Morgunblaðið - 23.07.1976, Síða 20

Morgunblaðið - 23.07.1976, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JULÍ 1976 Johnny Miller frá Handarfkjunum sigurvegari f British Open f ár. Sfðasta daginn setti hann vallarmet, lék á 66. Allir vildu þeir British Open unnið hafa - en mormóninn Johnny Miller var ósigrandi BRITISH Open — Opna golf- keppnin brezka er nokkuð örugg- lega sú golfkeppni hcimsins, scm stórmeistarar þessarar íþróttar mundu hclzt vilja vinna. Kcppnin á sér langa sögu, — svo langa, að keppni þessa árs var sú 105. í röðinni. Hún fór fram á Royal Birkdale golfvellinum f South- port f Englandi, en British Open fcr þó oftar fram á einhvcrjum hinna nafntoguðu golfvalla í Skotlandi. Þar var hún haldin f fyrra og verður aftur að ári. Verðlaunin þykja ekki ýkja há: 7.500 sterlingspund, eða um það bil tvær og hálf milljón íslenzkra króna. En viðringaraukinn er þeim mun meiri og talsverð aura- von í þeim auglýsingasamning- um, sem hægt er að gera út á sigurinn — sé það atvinnumaður sem sigrar. Atvinnumennirnir sigra að sjálfsögðu alltaf. Hinsvegar er British Open eitt af fáum stórmót- um í golfi, þar sem áhugamenn geta tekið þátt, ef þeir eru nógu góðir. Forkeppni fer fram á ýms- um völlum í grenndinni, en 166 hefja keppnina. Helmjngurinn dettur út eftir tvo daga og fjórða og síðasta daginn eru aðeins 66 keppendur eftir. Sumir þurfa ekki að taka þátt í forkeppni; til dæmis ekki allir þeir, sem áður hafa sigrað í þessari keppni. Ekki heldur allir þeir, sem urðu fram- ar en í 25 sæti í fyrra og hvorki brezki né bandaríski áhuga- mannameistarinn frá í fyrra og nokkrir fleiri. Eins og kunnugt er hafa miklir og langvarandi þurrkar hrjáð Breta og er nú svo komið, að bannað er að vökva golfvelli. Royal-Birkdale völlurinn var skrælþurr og harður og sumstað- ar varla grænn litur á flötunum. En utanmeð brautunum hafði grasið verið látið vaxa áhindrað og var víða hnéhátt. British Open er einn mestí íþróttaviðburður heimsins á ári hverju og er sjónvarpað nákvæm- lega frá allri keppninni frá degi til dags og tugir milljóna fylgjast með henni þannig. Þar er saman kominn sægur af blaðamönnum úr öllum heiminum — nema frá Islandi. Til dæmis um áhuga ís- lenzkra blaða má geta þess, að hér í þessu blaði var fótboltaleik milli Völsunga á Húsavík og Selfyss- inga, sem bar upp á sama tíma og úrslit British Open, gerð miklu ýtarlegri skil. Aðeins birti Vísir einn blaða röðina eftir tvo daga; annars staðar var ekki minnzt orði á þessa keppni. Venjulega hafa Bandarikja- menn töglin og hagldirnar í Brit- ish Open og Breti hefur ekki unn- ið hana síðan Tony Jacklin sigraði 1969. En til marks um það, hvað golfgæfan er óáreiðanleg má geta þess, að Tom Watson, sigurvegar- inn frá i fyrra, féll núna út úr keppninni. Hann hitti aðeins fjór- um sinnum braut þriðja daginn og þá var ekki að sökum að spyrja; hann hafnaði á 80., og ekki fór betur fyrir bandariska meistaranum, Jerry Pate, sem sigraði í ár í US Open. Hann féll einnig út eftir að hafa leikið á 87, þar af lék hann seinni 9 holurnar á 48. Bert Hanson, framkvæmda- stjóri íslenzk-ameriska verzlunar- félagsins, fór sérstaklega til að fylgjast með British Open og hef- ur hann látið í té þær upplýsing- ar, sem hér er byggt á. Hann kvað aðstöðu til að fylgjast með hafa verið mjög góða, en einungis verð- ur maður að ákveða, hvort fylgt er eftir ákveðnum mönnum eða að halda sig við sama staðinn á vellínum og sjá sem flesta fara framhjá. Bert kvaðst hafa byrjað á því að fylgjast með Johnny Mill- er frá Bandaríkjunum, sem var strax sigurstranglegur og byrjaði vel; var á sléttu pari eftir fyrstu 18. Eftir fyrsta daginn voru samt þrír betri: Japaninn Norio Suzuki, Severino Ballesteros frá Spáni og írinn O’Connor voru all- ir á 69. Sérstaka athygli vakti þessi pínulitli Japani, sem er í senn mikill grínisti og afburða högglangur. Annar sem tók lífinu létt var Ballesteros, liðlega meðal- maður á hæð, aðeins 19 ára. Hann lék golf eins og Bandaríkjamenn- irnir, frekt og ákveðið og hikaði ekki við að taka hverskonar áhættu. Allir Evrópumennirnir virtust annars leika meira upp á öryggið, sagði Bert. Ballesteros er ekki með ólíka sveiflu og Miller, en dálítið óró- legri. Tök hans á leiknum voru ekki alveg eins hnitmiðað og hjá Bandarikjamanninum. Til dæmis má nefna, að Miller sló oft með járni af teig, enda veltur allt á því aðtolla á braut. Ballesteros notaði hinsvegar alltaf dræver og tók á öllu sem hann átti til. Hann var þarna í keppni við ofureflið og áhorfendur stóðu með honum. Nicklaus fór frekar hægt af stað, en seig á. Hann átti lengsta dræv- ið, sem mælt var, 325 yarda, eða 292 metra. Þá var hann á par-5 braut og þurfti aðeins 7-járn í annað höggið. Hann ætlaði sér að leika holuna á þremur, en varð að sætta sig við að vera einu höggi undir pari. Bert kvaðst hafa fylgzt með Nicklaus og fleirum annan dag- inn; hann lék þá á 70 sléttum. Ballesteros lék aftur á 69 og var i forustunni. Og eftir þriðja daginn var hann enn í fyrsta sæti, 5 undir pari og með tveggja högga forskot á Miller, sem þá var þrjú högg undir pari. Nicklaus var á sléttu pari eftir þrjá daga. Siðasta daginn var réttilega bú- izt við, að slagurinn mundi standa milli þessara þriggja. Einbeiting Millers var slík, að hann var sem dáleiddur og ekki varð þess vart að hann eyddi einu orði á hinn spænska andstæðing sinn, sem lék á als oddi að venju. Tauga- spennan, sem verður gífurleg í svona úrslitakeppni, sást að minnsta kosti ekki á honum. ÞESS VARÐ AÐEINS VART, AÐ Miller ætti orðastað við kylfu- svein sinn; við aðra talaði hann ekki og fór að öllu eins og hann væri einn á vellinum. Strax á 1. holu vann Ballesteros viðbótarhögg af Miller. Á þeirri næstu fór Spánverjinn einn yfir, en Miller fékk „birdie“, eða einn undir. Litlu siðar tókst svo Miller að jafna, enda lék hann frábær- lega. Það var samt merkilegt, að ekki skyldi draga meira i sundur með þeim, þvi Ballesteros fór að ganga erfiðlega róðurinn. Hann fór hvað eftir annað út af, en bjargaði sér einhvernveginn á parinu samt. Hann tók hiklaust áhættu, sem stundum virtist ástæðulaus. Til dæmis lenti hann í eitt sinn nokkuð til hliðar við flötina og lá bolti hans þar á bak við tvo stóra sandbunkera. Ball- esteros gat að sjálfsögðu lyft bolt- anum örugglega yfir á flötina. En milli bunkeranna var örmjór rimi með stefnu á holuna og Ballester- os tók langt járn og sendi boltan með jörðu eft rimanum og alveg inn að stöng. Það þótti djarflega gert eins og á stóð. En Miller var hinn öruggi sigurvegari, enda búið að tala um hann sem hugsan- legan arftaka Jack Nicklaus. Mill- er hefur áður unnið US Open og er þetta annar sigur hans í þeim fjórum mótum, sem mynda „alslemmuna”. Miller sagði á eft- ir, að sér hefði ekki verið nóg að sigra. Hann vildi sýna og sanna, að hann hefði yfirburði; að hann gæti sett vallarmet, sem hann og gerði síðasta daginn, þegar hann lék á 66 höggum. Hann kvaðst ekki kæra síg um að „stela“ sigr- inum, vegna þess að einhver ann- ar væri óheppinn, eða léki illa. Og það efndi hann. Mjög oft notaði hann 1-járn af teig og virtist það ekki kosta hann neitt i lengd. Og hann fór mjög sjaldan út af. Nick- laus lék líka af miklu öryggi og fór sjáldan út af. En hann var frekar óheppinn með púttin. Arn- old Palmer var með að venju. Hann er geysilega vinsæll og legg- ur sig í líma við að gera rithandar- söfnurum til geðs. Þeir Miller, Nicklaus og Gary Pleyer standa helzt ekki í slíku og fást iítt um hylli áhorfenda en einbeiting þeirra fer ekki framhjá neinum. Mikill mannfjöldi fylgist með keppninni og áhorfendastúkur höfðu verið settar upp í kringum 18. flöt. Auk þess er allri keppninnf sjðnvarpað og mjög gott að fylgjast með henni þannig. Sumar súperstjörnur golfsins gefa sig Iftt að áhorfendum, en aðrir eru alþýðlegir eins og til dæmis Arnold Palmer, sá frægi kappi, sem hér sést á tali við Bert Hanson úr Nesklúbbnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.