Morgunblaðið - 27.03.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MARZ 1976
11
r
Avarp eftir Eugene Ionesco
Árið 1959, þegar mér veittist
sá heiður og ánægja að sitja
þing AlþjóðaleiKhússtofnunar-
innar í Helsinki, ræddi ég um
Nýja leikhúsið, sem nú er ekki
lengur nýtt, en gekk á þeim
tima undir nafninu Framúr-
stefnuleikhúsið. Ég lauk ávarpi
minu með því að segja:
„Framúrstefna er frelsi“.
Flestir fulltrúarnir á þinginu,
jafnt vestrænir og austrænir,
töldu þessa skilgreiningu eða
yfirlýsingu bæði hættulega og
byltingarkennda.
En margt hefur breytzt siðan
þá. I þá daga voru leikhúsmenn
enn rígbundnir við borgaralega
raunsæisstefnu eða sósíalreal-
isma af einhverju tagi, en
hræddust allt hugarflug. Raun-
sæi í einni eða annarri mynd er
enn ríkjandi bæði i „stofu“-
leikhúsum og „hugsjóna“-
leikhúsum, en allt það nýja og
áhugaverða sem komið hefur
fram síðustu 15—20 ár hefur
miðað að því að losna úr viðjum
raunsæis og þröngsýnisstefnu.
Mörg okkar hafa fordæmt raun-
sæi af þeirri einföldu ástæðu,
að raunsæi sé ekki raunsætt og
vegna þess, að það er aðeins ein
af mörgum stefnum, formum
eða hefðum. Það er orðið fræði-
legt og þar af leiðandi stein-
dautt. Við höfum líka fordæmt
„hugsjóna“-leikhúsið vegna
þess, að það er í sjálfu sér
skerðing. Það er orðið fangi
hugmynda, kenninga og full-
yrðinga, sem leikritahöfundum
leyfist ekki að gagnrýna.
Sannleikann er að finna í
ímyndunaraflinu. Leikhús
hugarflugsins er leikhús hins
ómengaða sannleika og ósvikin
heimild þess sem er að gerast.
Engin heimild getur verið full-
komlega sönn eða frjáls, af
þeirri einföldu ástæðu að henni
er alltaf vikið við, svo að hún
þjóni ákveðnum tilgangi.
imyndunaraflið segir ævinlega
satt. Það túlkar hugarástand
okkar, áhyggjur okkar vegna
þess sem á eftir að gerast eða
hefur gerzt, það viðkemur fólki
á öllum aldri, höfðar til nú-
timans, kafar djúpt i mannssál-
ina. Maður sem aidrei dreymir,
er sjúkur. Draumar gegna
grundvallar-hlutverki, og hlut-
verk ímyndunaraflsins er ekki
síður mikilvægt. Listamaður,
sem fær ekki að beita ímynd-
unarafli sínu óskertu, verður
framandi. Byltingamennirnir
miklu og fyrirrennarar þeirra
voru dreymendur — áttu sitt
draumaland. En jafnskjótt og
þetta draumaland er orðið ríki,
með öllum þess kvöðum og
lagaboðum, breytist það i mar-
tröð. Frægur sálfræðingur
hefur sagt, að draumur sé
dramatískt verk, þar sem við
séum i senn höfundar, leikarar
og áhorfendur.
Leikhúsið er byggt upp á
óbeizluðu ímyndunarafli. Öll
þurfum við að gerast uppfinn-
ingamenn. Gleði uppfinninga-
mannsins hefur komið mér til
að skrifa leikrit. Það er engin
dægradvöl forréttindastétta að
nota imyndunaraflið og sköp-
unargáfuna. Við getum öll
orðið listamenn, hvert og eitt
okkar. Hið svokallaða alþýð-
lega, hefðbundna og hlutdræga
leikhús, sem tekur við skip-
unum frá fulltrúum ríkisins,
stjórnmálamönnunum, er ekki
alþýðlegt leikhús, heldur ein-
rátt fangabúða-leikhús. Leik-
hús hugarflugsins er aftur á
móti alþýðlegt og í sannleika
frjálst leikhús.
Pólitískir hugsjónafræðingar
hafa verið áfjáðir í að gera leik-
húsið að verkfæri, sem þeir geti
gripið til, ef þeir sjá sér hag i
því. En listin er ekki, eða ætti
ekki að vera ríkismálefni. Öll
skerðing á sköpunargleði er
glæpur gegn anda mannsins.
Ríkið er ekki samnefnari þjóð-
félagsins, en stjórnmálamenn-
irnir vilja móta starfsemi leik-
hússins og nota hana til áróð-
urs. Og satt að segja er leik-
húsið í sjálfu sér kjörið áróð-
urstæki, tengt því sem kallað er
„pólitískt uppeldi", afskræm-
ingu sannleikans og heila-
þvotti. Stjórnmálamenn ættu
aðeins að vera þjónar listarinn-
ar, og þá ekki sízt leiklistarinn-
ar. Þeir ættu ekki að segja
henni fyrir verkum, og umfram
allt ekki beita hana þving-
unum. Eina hlutverk þeirra
ætti að vera að gera listinni —
og þá einkum leiklistinni —
kleift að starfa frjálst og taka
framförum. En imyndunaraflið
skelfir þá. Þess vegna beita
rikisstjórnir svo margra landa
listþvingunum. En vei þeim
stjórnum, sem óttast andstöðu.
Þær eru valtar i sessi.
Margar ríkisstjórnir, einkum
á Vesturlöndum, eru frjálslynd-
ari en stjórnarandstaðan, og
það er hún sem beitir listþving-
unum. Fulltrúa þessara and-
stöðuhópa þyrstir í völd, þá
þyrstir i einræði, þeir vilja
steypa allt í sama mótið. Þeir
beita siðferöilegum þrýstingi
og kúgun hugsjónum sinum til
framdráttar. I mörgum til-
vikum eru slíkir sjálfskipaðir
spekingar miklu þröngsýnni og
miskunnarlausari en stjórnir
þeirra, með þeim afleiðingum
að listamennirnir neyðast til að
setja sjálfum sér takmörk.
Vei þeirri andstöðu, sem ótt-
ast gagnrýni, og vei þeim lista-
mönnum sem í nafni svokall-
aðra byltingar- eða gagnbylt-
ingarhugsjóna hindra að sköp-
unargleðin fái útrás og ímynd-
unaraflið geti notið sin. Hverj-
um einstökum borgara er
heimilt að aðhyllast þær póli-
tísku skoðanir sem honum
sýnist. En listamaðurinn, sem
tekur engu sem sjálfsögðum
hlut, þarf að vera frjáls. Þess
vegna er svo áríðandi fyrir leik-
listarmenn og rithöfunda hvar
sem er að losa leikhúsið undan
áhrifum stjórnmálanna, eða
öllu heldur skeyta hvorki um
ríkisvald né sjálfskipaða spek-
Dagur eldra fólksins
í Hallgrímskirkju
EUGENE IONESCO
N.K. SUNNUDAG, 28. marz, held-
ur Kvenfélag Hallgrímskirkju
hinn árlega dag eldra fólksins í
kirkjunni. Hefst samkoman i
Hallgrímskirkju kl. 2 með guðs-
þjónustu, en þar prédikar fyrr-
verandi sóknarprestur, dr. Jakob
Jónsson, en sr. Karl Sigurbjörns-
son þjónar fyrir altari. Siðan
verður öldruðum boðið til kaffi-
drykkju i safnaðarheimilinu, og
munu kvenfélagskonur veita þar
af sinni alkunnu rausn. Þar mun
Kristinn Hallsson óperusöngvari
skemmtagestum með söng.
Dagur eldra fólksins hefur ver-
ið árviss viðburður i safnaðar-
starfinu, og hafa kvenfélagskonur
ætíð borið hita og þunga af undir-
búningi og umsvifum hans. Hafa
þær unnið þetta starf af mikilli
gleði og fórnfýsi og ætíð hefur
verið mikið fjölmenni og áreiðan-
lega allir snúið glaðir til síns
heima. Ég vil hvetja eldra fólkið
til þess að fjölmenna í Hallgrims-
kirkju á sunnudaginn kemur, og
njóta þess, sem þar er á boðstól-
um. Vænti ég, að viðurgerningur
verði góður bæði fyrir líkama og
sál.
Ragnar Fjalar Lárusson.
inga, sem vilja tryggja sig í
sessi.
Sagt er, að listin þekki engin
landamæri. Leikhúsið ætti
heldur ekki að skorða sig innan
ákveðinna landamerkja. Það á
að vera hafið yfir hugsjóna-
ágreining, stéttaskiptingu, kyn-
þáttamismun, þjóðernisremb-
ing og hagsmuni einstakra
landa. Það á að verða alþjóðleg-
ur vettvangur allra þeirra, er
ala í brjósti sömu vonir og bera
sömu áhyggjur, allar þær til-
finningar sem ímyndunaraflið
vekur. Þaö ætti að verða hvorki
gerræðislegt né raunsætt,
heldur lýsa því sem sameinar
okkur, gerir okkur að einni
heild.
Skapandi listamönnum verð-
ur ekki skipað fyrir! Látum þá
ekki taka við neinum fyrirmæl-
um frá ríkisstjórnum!
öi þvddi.
Bankamenn
fá6% launa-
hækkun
SAMNINGAR hafa tekizt milli
bankamanna og bankanna um
6% launahækkun bankamanna
frá og með 1. marz 1976. Samn-
inganefnd bankastjóra lagði
fram tilboð um 6% launahækk-
un og láglaunabætur í sam-
ræmi við það sem samið var um
við ASl og BSRB. Stjórn Sam-
bands islenzkra bankamanna
tók tilboðinu, en með skil-
yrðum þó.
Stjórnin lét bóka eftirfar-
andi: Stjórn Sambands ís-
lenzkra bankamanna samþykk-
ir fyrir sitt leyti tilboð bank-
anna um að frá og meó 1. marz
1976 til 30. júrií n.k. verði laun
bankamanna greidd með 6% —
sex prósent — álagi, auk lág-
launabóta. Stjórnin lítur á til-
boð þetta sem leiðréttingu á
gildandi samkomulagi og legg-
ur áherzlu á að þessi samþykkt
megi á engan hátt hafa áhrif á
þær viðræður um kjör banka-
manna, sem nú eru hafnar, og
undirstrikar að með þvi viki
hún í engu frá þeim kröfum,
sem lagðar hafa verið fram.“
Til þessa hefur Samband ís-
lenzkra sparisjóða ekki verið
aðili að samningaumleitunum
við SlB, en nú hefur sparisjóða-
sambandið ákveðið að tilnefna
mann í samninganefnd, þannig
að við gerð næstu kjarasamn-
inga bankamanna munu einnig
vera gerðir samningar fyrir
hönd starfsfólks sparisjóðanna
Sparisjóðirnir hafa þó til þessa
greitt laun samkvæmt kjara-
samningi bankamanna
BOSCH
rafmagns - handverkfæri
KYNNING
Laugard. 27. marz
Sunnud. 28. marz
kl.14—18
KYNNIR HR. VOSER FRÁ BOSCH
MEÐFERÐ BOSCH — HANDVERKFÆRA
Sýntveröur: „BLÁA LÍNAN"
FYRIR IÐNAÐARMENN
„GRÆNA LÍNAN"
FYRIR ÁHUGAMENN
í VOLVOSALNUM, SUÐURLANDSBRAUT 16.
Sýningargestum verður gefinn kostur á að taka ókeypis þátt í
verðlaunagetraun.
VINNINGAR:
Bosch verkfæri
Exergenie þjálfunartæki.
íumai <54b£ekóöon kf.
Veglegasta hlutavelta hérlendis
veröur íhúsi lönaðarmanna v/lngólfsstræti ídag, laugardag kl. 2—6
Meðal vinninga eru:
keramikvörur-skartgripir-snyrtingaríklippingarog lagningar)
- ritsöfn - bækur- heimilistæki
auk fjölda annara nytsamra vinninga. x Happdrætti - Engin núll - Engin vonbrigöi
Nú má enginn láta sig vanta
Komið þar sem fjöldinn er.
Verö miöa 100 kr.
ÍSLENZKIR UNGTEMPLARAR