Morgunblaðið - 23.07.1976, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JULÍ 1976
19
Krúnuraksturinn
virðist gefa gull
Sovétstúlka stöðvaði sig-
urgöngu þeirra austur-þýzku
BANDARÍSKU sundmennirnir
héldu sig vi^ efnið f úrslitasund-
unum f fyrrakvöld og fyrrinótt.
Þeir kræktu f tvö gull, f 100 metra
flugsundi og 4 x 200 metrá skrið-
sundi og f nótt ætluðu þeir sér að
krækja f tvö gull til viðbótar, f
400 metra skriðsundi og 4 x 100
metra flugsundi. Og þeir ætla
ekki að láta staðar numið og hafa
gefið út yfirlýsingar um að þeir
ætli sér að vinna alla guflpening-
ana 13 f sundgreinum karla. í
fyrrakvöld urðu austur-þýzku
stúlkurnar að sjá eftir fyrsta gull-
inu, þegar sovétstúlkur röðuðu
sér f þrjú fyrstu sætin f 200 metra
bringusundi, en þær austur-þýzku
voru ekki langt á eftir, lentu f
4—6. sæti.
Það reyndist Bandarikjamann-
inum Mike Bruner vel að raka allt
hár af höfðu sér fyrir 200 metra
flugsundið á sunnudaginn. Hann
vann gullið og setti heimsmet.
Landa hans, Matt Vogel, þótti
ekki saka að reyna það sama fyrir
100 metra fulgsundið í fyrrakvöld
og rétt fyrir keppnina lét hann
lokkana fjúka. Og ekki reyndist
það síður áhrifarikt, hann sigraði
en metinu náði hann ekki, það
vantaði 8/100 á það að hann næði
að bæta elzta heimsmet sundsins,
sett af Spitz á Ólympiuleikunum
1972. Vogel, sem er 19 ára gamall,
fékk timann 54.35 sekúndur. Ann-
ar varð landi hans Joe Botton á
54.50 sekúndum og þriðji Gary
Hall á 54.65 sekúndum. Gary er
„öldungurinn" í bandariska sund-
liðinu, 24 ára gamall. Hann keppti
á Ólympiuleikunum 1968 og 1972
og vann þá til verðlauna. A þessu
má sjá, að það er kornungt fólk,
sem skipar bandariska liðið og
það mun vera staðreyndin, þegar
litið er á heildina. Þessi grein olli
í annað sinn vonbrigðum hjá aust-
ur-þýzka sundmanninum stór-
góða, Roger Pyttel. Hann varð
fjórði, alveg eins og í 200 metra
flugsundinu. Pyttel átti heims-
metið í síðarnefndu greininni, áð-
ur en leikarnir hófust.
i 100 metra baksundi kvenna
var austur-þýzk stúlka á efsta
þrepi verðlaunapallsins eins og
vænta mátti. Ulrike Richter varð
fyrst á 1.01.83 sekúndum, i öðru
sæti varð landa hennar Birgit
Treiber, og í þriðja sæti varð 14
ára kanadísk stúlka, Nacy Gara-
pick. Ulrike Richter hafði tölu-
verða yfirburði.
í næstu sundgrein úrslita-
keppninnar i fyrrakvöld gerðist
það óvænta. Sovézkar stúlkur röð-
uðu sér í þrjú efstu sætin í 200
metra bringusundi og sigurvegar-
inn, Marina Kohevaia, gerði
meira en að stela sigrinum frá
austur-þýzku stúlkunum, hún stal
líka frá þeim heimsmetinu. Timi
hennar var 2.33.35 mínútur og þar
með sannaði hun, að það var eng-
in tilviljun að hún fékk bezta tim-
ann i undanrásum. Tvær stöllur
Marinu, Marina Jurchenia og Liu-
bov Rusanova, urðu í 2. og 3. sæti,
en rúmum tveimur sekúndum á
eftir, svo að yfirburðir sigurveg-
arans hafa verið miklir.
í 4 x 200 metra skriðsundinu
höfðu Bandarikjamenn mikla yf-
irburði, og auðvitað settu þeir
nýtt heimsmet 7,23.22 minútur.
Sovétrikin urðu I 2. sæti á nýju
Evrópumeti 7.27.97 mínútur og
Bretar urðu i þriðja sæti. i sigur-
sveit Bandaríkjanna voru þekktir
kappar, Mike Bruner, Bruce
Furniss, John Naber og Jim
Montgomery.
Sovézka stúlkan Marina Koshevaia batt enda á sigurgöngu austur-
þýzku stúlknanna f kvennasundgreinunum á Olympfuleikunum þegar
hún sigraði f 200 metra bringusundi á nýju glæsilegu heimsmeti. Hér
sést þessi 16 ára gamla stúlka fagna sigrinum. Simamynd AP.
eint fra
SOVÉZKUR fimleikaflokkur
er væntanlegur til landsins á
næstunni og mun hann dvelja
hér dagana 1.—8. ágúst og sýna
þrisvar í Laugardalshöll.
Flokkurinn kemur á vegum
Fimleikasambands islands og
sagði Ásgeir Guðmundsson, for-
maður sambandsins í gær, að
nöfn fimleikamannanna hefðu
ekki verið gefin upp, en ástæða
væri til að ætla að þar yrði að
finna nokkra ólympíuþátttak-
endur. Sagði Ásgeir að reyndaf
hefði eitt nafn verið orðað,
Nelli Kim, en hún hlaut silfur-
verðlaunin í fyrrakvöld, var
næst á eftir undrabarninu
Nadiu Comaneci. Sovétmenn
eru í fremstu röð í fimieikun-
um eins og allir hafa tekið eftir
á Ólympíuleikunum.
Kaiiarnir í
skugganum
KARLARNIR hafa alveg fallið i
skuggann f fimleikakeppninni á
Olympfulerkunum, enda eink-
unnin 10 sjaldséð hjá þeim. Jap-
anir og Sovétmenn börðust
grimmilega um gullið í sveita-
keppninni og höfðu Japanir vinn-
inginn á endanum, en þeir hafa
sigrað í sveitakeppninni á mörg-
um sfðustu leikum.
Nú stendur yfir einstaklings-
keppni i fimleikum karla. Ekki
höfðu borizt úrslit frá keppninni i
gærkvöldi, en í fyrrakvöld var
lokið keppni í sex greinum. Stað-
an eftir greinarnar 6 var þessi:
1. N. Andrianov, Sovét. 116.650
2. S. Kato, Japan 115.650
3. M. Tsukahara, Japan 115.575
4. Ditiatin, Sovét. 115.525
5. Kajiyama, Japan 115.425
Má mikið útaf bera, ef Sovét-
maðurinn tapar forystunni en
baráttan um brons og silfur gæti
orðið geysihörð, eins og sjá má.
Markviss
kvenmaður
NU HEFUR það f fyrsta sinn
gerst á Ólympíuleikum, að kona
hefur unnið til verðlauna f skot-
keppni, þar sem karlmenn eru
einnig meðal þátttakenda. Þetta
gerðist f riftilkeppninni f fyrri-
nótt.
Konan sem afrekið vann var
Margaret Murdock frá Bandaríkj-
unum. Hún hlaut 1162 stig af 1200
mögulegum og var í fyrstu úr-
skurðuð sigurvegari. En siðar
kom i ljös að Larry Bassham hafði
hlotið jafnmörg stig. Þegar slikt
gerist er árangur úr síðustu 10
skotunum látinn ráða. Þar stóð
Bassham sig betur og hann var
útnefndur sigurvegari. Bassham
hefur. mótmælt þessu og krafist
þess að Margaret fái einnig gull-
pening og við verðlaunaafhend-
inguna dró hann Margaret upp á
efsta þrepið til sín og afhenti
henni gullpeninginn, eftir að
hann hafði tekið við honum.
Þeir beztu með í Coca-cola goHinu
COCA-COLA mótið verður háð á
golfvelli GR f Grafarholti n.k.
laugardag og sunnudag. Þetta er í
'16. skipti sem keppnin er haldin
og hefur COCA-COLA umboðið
alla tfð gefið öll verðlaun í keppn-
KR-ingar ætla með
stuðningsmenn norður
EINS og komið hefur fram í blað-
inu, drógust KR-ingar gegn KA á
Akureyri í bikarkeppni KSÍ. Lið-
in leika á Akureyrarvelli n.k.
þriðjudagskvöld. KR-ingar hafa
fengið Flugfélagið til að setja upp
aukaferð þennan dag, svo að æstir
stuðningsmenn KR geti farið með
liðinu norður. Fer vélin frá
Reykjavik klukkan 17.30 og til
Reykjavíkur strax að leik loknum.
Stuðningsmenn KR geta snúið sér
til félagsins.
ina og þannig styrkt starfsemi
Golfklúbbs Reykjavfkur.
Keppnin er að þessu sinni 36
holu höggleikur og verður keppt
bæði með og án forgjafar. Jafn-
framt því að gefa þrenn verðlaun
í hvora keppni, mun Coca Cola
umboðið gefa sérverðlaun til þess
kylfings, sem næstur verður holu
á 2. flöt og einnig til þess, sem
lengst slær teighögg sitt á 18.
braut.
Keppnin hefst, kl. 9.00 á laugar-
dag og verður ræst út fram yfir
hádegi. Reynt verður að ræsa úr
sem mest eftir forgjöf, þannig að
sem likastir kylfingar keppi sam-
an.
Á sunnudag hefst keppnin á
sama tíma, en þá verður ræst út
eftir árangri á laugardag og þeir
beztu ræstir út síðastir.
Á undanförnum árum hefur
þessi keppni verið ein,sú harðasta
á landinu, enda er hfifn einskonar
undanfari landsmóts i golfi. Ekki
er að efa, að allir beztu kylfingar
landsins mæti i keppnina og þeg-
ar er ljóst, að meðal annara munu
eftirtaldir kylfingar mæta:Björg-
vin Þorsteinsson (GA), Þorbjörn
Kjærbo (GS), Loftur Ólafs-
son(NK), Ragnar Ólafsson (GR)
Einar Guðnason (GR), Sigurður
Thorarensen (GK), Geir Svans-
son (GR) og fleiri.
Golfkeppni lækna
og hjúkrunarfólks
GOLFKEPPNI lækna og hjúkrun-
arfólks fer fram á golfvellinum á
Hvafeyrarholti, Hafnarfirði,
sunnudaginn 25. júlí og hefst
klukkan 9 f.h. Verðlaun eru gefin
af Ethicon Ltd. og Austurbakka
hf. Þetta er þriðja árið sem
keppnin er haldin og hefur þátt-
taka ávallt verið mikil. Þátttaka
er öllum opin í fyrrnefndum
starfsgreinum.
LIÐ UBK: Ólafur Hákonarson 2 LIÐ VlKINGS: Diðrik Ölafsson 2
Gunnlaugur Helgason 2 Ragnar Gfslason 2
Bjarni Bjarnason 2 Magnús Þorvaldsson 2
Einar Þórhallsson 2 Eiríkur Þorsteinsson 2
Haraldur Erlendsson 2 Helgi Helgason 2
Ólafur Friðriksson 2 Róbert Agnarsson 3
Gfsli Sigurðsson 3 Gunnlaugur Kristfinnsson 2
Vignir Baldursson 3 Stefán Halldórsson 2
Hinrik Þórhallsson 2 Jóhannes Bárðarson 3
Þór Hreiðarsson 2 Óskar Tómasson 2
Heiðar Breiðf jörð 2 Haraldur Haraldsson 2
DÓMARI: Grétar Norðfjörð 3
LIÐ ÞRÓTTAR:
Jón Þorbjörnsson 3
Gunnar Ingvarsson 1
Sverrir Einarsson 2
Guðmundur Gfslason 2
Halldór Bragason 2
Leifur Harðarson 1
Sverrir Brynjólfsson 2
Þorvaldur Þorvaldsson 1
Þorgeir Þorgeirsson 3
Jóhann Hreiðarsson 2
Aðalsteinn Örnólfsson 2
Haukur Andrésson (vm) 2
Ásgeir Árnason (vm) 1
LIÐ lA:
Davfð Kristjánsson 3
Björn Lárusson 1
Guðjón Þórðarson 1
Jón Gunnlaugsson 2
Þröstur Stefánsson 2
Jóhannes Guðjónsson 3
Árni Sveinsson 2
Pétur Pétursson 2
Karl Þórðarson 3
Sigþór Omarsson 2
Teitur Þórðarson 2
DÓMARI:
Hannes Þ. Sigurðsson_______3