Morgunblaðið - 27.03.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MARZ 1976
7
Saltverksmiðja
Rikisstjórnin hyggst
beita sér fyrir stofnun
hlutafélags, er hafi það að
meginmarkmiði að reisa
og reka saltverksmiðju á
Reykjanesi. Hér er um að
ræða iðjuver til vinnslu á
salti fyrir innlendan og er-
lendan markað og hagnýt-
ingar á efnum, sem til
falla við þá vinnslu.
Undirbúningsrannsókn-
ir hafa staðið yfir nokkuð
samfellt frá árinu 1966 á
vegum Rannsóknaráðs
ríkisins. Athuganir þessar
hafa einkum beinst að
tveimur vinnslustigum,
þ.e. i fyrsta lagi vinnslu
salts og nokkurra auka
efna, kalsíum, klóríði,
kalí-klóríði og brómi, úr
jarðsjó, og I öðru lagi
magnesíumvinnslu, sem
að hluta til byggist á salt-
vinnslunni.
Samkvæmt frumvarpi
sem fram er komið á
Alþingi, skal ríkisstjórn-
inni heimilt að leggja fram
allt að 60 m.kr. sem
hlutafé, sem og að leggja
fram til félagsins mann-
virki og undirbúnings-
rannsóknir sem að hefur
verið unnið á kostnað
ríkissjóðs. Ennfremur að
veita rikisábyrgð fyrir láni
eða lánum samtals að
fjárhæð allt að 1 00 m.kr.
Slógmjöls-
verksmiðja
Þá hefur Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins
gert viðamiklar tilraunir á
þróun nýrrar aðferðar til
framleiðslu á hýdrólýsölt-
um úr fiskslógi og úr-
gangsfiski og gert drög að
kostnaðar- og arðsemis-
áætlun fyrir slógmjöls-
verksmiðju. Þessi verk-
smiðja hugsast einnig
staðsett á Reykjanesi,
með tilliti til athugana á
flutningi hráefnis og af-
urða sem og með tilliti til
jarðhita.
Hér er aðeins um tvo þá
möguleika að ræða,
vinnslu á salti og hýdrólý-
söltum, sem koma til
greina við fjölhæfingu
iðnaðar i landinu, er byggi
á tiltækum hráefnum og
innlendri orku.
Um leið og fagna ber
slíkum rannsóknum og
möguleikum ber að leggja
áherzlu á nauðsyn þess,
að iðnaðarnýjungum verði
dreift á alla fjórðunga
landsins, svo spyrnt verði
gegn óeðlilegri byggð-
aröskun, umfram það sem
þegar er orðið.
Að breyta um lit
eftir umhverfi
Það er alkunna að
ýmsar dýrategundir búa
yfir þeim eiginleika að
skipta um lit eftir um-
hverfi, til að villa á sér
heimildir, dyljast fyrir öðr-
um. Þessi eiginleiki
kemur upp í hugann er
saga hins svokallaða
„Alþýðubandalags" er
skoðuð ofan í kjölinn. I
fyrstu komu íslenzkir
kommúnistar fram sem
slíkir, undanbragðalaust,
er Kommúnistaflokkur
fslands var stofnaður á
sinni tið. Þá var ekki farið
í launkofa með lokamark-
miðið. „Sovét-ísland,
óskalandið, hvenær
kemur þú?"
Kenningin um „alræði"
eins flokks féll ekki í frjó-
saman jarðveg í hugum
íslendinga. Flokkurinn
varð ekki annað og meira
en efni stóðu til, „sér-
trúarsöfnuður", sem
einangraðist i þjóðlífinu.
Þá var gripið til nýrra að-
ferða og siglt undir fölsku
flaggi. Nafni hreyfingar-
innar var breytt og
flokkurinn kallaður því
langa nafni. „Samein-
ingarflokkur alþýðu,
Sócialistaf lokkurinn V
Þessi nafnbreyting gaf
nokkurn árangur. Rót-
tækir jafnaðarmenn komu
til fylgis við flokkinn um
sinn, þótt flestir þeirra
yrðu þreyttir á vistinni og
hyrfu aftur til heimaslóða.
Enn var nafni breytt, er
Hannibal kom til sam-
starfs við kommúnista, '
og hreyfingin kölluð Al-
þýðubandalagið". Reynsl-
an varð sú sama og
fyrr. Hannibal, Björn
Jónsson Áki Jakobsson
og fjöldi róttækra forystu-
manna sáu þann kost
vænstan, að hverfa úr
röðum Alþýðubandalags-
ins þar sem hinn sterki
kommakjarni réð enn lög-
um og lofum. En nafna-
breytingin tókst að því
leyti til að flokkurinn náði
fylgi margra manna, sem í
raun eiga enga samleið
með ómenguðum
kommúnistaflokki. En
hætt er við að þetta fylgi
sé ótraust og eigi eftir að
verða fyrir sams konar
vonbrigðum og Héðinn
heitinn Valdimarsson.
Hannibal Valdimarsson að
aðrir þeir, sem á sinum
tíma gengu til samstarfs
við kommúnista í „góðri
trú."
ílleðóur
á morgun
Guðspjall Miðföstu er hjá
Jóh. 6,1,—15.
Fjólublár, sem er litur iör-
unar og vfirbótar, er ein-
kennislitur föstunnar.
DÓMKIRKJAN. Messa kl. 11
árd. Séra Þórir Stephensen.
Föstumessa kl. 2 siöd. Litanian.
Séra Öskar J. Þorláksson dóm-
prófastur. Barnasamkoma kl.
10.30 árd. í Vesturbæjarskólan-
um við Öldugötu. Hrefna
Tynes.
HÁTEIGSKIRKJA. Fermingar-
guðjjjónusta kl. 11 árd. Séra
Jón Þorvarðsson. Messa kl. 2
siðd. Hjálmar Jónsson, guð-
fræðinemi prédikar. Séra Arn-
grímur Jónsosn.
FlLADELFlUKIRKJAN. Al-
menn guðþjónusta kl. 8 siðd.
Einar J. Gíslason.
HALLGRÍMSKIRKJA. Dagur
aldraðra. Messa kl. 11 árd. Séra
Ragnar Fjalar Lárusson. Messa
kl. 2 Dr. Jakob Jónsson
prédikar. Eftir messu býður
Kvenfél. Hallgrimskirkju
öldruðum til kaffidrykkju í
safnaðarheimili kirkjunnar.
Kristinn Hallsson óperu-
söngvari syngur einsöng.
NESKIRKJA Barnasamkoma
kl. 10.30 árd. Guðþjónusta kl. 2
síðd. Séra Frank M. Halldórs-
son.
FRtKIRKJAN í Reykjavik.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Fermingarmessa og altaris-
ganga kl. 2 síðd. Aðalsafnaðar-
fundur eftir messu. Séra Þor-
steinn Björnsson.
SELTJARNARNESSÓKN.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd. í
Félagsheimilinu. Séra Guð-
mundur Öskar Ólafsson.
LAUGARNESKIRKJA. Messa
kl. 2 siðd. Barnaguðþjónusta kl.
10.30 árd. Séra Garðar
Svarvarsson.
ELLI OG HJÚKRUNARHEIM-
LIÐIÐ Grund. Messa kl. 4 síðd.
Séra Páll Þórðarson messar.
DÓMKIRKJA KRISTS, Kon-
ungs Landakoti. Lágmessa kl.
8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd.
Lágmessa kl.2 síðd.
ARBÆJARPRESTAKALL
Barnasamkoma í Arbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Guðþjónusta i
skólanum kl. 2 síðd. Séra Guð-
mundur Þorsteinsson.
BRFIIÐIIOLTSPRESTAKALL.
Sunnudagaskóli kl. 10.30 árd.
Guðþjónusta í Breiðholtsskóla
kl. 2 síód. Vænzt er að ferm-
ingarbörn og aðstandendur
þeirra komi til messunnar. Séra
Lárus Halldórsson.
AÐVENTUKIRKJAN I Reykja
vík. Guðþjónusta kl. 5 siðd.
Sigurður Bjarnason prédikar.
FFXLA- OG HÖLASÓKN.
Barnasamkoma í Fellaskóla kl.
11 árd. Guðþjónusta í skólanum
kl. 2 siðd. Séra Hreinn Bjartar-
son.
grensAskirkja. Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Messa kl. &
síðd. Séra Halldór S. Gröndal.
BÚSTAÐAKIRKJA. Barnasam
koma kl. 11 árd. Guðþjónusta
kl. 2 síðd. Barnagæzla meðan á
messu stendur. Séra Olafur
Skúlason.
LANGHOLTSPRESTAKALL.
Fermingarguðþjónusta kl.
10.30 árd. Séra Sigurður Hauk-
ur Guðjónsson. Guðþjónusta kl.
2 síðd. Séra Árelíus Níelsson.
Sóknarnefndin.
LAGAFELLSKIRKJA. Barna-
guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Bjarni Sigurðsson.
KARSNESPRESTAKALL.
Barnasamkoma i Kársnesskóla
kl. 11 árd. í Kársnesskóla
Fermingarguðþjónusta kl. 2
síðd. SéraÁrni Pálsson.
DIGRANESPRESTAKALL.
Barnasamkoma i Víghólaskóla
kl. 11 árd. Guðþjónusta í Kópa-
vogskirkju kl. 10.30 árd. F’erm-
ing. Séra Þorbergur Kristjáns-
son.
GARÐAKIRKJA. Barnasam-
koma i skölasalnum kl. 11 árd.
Guðþjónusta kl. 10.30 árd. og
kl. 2 síðd. Ferming. Séra Bragi
Friðriksson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA.
Messa, ferming kl. 10.30 árd.
Messa, ferming kl. 2 síðd. Séra
Garðar Þorsteinsson.
F’RIKIRKJAN. Barnasamkoma
kl. 10.30 árd. Safnaðarprestur.
KALFATJARNARSOKN.
Barnasamkoma i Glaðheimum
kl. 2 síðd. Séra Bragi Friðriks-
son.
NJ ARÐVlKURPRFiSTAKALL.
Sunnudagaskóli i Innri-
Njarðvíkurkirkju kl. 11 árd. og
i Stapa kl. 1.30 siðd. Séra Páll
Þórðarson.
GRINDAVlKURKIRKJ A.
Barnaguðþjónusta kl. 2 siðd.
Telpur úr KF’UK í Reykjavik
koma i heimsókn. Söngur með
gítarundirleik. Sóknarprestur.
HVALSNESKIRKJA. Föstu-
messa kl. 2 síðd. Kirkjugestir
taki með sér Passíusálmana.
Séra Guðmundur Guðmunds-
son.
STOKKSEYRARKIRKJA.
Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd.
ODD AKIRKJA. Kvöldmessa kl.
9 síðd. Séra Stefán Lárusson.
AKRANESKIRKJ A. Barna-
samkoma kl. 10.30 árd. Séra
Björn Jónsson.
Er bókhaldið í lagi?
Stjórnunarfélag Austurlands gengst fyrir bókfærslunámskeiði í barna-
skólanum á Egilsstöðum dagana 2.—4. apríl n.k.
Námskeiðið hefst kl. 21 :00 föstudaginn 2. apríl
og stendur yfir laugard. og sunnd. frá kl. 9:00
báða dagana.
Á námskeiðinu verður fjallað um sjóðbókarfærsl-
ur, dagbókarfærslur, færslur í viðskiptamanna-
bækur og víxlabækur og sýnt verður uppgjör
fyrirtækja.
Leiðbeinandi verður Kristján Aðalsteinsson við-
skiptafræðingur.
Þátttaka tilkynnist i síma 1379 Egilsstöðum.
Þátttökugjald er kr. 7.500. —.
Stjórnunarfélag Austurlands.
FULNINGAHURÐIR
Franskt kvöld
ÚTSÝNARKVÖLD~''^j
5pFrönsk hátíð*
Súlnasal, Hótel Sögu,
sunnudag 28. marz n.k.
Gigot d' agneau a'la
Kl. 19 00 Húsi8opna8.
Kl. 19.30 Franskur veizlumatur
Bretonne
Franski matreiSslusnillingurinn Francouis Fons 1
stjórnar matseldinni.
Ver8 aðeins kr. 1300,-
Anna Snæbjörnsdóttir ræ8ir um franska
ilmvatnsgerS
)KI. 20.30 Tizkusýning — Nýjasta strandfatatýzkan frá
„Kerinu" sólgleraugu frá Christian Dior ofl.
♦ FegurSarsamkeppni:
UNGFRÚ ÚTSÝN, Ljósmyndafyrirsæta Útsýnar
1976 — SlSasta tækifæriS til þátttöku I keppn-
inni. Allir keppendur koma fram um kvötdiS og
valdar verSa 10 stúlkur til úrslita, sem allar fá
verSlaun a8 verSmæti samtals um SOO þúsund
0 krónur.
Okeypis happdrætti
Vinningur ókeypis ÚTSÝNAR-fer8 til ftaliu e8a
Spánar. A8eins fyrir gesti sem koma fyrir kl. 20.00.
Ath. Allír gestir fá ókeypis kynningarvörur
frá hinum heimsþekktu frönsku fyrirtækjum:
Herme's, Nina Ricci, Revillon, Carven, Weil,
Pierre Cardin, Worth og Paco Rabanne.
Missið ekki af óvenju glsesilegri og
spennandi en ódýrri skemmtun
Hátlðin hefst stundvlslega
og borOum ekki haldið eftir kl 1 9.30
Munið alltaf fullt hús bjá ÚTSÝN
Tryggið ykkur borð hjá yfirþjóni á föstudagM
trákl 15 OOisíma 20221
Allir velkomnir — Góða skemmton
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN