Morgunblaðið - 23.07.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JULÍ 1976
13
áfram — sem var greinilegt merki
óánægju yfir síðustu ákvörðunum
formannsins
En Mao varð þess fljótt var, að
hinn nýi forseti rikisins, Liu, og
aðalritarinn, Teng, meðhöndluðu
hann eins og heiðursformann, sem
menn setja á hillu eins og brosandi
Búddha. Þeir voru að vísu alltaf með
orð hans á vörunum, en störfuðu á
eigin ábyrgð, leituðu vart ráða hjá
honum og stofnuðu sin „eigin
konungsríki" Það var fyrst með
aðstoð Rauðu varðliðanna og hers-
ins, meðan á menningarbyltingunni
stóð, að Mao gat aftur náð til sín
völdunum, sem voru að renna hon-
um úr greipum, en siðan varð hann
jafnskjótt að gæta þeirra gagnvart
sínum nýja arftaka og „nánasta
vopnabróður", Lin Piao
Árið 1970 kom hann í siðasta
sinn opinberlega fram frammi fyrir
fagnandi mannfjöldanum við hátiða-
höldin á þjóðhátíðardaginn
Persónudýrkunin hefur náð tilgangi
sinum, sagði hann einslega við hinn
ameríska vin sinn, Edgar Snow, og
upp frá þessu ætlaði hann aðeins að
vera hinn Mikli lærifaðir þjóðar sinn-
ar En án hans samþykkis myndi
ekki vera hægt að taka neinar veiga-
miklar stjórnmálaákvarðanir í fram-
tiðinni.
Fyrir tveimur árum fékk Mao vægt
heilablóðfall, og síðan hefur hann
átt erfitt um mál og getur ekki staðið
upp hjálparlaust. En margir furða
sig á því, hvérs vegna hann hélt fast
við það að taka á móti einum eða
fleirum útlendum gestum í mánuði
hverjum, enda þótt hann sé ekki
skyldugur til þess í krafti opinberrar
stöðu Og það var tvíeggjað, að
hann skyldi koma fram í sjónvarpi
Að visu gátu Kinverjar við og við
fullvissað sig um, að sá gamli væri
enn vakandi, en þeim duldist heldur
ekki hrörleiki hans, enda ekki reynt
að dylja hann.
Á síðastliðnum vetri hætti Mao
við hina venjulegu hressingardvöl
sina i sunnanverðu landinu Að lik-
indum hefur hann ekki viljað fara
vegna yfirvofandi dauða Tschou En-
lai og einnig vegna baráttunnar
gegn Teng Hsiao-ping. í febrúar
hafði hann enn næga krafta til að
ræða við Richard Nixon i nær tvær
klukkustundir. En síðan var áheyrn-
artiminn styttur i 15 minútur
Myndir af honum sýndu örþreyttan
rrann, sem horfði annars hugar upp
í 'oftið Hann sagði við forsætisráð-
herra Nýja-Sjálands, Muldoon,
mæðulega: „Ég hef þjáningar i fót-
unum," og síðasta opinbera gestin-
um, Ali Bhutto, forseta Pakistan,
þótti Mao vera illa kvefaður
Ef tij vill hefur Mao Tse-tung búizt
við of miklu siðustu tvö árin En það
virðist ískyggilega liklegt, að hann
hafi alla ævi flúið i veikindi, ef svo
má segja, jafnskjótt og honum hefur
fundizt vera komið illa fram við sig
eða sér sýndur kuldi Hefur stjórn-
málanefndin kannski, sem vitað er,
að var klofin í deilunni um Teng
Hsiao-ping, enn einu sinni ýtt hon-
um um of til hliðar? Er meira en
venjulegt orðaprjál á bak við setn-
inguna: „Miðstjórnin hefur ákveð-
ið"? Aðrar skýringar eru hugsanleg-
ar Annað hvort hafa læknar for-
mannsins lagt fast að honum að
hlífa sér, þar eð ella væri hætta á
nýju heilablóðfalli, eða að Mao vilji
ótruflaður helga sig hinu mikla
verki, sem hann á enn ólokið:
heildarútgáfu rita sinna. Fyrstu fjög
ur bindin ná aðeins til 1949, og
hann verður einnig að endurskoða
þau, þvi að hann hafði á sínum tima
fellt ýmislegt úr ræðum sinum eða
breytt þeim til að þóknast Sovét-
mönnum.
En getur jafn mótsagnakenndur
og baráttufús maður og Mao yfirleitt
nokkurn tima fengið frið i sál sinni
til þess? Sækja ekki að honum
áhyggjur fram til siðustu stundar út
af þvi, hvað eftirkomendur hans,
sem hvorki hafa kynnzt striði, of-
sóknum né hungri muni gera við rit
hans og kenningar? Slikar áhyggjur
koma greinilega í Ijós i Ijóðum þeim,
sem hann tileinkaði hinum dauð-
vona Tschou En-lai fyrir hálfu öðru
ári Nýlega voru þau birt i bók um
ævi Maos eftir prófessor Lucian Pye
Þannig hljóðar kvæðið i þýðingu úr
ensku (og svo hér úr þýzku. þýð ):
„Trúir foreldrar, sem hafa fórnað svo
miklu fyrir þjóð sina, óttast ekki hið
siðasta hlutskipti Landið er orðið
rautt, en hver mun gæta þess? Verk
okkar, þótt ólokið sé, mun standa i
þúsund ár Baráttan lýir okkur, og
hár okkar gránar Gamlir vinir, eins
og þú og ég, megum við nú aðeins
horfa á, hvernig erfiði okkar er að
engu gert?"
— svá— þýddi úr „Die Zeit"
,,Baráttan lýir okkur, og hár okkar gránar —
valda sinna.
Mao á hátindi
Ljósrautt
himinhvolf
Pasadena, 22. júlí. Reuter. AP.
NÆSTU litmyndir frá Mars eiga
að sýna Ijósrautt en ekki blátt að
sögn vfsindamanna f Pasadena f
dag. „Það er rautt en ekki eins
rautt og yfirborðið," sögðu þeir.
Vegna bilunar i ljósmyndavél
Mars-farsins sýndist himinhvolfið
blátt, en það sýndist rauðleitt á
myndum sem voru framakllaðar
þegar vísindamennirnir höfðu
gert við bilunina. Þeir segja að
himinhvolíið muni sýnast enn
rauðleitara á næstu litmyndum
•sem berist frá reikistjörnunni síð-
ar í mánuðinum.
Skýringin á rauða litnum eru
rykagnir sem dreifa sólargeislun-
um að sögn prófessors Carl Sag-
ans f Pasadena.
Vísindamennirnir reyna jafn-
framt að setja f gang skjálftamæli
sem hefur ekki starfað eftir lend-
inguna. Svarthvítar myndir bár-
ust í dag frá Víkingi af ryki sem
settist á Mars-farið eftir lending-
una.
Fyrstu veðurfréttir bárust einn-
ig frá Mars í dag og samkvæmt
þeim fór kuldinn niður í mínus 50
gráður á celcius.
AUGI.ÝSINGASÍMINN ER:
22480
JWarípimblitbib
Þeir sem versla í Casanovay
þurfa ekki að ganga í tunnum
heldur ífötum sem þeir velja sjálfir.
í Casanova er eitt fjölbreyttasta
úrval tískufatnaðar sem völ er á
og nú re'tt fyrir mestu ferðahelgi ársins
má segja að búðin se'full afnýjum
og athyglisverðum vörum.
Opið til kl. 10 í kvöld