Morgunblaðið - 23.07.1976, Síða 26

Morgunblaðið - 23.07.1976, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JULÍ 1976 Minnina: Margrét Jóhannesdótt- ir Stóru-Ásgeirsá Þann 15. júlf síðastliðinn lézt í Sjúkrahúsinu á Hvammstanga Margrét Jóhannesdóttir fyrrum húsfreyja að Stóru-Ásgeirsá f Víðidal, nálega 87 ára að aldri. Verður útför hennar gerð í dag frá Melstaðakirkju f Miðfirði. Margrét var fædd að Utibleiks- stöðum á Heggstaðanesi í Miðfirði 31. ágúst 1889. Foreldrar hennar voru hjónin Jóhannes Jóhannes- son bóndi þar og bátsformaður f. 10. febrúar 1848, d. 19. nóvember 1922 og Margrét Björnsdóttir frá Kolugili f Vfðidal f. 14. nóvember 1850, d. 25. júlí 1908. Þeim hjón- um, Jóhannesi og Margréti, varð 12 barna auðið, en 5 dóu í bernsku. Þau 7 sem upp komust, voru þessi: Ingibjörg f. 15. marz 1875, lengi bústýra hjá Hirti Lfndal að Efra- Núpi f Miðfirði, ógift. Björn Lfndal f. 5. júnf 1876, lögfræðingur, bóndi að Svalbarði við Eyjafjörð og um skeið alþing- ismaður Akureyringa, kvæntur Berthu Hansen frá Flensborg á Suður-Jótlandi. Salóme f. 27. ágúst 1886, hús- freyja að Söndum f Miðfirði sfðar f Reykjavík, gift Jóni Skúlasyni bónda þar. Guðmundur Theodór f. 23. des- ember 1887, lengi vélgæzlumaður á Hvammstanga, ókvæntur. Margrét, sem hér er minnzt. Guðrún Jakobfna f. 1. septemb- er 1891, lengst af búsett á Akur- eyri, ógift. Elfnborg f. 19. júní 1893, hús- freyja að Dúki í Sæmundarhlíð f Skagafirði, gift Sæmundi Ólafs- syni. Öll eru nú þessi systkini látin og kveður Margrét síðust þeirra. t Eiginmaður minn EYJÓLFUR BJARNASON, Holtsgötu 22, Ytri-Njarðvlk sem varð bráðkvaddur 18. þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 2 7 júli kl 10 30 Fyrir hönd barna minna og annarra vandamanna Halldóra Hjartardóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi EYLEIFUR ÍSAKSSON skipstjóri Mánabraut 4. Akranesi verður jarðsunginn frá Akraneskirkju laugardaginn 24 júli kl. 1 e h Böm, tengdabörn og bamabörn. t Útför föður okkar, tengdaföður og afa, ÓLAFS SVEINS SVEINSSONAR SySra-Velli, er lést 17 júlí s.l. verður gerð frá Gaulverjabæjarkirkju laugardaginn 24 júlí kl 14 30 Böm, tengdabörn, barnabörn og barnabarnaböm. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð við fráfall og útför ÓLAFS ÓSKARS JÓNSSONAR. bifreiðastjóra, Grjótagötu 12. Reykjavik. Ingibjörg Sveinsdóttir, böm, tengdabörn. barnabörn og aðrir vandamenn. t Innilegt þakklæti færum við öllum sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför SIGURÐAR S. KRISTJÁNSSONAR Smárahvammi, Kópavogi Hólmfríður Gunnlaugsdóttir, Kristrún Sigurðardóttir. Fanney Sigurðardóttir, Kristján Sigurðsson, Guðrún Kristjánsdóttir. t Innilegt þakklæti færum við öllum sem auðsýndu okkur samúð við andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa JÓSEFS EGGERTSSONAR vélstjóra Hátúni 10 A. Marta S.H. Kolbeinsdóttir Hulda Jósefsdóttir Jón Ágústsson Gréta Jósefsdóttir Þorsteinn Halldórsson Esther Jósefsdóttir Guðbergur Ólafsson Eggert Jósefsson Sígurborg Friðgeirsdóttir Ágúst Jósefsson Elín Þorvaldsdóttir og barnaböm Auk barna sinna ólu þau Mar- grét og Jóhannes upp fjögur fóst- urbörn, en af þeim varð kunnast- ur Sigurður Jónasson lögfræðing- ur, sem lengi var forstjóri Tóbakseinkasölu ríkisins og um skeið umsvifamaður I stjórnmál- um og atvinnulffi. Ekki voru þau Utibleiksstaða- hjón auðug, en þó bjargálna og aldrei var þar skortur. 1 heimili voru venjulega 12—14 manns og af frásögnum Margrétar ræð ég, að þar hafi ríkt glaðværð og góður andi. Sjálf minntist Margrét bernsku sinnar á þessa leið: Bernska mín var björt og heið brostu unaðsstundir. Vegferð lífsins virtist greið vonar-himni undir. Ekki var neinn kostur reglu- legrar skólagöngu í uppvexti Mar- grétar; faðir hennar kenndi þeim systkinum lestur, en annars dvöldust kennarar á heimilinu stund og stund og veittu tilsögn i undirstöðu helztu fræða. Árið 1905 réðust þær systur, Salóme og Margrét, í að setjast í kvenna- skóla, sem þá starfaði á Akureyri og stunduðu nám þar veturinn 1905—1906. Með þeim fór Ingi- björg systir þeirra og vann fyrir þeim meðan á skólavistinni stóð. Ennfremur var hún við nám í Kvennaskólanum á Blönduósi 1908. Minntist Margrét oft þessar- ar skólagöngu sinnar og taldi hana hafa orðið sér mjög nota- drjúga, þótt stutt væri. Annars dvaldist Margrét að Utibleiksstöð- um og veitti börnum tilsögn auk þess sem hún vann venjuleg störf er til féllu. 1 apríl 1912 giftist hún Ólafi Jónssyni f. 6. nóvember 1888 frá Söndum í Miðfirði, syni Jóns Skúlasonar bónda þar og konu hans Guðbjargar Ólafsdóttur. Er hann bróðir Jóns, manns Salóme, systur Margrétar. Hófu þau bú- skap að Stóru-Ásgeirsá í Víðidal í fardögum 1912 og helgaði Mar- grét sfðan húsfreyjustarfinu ná- lega alla krafta sfna, þannig að það varð ævistarf hennar. Félags- mál leiddi hún þó ekki alveg hjá sér; var um meira en þriggja ára- tuga skeið í stjórn kvenfélagsins Freyju í Víðidal og gegndi þar ritarastarfi. Hefur þetta féiag m.a. stutt að byggingu sjúkra- hússins á Hvammstanga. Haustið 1967 var heilsu hennar tekið svo að hraka, að hún varð að hverfa frá Ásgeirsá og hafði þá búið þar í rúm 55 ár. Eftir það dvaldist hún ýmist í sjúkrahúsinu á Hvamms- tanga eða hjá dætrum sínum; í sjúkrahúsinu þó alveg síðustu 2—3 árin. Þar dvelst nú Ólafur maður hennar háaldraður. Þeim varð þriggja barna auðið, sem upp komust, og eru þau þessi: Jón Unnsteinn skólastjóri Garð- yrkjuskóla ríkisins að Reykjum f Ölfusi, f. 11. febrúar 1913, d. 22. nóvember 1966, kvæntur Elnu Christiansen ættaðri frá Vendil- sýslu á Jótlandi. Jóhanna Margrét f. 30. júlí 1916, gift Birni Daníelssyni skóla- stjóra Gagnfræðaskólans á Sauð- árkróki. Hann er nú látinn. Ingibjörg f. 5. ágúst 1917, gift Jóhannesi Guðmundssyni bónda að Auðunnarstöðum í Vfðidal. Barnabörn þeirra eru 13 og barna-barnabörn einnig 13. — 0 — Kynni okkar Margrétar hófust, er ég ungur að árum réðst til Minning og kveðja: Rita Steinsson F. 23. júlf 1908. Rita fór oft út til Bretlands að D. 25. febrúar 1976. Þetta er síðbúin kveðja frá mér, en það er nú einu sinni svo, að ég á erfitt með að trúa því, að mín elskulega og góða vinkona Rita sé farin frá okkur. Aðdragandinn að veikindum hennar var svo snögg- ur, að það tekur sinn tíma að átta sig á slíku reiðarslagi. Rita var alltaf hress og glöð og kát, hún var trú og trygg sínum vinum, og hafði hlýlegt viðmót og glaðlegt bros. Mér leið alltaf vel aó heimsækja og hitta Ritu og fá „a nice cup of tea“. Mér fannst hún alltaf búa til besta tesopann, þó svo, að ég hefði sömu aðferð og Rita við minn tesopa, þá var hann alltaf bestur hjá Ritu. Vinátta okkar Ritu byrjaði þegar Rita var ung kona, og ég smástelpa. í mörg ár bjuggum við hlið við hlið f vesturbænum, á Holtsgötu 12 og 14A. Ung að árum giftist hún Þorkeli Steinssyni lögregluþjóni, sem er móðurbróðir æskuvinkonu minn- ar Unnar. Rita var skosk að ætt, og var hún mjög stolt af að vera skoti. Hún unni íslandi, og var ánægð að eiga heima hérna. t Eiginmaður minn INDRIÐI GUÐMUNDSSON frá Þórshöfn verður /arðsettur frá Fossvogs- klrkju þriðjudaginn 27 júli kl 13.30 Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna Soffia Jóhannssdóttir heimsækja ættingja og vini. Hún bjó stundum hjá mér, þegar ég var við nám í London. Tengdist vinátta okkar sterkari böndum, þó að ég væri langdvölum erlendis. Rita og Þorkell voru mjög sam- rýmd hjón, og er því söknuður Þorkels mikill. Ef talað var um Ritu, þá var líka sagt Keli, Rita og Keli voru ailtaf eitt fyrir okkur vinunum. Rita og Keli eignuðust 3 góða syni, Eric lögregluþjón, Stein dýralækni og Raymond lögreglu- þjón, sem dáðu foreldra sína. Tengdadæturnar Sigríður, Þor- gerður og Anna reyndust þeim hjónum með afbrigðum vel. Þetta var mjög samrýmd fjöl- skylda, þ.ví er sár söknuður hjá Kela, sonum, tengdadætrum og barnabörnum, sem voru mikið fyrir ömmu sína. Rita var söngelsk, sat hún oft við orgelið á Holtsgötunni, og söng og spilaði, heyrðum við krakkarnir það út á götu, og hlustuðum við vel. Hún var mjög ljóðelsk og var vel hagmælt á enska tungu. Uppáhalds ljóðskáld Ritu var Robert Burns, eða Robby Burns, eins og hún talaði um hann. Þegar ég var unglingur, gaf ég Ritu ljóðabók f skosku bandi með Ijóóum Roberts Burns. Ég vissi að henni þótti mjög vænt um þessa bók, og gætti hún hennar vel. Rita samdi nokkur lög við henn- ar eigin ljóð. Hún var félagslynd, og var hrókur alls fagnaðar. Hún var glæsilega klædd, og valdi sér alltaf Ijósa liti, hún vildi alltaf hafa bjart f kringum sig. Hún elskaði blóm, og ræktaði fallegan garð á Holtsgötu 14A. Fyrir nokkru síðan var ég í sumarstarfa að Ásgeirsá árið 1942. Kunni ég þegar vel við mig, enda var ég þar fjögur sumur, og átti Margrét ekki minnstan þátt í að laða mig þangað. Bærinn, sem þá var búið í, virtist mér nokkuð kominn til ára sinna; að mestu var hann úr timbri, svo sem öll fveruhús, en að nokkru úr torfi, þar á meðal eldhús, sem sjaldan var notað og búr. Bærinn stendur enn og væri ástæða fyrir menn fróða um bygg- ingarsögu að gefa honum nokk- urn gaum. En þessi húsakynni bjuggu yfir sérstökum þokka, þannig að engum duldist, að vel var staðið að öllum innanbæjar- störfum. Allt var þar hreint og fágað, þiljur hvítskúraðar og jafn- vel moldargólfið í búrinu eins og úr steinsteypu, slétt og vandlega öskuborið. Hvarvetna gat að líta gamla gripi, enda var sú dyggð í heiðri höfð að fara vel með allt. í samræmi við þetta var og allur viðurgerningur mikill og góður; mjólk var meiri en nóg til heimil- isþarfa og aldrei sást annað á borðum en heimatilbúið smjör; þar var og gert skyr, búinn til ostur, brauð bökuð, kaffi brennt og malað, jafnvel búin til sápa — að vfsu til grófari þvotta- og þann- ig mætti lengi telja. Var gott að setjast að borði Margrétar eftir erfiði dagsins, þegar þar beið glóðheitt brauöið og nýstrokkað smjörið auk annars góðgætis. Bar hún ávallt mikla umhyggju fyrir þvf, að allir væru vel haldnir í mat og drykk. Er auðsætt, að störf húsfreyju á slíku heimili hafa verið drjúgum umfangsmeiri en nú gerist almennt, enda man ég varla til, að henni félli verk úr hendi. Þótt heimilið hefði á sér yfir- Leiðrétting NAFN greinarhöfundar að minn- ingargrein um Hjalta Lýðsson, sem birtist hér f blaðinu í gær, misritaðist. Greinarhöfundur er dr. Oddur Guðjónsson sendiherra, — stóð Friðjónsson, — og biður blaðið velvirðingar á mistökum þessum. afmælishófi hjá Huldu vinkonu minni, hún býr i þeirri ibúð, seríl var einu sinni æskuheimili mitt. Þegar ég kem í vesturbæinn, streyma að mér æsku- og ungdómsminningar mínar. Við Hulda vorum að fara niður tröppurnar, leit ég þá yfir að húsi nr. 14A, og segi: Þarna er húsið og garðurinn hennar Ritu. Þá segir Hulda: Og blómin hennar standa líka ennþá. Þessi hugsun lét mig ekki í friöi og mun ég ljúka þessari kveðju með ljóði eftir Robert Burns: My love is like a red, red rose Thats newly sprung in June. IVIy Iove is like the melodie, Thats sweetly played in tune. As fair art thou, my bonnie lass, So deep in in luve am I, and I will luve thee still, my dear, TiII a the seas gang dry. TiII a the seas gang, dry, my dear And the roekks met wi the sun O, I will luve the still, my dear YVhiIe the sands o'life shall run And fare thee weel, my only luve' And fare thee weel a while' And I vill eome again m.v luve, Tho it were ten thousand mile, Hvfl í friði. Guðrún Á. Sfmonar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.