Morgunblaðið - 23.07.1976, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.07.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1976 ' 21 STEFNAN SETT Á MATTERHORN Frásögn sex félaga úr Hjálparsveit skáta í sem klifu Matterhorn SÍÐASTLIÐIN tvö sumur hafa félagar úr Hjálpar- sveit skáta í Reykjavík far- ið suður til Alpafjalla í því skyni að klífa þar þekkta tinda, svo sem IVlont Blanc, IVIonte Rosa, Jungfrau og nokkra fleiri. Ekki hafði þá verið farið á Matter- horn, sem er í svissnesku ölpunum, og þótti okkur félögunum í Hjálparsveit- inni það verðugt verkefni. Við Ágúst Guðmundsson, Ágúst Jóhannsson, Árn- grímur Blöndahl, Helgi Benediktsson, Pétur Ás- björnsson og Sighvatur Blöndahl hófum undirbún- ing ferðarinnar strax á síð- astliðnum vetri. Við fórum erfiðar gönguferðir, klif- um fjöll og lögðum mikið upp úr því að klífa brattar hlíðar. Og allt stefndi þetta að því að sigrast á Matter- horni. Ferðalag til Sviss er mjög dýrt fyrirtæki, og þvi ákváðum við að leita að- stoðar nokkurra fyrir- tækja, Flugleiða, Skáta- búðarinnar ÍSALS og Sveins Egilssonar og tóku þau málaleitan okkar mjög vel, og kunnum við þeim beztu þakkir fyrir. FERÐIN HAFIN Föstudaginn 2. júli s.l. hófst svo ferðin. „Fall er fararheill“, segir naiáltækið, og svo fór, að Helgi svaf yfir sig, svo við höfðum næst- um misst af flugvélinni. Sighvat- ur keypti vandaða myndavél, sem bilaði, þegar hann hafði tekið 3 myndir. Þegar við stigum út úr Flug- leiðaþotunni 1 Luxemborg var þjakandi hiti, sem hrjáði okkur mikið, því við vorum slíku óvanir. Hitanum fylgdi höfuðverkur og slappleiki, sem fylgdi okkur mest- an hluta ferðarinnar. t fyrstu' var haldið á brautar- stöðina og bárum við allt okkar 'hafurtask á bakinu. En er þangað kom sáum við, að það yrði hag- kvæmara fyrir okkur að taka bíl á teigu. Var því snúið aftur á flug- völlinn, þar sem við fengum leigð- an bíl. Nú var allt tilbúið til að halda ferðinni áfram, og um fimmleytið héldum við akandi suður á bóg- inn. Á leiðinni til Sviss fórum við fyrst 1 gegnum Frakkland, og sið- an Þýzkaland, þar sem við feng- um okkur kvöldverð. SOFIÐÍ OG UNDIR BÍLNUM Skömmu fyrir miðnætti fórum við yfir svissnesku landamærin, og siðari hluta nætur komum við 1 Vallisdalinn. Þá fór syfja og bensínleysi að hrjá mannskapinn, og við bæinn Sion var áð. Fimm okkar sváfu 1 bilnum, en Helgi hvarf með svefnpokann sinn út i Lagt upp frá Zermatt. Félagar á gangi, talið frá vinstri Sighvatur, Arngrimur, Ágúst G., Ágúst J. og Helgi. Pétur tók myndina. I skíðalandinu við Testa Grigia. Matterhorn f baksýn. Á myndinni eru talið frá vinstri Sighvatur, Pétur, Helgi, Ágúst G. og Arngrím- ur. Ágúst J. tók myndina. Ágúst J. f Gandegg. Bred- Málin rædd fyrir utan Whymper Stiibe. Sitjandi frá vinstri horn í baksýn. Pétur tók Sighvatur, Ágúst J., Ágúst G. og Arngrímur. Pétur tók myndina. mvndina. 1. grein nóttina. Um klukkan 8 næsta morgun fannst hann sofandi und- ir bílnum. Fljótlega fengum við bensín og rétt fyrir hádegi gengum við fylktu liði eftir aðalgötunni i Zermatt, sem er þorp við rætur Matterhorns. Þar dvöldumst við fram eftir degi og keyptum þann útbúnað sem okkur vanhagaði um. Seinna þann dag fengum við okkur að borða í Whymper Sttibe, en það er veitingastaður sem heit- ir eftir Edward Whymper, þeim manni sem fyrstur kleif Matter- horn árið 1865. GENGIÐÁ BREIÐHORN Eftir það var okkur ekkert að vanbúnaði, svo við stigum,inn í kláfferju, sem flutti okkur upp undir Gandegg Hutte, sem er sæluhús i 3030 metra hæð yfir sjó. Frá endastöð kláfferjunnar er um hálfrar stundar gangur að sælu- húsinu, og yfir berar granitklapp- ir aó fara. Á Gandegg dvöldumst við í góðu yfirlæti og sváfum þar til klukkan 2 aðfararnótt sunnu- dags. Þar sem veður var stillt og bjart, og talsvert frost, bjuggum við okkur undir það að ganga á Breidhorn, sem er 4170 metra hátt. I sæluhúsinu fékk hópurinn te og franskbrauð, og þótti sum- um það magur morgunverður. Klukkan hálf fjögur var lagt af stað út í morgunskimuna. Skammt frá sæluhúsinu tekur við skriðjökull, en hann er lítið sprunginn og var því auðveldur yfirferðar í morgunfrostinu. Öð- um birti, og þegar komið var upp á háhrygginn milli Sviss og Italiu, var sólin komin upp, og baðaði fjallstindana geislum sinum. Á hryggnum, í nálægt 3500 metra hæð, er skiðahótel sem heitir Testa Girgia, og er öll aðstaða þar til skiðaiðkana til fyrirmyndar. Þaðan var haldið austur á Breid- horn, en leiðin þangað er auðveld yfirferðar upp snjóbrekkurnar. En vegna þess hve óvanir við vor- um þunna loftinu, mæddumst við talsvert á göngunni. FJALLINU FÆRÐÁR FÓRNIR Af Breidhorn er fögur fjalla- sýn. Rétt austan við það er Monte Rosa, en í vestri blasir auturvegg- ur Matterhorns. Dvöldum við þarna um stund og nutum útsýn- isins. Siðan var snúið til baka sömu leið, en nú fór'sólbráðin að þyngja okkur gönguna. Þrátt fyr- ir það lögðum við lykkju á leið okkar, og klifum Kleine Matter- horn, sem er tæplega 3900 metra hátt. Nú var þunna loftið farió að þjaka suma, og færði Arngrímur því fjallinu fórnir. Á leiðinni niður var færðin íar- in að þyngjast svo, að viða sukk- um við upp í hné i blautum snjón- um. Upp úr hádegi var komið aftur á Gandegg, og var þar hvílzt um stund. Síðan var farið með kláfnum yfir að Svartsee, sem er í 2400 metra hæð, við rætur Matter- horns. Við Svartsee er hótel, og þar fengum við að geyma þann farangur, sem ekki þurfti að nota til ferðarinnar á Matterhorn. Þaó- an var gengið upp hlykkjóttan göngustig, sem liggur eftir Hörnlihrygg, og upp að Hörnli Hutte sem er í 3200 metra hæð. Þangað komum við rétt fyrir kvöldmat á sunnudag þann 4. júlí. og föluðum gistingu og reyndist það auðsótt mál. Sváfum við þar um kvöldið, því leggja skvldi af stað klukkan tvö um nóttina í hina langþráðu ferð á Matter- horn, og vorum við sem vænta má. mjög eftirvæntingarfullir. Frá árangri þeirrar ferðar segjum við i næstu grein.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.