Morgunblaðið - 06.01.1976, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.01.1976, Blaðsíða 33
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ.JUDAGUR 6. JANUAR 1976 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANUAR 1976 19 Sagt eftir jafnteflisleikitin Loks tókst það sem við œtluðum okkur — sagði Viðar Símonarson — Eg er auðvitað ánægður með útkomuna, sagði Viðar Sfmonarson. landsliðsþjálfari. eftir leikinn á lauRardaginn, en bætti þvf síðan við að óneitanlega hefði verið skemmtilegra að sigra. — En þeir voru með kniittinn á lokamfnútunni og líku mjög skynsamlega, sagði Viðar — náðu út úr þvf vfti og tókst að jafna. — Varnarleikurinn tókst mjög vel hjá okkur f þessum leik, sagði Viðar, — nú loksins náðum við að útfæra hann eins og við höfðum ætlað okkur að gera, t.d. á móti Júgóslövunum og baráttuandinn sem ekki hefur verið nægjanlegur f liðinu til þessa var nú nægur og fleytti liðinu yfir erfiðan hjalla. fig álít, að nú só samæfing leikmannanna loksins að koma fram, en auðvitað þyrfti hún að verða betri og getur orðið betri með meiri samæfingu. Það tekur mjög langa tfma að ná því bezta út úr þessu liði, a.m.k. þannig að það geti leikið leik eftir leik af öryggi. Þegar Viðar var að þvf spurður hvort hann teldi að frammistaða Rjarna Jónssonar f þessum leik myndi ekki tryggja honum fast sæti f landsliðinu f vetur svaraði hann: — A þvf tel íg engan vafa. fig hef alltaf haft augastað á Rjarna sem landsliðsmanni, og það er mikill fengur að þvf að hann skuli vera kominn inn f liðið aftur — jafngóður og harður f horn að taka eins og hann er svo oft. Ekki frnmlegnr haníknatt- leiknr en árangnrsríknr - sagði Ewtouschenko, þjálfari Sovétmanna — Ég get ekki annað sagt en að fslenzka liðið hafi komið mór gffurlega á óvart, sagði Anatoli Ewtouschenko, aðalþjálfari sovózka handknattleikslandsliðsins, f viðtali við Morgunblaðið eftir landsleikinn á laugardaginn. — Eg sá fslenzka liðið leika úti f Júgóstavfu s.l. sumar og hika ekki við að fullyrða að það lók nú miklu betur en þá. Það var gffurleg barátta í liðinu að þessu sinni, og það er skipað svo góðum handknattleiks- mönnum að þegar það nær upp baráttunni er það ákaflega erfitt viðureignar. Hitt verður Ifka að taka með f reikninginn að mfnir menn áttu ekki góðan dag að þessu sinni, og náðu aldrei að útfæra það sem fyrir þá var iagt. Hafði það örugglega sfn áhrif að Maximow gat ekki leikið með vegna meiðsla, en hann er gffurlega sterkur leikmaður. Ewtouschenko lýsti yfir aðdáun sinni á fslenzka liðinu f leiknum á laugardaginn og sagði, að þótt allur samanburður væri auðvitað erfiður, þá væri óhætt að slá því föstu að fslenzka liðið væri ekki slakara en lið beztu Evrópurfkjanna, þegar þvf tækist vel upp. — Það er eiginlega ekki hægt að lýsa fslenzka liðinu. sagði hann. — Handknattleikur- inn sem það leikur er ekki frumlegur, en hann er árangursrfkur og erfitt að finna svör við honum. Þegar þjálfarinn var að þvf spurður hverjir fslenzku leikmannanna væru beztir að hans dómi, svaraði hann að bragði að það væru leikmenn númer 7 og 8, þ.e. Hlafur H. Jónsson og Olafur Einarsson. Gaman að koma inn í þetta aftur — sagði Bjarni Jónsson — Það er gaman að vera kominn inn f þetta aftur, sagði Bjarni Jónsson eftir leikinn á laugardaginn, þar sem hann sat og var að ná umbúðum af öklanum á sór, en Bjarni meiddist snemma í leiknum. — Hann stökk á mig og sneri mig þannig niður að óg meiddist, sagði Bjarni. — en eftir að búið var að búa um öklann leið mór strax skár og f hita og hörku leiksins mátti óg ekkert vera að því að hugsa um sársaukann. — Þetta sovózka lið er geysilega sterkt, sagði Rjarni, — og leikmenn þess harðir í horn að taka og greinilega þrautþjálfaðir. En fslenzka liðið náði góðum leik að mfnum dómi og það eina sem var leiðinlegt við leikinn var að við sk.vldum ekki sigra. — Við hefðum átt það skilið. Ekkert eftir gefið. Stefán Gunnarsson lætur sig vaða inn í teiginn eftir hraðaupphlaup Islendinga og skorar. íslenzkur handknattleikur fékk uppreisn með jafntefli gegn einu bezta liði heims ÍSLENZKUR handknattleikur fékk mikla uppreisn á laugardag- inn, er landsliðið gerði jafntefli, 13:13 við Sovótmenn f landsleik sem fram fór í Laugardalshöll- inni. Þetta er afrek sem eftir verður tekið og verður munað, þar sem það er allra álit að Sovét- menn eiga nú á að skipa bezta landsliði heimsins — liði sem hefur t.d. tekið Júgóslava í kennslustund bæði á útivelli og heimavelli. Eftir allt sem á undan er gengið er þessi árangur íslenzka landsliðsins ákaflega kærkominn. Hann er sönnun þess að við stöndum enn jafnfætis þeim beztu þegar vel tekst til. Hann er einnig staðfesting á því að hérlendis er breiddin það mikil að liðið getur náö slíkum árangri, jafnvel þótt nokkrir leik- Tel það mikinn heiður að leika með landsliðinu — Ég hef alltaf talið það sérstak- an heiður að vera valinn í íslenzka landsliðið, sagði Jón Hjaltalín, í við- tali við Morgunblaðið eftir leikinn á sunnudagskvöldið, — og mun álfta það áfram, verði ég valinn. Hins vegar finnst mér eðlilegra að ræða það fvrst við HSÍ og landsliðsþjálf- arann hvort ég eigi heima f liðinu, áður en ég lýsi þvf vfir í blöðunum að ég sé tilbúinn að leika. Það kem- ur þarna margt til, m.a. atvinna mín í Svfþjóð og hvort unnt er að samræma æfingar með landsliðinu við hana. Jón sagði að því væri ekki að neita að það hefði verið erfitt að koma inn í íslenzka liðið á sunnudagskvöldið. — Ég var fyrst boðaður til leiksins á laugardagskvöld og hef ekki leikið með strákunum í tvö ár. Kerfin sem við lékum voru hins vegar tiltölulega fá, þannig að ég fann mig mjög vel í fyrri hálfleiknum. 1 seinni hálf- leiknum settu Sovétmenn undir þann leka, og þá fannst mér ég ekki fá nægjanlega aðstoð. Slíkt er auðvitað mjög eðlilegt — við höfðum aldrei æft andsvör við þeim aðgerðum sem Sovétmenn beittu. Þegar Jón var beðinn að gera samanburð á íslenzka landsliðinu og því sænska, svaraði hann því til að sér virtust þessi lið mjög áþekk að getu. Munurinn væri sá að sænska liðið æfði miklu meira saman og því væri meira öryggi í leik þeirra — það ætti sjaldan mjög lélega leiki. — Við get- um hins vegar náð toppleikjum, en síðan dottið niður fyrir það sem teljast verður meðallag, sagði Jón. — Þarna kemur til að aðstaðan er alltof slæm hérna, ekki einu sinni hægt að fá æfingahúsnæði. Með því að veita meiri peninga og tíma í landsliðið er ég viss um að við gætum náð okkur upp og verið stöðugt við toppinn, sagði Jón. Sem kunnugt er starfar Jón Hjalta- lín sem verkfræðingur hjá sænsku skipasmíðastöðinni Kockum. Hann sagði að það hefði verið tilgangur sinn með því að dvelja áfram i Sví- þjóð að loknu námi, að öðlast reynslu i starfi og hann hefði það ágætt úti í Svíþjóð. Hann væri hins vegar ákveð- inn í að koma heim aftur. — Það er aðeins tímaspursmál hvenær ég flyt aftur heim, sagði Jón, — ég bíð eftir góðri vinnu og góðu tækifæri hér heima. manna, sem taldir eru beztir, séu ekki með, en að þessu sinni vant- aði þrjá þeirra leikmanna, sem dvelja í Þýzkalandi í vetur. Viðar Símonarson, landsliðs- þjálfari, segir í viðtali sem birtist á öðrum stað, að nú loks hafi samæfing landsliðsins komið fram en hún þurfi þó að vera langtum meiri. Örugglega eru þetta orð að sönnu hjá landsliðs- þjálfaranum. Islenzka liðið sýndi í leiknum á laugardaginn hvers það er megnugt, en flestir þeir sem fylgzt hafa með handknatt- leik hérlendis síðasta áratuginn vita Iíka að því miður skortir okkur öryggi til þess að vera á borð við þá beztu í leikjum. Það er oft of skammt milli frábærs árangurs landsliðsins okkar og herfilegra skella sem það hlýtur, og þar er örugglega engu öðru um að kenna en að leikmennirnir æfa ekki nógu mikið saman. Auðvitað höfum við enga aðstöðu til þess að búa okkar mönnum sömu aðstöðu og t.d. Sovétmennirnir hafa, a.m.k. ekki meðan stjórnvöld hafa jafntakmarkaðan skilning á gildi íþrótta og afreksmennsku og þau augljóslega hafa. íslenzka landsliðið sýndi á laugardaginn bezta leik sem und- irritaður hefur séð það leika, sennilega síðan liðið gerði jafn- tefli við rúmensku heimsmeist- arana um árið. Liðinu tókst allan leikinn að útfæra leikkerfi sem er það eina sem dugar á móti liði eins og Sovétmönnum sem byggja allt' sitt upp á þrautskipulögðum leikkerfum. íslenzk lið hafa oft náð upp Ieikköflum í landsleikj- um þar sem jafnvel hefur til tek izt en -aldrei náð að færa betur út heilan leik. Sannast sagna var vörn íslenzka liðsins í leiknum frábærlega útfærð — svo vel að Sovétmennirnir sem skorað hafa yfir 20 mörk i hverjum einasta landsleik sem þeir hafa leikið að undanförnu, komust oft í mikil vandræði og sóknarleikur þeirra jaðraði oft við að vera hrein leik- leysa. Kerfin öll voru stöðvuð í fæðingu og leikmennirnir höfðu ekki framtak til þess að losa sig undan þeim. Alltaf þurfti að byrja að nýju og stilla upp í ákveðnar stöður. Til þess að útfæra slíka vörn sem íslenzka liðið sýndi í leiknum þurfa • leikmennirnir að sýna gífurlega baráttu. Þegar ,,senterarnir“ fara svo langt út og þeir gerðu í leiknum til þess að trufla, reynir mikið á snerpu annarra varnarleikmanna, þar sem auðvitað er alltaf hætta á að þeir missi menn inn fyrir sig. En hver einasti leikmaður íslenzka liðsins barðist eins og ljón og sýndi ótrúlega mikið úthald. Eina veilan sem greina mátti í vörninni var í upphafi leiksins, er hinn mjög svo hávaxni Chrernushow var ekki stöðvaður nógu framar- lega. Gerði hann 4 mörk á fyrstu 20 mínútunum, en si*an var algjörlega sett fyrirþann leka og hann komst ekki einu sinni i skot- færi. Það er erfitt að hrósa einum leikmanni íslenzka liðsins öðrum fremur fyrir varnarleikinn. Þar áttu allir nokkurn veginn jafnan hlut að máli. Því er þó ekki að neita að Ólafur H. Jónsson sem var í ákaflega erfiðu hlutverki í leiknum, skilaði því gjörsamlega óaðfinnanlega. Bjarni Jónsson var liðinu mikill styrkur í vörn- inni, og nýliðinn Steindór Gunnarsson sýndi hversu mikill handknattleiksmaður hann er. t leik sem þessum hefði sannarlega verið hætta á að taugar leikmanns sem var að leika sinn fyrsta leik gæfu eftir en það var eitthvað annað hjá Steindóri. Stundum fannst manni hann vera óþarflega grófur í varnarleik sínum, en hann slapp þó við áminningu og útafrekstur þangað til skamml var til leiksloka. Sóknarleikur íslenzka liðsins var einnig mjög vel útfærður. Hann var ef til vill ekki eins beittur og við höfum oftsinnis séð hann, en sóknarloturnar voru langar og beðið var eftir færum. Nýtingin var þar af leiðandi mjög góð. Aðeins einu sinni í leiknum var dæmd töf á íslenzka liðið, enda alltaf mikil ógnun í sóknar- leiknum, þótt loturnar væru langar, og fríköstin sem íslenzka liðið fékk dæmd voru óteljandi. Þarna kom Bjarni Jónsson vel að notum, en hann ,,keyrði“ jafnan vel inn í sovézku vörnina ög varnarmennirnir urðu að stöðva hann með brotum, til þess að hann fengi ekki færi. Vissulega veikti það liðið að Björgvin Björgvinsson lék ekki með, en þeir Árni Indriðason, Steindór Gunnarsson og Stefán Gunnarsson hreyfðu sig allir mjög vel á línunni og opnuðu með því bæði sér og öðrum möguleika. Sem fyrr segir var Ólafur H. Jónsson bezti leikmaður islenzka Iiðsins i leiknum og hefur senni- lega ekki átt betri leik fyrr né síðar. Afturkoma Bjarna Jóns- sonar var liðinu ómetanlegur styrkur, og ef til vill sá maður nú betur en áður í vetur hversu Bjarni er góður handknattleiks- maður. Frammistaða hans í þess- um leik ætti að tryggja honum fast sæti í landsliðinu á þessu keppnistímabili. Þá var Olafur Einarsson atkvæðamikill í sókn- inni og mun rólegri og yfirvegaðri en hann hefur oftast verið áður. Þau voru t.d. ekki mörg skotin hans sem ekki nýttust í leiknum. Sigurbergur Sigsteinsson og Páll Björgvinsson léku mjög framarlega á vellinum í vörninni og stóðu báðir vel í þeirri stöðu, sérstaklega þó Sigurbergur, sem var fljótur að skjótast fram og aftur og var erfitt fyrir Sovét- mennina að átta sig á honum. Þegar á heildina er litið verður ekki annað sagt en að hver einasti einstaklingur landsliðsins hafi átt þarna toppleik — gert það sem við var húizt af honum og meira að ségja vel það. Stjl. Baráttan tók sinn toll af þreki íslenzku leikmannanna og sovézkn birnirnir sigruðn í seinni leiknnm ÞAÐ vantaði ekki baráttuna, kraftinn og viljann til að vinna í seinni landsleik íslands og Sovétmanna á sunnudagskvöldið í Laugardalshöllinni. íslenzka liðið náði að sýna mjög góðan leik í fyrri hálfleiknum og landinn leiddi með einu marki, 9:8, þegar gengið var til leikhlés. Fljótlega kom svo í Ijós í seinni hálfleiknum að hin mikla barátta í fyrri leiknum og fyrri hálfleik síðari leiksins hafi tekið sinn toll af þreki leikmanna og náðu sovézku birnirnir að síga framúr í hálfleiknum. Urslitin urðu 19:15 þeim í vil, en íslenzku leikmennirnir gátu verið stoltir af árangri slnum í leikjunum tveimur gegn hinum annaðhvort risavöxnu eða samanreknu sovézku vöðvabúntum. Fyrri hálfleikur seinni leiksins var mjög vel leikinn af íslenzka liðinu og var þar sennilega um bezta leikkafla íslenzka liðsins í leikjunum tveimur að ræða. Sérstaklega í vörninni, en sóknarleikurinn var einnig mjög líflég- ur og þó nýtingin væri ef til vill ekki nægilega góð, þá var leikið af skyn- semi og samvinna var fyrsta boðorðið Rússarnir léku með 1 5 leikmenn að þessu sinni — reglur gera ráð fyrir 1 2 i liði — og þeir sem á undanþágunni komu í lið Rússanna voru markvörður- inn Ischienko og Maximov, sá er af flestum er talinn snjallastur handknatt- leiksleiksmanna austur í Rússlandi Styrktu þessir tveir leikmenn lið Rúss- anna mjög og var það því mun ánægjulegra að sjá hversu vel íslenzka liðið lék En á íslenzka liðinu hafði líka orðið ein breyting Sá snjalli leikmaðúr Bjarni Jónsson gat ekki leikið þennan leik vegna tognunar á ökla, sem hann hlaut i fyrri leiknum og í hans stað kom Jón Hjaltalín Magnússon í íslenzka landsliðið Munaði mikið um Jón, hann var stöðug ógnun rússnesku vörninni, auk þess sem hann skoraði gullfalleg mörk. Allur fyrri hálfleikurinn var mjög jafn, munurinn aldrei meiri en 2 mörk, og íslenzka liðið oftast yfir Þrátt fyrir að íslenzka liðið - tapaði knettinum nokkrum sinnum á klaufalegan hátt — skref 4 sinnum — þá gáfu þeir hvergi eftir og með snilldarleik í vörninni rugluðu þeir andstæðingana algjörlega í ríminu. Kerfi þeirra gengu engan veginn upp, Maximov var eltur og örvæntmg greip um sig meðal leik- manna liðsins Ekki yar ástandið betra á varamannabekknum sovézka þar sem þjálfari liðsins hundskammaði leik- menn sina, bölvaði og ragnaði og jók með því taugaveiklunina meðal leik- manna liðsins. Það hefur örugglega verið talað rækilega yfir hausamótunum á sovézku leikmönnunum í leikhléi og það tók sinn tima því sovézka liðið lét ekki sjá sig fyrr en talsvert var komið fram yfir venjulegan hvíldartíma Byrjaði sovézka liðið af miklum krafti í seinni hálfleiknum og lék nú vörnina framar en áður og kom það íslenzku leik- mönnunum talsvert á óvart Er leið á leikinn og Rússarnir höfðu komizt yfir fóru þeir að tefja, en landinn gafst ekki upp. Munurinn minnkaði úr 13:10 niður í 14r13 Rússunum í vil, en þá loks kom að vendipunktnum í leiknum Arna Indriðasyni var vikið af velli í 2 mínútur og með 2 mörkum Maximovs úr vítum og einu marki Klimovs komust Rússarnir i 17 13 Er hér var komið sögu var orðin lítil ógnun í leik íslenzka liðsins. Leikmennirnir höfðu ekki kraft til að brjótast framhjá sovézku vörninni og í uppstökkunum settu skytturnar afturendann í Rússana í stað þess að láta kné fylgja kviði eins og þær höfðu áður gert Rússarnir héldu sinni fjögurra marka forystu og unnu leikinn 19:1 5 Það sem íslenzka liðið sýndi í leikjunum tveimur gegn Sovét er það bezta sem landsliðið hefur sýnt í vetur Má vel vera að árangurinn af sam- æfingu liðsins í Danmörku fyrir jól hafi fyrst komið í Ijós í þessum leikjum, þreyta hafi setið í mannskapnum í leikjunum við Júgóslava. Það var mikil stemming í liðinu í þessum leikjum og þá einkanlega í vörninni Markvarzlan lét þá heldur ekki á sér standa og stóð Ólafur Benediktsson sig frábærlega vel í markinu allar þær 1.20 mínútur, sem leikið var við Sovétmennina að þessu sinni Það fer ekki á milli mála að Rússarnir eiga mjög sterku liði á að skipa, en þrátt fyrir reynslu leikmanna þess þá virtist svo sem þeir færu úr jafnvægi við hversu vel íslenzka liðið lék. Voru þeir lengi að finna ráð við varnarleik islenzka liðsins og gátu reyndar aldrei notað kerfi þau sem liðið er frægt fyrir Nokkrir leikmanna íslenzka liðsins skáru sig úr að þessu sinni. Skulu þar fyrstir nefndir nafnarnir Ólafur H Jónsson og Ólafur Benediktsson, Jón Hjaltalín Magnússon og Stefán Gunnarsson Allir léku þessir leikmenn mjög vel, sérstaklega vel Óli Ben veggur í markinu, Óli Jóns heilinn í leik liðsins og stöðug ógn hvort sem var á línu eða fyrir utan — klettur í vörn, Jón Hjaltalín sannkölluð fall- byssa, sem kallaði iðulega á tvo af varnarmönnunum sovézku og loks Stefán Gunnarsson, baráttumaðurinn ódrepandi Auk þeirra þá vex Árni Indriðason með hverjum leik, Steindór Gunnarsson, Valsmaðurinn ungi, sem nú lék sína tvo fyrstu landsleiki, en er kominn til að vera Ólafur Einarsson átti ágætan dag og lét nú knöttinn ganga betur en í fyrri leiknum, Páll Björgvinsson sem stóð sig betur nú en í síðustu leikjum í sókninni og gætti Maximovs vel í vörninni, Jón Karlsson stóð sig allvel, sömuleLðis Sigurbergur en hann var lítið notaður Hörður Sig- marsson meiddist snemma i leiknum og varð að sauma nokkur spor í skurð á enni, þannig að hann gat ekki leikið meira með Þá er aðeins ónefndur Guðjón Erlendsson, sem ekki kom inn á í leikjunum tveimur, enda ekki ástæða til — slík var frammistaða Ólafs Benediktssonar Þó svo að íslenzka liðið tapaði seinni leiknum þá var hann ánægjulegur að mörgu leyti, sérstaklega vegna þess að islenzka liðið lék saman sem lið, sem heild, eins og Ólafur H Jónsson orðaði það að leiknum loknum -- áij Jón Hjaltalfn Magnússon var mikill ógnvaldur Sovétmanna 1 seinni leiknum og tóku þeir hann um tíma úr umferó. Þarna hefur Jón náð aó lvfta sér og andartaki sfðar hafnaði knötturinn f marki Sovétmanna. c/ . I stuttu máli Fyrri leikurinn 13—13 t STl'TTl' MAU: LANDSLEIKUR 1 HANDKNATTLEIK LAUGARDALSHÖLL 3. JANÚAR ÚRSLIT: ISLAND — SOVÉTRlKIN 13—13 (9—7) GANGÚR LEIKSINS: MlN. ISLAND SOVÉTRlKIN 4. Stefán 1:0 4. 1:1 Chrernushow 5. Ölafur E. 2:1 7. 2:2 Chrernushow 8. 2:3 Plaehotin 9. Ólafur E. 3:3 10. 3:4 Chrernushow 15. Ólafur E. 4:4 16. Ólafur J. 5:4 20. 5:5 (,'hrernushow 21. Ólafur J. 6:5 22. 6:6 Lagutin 23. Árni 7:6 24. 7:7 Iljin 25. ólafur J. 8:7 29. Steindór 9:7 HÁLFLEIKUR 39. 9:8 Chiku n I STl'TTÚ MALI: LANDSLEIKÚR I HANDKNATTLEIK I I.AÚG ARDALSHÖI.L 4. JANÚ AR. ISLAND — SÖVÉTRlKIN 15:19 (9:8) GANGÚR LEIKSINS: MlN. ISLAND RCSSLAND 3. ólafur J. 1:0 4. 1:1 W'asili 5. 1:2 Krawson 8. Arni 2:2 10. Ólafur E. 3:2 10. Stefán 4:2 15. 4:3 Kliniov 16. 4:4 Wasili 16. Jón Hjaltalín 5:4 17. Páll 6:4 21. 6:5 Mazelijarskas 26. 6:6 Maximov 27. Jón Iljaltalín 7:6 28. 7:7 Fedjutkin 28. 7:8 Maximov 29. Jón Hjaltalín 8:8 30. Ólafur J. 9:8 LEIKHLE 32. 9:9 Krawson 33. Ólafur E. 10:9 ■ 33. 10:10 Klimov 36. 10:11 Wasili 37. 10:12 Maximov 41. 10:13 Wasili 42. ólafur J. 11:13 46. Páll 12:13 47. 12:14 Mazeljanskas 49. Jón Karls. 13:14 51. 13:15 Maximov (v) 51. 13:16 Klimov 40. 9:9 Lagutin (v) 42. Jón 10:9 44. Ólafur E. 11:9 47. 11:10 Kzawehow 49. 11:11 Kidaew 51. Stefán 12:11 52. 12:12 Lagutin 55. Jón K. (v) 13:12 60. 13:13 Lagutin (v) MÖRK ISLANDS: Ölafur Einarsson 4. Ólafur II. Jónsson 3. Slefán Gunnarsson 2. Jón Karlsson 2. Sleindór Gunnarsson 1. Arni Indriðason 1. MÖRK SOVÉTRIKJANNA: Chrernushou 4. Juri Lagutin 3. Vietor Plaehotin I. Anatoli Fedjukin 1. Wassili Iljin I. Chikun 1. Wladimir Kzawchow I. Juri Kidaew 1. BROTTVÍSANIR AF VELLI: Steindór Gunnarsson og Ólafur Einarsson í 2 mín. MISHEPPNAÐ VlTAKAST: Ekkert DÓMARAR: Gunnar Knudsen og Knud Hjuler frá Danmörku og dæmdu þeir leikinn mjög vel. Höfðu góð tök á honum. en leyfðu hins vegar öllu meira en við eigum að venjast hérlendis. stjl. —19 55. 13:17 Maximov (v) 55. Árni 14:17 59. 14:18 Kidjaliew 60. 14:19 Lagutin 60. Jón Karls. (v) 15:19 MÖRK ISLANDS: Ólafur H. Jónsson 3, Jón Hjaltalin Magnússon 3, Árni Indriðason 2, Ólafur Einarsson 2, Páll Björgvins- son 2, Jón Karlsson 2, Stefán Gunn- arsson 1. MÖRK SOVÉTMANNA: Maximov 5, Wasili 4, Klimov 3, Krawzon 2, Mazeljanskas 2, Lagutin 1, Fedjutkin 1, Kidjaliew 1. BROTTVÍSANIR AF LEIKVELLI: Árna Indriðasyni og Kidjaliew var báðum vísað af velli í tvær minútur. MISHEPPNUÐ VÍTAKÖST: Ólafur Benediktsson varði vitakast frá Maximov i fyrri hálfleik. DÓMARAR: Knudsen og Hjuler. Dæmdu þeir leikinn allvel og þurftu islenzku leikmennirnir að minnsta kosti sjaldan að kvarta yfir dómum þeirra. Hins vegar fannst undirrituð- um þeir vera helzt til ragir við að dæma vitköast. ÁHORFENDUR: 2400 keyptu sig inn. Seinni leikurinn 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.