveittu alltaf barnið i hjarta sér, þau skemmtu sér innilega við að taka þátt I leikjum okkar, og voru þáu stund- um fremst í flokki, en þó oftar mamma. Hún var oft frumkvöðull að allrahandanna uppátækjum og meinlausum hrekkjum. Stundum bjó hún sig I gervi gamallar konu og kom þá gangandi framan veg, og barði að dyrum sem bláókunn- ug manneskja, þóttist vera að spyrja til vegar eða eitthvað annað erindi, og var með allra- handanna kúnstir og undarleg- heit til að skemmta okkur. Sjálf hafði hún mikið gaman af, því leiklist var eitt af hennar aðal áhugamálum, og skemmti hún sveitungum sínum með leik sín- um langt fram eftir aldri. Og lagði oft á sig mikið erfiði í því sam- bandi. Þá voru ekki bílar á hverjum bæ, og þurfti hún að fara gangandi langa leið í misjöfnum veðrum og kolsvarta myrkri til að komast á æfingar. Faðir minn tók aldrei þátt í leikstarfsemi en hann kunni mikið af visum, þulum og ævintýrum og hafði sér- staklega góðan frásagnarhæfi- leika svo unun var á að hlýða. Oft stóð ég dag eftir dag og þandi físibelg i smiðju hjá honum. Þá skemmti hann mér með þvi að segja mér sögur og kveðast á við mig. Og ef mig vantaði visu þá kenndi hann mér hana, og endaði það með því að við urðum nokkuð jöfn í þeim leik. Hann var mjög góður járnsmiður og rómaður skeifnasmiður og mjög laginn við að járna hesta. Hann hafði alltaf mikið yndi af góðum hestum, og hafði gaman af að ríða hart. Margskonar sælgæti Te í grysjupokum og skyndite (instant te) TÆKNINNI pVAtLtPs KfE'-'S 140 I kr. 48.300 2ja dyra 160 I kr. 55.200 225 I kr. 73.300 170 I kr. 58.100 275 I kr. 80.600 205 I kr. 63.800 350 I kr. 99.500 325 I kr. 83.700 390 I kr. 127.000 HEIMILISTÆKI SF. HAFNARSTRÆTI 3 - S(MI 20455 SÆTÚN 8 SÍMI 15655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.