Morgunblaðið - 17.02.1976, Page 2

Morgunblaðið - 17.02.1976, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRUAR 1976 Ríkissjóður tekur erlent lán að upphæð 3244 millj. FIMMTUDAGINN 12. febrúar var undirritaður í París samningur um opin- bert lánsútboð ríkissjóðs að fjárhæð 15 millj. Evrópureikningseininga Víðtæk verkföll Framhald af bls. 36 ingum. Er í tillögunni gert ráð fyrir 24% fiskverðshækkun og að á móti komi lækkun skipta- prósentu en óvisst var hve sú lækkun var ráðgerð mikil þegar Morgunblaðið hafði siðasi fregnir um miðnætti. Önnur atriði voru ekki tekin fyrir í tillögunni, svo sem sérkröfur. Deiluaðilar höfðu tillöguna til athugunar og út- reiknings, og áttu þeir að skila svörum til sáttanefndar fyrir klukkan 2 í nótt. 0 Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands íslands, sem á sæti í sérstakri nefnd á vegum ASt, sem fjallar um undanþágubeiðnir vegna verkfallsins, sagði við Mbl., að um klukkan 23 í gærkvöldi hefði komið beiðni um undanþágu til mjólkurframleiðslu og dreifingar. Guðmundur sagði, að raunar hefði legið fyrir frá fulltrúum Verkalýðsfélaganna á Selfossi og Borgarnesi að ef slík undanþága yrði veitt væri verkfallið á þess- um stöðum runnið út í sandinn. Jafnframt þvl hefði beiðni mjólkurbúanna verið ruddalega fram sett og tekið fram að annað- hvort vildu þeir fá undanþágu fyrir alla framleiðslu mjólkur eða enga. Var þessari beiðni hafnað. Guðmundur kvað launþegafélög- in vera treg tíl að veita undanþág- ur að þessu sinni. Þó væri það grundvallaratriði að veita Land- helgisgæzlunni alla þá þjónustu sem hún þarfnaðist. • Þetta er víðtækasta verkfall sem orðið hefur hér á landi frá fyrstu tíð, að sögn Björns Jóns- sonar, forseta Alþýðusambands- ins, og stöðvar það að mestu ásamt yfirstandandi sjómanna- verkfalli allt athafnalff hér á landi, bæði í framleiðslu- og þjónustugreinum. Á miðnættu komu til framkvæmda boðuð verkföll hjá nær 60 aðildarfélög- um ASt, en innan vébanda þeirra eru milli 30 og 35 þúsund manns. Á næstu dögum munu bætast við um 15 félög til viðbótar, og verk- fall þetta mun þá ná til vel yfir 90% allra félaga Alþýðusam- bandsins. Að sögn Björns standa engin stór launþegafélög innan ASl utan við þetta verkfall, heldur kvað hann þar fyrst og fremst vera um smá félög að ræða með fáa félagsmenn, sem ekki hefði verið lögð nein áherzla á að fá til þátttöku I þessu verkfalli, og jafn- vel í sumum tilfellum fremur latt til þess. Ilannes Jónsson sendiherra Is- lands í Moskvu Hannes Jóns- son veitist að brezka sendi- herranum í Moskvu AP-fríll frá Moskvu HANNES Jónsson, sendiherra Islands í Moskvu, hefur veitt hinum nýja brezka sendiherra í Sovétríkjunum, hr. Smith, ákúrur opinberlega. I óvenjulegri fréttatilkynn- ingu s.l. mánudag sagði Hannes Jónsson, að hann hefði ekki talið ástæðu til að svara bréfi frá brezka sendiherr- anum, en þar var um að ræða hefðbundna kurteisisorðsend- ingu um áframhaldandi vin- samleg samskipti sendiráða Framhald ð bls. 35 (European Units of Account), en það er jafn- virði um 3244 milljóna ís- lenzkra króna. I fréttatil- kynningu frá fjármála- ráðuneytinu kemur fram, að andvirði lánsins verði varið til opinberra fram- kvæmda á grundvelli láns- fjáráætlunar ríkisstjórnar- innar fyrir þetta ár, sam- kvæmt lögum nr. 89/1975. Lánsútboðið hafa átta bankar annazt undir forystu Credit Commercial de France og First Boston (Europe) Ltd., en allur undirbúningur lántökunnar af hálfu ríkissjóðs hefur verið I höndum Seðlabanka Islands. Aðrir bankar, er þátt tóku I lánsútboðinu voru: Kredietbank SA., Luxembourgeoise, Arab Financial Consultants Company S.A.K., Banque Bruxelles Lambert S.A., Manufacturers Hannover Limited, Société Generale de Banque S.A. og West- deutsche Landesbanka Girozen- trale. Sölusamningurinn á skulda- bréfum milli þessara aðila og fjár- málaráðherra f.h. rfkissjóðs var undirritaður af Davíð Ólafssyni, seðlabankastjóra, . I umboði Matthíasar A. Mathiesen, fjár- málaráðherra. Lán þetta er að fjárhæð 15 millj. Evrópureikningseininga og eru nafnvextir þess 9‘4% og skuldabréfin seld á nafnverði. Lánið er til 7 ára. Lánsútboðið gekk mjög vel og hlutu skulda- bréfin góðar viðtökur á markaðn- KSI vill Knapp Á stjórnarfundi Knattspyrnusam- bands tslands f gærkvöldi var ákveðið að endurráða Tony Knapp, sem landsliðsþjálfara. Verður honum á næstu dögum sendur samningur til undirrit- unar, en drög að samningum voru Fram stendur vel en Armann fallið FRAMARAR standa vel að vlgi I 1. deildarkeppninni f handknatt- leik eftir að liðið vann Víking 29:20 (14:11) 1 gærkvöldi. Ar- menningar eru hins vegar fallnir niður 1 2. deild, en þeir töpuðu 22:16 fyrir Val f gærkvöldi. Markhæstir Framara f leiknum við Vfking voru þeir Hannes Leifsson með 8 mörk og Pálmi Pálmason 6, fyrir Vfking skoruðu mest þeir Páll Björgvinsson (5), og Stefán Halldórsson (4). I leik Armanns og Vals var Jón Karfsson markahæstur með 8 mörk, en Guðjón Magnússon Val og nafnarnir Hörður Harðarson og Kristinsson f Armanni skoruðu allir 5 mörk. rædd á fundi Knapps og Ellerts Schram um sfðustu helgi. Mun Knapp væntanlega koma hingað til lands f byrjun aprfl og hafa umsjón með þjálfun allra lands- liðanna þ.e.a.s. karlalandsliðs og unglingaliða SKEMMDIR A BALDRI Varðskipið Baldur kom til Reykjavfkur um helgina. Myndin sýnir skemmdir sem urðu á varðskipinu vegna ásiglingar brezku freigátunn- ar Diomede, á það sl. fimmtu- dag. Bretar varla getað dýft veið- arfærunum í sjó MJÖG slæmt veður hefur verið á miðum brezku togaranna út af Norð-Austurlandi undan farna daga og getur varla heit- ið að þeir hafi getað dýft veið- arfærum I sjó af þeim sökum. Hafa þeir látið reka á hafi úti. I gær voru 8—10 vindstigá þessum slóðum. Landhelgis- gæzlan vinni í gær um 33 tog- ara við landið. Nær74% þátttaka í prestkosningum í Mosfellssveit Frambjóðandi hefur kært kosninguna A-listínn sigraði í stjórn- arkosningunni í Iðju Bjarni Jakobsson tekur við formennsku STJÖRNARKJÖR fór fram f Iðju, félagi verksmiðjufólks f Reykja- vfk, um helgina. Urðu úrslit þau, að A-listinn, borinn fram af Bjarna Jakobssyni og fleirum, hlaut 594 atkvæði en B-listinn, listi stjórnar með Runólf Pétursson f formannssæti, hlaut 356 atkvæði. 4 seðlar voru ógildir og 9 seðlar auðir. Tekur Bjarni Jakobsson þvf við formennsku af Runólfi Péturssyni. Hinn nýkjörni formaður, Bjarni Jakobsson, sagði í samtali við Morgunblaðið I gær, að ástæðan fyrir klofningnum í Iðju hefði verið sú, að þegar uppstillingar- nefnd hefði stillt upp lista fyrir stjórnarkjör hefði hún stillt Bjarna Jakobssyni upp sem formannsefni en Runólfi Péturs- syni í neðsta sætinu, heiðurssæti. 1 uppstillingarnefnd voru 3 menn úr stjórninni. Bjarni sagði að þessu hefði Runólfur ekki viljað una og varð endirinn sá, að stjórn- in klofnaði I tvo hópa. Stóðu 6 Bjarni Jakobsson stjórnarmenn af 10 að A-listanum en 4 stjórnarmenn stóðu að B- listanum. Sagði Bjarni að kosn- ingabaráttan hefði verið hörð. Bjarni sagðist vera mjög ánægð- ur yfir sigri síns lista. Hann sagði að á listanum væri fólk sem vildi starfa fyrir Iðju og verkalýðs- hreyfinga og fólk hefði verið valið á listann með þetta I huga. Bjarni sagði að sér og mörgum fleiri hefði fundizt vera of mikil værð yfir félaginu og þar hefði þurft breytinga við. „Keppikefli hinnar nýju stjórnar verður að drífa félagið upp úr deyfðinni," sagði Bjarni. Morgunblaðið náði ekki I gær tali af Runólfi Péturssyni. I hinni nýju stjórn Iðju eru auk formannsins, Bjarna Jakobs- sonar, Guðmundur Þ. Jónsson, varaformaður, Jón Björnsson, ritari, Gunnlaugur Einarsson, gjaldkeri, og meðstjórnendurnir Sigríður Skarphéðinsdóttir, Guðmundur Guðni Guðmundsson og Unnur Ingvarsdóttir. I vara- stjórn eru Ásdís Guðmundsdóttir, Magnús Guðjónsson og Ölafur Þorbjörnsson. PRESTSKOSNING fór fram f Mosfellsprestakalli á sunnudag- inn. A kjörskrá voru 940 og þar af neyttu 694 atkvæðisréttar sfns eða tæplega 74%. Er þetta óvenju góð þátttaka f prestskosningum að sögn Sigsteins Pálssonar bónda á Blikastöðum, formanns sóknar- nefndar. Atkvæði verða talin á fimmtudag. Umsækjendur voru fjórir, sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, sr. Bragi Benediktsson, sr. Kolbeinn Þorleifsson og sr. Sveinbjörn Bjarnason. Að loknum kjörfundi lét sr. Kolbeinn Þorleifsson bóka kæru á kosninguna. Var kæran byggð á þeim forsendum, að f útvarpsfréttum hefði verið frá því skýrt, að umsækjendur væru aðeins þrlr og sr. Kolbeinn ekki talinn þar á meðal. Leiðrétting var birt og þess getið þar, að út- varpið hefði fengið um það upp- lýsingar á kjörstað, að sr. Kol- beinn hefði dregið sig til baka. Mun yfirkjörstjórn fjalla um þessa kæru og síðan kirkjumála- ráðuneytið. Sigsteinn Pálsson tók það fram af gefnu tilefni að kjörstjórn í kosningunum á sunnudaginn hefði ekki haft neitt samband við fréttastofu útvarpsins og væri henni ókunnugt um það hvernig þetta mál væri tilkomið. 7 sóttu um embætti Hæsta- réttardómara NÝLEGA rann út umsóknar- frestur um embætti dómara við Hæstarétt. Umsækjendur um embættið eru: Bjarni Kr. Bjarnason, borgardómari, Elías I. Elías- son, bæjarfógeti, Halldór Þor- björnsson, yfirsakadómari, Jó- hann Salberg Guðmundsson, sýslumaður og bæjarfógeti, Sigurgeir Jónsson, bæjar- fógeti, Sigurjón Sigurðsson, lögreglustjóri, og Þór Vil- hjálmsson, prófessor. Landhelgismálið: Y firlýsing væntanleg frá ríkisstjórninni EINAR Ágústsson utanríkis- ráðherra tjáði Morgunblaðinu I gærkvöldi, að eftir ríkis- stjórnarfund I dag yrði væntanlega gefin út yfirlýsing um punkta þá, sem dr. Josep Luns, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sendi hingað eftir fund sinn með brezkum ráðherrum I síð- ustu viku. Vildi Einar ekkert segja um innihald orðsend- ingar dr. Luns. Efni orð- sendingarinnar var til umræðu I þingflokkum I gær. Tapaði 100 þúsund kr. MAÐUR nokkur varð fyrir þvf óhappi I gær að tapa umslagi með 100 þúsund krónum. Gekk hann úr Utvegsbankahúsinu I Lands- bankann, aðalbanka, og ætlaði að leggja peningana þar inn en þeir glötuðust einhvers staðar á leið- inni eða I bankanum. Þetta voru 5 þúsund króna seðlar og í um- slaginu var nafn þess, sem á reikninginn, sem peningarnir áttu að leggjast inii á. Ef einhver hefur fundið umslagið með pen- ingunum er hann vinsamlegast beðinn að skila þeim til lögregl- unnar gegn fundarlaunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.