Morgunblaðið - 27.03.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.03.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MARZ 1976 Tugmilljónatjón hjá Heklu á Akureyri Nýja flugfélagið kaupir Air Viking-þoturnar Félagið missir Víkings-nafnið fyrir hið nýja flugfélag liggja í Akureyri, 26. marz — KLUKKAN 0,23 sfðastliðna nótt var allt slökkviliðið á Akurevri kallað út vegna elds í Fataverk- smiðjunni Heklu. Er að var komið var mikill eldur í norður- hluta hússins og logaði I vörum og Kristján Jónsson bókasafnari gluggar f kirkjusöguna frá 1497. Ljósmynd Mbl. RAX. Bókau|)|>hoð Klausturhóla: Kiilju.il prentað 1497 Á bókauppboði Klausturhóla í Tjarnarbúð í dag er margt góðra bóka, en alls er 131 númer á uppboðinu. Á uppboð- inu er m.a Historia ecclesiast- ica eftir Eusebius, sem var einn af kirkjufeðrunum á fjórðu öld eftir Krist. Bókin, sem fjallar um kirkjusögu var prentuð á ítalíu 1497 og flokkast því undir svokallað vögguprent. Þá má einnig nefna bækur eins og Smámuni I-III eftir Símon Bjarnason prentaða í Reykjavík og á Akureyri 1872—1873. Biskupasögur Jóns prófasts Halldórssonar í Hítardal, en eintakið er með þeim viðbæti sem út var Framhald á bls. 20 HllN leit A VERDMIPANA 06 SVO EINS OG SKRÆKTI HÚN 06 ÁÐUR'ENfeVISSl AF. • •. milliveggjum. Eldur og reykur töfðu slökkvistarf til að byrja með og brenndist einn reykkafari Iftillega f andliti. Um klukkan 03 var slökkvistarfi lokið, en bruna- vakt var í húsinu til morguns. Jafnhliða slökkvistarfi var unnið að björgun vörubirgða og hráefnis. Ekki er ljóst, hver elds- upptök eru, en húsið er nýtt og velbúið öryggistækjum. Hjörtur Eiriksson framkvæmdastjóri sagði mjög miklar vöru- og hrá- efnisbirgðir hafa verið í verk- smiðjunni, en ógerlegt sé að segja um hvert tjón hefur orðið á þeim. Ljóst er að í bezta tilfelli er tjónið upp á einhverja tugi milljóna króna. Eldurinn kom upp i skinnaaf- göngum og fylltist verksmiðjan af reyk og sóti. Er nú unnið að því að kanna, hverjar skemmdir hafa orðið á vörum og hráefni. Mun því verki ekki verða lokið fyrr en eftir helgi. Hjötur sagðist ekki vita á þessu stigi málsins, hver áhrif þetta hefði á rekstur fyrir- fatadeild fer í gang á mánudag i öðru húsnæði. Hins vegar er ekki vitað, hvenær prjónadeild fer í gang og er það mjög alvarlegt mál, ef til langrar rekstrarstöðv- unar kemur á henni því að þar er framleiddur meirihluti útflutn- ingsframleiðslu fyrirtækisins. Eins og öllum er kunnugt er nýlokið hálfs mánaðar rekstrar- stöðvun vegna verkfalla og ef við hana bætist rekstrarstöðvun, sem einhverju nemur af völdum bruna, þá gæti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir útflutning fyrir- tækisins. —St. Eir. ÍSAL ^ semur við starfsfólkið SAMNINGAR tókust í gær milli tslenzka álfélagsins og samninga- nefndar þeirra verkalýðs- og iðnaðarmannafélaga, sem hlut eiga að máli: Kjarasamningarnir eru að meginhluta til byggðir á nýgerðu samkomulagi milli ASl og V'SI. Þeir munu verða lagðir fyrir fundi félaga næstu daga til samþykkis eða synjunar. Þau félög, sem staðið hafa í samníngum við ÍSAL, eru. Verka- mannafélagið Hlíf, Verkakvenna- félagið Framtíðin, P’élag bifvéla- verkja, f’élag blikksmiða, F’élag járniðnaðarmanna, Rafiðnaðar- samband Islands vegna Félags íslenzkra rafvirkja og Sveina- félags útvarpsvirkja. Verzlunar- mannafélag Hafnarfjarðar, Félag byggingaiðnaðarmanna f Hafnar- firði og Félag matreiðslumanna. Fyrri samningum þessara aðila var sagt upp 31. desember 1975 og gengu þeir úr gildi 31. janúar siðastliðinn. Samningaviðræður hafa staðið frá miðjum jánúar og var endanlega gengið frá samn- ingunum og þeir undirritaðir með venjulegum fyrirvara í gær. Eins og áður tókust samningarnir án milligöngu Uta- semjara rfkisins. Baldur og Galatea 1 árekstri Brezka freigátan Galatea sigldi aftan á varðskipið Baldur á niunda tímanum I gærmorgun. Stefni freigátunnar kom á bak- borðsafturhorn varðskipsins. Við það kom rifa á stefni freigát- unnar, en skemmdir á Baldri urðu litlar sem engar. Þegar þetta átti sér stað voru skipin stödd um 14 sjómílur austur af Langanesi á friðaða svæðinu. Að sögn Péturs Sigurðssonar Framhald á bls. 20 FORRAÐAMENN nýja flug- félagsins áttu i gær annan fund með forsvarsmönnum Samvinnu- bankans og Olíufélagsins um kaup á flugvélakosti Air Vikings, sem bankinn og Olíufélagið, helztu kröfuhafar í þrotabúið hafa nýlega eignazt. Að því er Arngrímur Jóhannsson, stjórnar- formaður Víkings, tjáði Morgun- blaðinu i gær nálguðust aðilar enn á þessum fundi en þó kvað hann eiga eftir að leysa nokkur minniháttar atriði. Hann kvað nú frágengið að flugfélagið festi kaup á þotum þeim sem voru i eigu Air Vikings en endanlegt kaupverð þeirra mun vera eitt þeirra atriða sem eftir er að ganga frá og vildi hann ekki skýra frá því um hvaða verð væri rætt. Sagði Arngrímur, að allt þetta mundi liggja ljósar fyrir eftir helgina. Þá skýrði Arngrímur, frá því, að nýja flugfélagið væri tilneytt að breyta um nafn, þar eð það gæti ekki fengið að halda Víkingsnafninu. Til væri í firma- skrá fyrirtækjaheitið Vikings- ferðir frá fyrri tíð og eigendur þess væru ófáanlegir til að láta það heiti af hendi. Yrðu þvi for- svarsmenn nýja flugfélagsins og velunnarar að leggja höfuðið að nýju í bleyti og finna nýtt nafn á félagið. Arngrímur kvað ýmis verkefni loftinu, bæði hér heima og er- lendis, jafnframt því sem verið væri að vinna frekar að þeim málum. Þá kvað hann búið að semja um ársskoðun á þeirri þot- unni, sem félagið kæmi til með að nota í upphafi, og myndi hún fara fram í Dublin í írlandi. Hann vildi ekki gefa upp hvað sú skoð- un kæmi til með að kosta en kvað verðið mun lægra en þær tölur sem hér hefðu heyrzt nefndar. _________Framhald á bls. 20 Pólýfónkórinn og Listahátíð: „Töldum annað en frumflutn- ing óhagstætt” — segir Knútur Halls- son formaður Lista- hátíðarnefndar 1 FRÉTT í Morgunblaðinu í gær var þess getid að boði Pólýfón- kórsins til Listahátíðar um flutn- ings á H-moll messunni á Lista- hátið hefði verið hafnað á þeirri forsendu að Listahátíð miðaði við að efni væri frumflutt á Lista- hátíð sjálfri. Morgunblaðið sneri sér til Knúts Hallssonar formanns Lista- hátíðarnefndar og spurðist fyrir um framgang málsins. „Það er rétt,“ sagói Knútur, „að Pólýfónkórinn bauð okkur verkið til flutnings á Listahátíð, en ætl- aði hins vegar að frumflytja verk- ið um n.k. páskahátíð, en það töld- um við ekki hagstætt. Ef hann hefði viljað frumflytja verkið að Listahátíð eða eitthvað annað verk, þá hefðum við haft mikinn áhuga, því Ingólfur Guðbrands- son er þarna með afburða kór. Bréf þessu lútandi sendum við Pólýfónkórnum 9. des. s.l. þar sem sagði að Listahátíð væri ávallt reiðubúin til viðræðna við Pólýfónkórinn ef hann gæti boðið upp á efni sem yrði frumflutt á Listahátíð." Hœtt við að skoða brezku hraðbátana SKIPHERRARNIR Þröstur Sigtryggsson og Gunnar Ólafs- son skoðuðu f gærmorgun danskan hraðbát af svokallaðri „WilIemoes“-gerð. Þá áttu skip- herrarnir að skoða brezka hrað- báta af Azter-gerð í dag, en af því getur ekki orðið. Pétur Sigurðsson forstjóri Landhelgisgæzlunnar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að langur afgreiðslutími væri á Willemoesbátunum, þannig að frekar ósennilegt væri að þeir yrðu teknir í þjónustu Islend- inga ánæstunni. Hannsagðiað þeir væru 220 lestir að stærð og hefðu Norðurlandaþjóðir tekið þessa báta i notkun í ríkum mæli að undanförnu. Gang- hraði bátanna er yfir 40 mílur á klukkustund, en þeir eru knún- ir 3 Rolls Royce gastúrbínum og lítilli dísilvél sem notuð er undir litlu álagi. Þá sagði Pétur, að Gunnar og Þröstur hefðu átt að skoða hraðbáta í Glasgow í dag, en vegna þess hve þeir stoppuðu lítið þar, yrði ekkert af þvi. Bátarnir sem skoða hefði átt i Glasgow væru af Aztec-gerð, en Bretar hefðu smíðað þá á und- anförnum mánuðum fyrir Mexicó. Þá væri ekki mikill áhugi á þessum bátum á Is- landi, þar sem þeir væru aðeins rúmar 100 lestir að stærð. Þannig lfta dönsku Willemoes-bátarnir út áteikningu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.