Morgunblaðið - 17.06.1976, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JUNÍ 1976
Norrænir músíkdagar:
Opnunartónleikar í Há-
skólabíói annað kvöld
OPNUNARTÓNLEIKAR
„Norrænna músikdaga“ verða I
Háskólabfói klukkan 21 annað
kvöld, föstudaginn 18. júní. Sem
kunnugt er* taka hátt f fimm
hundruð tónlistarmenn, innlend-
ir sem erlendir, áhuga- og at-
vinnumenn, þátt í hátiðinni, sem
stendur fram til næsta fimmtu-
dags 24. júní. Flutt verða 59
norræn og kanadfsk tónverk, þar
af 11 íslenzk, á þessari tónlistar-
hátíð, sem er ein sú umfangs-
mesta, sem haldin hefur verið
hérlendis.
A opnunartónleikunum í kvöld
verða flutt sex verk. Fyrir hlé
verða flutt „Hjártats sánger" eft-
ir Gunnar de Frumerie, sem Sig-
Framhald á hls. 20
Reykjavík:
200 norrænir
gigtlæknar funda
NORR/KNIR gigtlæknar halda
þing i Reykjavík dagana 21. til 23.
júnf næstkomandi að Hótel Loft-
leiðum. Þetta er 16. þing norr-
a-nna gigtlækna og hið fvrsta,
sem haldið er hérlendis, en þau
eru haldin annað hvert ár til
skiptis á Norðurlöndum. Þingið
sækja um 200 læknar, þar af 30
fslenzkir. en auk þess verða um
100 aðrir þátttakendur, m.a.
stjórnarmenn í stvrktarfélögum
giglveikra á Norðurlöndum, að-
standendur lækna, Ivfjafræðing-
ar og tölfræðingar. 1 þessu sam-
handi má geta þess að undirhún-
ingur að stofnun slíks stvrktar-
félags áhugamanna er nú hafinn
hér á landi.
Jón Þorsteinsson, dósent, for-
maður Gigtsjúkdómafélags ís-
lenzkra lækna, verður forseti
þingsins, en aðrir læknar í fram-
kvæmdastjórn þess eru Kári
Sigurbergsson, ritari, og Jóhann
Gunnar Þorbergsson, gjaldkeri.
Ennfremur hefur Arinbjörn Kol-
beinsson unnið að undirbúningi
þingsins með þeim þremenning-
um. Þeir héldu í gær blaðamanna-
fund, þar sem þeir skýrðu frá
þinginu.
Aðalumræðuefni þingsins
Framhald á bls. 20
LjiVsmynd Frióþjófur
Tveir hafa sótt um
Mosfellsprestakall
UMSÓKNARFRESTUR um Mos-
fellsprestakall rann út 15. júnf
s.l. Að sögn sr. Ulfars Guðmunds-
sonar biskupsritara hafa tvær
umsóknir borizt, en ekki er úti-
lokað að umsóknir eigi eftir að
berast f pósti að sögn Ulfars. Um-
sækjendur eru sr. Birgir Asgeirs-
son, Siglufirði, og sr. Ingólfur
Guðmundsson, lektor við Kenn-
araháskólann.
Eins og kom fram i fréttum
Mbl. á sínum tima, fóru fyrir
nokkru fram prestskosníngar í
Mosfellsprestakalli og hlaut sr.
Sveinbjörn Bjarnason flest at-
kvæði. Hann tók hins vegar ekki
við prestakallinu, og var það aug-
lýst að nýju. Hvorugur þeirra um-
sækjenda, sem nú sækja um, sótti
um í fyrra skiptið.
Á sunnudaginn fór fram prest-
vígsla í Dómkirkjunni í Reykja-
vík. Skírnir Garðarsson cand.
theol. var vígður til Hjarðarholts-
prestakalls í Dölum. Þar sat áður
Svavar Stefánsson, en hann hefur
verið settur prestur í Norðfjarð-
arprestakalli.
Helga Bachman og Helgi
Skúlason hætta hjá Iðnó
LEIKARAHJÓNIN Helga Bach-
man og Helgi Skúlason hafa hætt
störfum hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur.
Helga hefur starfað þar í um
20 ár en Helgi i 16 ár, en hann var
áður hjá Þjóðlejkhúsinu.
Helgi Skúlason sagði við Mbl. í
gær, að þau hjón myndu líklega
hefja störf hjá Þjóðleikhúsinu, en
ekkert væri fastákveðið i þeim
efnum, enda nægur tfmi til
stefnu. Hann sagði að þau hefði
bæði langað að fara frá Iðnó.
Kippur kom í blóðgjafirnar
TÖLUVERT var að gera í Blóð-
bankanum í gær, þegar Mbl.
hringdi þangað, en eins og kom
fram í blaðinu í gær, var orðinn
mikill skortur á blóði. Hafði
ástandið stórum lagazt enda
margir brugðizt vel við óskum
Blóðbankans.
Iðnaðarráðherra um viðræðurnar við Elkem:
Bréfkorn til
Jóhanns Hjálmarssonar
Þú ert maður sem geðfellt er að
ávarpa og á ég við þig tvö erindi. I
fyrsta lagi: þakka þér fyrir góð
orð í minn garð í Morgunblaðinu
fyrr og síðar, í öðru lagi að furða
mig á því að þér láðist að geta
nokkurra þeirra sem lásu ljóð sfn
á Kjarvalsstöðum i greininni
þinni um daginn. Mér fannst til-
koma í því að heyra þá lesa, Hjört
Pálsson og Ingimar Erlend.
Kannski gleymi ég einhverjum
sem þú hefur gleymt, en ég minn-
ist þess að Ingimar hefur nú gefið
út fjórar ljóðabækur.— Mjög
virkur og athyglisverður höfund-
ur. Ég hef líka furðað mig á því að
enginn ykkar ritskýrenda hefur
vikið orði svo heitið geti að bók
hans Undirheimi sem kom út í
hittiðfyrra. Allir erum við næm-
geðja, rithöfundar, og því segi ég
þetta við þig að mér finnst grein-
arnar þínar yfirleitt bera vott um
hófsemd og hlutlægni. Við slfka
menn er unnt að koma tali sínu og
segja þetta: Það er hart er heilar
bækur — skáldverk — lenda milli
þils og veggjar.
Með vinsemd,
Baldur Óskarsson
Tollmálið
á lokastig
TOLLMALIÐ er komið á lokastig,
að því er Haraldur Henrýsson
sakadómari tjáði Mbl. Sagði
Haraldur að eftir ætti að yfir-
heyra nokkra menn, sem ekki eru
á landinu um þessar mundir.
Þegar yfirheyrslum lýkur verður
gengið frá málinu og það sent
ríkissaksóknara til ákvörðunar.
— segir Valtýr
í spjalli um
nýstárlega
sýningu sína
á Loftinu
Ljosm.: KAa.
Undirbúningsnefnd gigtlæknaþingsins. Frá vinstri: Jóhann Gunnar
Þorbergsson, Jón Þorsteinsson, Arinbjörn Kolbeinsson og Kári
Sigurhergsson.
Ekkert komið upp sem
hindrar samkomulag
Leitað eftir byggingarláni hjá Norræna
fjárfestingarbankanum, takist samningar
MORGUNBLAOIÐ sneri sér til
Gunnars Thoroddsen, iðnaðarráð-
herra, vegna yfirstandandi við-
ræðna við norska fyrirtækið
Elkem um að taka yfir hlut Union
Carbide í járnblendiverksmiðj-
unni á Grundartanga og spurði
hvort ráðherra væri bjartsýnn á
að slfkir samningar tækjust.
„Það hafa farið fram ítarlegar
viðræður um þetta atriði," sagði
ráðherra. „Ég ræddi fyrst við for-
ráðamenn . Elkem í aprílmánuði
úti í Ösló en síðan var fundur hér
fyrir nokkru og í síðustu viku var
fundur í Ósló. Svo koma fulltrúar
Elketn hingað til Reykjavikur í
lok þessa mánaðar og verða fund-
ir hér 2—3 daga. Það er óhætt að
segja, að það er mikill áhugi hjá
báðum á því að samkomulag náist.
Það er búið að ræða alla þætti
málsins rækilega og enn hafa
ekki komið upp neinir þeir erfið-
leikar, sem eru líklegir til að
hindra samkomulag, þannig að
þótt ekki séu komin úrslit í mál-
inu þá horfir það vel.“
Gunnar Thoroddsen sagði enn-
fremur, að ef samningar tækjust,
sem hann kvaðst vona, þá væri
ætlunin að sækja um byggingar-
lán til Norræna fjárfestingar-
bankans, er tæki til starfa nú í
sumar. Hefði málið þegar verið
kynnt óformlega fyrir fulltrúuin
hinna fimm landa í bankaráði.
„I samningunum við Union
Carbide var gert ráð fyrir að verk-
smiðjan tæki til starfa f byrjun
árs 1978,“ sagði ráðherra. „Ef
samningar takast við Norðmenn,
þá er hugsanlegt að verksmiðjan
gæti hafið störf sumarið eða
haustið 1978. í megindráttum
myndi Elkem ganga inn í félagið i
stað Union Carbide en auðvitað
þyrfti ýmsu að breyta. Öll tækni-
aðstoð yrði t.d. frá Elkem í stað
Union Carbide og einhverjar
breytingar myndu væntanlega
verða gerðar á ofnum og bygging-
um því samfara.
„Ég verð skammaður fyrir
þessa fígúratívu sýningu”
„Það verður vfst ekki annað
sagt en þetta sé nýstárleg
sýning frá minni hendi," sagði
Valtýr þegar við röbbuðum við
hann á LOFTINU, „ég hef
aldrei fyrr haft svona fígúra-
tíva sýningu, enda heitir hún
eins og tilefni gefur til: Bátar
og blóm.“
Valtýr opnar í dag sýningu
sina á Loftinu og þangað er
enginn boðinn sérstaklega„ en
allir eru velkomnir. Valtýr
kvaðst ekki hafa séð tæknilega
möguleika á að bjóða þeim
1200—1300 manns sem hann
væri vanur að bjóða við opnun.
Hann kvaðst heldur vilja láta
húsið standa heldur lengur
opið, en Loftið rúmar ekki
nema nokkra tugi gésta í einu.
„Ég hef málað þessar myndir
á síðustu 8 mánuðum," sagði
listamaðurinn í spjalli við
Mbl., „ég lenti í uppskurði,
reyndar tvívegis á síðustu
Framhald á bls. 20