Morgunblaðið - 23.07.1976, Síða 17

Morgunblaðið - 23.07.1976, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JULÍ 1976 17 Hreinn, Bjami og Lilja keppa í dag Frá Agústi I. Jónssyni í Montreal: FRJÁLSÍÞRÚTTAKEPPNI OI- ympíuleikanna hefst í dag, og verða þrír íslenzkir frjálsíþrótta- menn f eidlínunni, þau Hreinn Halldórsson, sem keppir f kúlu- varpi, Bjarni Stefánsson, sem keppir í 100 metra hlaupi og Lilja Guómundsdóttir, sem keppir í 800 metra hlaupi. LÍNURNAR AÐ SKÍRAST í KÖRFUNNI KÖRFUKNATTLEIKSMENN hafa leikið dag hvern síðan Ölym- píuleikarnir hófust. 12 þjóðir hófu keppnina en eitt lið hætti keppni, hið egypska. Lokið er þremur umferðum og bendir flest til þess að gömlu erkifjendurnir Bandaríkin og Sovétríkin muni enn einu sinni mætast í úrslitun- um. Bandaríkjamenn hafa oftast unnið gull í körfuknattleiks- keppni Ölympíuleikanna en síð- ast unnu Rússar 51:50 eftir sögu- legan leik. 1 fyrrakvöld léku bæði Bandaríkjamenn og Sovétmenn mjög mikilvægan leik, Banda- ríkjamenn léku við Júgóslava og unnu 112:93 eftir að Júgóslavarn- ■ ir höfðu haft yfir í hálfleik. Sovét- menn unnu Kanadamenn örugg- lega 108:85. Eru þetta einu þjóð- irnar, sem ekki hafa tapað leik. I keppninni taka þátt eftirtalin lönd: Bandaríkin, Sovétríkin, Kanada, Júgóslavía, Kúba, Mexico, Ástralía, Japan, Italía, Puerto Rico og Tékkóslóvakía. — Ég hef ekki trú á því að meiðslin í olnboga komi til með að há Hreini í kúluvarpskeppninni, 'sagði Guðmundur Þórarinsson þjálfari íslenzka frjálsiþrótta- fólksins þegar Mbl. spjallaði við hann í dag. Hreinn er sá iþrótta- maður, sem mestar vonir eru bundnar við. Guðmundur sagði að Hreinn hefði fundið fyrir eymslum í oln- boga í nokkurn tíma, og það áður en hann kastaði 20,24 metrana og virtist þetta ekki há honum keppni. — Hreinn á að geta kast að yfir 20 metra hvenær sem er sagði Guðmundur. Hann þarf að kasta 19,40 metra til að komast i úrslit. Ég vona að hann nái þvi fyrsta kasti, en ef hann finnur ekki fyrir meiðslunum vil ég að hann kasti öllum þremur köstun- um svo að hann geti vanizt að- stæðunum, sagði Guðmundur. Bjarni Stefánsson var skráður í 100 metra hlaupið svo hann hefði kynnst aðstæðum áður en 400 metra hlaupið fer fram, en 100 metrarnir eru aukagrein hjá hon- um. 1 riðli með Bjarna eru nokkr- ir þekktir kappar og sagðist Bjarni vera ánægður ef hann hlypi á 10,60 sekúndum. Lilja er í allsterkum riðli í 800 metrunum, en með henni hleypur stúlka sem hefur fengið svipaðan tíma, svo að hún ætti að fá góða keppni. Til haminp Nadia! SOVÉZKA fimleikastúlkan Ludmiia Tourischeva sést hér óska hinni nýju stórstjörnu íþróttanna, Nadiu Comaneci til hamingju með hinn glæsilega Simamvnd vi-. sigur 1 fimleikakeppninni. Nánar um Nadiu á næstu síðu, en 1 viðtali, sem þar er sagt frá, segir Nadia, að hún hafi glaðst mjög yfir því að Ludmila skyldi óska henni svona inni- lega til hamingju. Gull til Goodell ogEnder BANDARlKJAMAÖURINN Brian Goodell sigraði { úrslitum 400 m skriðsundsins á Ölympfu- leikunum 1 nótt á nýju heíms- meti, 3,51,93 mínútur. Tim Shaw Bandarfkjunum varð annar og Sovétmaðurinn Raskatov þriðji. Þetta var annað gull Goodells á leikunum. Og f úrslitum 100 metra flug- sunds kvenna f nótt sigraði sund- drottningin Kornelia Ender frá Austur-Þýzkalandi og jafnaði heimsmet sitt f greininni, sem er 1,00,13 mínútur. Andrea PollackH A-Þýzkalandi hlaut silfurverð- laun og Wendy Boglioli, Banda- ríkjunum fékk bronzið. Tvö heimsmet í sundinu í gær TVÖ heimsmet voru sett f undan- rásum sundkeppninnar í Montre- al f gær. Sveit Bandaríkjanna f 4x100 metra fjórsundi karla setti nýtt heimsmet, synti á 3,47,28 mfnútum og Hannelore Enke frá Austur-Þýzkalandi setti nýtt heimsmet f 100 metra bringu- sundi kvenna, 1,11,11 mfn. Fjór- sundsmetið gamla var sett f Miinchen fyrir fjórum árum. Gull til Kim SOVÉZKA stúlkan Nelli Kim vann f nótt gullverðlaun f stökki f einstaklingskeppninnar f fimleik- um. Kim er væntanleg til Islands bráðlega, eins og fram kemur f annarri frétt f blaðinu. Tvö ný Islandsmet sett í sundkeppninní í gær 22. júlí. Frá Ágústi Jónssyni, fréttamanni Mbl. i Montreal: ISLENZKA sundfólkið hélt sínu striki hér á Ölympfuleikunum f dag. Vilborg Sverrisdóttir og Sig- urður Ölafsson kepptu bæði og tvö ný tslandsmet sáu dagsins Ijós. Vilborg bætti metið f 200 metra skriðsundi, synti á 2,14,27 Sovétmennimir fóm í fýlu SOVÉZKA Sundknattleiksliðið á Ólympíuleikunum hefur hætt keppni, enda þótt enn séu nokkrir leikir eftir. Sovétmenn hlutu gullið f sundknattleik á Ölympfu- leikunum f Munchen en núna töp- uðu þeir tveimur leikjum og kom- ust ekki f úrslit. Eitthvað virðist þetta hafa farið i skapið á Sovétmönnum, því í gærmorgun spurðu þeir Alþjóða sundsambandið að þvi hverjir væru möguleikarnir á því að sovézka liðið drægi sig út úr keppninni, þar sem þvi hefði ekki tekizt að komast i 6-liða úrslit keppninnar. Dr. Harold Henning, forseti sambandsins, svaraði á þá leið, að það væri mjög óiþrótta- mannsleg framkoma að draga sig út úr keppninni, sérstaklega þeg- ar það væri haft i huga að Sovét- menn myndu halda næstu Ólym- piuleika i Moskvu 1980. Þegar þetta svar hafði fengist skrifuðu Sovétmenn dr. Henning bréf þar sem þeir sögðu að fimm af leikmönnum þeirra væru veik- ir eða meiddir og liðið gæti ekki mætt til leiks gegn Kúbu um miðjan dag í gær. Mætti liðið ekki, og var Kúbu dæmdur sigur. Mál þetta er að vonum mikið rætt og er þá gjarnan rifjað upp, að einn keppenda Sovétmanna i nútima fimmtarþraut var i byrjun vikunnar vísað úr keppninni fyrir að svindia. Þær íslenzku stóð- ust „kynprófið" Frá Agúsli I. Jónssynl I Montrcal: ISLENZKU stúlkurnar hafa þurft að fara f „kynpróf" eins og allir aðrir kvenkynskepp- endur hér f Montreal. Fór próf- ið þannig fram a£>sögn stúlkn- anna fslenzku, að skafið var innan úr annarri kinninni og sýnið sfðan efnagreint. Allar voru hinir glæsilegu f»- lenzku stúlkur dæmdar lögleg- ar konur, en hins vegar mun einhver vafi hafa verið með sumar stúlkurnar frá Austur- Evrópu, en þær eru margar hverjar eins og karlmenn f út- liti og röddin dimmasti bassi. mfn. en eldra metið átti hún sjálf, 2,14,90 mfnútur, og Sigurður bætti met sitt 1 400 metra skrið- sundi úr 4,18,50 f 4,18,11 mfnútur. Sundfólkið hefur nú keppt í 8 greinum og í 7 þeirra hafa þau sett ný íslandsmet. Reyndar er réttara að segja að metin séu orð- in 10 þvi þrjú metanna eru eínnig skráð sem met í 25 metra laug. Stúlkurnar hafa báðar lokið keppni en Sigurður Ólafsson keppir á laugardaginn í 100 metra skriðsundi. 200 metra skriðsundið hjá Vil- borgu var sérstakiega gott og var Guðmundur Harðarson landsliðs- þjálfari mjög ánægður með frammistöðu hennar. Vilborg varð siðust i sínum riðli en númer 33 af 40 keppendum i 200 metra skriðsundinu. Það telst varla til tiðinda að Claudia Hempel frá Austur-Þýzkalandi, sem sigraði í riðli Vilborgar setti nýtt ólympfu- met, en það var seinna margbætt. Sigurður Ólafsson hafði gert sér vonir um betri tíma í 400 metra skriðsundinu en hann fékk. Það sem gerði gæfumuninn var það að hann varð strax þegar sundið var hálfnað kominn nokk- uð langt á eftir öðrum keppend- um og fékk því ekki neina keppni. En tími Sigurðar verður að teljast góður á islenzka mælikvarða. Hann var greinilega orðinn mjög þreyttur þegar hann kom i mark. Hann keppir hér í 4 greinum og að sögn Guðmundar Harðarsonar hefur islendingur ekki áður keppt í svo mörgum greinum á Ólympíuleikunum. Sigurður varð númer 42 af 47 keppendum. Árangur sundfólksins til þessa er sem hér.segir: Vilborg — 100 m skrið 1:02.26 met — 1:03.3 Lisa Ronson. — 200 m skrið 2:14.27 met — 2:14.90 sjálf. — 400 m skrið 4:48.23 ekki met — 4:46.70 sjálf. Sigurður: 1500 m skrið 17:24.10 met — 17.28.0 Friðrik Guðmundsson. — 400 m skrið 4:18.11 met — 4:18.5 sjálfur. — 200 m skrið 2:01.24 met — 2:01.40 sjálfur. Þórunn: 100 m flug 1:09.63 met — 1:09.8 sjálf 200 m flug 2:29.22 met — 2:29.65 sjólf. Gilkes ekki með ALÞJÓÐA ólympiunefndin ákvað i gærkvöldi, að spretthlauparinn James Gilkes frá Guyana fengi ekki að taka þátt í frjálsiþrótta- keppninni i Montreal. Guyana dró sig út úr keppninni eins og svo mörg önnur ríki vegna þátttöku Nýja-Sjálands i leikunum. Gilkes. sem sigraði í 200 metra hlaupi á Pan-Am leikunum i fyrrahaust, var ekki ánægður með þetta og óskaði eftír þvi að fá að keppa sem einstaklingur. Þvi var hafn- að.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.