Morgunblaðið - 23.07.1976, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.07.1976, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JULÍ 1976 ---------------------------------- Sólbað er ekkí hið sama og að láta sólina steikja sig. Borgarbúar, sem orðnir eru óvanir sólskini, verða fyrst að venjast sólarorkunni. Heinz Panzram: Sól- olían á ekki að ÆÐ$TA takmarkið f sumarleyfinu er f margra augum að verða dökk- brúnn á hörund. En nokkurra stað- reynda skyldu menn gæta: Siðmenning okkar og sú innivera, sem henni er samfara, gerir okkur veiklaða. Naumast eru neinar kröfur gerðar lengur til hinnar eðlilegu hitatemprunar Ifkamans. Flestir lifa í skrifstofum, á heimil- um, í verkstæðum og verksmiðju- byggingum f greinilegu „skugga- loftslagi" ætti að byrja með hálfan þennan sólbaðstima, en þeir sem hafa dökka húð, þurfa ekki að vera eins varkárir og geta leyft sér tvöfaldan tímann, sem að ofan er getið Síðan mega menn, ef fyrsta sólbaðið hefur ekki haft nein óþægindi í för með sér, lengja tímann frá degi til dags um 1 5 til 20 prósent Menn þurfa sem sagt fyrst og fremst að sýna varkárni i upphafi En með þessu er hér einungis átt Sá borgarbúi, sem orðinn er af- vanur sólargeislum í þessu skugga loftslagi, en hleypur út í sólskinið á ströndinni í sundbuxum einum klæða, verður veikur, ef hann gætir ekki vissrar varúðar. Það sem mestu máli skiptir um heilsugæzlu í sól, er hinn rétti skammtur Hinn sól - skinsóvani stórborgarbúi ætti að venja beran líkamann mjög hægt við sólarorkuna, svo að hin eðlilega ..líffræðilega geíslavörn" nái að myndast Við hana þykkna efstu lög húðarinnar nokkuð og ..sólarsiggið sem þannig myndast, verndar líkamann gegn hinum ofur sterku liffræðilegu áhrifum útfjölubláu geislanna Sá sem enga áhættu vill taka og hefur heilbrigða húð með eðlilegri starfsemi hörundsins, ætti ekki að vera lengur í sólbaði í upphafi en að neðan greinir, að þvi er prófessor Pfleiderer í Westerland segir Á morgnana og síðdegis í *)úní um 50 mínútur, en um 30 um hádegið Samsvarandi tölur í júlí eru 55 mínútur og 35 mínútur og i ágúst um 65 mínútur og um 45 mínútur. Sá sem er fölur og liós á hörund Aðalatriðið er hinn rétti skammtur af sól við sólbað sem raunverulegt ,,bað", en alls ekki að menn láti sólina ..steikja" sig, sem hefur varhugaverð áhrif á hjarta og blóðrás Sá einn ..baðar sig" í sól, sem hreyfir sig á eðlilegan hátt i sóskinmu En auð- vitað getur notkun góðrar sólolíu stuðlað verulega að því, að auð- veldara sé að þola áhrif hinna út- fjólubláu geisla Menn ættu þó ekki að bera á sig sólolíuna rétt fyrir sólbaðið, heldur nokkurn tíma á undan, svo að sólvarnarlyfið geti komizt inn í húðina í stað þess að fara að ,,sjóða" á húðinni fyrir áhrif sólargeislanna Sú geislun, sem nær til okkar úr öllu himinhvolfinu. er samsett úr hinu beina skini frá sólinni og dreifi- geislum himinsins. Samanlagt mynda þau hnattar-eða heildargeisl- un. Dreifigeislunin kemur frá sameindum loftsins fyrir skin sólar á ský og vatnsgufu- og loftsteinaagnir, sem svífa í loftinu Að nokkru leyti beinist dreifigeislunin út í himin- geiminn og hverfur, en að öðru leyti nær hún til jarðar. Rannsóknir á áhrifum skýjafars á hina útfjólubláu dreifigeislun himinsins hafa leitt í Ijós, að heildar- geislunin minnki ekki verulega, fyrr en þrír fjórðu hlutar himins eru huldir skýjum. Fram að því er styrkur geislunarinnar allt að því jafn mikill Að vísu skyggja skýin á verulegan hluta hins beina sólskins, en hinn aukni hluti hinnar útfjólu- bláu dreifigeislunar jafnar metin nær að fullu Þeir sem verða fljótt brúnir, geta sannfærzt um þessa staðreynd af eigin reynslu: Þrátt fyrir tíð skýjaþykkni koma þeir sólbrúnir heim úr sumarleyfinu Það er ekki aðeins, að hin útfjólu- bláa geislun á hinum ýmsu bylgju- lengdum hafi mismunandi áhrif, heldur eru viðbrögð manna við henni mismunandi Samkvæmt rannsóknum prófessors R. Schulze í Hamborg má í þessu efni greina á milli þriggja manngerða Fyrst skal nefna E-manngerðina, sem hefur tilhneigingu til sólbruna (Erythem). Um 13 prósent af fólki heyrir til hennar. Það hefur föla, að því er virðist sjúklega húð, sem gjarnt er að fá freknur á sumrin.og flest hefur það einnig glóbjart hár. Meginskil- yrði skyn- samlegs sólbaðs Þá er það P-manngerðin (Pigment-litarefni), en með henni er átt við fólk, sem fyrst og fremst verður þegar sólbrúnt Til þessa hóps heyra um 20 prósent af fólki. Það hefur leðurkennda húð, sem er rík að litarefnum Hjá flestu fólki eða um 67 prósent fylgist sólbruni og sólbrúnka að eða öllu heldur brúni liturinn kemur i kjölfar sólbrúnans. Þetta fólk hefur rauðleita, heilbrigða húð að sjá, sem starfar eðlilega. Hér er um að ræða manngerðina E+P. Fyrir þetta fólk eiga ofangreindir timar við varðandi fyrsta sólbaðið Húð fólksins verður rauð, skinnið flagnar oft og síðan kemur „annars flokks brúnka" Eða einfaldlega: Eftir fyrsta sólbrunann fær húðin hinn eiginlega brúna lit. Síðan nokkur orð í viðbót um geislunar loftslagið á ströndum sjávar og vatna Þegar sólargeislun- in fellur á yfirborð vatnsins, endur- kastast hluti hennar, en aðrir geislar brotna, hverfa í vatnið og hita það Sá hluti geislunarinnar, sem kastast aftur frá sjó eða vatni, kallast „stutt- bylgju" endurgeislun. Litbrigði vatnsyfirborðsins frá fagurgrænu til hins fræga himinbláa byggjast á hlutfallinu milli speglandi endur- kasts og stuttbylgju endurgeislunar Hluti hins speglandi endurkasts eykst þeim mun meir sem sólin stendur lægra Við 50° sólarhæð og þar yfir endurkastast aðeins lítill hluti heildargeislunarinnar. Við 25° sólarhæð eykst sá hluti brátt í 20 prósent. Við 1 5° sólarhæð má rekja 80 prósent heildargeislunarinnar til speglandi endurkasts Menn skyldu þvi ekki vanmeta áhrif speglandi endurkasts sólargeislanna á svölum morgun- og kvöldstundum á strönd- um sjávar og vatns Auk þess ber að hafa í huga, að loftið er hreinna við sjávarströnd en í upplandi, þar sem það er blandað alls konar ryki. Að lokum nokkrar ábendingar til allra þeirra, sem taka litið mark á hvatningum lækna til að ástunda göncjAjr, sund eða aðrar heilsu- bótahreyfingar í sumarleyfinu, heldur hallast fremur að hinu Ijúfa aðgerðarleysi: Likama okkar fellur sólbað mjög vel, þegar hitinn fer ekki yfir 20° i skugga með mjög vægri hreyfingu loftsins. Ef lítilshátt- ar vindur er, eru 26° einnig mjög hæfilegur hiti, en 30° og þar yfir er til ills Sé loftið mjög þurrt, má hitinn vera einni til tveimur gráðum hærri en hér er getið, því að aukin kæling við útgufun auðveldar líkamanum temprun hitans. Ef svita- dropar koma í Ijós, er það öruggt einkenni þess, að líkami okkar verði að erfiða meira, meðan við þykjumst vera í sólbaði okkur „til hvíldar og hressingar'. (Úr „Súddeutsche Zeitung") Sólbað í Sundlaug Vesturbæjar. Ljósm. Ól K Mag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.