Morgunblaðið - 23.07.1976, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1976
35
Séra Friðrik A.
Friðriksson heiðraður
Mývatnssveit, 22. júlf.
Frá skákmótinu í Amsterdam:
Guðmundur með biðskák
— Friðrik tapaði sinni
ÍSLENZKU stórmeisturunum
gekk heldur brösuglega í 14. og
næstsiðustu umferö IBM-
mótsins í Amsterdam, sem tefld
var í gær. Friðrik tefldi viö
júgóslavneska stórmeistarann
Velimirovic. Framan af virtist
Friðrik hafa þokkalegt tafl, en
eftir því sem á leið náði Júgó-
slavinn undirtökunum og um
miðbik skákarinnar missti Frið-
rik algjörlega tökin á stöðunni.
1 tímahrakinu knúði Veli-
mirovic fram vinning á
skemmtilegan hátt. Þar sem
skákirnar bárust ekki fyrr en
rétt áður en blaðið fór í prent-
un birtast þær án athugasemda.
Hvítt: Friðrik Olafsson
Svart: D. Velimirovic
Enskur leikur
1. c4 — Rf6, 2. Rc3 — c5, 3. Rf3
— e6, 4. e3 — Be7, 5. d4 — 0-0,
6. dxc5 — Bxc5, 7. a3 — a5, 8.
Be2 — d5, 9. 0-0 — Rc6, 10. Dc2
— De7, 11. b3 — d4, 12. exd4 —
Rxd4, 13. Rxd4 — Bxd4, 14. Bg5
— h6, 15. Bh4 — g5, 16. Bg3 —
e5, 17. Hadl — Bd7, 18. Bf3 —
Bc6, 19. Hfel — Dxa3, 20. Rb5
— Bxb5, 21. cxb5 — Had8, 22.
Df5 — Hd6, 23. h4 — g4, 24.
Be2 — He8, 25. Bc4 — Kg7, 26.
Kh2 — Db4, 27. He4 — a4, 28.
h5 — axb3, 29. Bxf7 — Kxf7,
30. Dg6+ — Ke6, 31. Hdxd4 —
Dxd4, 32. Hxd4 — Hxd4, 33.
Bh4 — Hf8, 34. Dbl — Hb4, 35.
Del — Hxb5, 36. Dc3 — Rd5,
37. Dc4 — Hb4, 38. De5 — Hd8,
39. Bxd8 — b2, 40. Dc8+ —
Kd6, 41. Ba5 — blD, 42. Df8 +
— Kc6, 43. De8+ — Kc5, 44.
Dc8+ og gafst upp um leið.
Guðmundur átti í höggi við
Szabó og beitti spænskum leik.
í 8. leik valdi Guðmundur af-
brigði, sem getur ekki talizt
slæmt, en gefur hvítum þó litla
möguleika á frumkvæði. Smám
saman náði Szabó yfirhöndinni
og þegar ekkert virtist fyrir
Guðmundi liggja annað en að
gefast upp fann hann skemmti-
lega mótspilsleið. Þegar skákin
fór aftur í bið eftir 56 leiki átti
Guðmundur enn nokkra jafn-
teflisvon.
Hvítt: Guðmundur Sigurjóns-
son
Svart: L. Szabó
Spænskur leikur
1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5
— a6, 4. Ba4 — Rf6, 5. 0-0 —
Be7, 6. Hel — b5, 7. Bb3 — 0-0,
8. d4 — d6, 9. c3 — Bg4, 10. d5
— Ra5, 11. Bc2 — c6, 12. h3 —
Bxf3, 13. Dxf3 — cxd5, 14. exd5
— Dc7, 15. b3 — g6, 16. Bh6 —
Hfe8, 17. a4 — b4, 18. c4 —
Rb7, 19. Rd2 — Rc5, 20. He2 —
Rfd7, 21. Dg3 — Bf8, 22. Bxf8
— Hxf8, 23. f4 — f5, 24. Rf3 —
Re4, 25. Bxe4 — fxe4, 26. Rg5
— exf4, 27. Dh4 — Rc5, 28.
Rxe4 — Dg7, 29. Hael — f3, 30.
gxf3 — Rxb3, 31. Rg5 — Dd4+,
32. Df2 — Dxf2, 33. Hxf2 —
Ra5, 34. He7 — Rxc4, 35. Hc2
— Hac8, 36. Hb7 — a5, 38. Kf2
— h6, 39. Kxf3 — Re5 + , 40. Kf4
— Hc2, 41. Rxd6 — Rd3+, 42.
Ke3 — Rc5, 43. Ha7 — b3, 44.
Re8 — b2, 45. Rf6+ — Kf8, 46.
d6 — Hc3 + , 47. Ke2 — Re4, 48.
d7 — Ke7, 49. Ha8 — Hd3, 50.
Hb8 — Hd2+, 51. Ke3 — Kxf6,
52. Kxe4 — Hxd7, 53. Hxb2 —
Hc7, 54. Hb6+ — Kg5, 55.
Hb5+ — Kh4, 56. Hxa5 — g5,
og nú lék Guðmundur biðleik.
Biðskák Böhm og Miles úr 13.
umferð lauk með jafntefli og
önnur úrslit í 14. umferð urðu
sem hér segir:
Kortsnoj — Miles, jafntefli.
Ligterink vann Farago.
Langeweg vann Donner.
Kurajica — Sax, jafntefli.
Gipslis — Ivkov, jafntefli.
Staðan að loknum 14 umferð-
um er þá þessi: 1. Kortsnoj 9 v„
2. — Miles og Sax 8,5 v„ 4.
Velimirovic 8 v„ 5.—6. Faragó
og Böhm 7.5 v„ 7. Szabó 7 v. og
biðsk., 8.—9. Kurajica og
Gipslis 7 v„ 10. Guðmundur 6.5
v. og biðsk., 11.—13. Friðrik,
Ivkov og Ree 6.5 v„ 14.
Ligterink 5.5 v„ 15. Langeweg 5
v„ 16 Donner 4.5 v.
SEINT 1 gærkvöldi barst eftir-
farandi frásögn frá Margeiri
Péturssyni f Amsterdam:
Sovézki stórmeistarinn Korts-
noj er nú sigurstranglegastur á
IBM skákmótinu i Amsterdam,
eftir að hafa gert jafntefli við
annan helzta keppinaut sinn,
Miles frá Englandi.
Islenzku stórmeisturunum
hefur ekki vegnað vel á mótinu
til þessa. í 14. umferðinni tap-
aði Friðrik fyrir Velimirovic,
og Guðmundur á mjög slæma
biðstöðu gegn Szabo.
Skák þeirra Friðriks Ölafs-
sonar og Velimirovic frá Júgó-
slaviu var lengst af í jafnvægi
en með 15. leik sínum tókst
svörtum að flækja taflið. Frið-
rik svaraði með því að fórna
peði og litlu siðar fórnaði hann
manni fyrir góða sóknarmögu-
leika. Þrátt fyrir það að Veli-
mirovic væri í miklu tímahraki
tókst honum að hrinda atlög-
unni og komast út í tvisýnt
endatafl. 1 timahrakinu gerðust
siðan undur og stórmerki. I
stað 34: Dbl? ? átti Friðrik að
leika 34: Dxh6 sem leiðir til
tvísýnnar stöðu. Júgóslavinn
fékk í staðinn gjörunnið tafl, en
i 38. leik lék hann af sér heilum
hrók, en það kom ekki aö meiri
sök en svo að skákin varð að-
eins lengri fyrir bragðið og
gafst Friðrik er skákin skyldi i
bið.
Guðmundur Sigurjónsson
náði sér aldrei á strik i skák
sinni við Ungverjann Szabo.
Hann valdi vafasamt afbrigði í
spænska leiknum og Szabo var
ekki lengi að færa sér það í nyt
og ná betri stöðu. Ungverjanum
tókst síðan að komast út í enda-
tafl með peði yfir og er skákin
fór i bið öðru sinni voru aliar
horfur á því að Szabo ynni.
Síðasta umferð mótsins verð-
ur tefld á laugardag.
— Fangelsi
I TILEFNI af áttatíu ára afmæli
séra Friðriks A. Friðrikssonar
fyrrverandi prófasts á Húsavík,
sem var raunar 17. júní sl„ hélt
kirkjukórasamband Suður-
Þingeyjarprófastsdæmis honum
og fjölskyldu hans heiðurssam-
sæti i Skjólbrekku í Mývatnssveit
sunnudaginn átjánda þessa mán-
aðar. Alls munu um 170 manns
hafa tekið þátt í því. Samsætið
hófst með því að allir viðstaddir
sungu sálminn Verði ljós eftir
ísólf Pálsson undir stjórn afmæl-
isbarnsins. Setið var í veizlufagn-
aði í fjórar klukkustundir við
söng og ræður. Veizlustjóri var
Þráinn Þórisson skólastjóri,
Skútustöðum, formaður kirkju-
kórasambandsins. Aðalræðu dags-
ins fluttu Páll H. Jónsson frá
Laugum. Aðrir ræðumenn voru
Stefán Þórarinsson, Húsavík, Sig-
urður Guðmundsson prófastur á
Grenjaðarstað, Ketill Þórisson,
Baldursheimi, Sigurjón Jóhann-
esson skólastjóri, Húsavik, Stefán
Kristjánsson Tungunesi og að lok-
um heiðursgesturinn sjálfur sr.
Friðrik A. Friðriksson. Milli
ræðna var mikill almennur söng-
ur. Um 90 manna kór frá kirkju-
kórasambandinu söng sex lög eft-
ir afmælisbarnið, undir stjórn
Þráins Þórissonar, séra Arnar
Friðrikssonar og Friðriks Jóns-
sonar. Þá lék Katrín Sigurðardótt-
ir frá Húsavik nokkur lög á píanó
en hún er fyrsti styrkþegi „Frið-
rikssjóðs“, en það er sjóður sem
stofnaður var á Húsavik fyrir
nokkrum árum til styrktar efni-
legum tónlistarnemendum i hér-
aðinu. í tilefni afmælisins lagði
kirkjukórasambandið 100 þúsund
krónur í Friðrikssjóð og skyldi
þeirri upphæð verið til styrktar
dótturdóttur séra Friðriks, en
hún hyggst hefja nám í sellóleik i
Englandi á næsta hausti. Sr. Frið-
rik hefur dvalið hér í héraðinu
frá 1933. Á þessu timabili hefur
hann tekið virkan þátt i tónlistar-
og sönglífi einkum og sér í lagi á
— Tekjuskattur
Framhald af bls. 36
frá í fyrra neraur 37.72%. Sé tillit
tekið til þess að persónuafsláttur
lækkaði á árinu um rúm 24% og
barnabætur hækka um 21% verð-
ur nettóskattbyrði einstaklinga
nú 43.58% hærri en í fyrra, en
gjaldendum í röðum einstaklinga
fjölgaði á árinu um 1.37%. Verð-
bólgan í landinu, mæld á kvarða
vísitölu framfærslukostnaðar, var
frá miðju ári 1975 til miðs árs
1976 um 32%, skv. upplýsingum
Þjóðhagsstofnunar.
Skattar félaga hækka frá fyrra
ári alls um 42.21%. Eignarskattur
félaga hækkar um 123.61%, úr
130.6 milljónum í 292.2 milljónir.
Tekjuskattur félaga hækkar um
50.19%, úr 771.2 milljónum króna
í 1.158 milljónir. Sölugjald hækk-
ar frá árinu 1974 úr 9,5 milljörð-
um í 14,9 milljarða 1975 eða um
56.98%.
Húsavík, svo og kona hans og
börn. Þess hefur einnig gætt um
allt héraðið og víðar. Eins og
margir vita hefur séra Friðrik
verið afkastamikið tónskáld og
frábær textahöfundur, bæði
frumsamið og þýtt. Hafa ljóð hans
og lög viða verið leikin og sungin
og vakið verðskuldaða hylli á und-
anförnum áratugum. Standa því
margir i mikilli þakkarskuld við
hann og fjölskyldu hans, eins og
berlega koma fram í þessu fjöl-
menna samsæti.
Kristján
Eðlileg
lánafyrir-
greiðsla
Nú er liðin ein vika siðan Seðla-
bankinn fór að tala í Morgunblað-
inu, via einhvern Garðar Yngva-
son, um að ég fengi alla eðlilega
lánafyrirgreiðslu. Engin aðili i
kerfinu hefur talið sér skylt að
leiðrétta þetta mishermi.
Þann 7. maí siðastliðinn seldi ég
25 Elektra færavindur til Noregs
á þriggja mánaða víxil, en þau
viðskiptakjör eru 4 ára gamalt
samningsatriði við umboðsmann
minn í Noregi. Vixilupphæðin var
Nkr. 88.600,- eða ísl. kr. 2,9 millj.
Peningana þurfti ég eðlilega að fá
sem fyrst til þess að kaupa inn
efni i fleiri vindur, því sala innan-
lands hefur verið fremur ör þessa
vormánuði.
Samkvæmt reglum kerfisins
lagði ég inn beiðni i viðskipta-
banka minn um að þessi norski
vixill yrði endurkeyptur, en það
hefur ekki gerzt enn. Vixillinn
fellur 7. ágúst næstk. í Fiskernes
bank í Tromsö og Landsbankinn
sendir þá andvirðið í reikning
minn i Samvinnubankanum í
Hafnarfirði, og ég held áfram að
framleiða færavindur minar.
Þetta er eðlileg lánafyrir-
greiðsla — segir Seðlabankinn —
allavega til handa litlu íslenzku
iðnaðarfyrirtæki. Jafnvel stein-
arnir verða heitir, ef setið er á
þeim nógu lengi.
Rvik, 22. júlf 1976
Elliði N. Guðjónsson.
— Falsaðir
Framhald af bls. 36
skap við systur eins piltsins,
sem stal seðlunum, og hafði
stolið seðlinum frá honum. Við
yfirheyrslur játuðu piltarnir að
þeir hefðu stolið seðlunum á
heimili prentarans, og að von-
um varð prentarinn mjög
hvumsa er komið var heim til
hans vegna þessa. Hann hafði
ekki hugsað sér að setja seðlana
i umferð.
Að sögn lögreglunnar hafði
einn piltanna ekki sett sinn seð-
il í umferð, en þriðji seðillinn
var kominn af stað.
Sá seðill kom í ljós fyrr en
varði í Breiðholtinu, en þar
gekk hann kaupum og sölum
milli krakka þar. Eitt þeirra
barna er festi kaup á seðlinum
kom með hann heim til sin.
Föður þess fannst einkennilegt
að barn sitt ætti allt í einu 5000
kr. og spurði hvar það hefði
fengið þennan seðil. Svaraði
barnið því til, að þetta væri
ekki peningaseðill, heldur ein-
ungis pappir, sem það hefði
fest kaup á fyrir 200 krónur.
Hafði faðirinn strax samband
við rannsóknarlögregluna, sem
slðan tók seðilinn í sina vörzlu.
— Hringurinn
Framhald af bls. 1
námuna í Livermore þar sem
börnin fundust ásamt bílstjór-
anum.
Lögreglan vill yfirheyra son
hans, Frederick Woods IV, og
tvo vini hans, svokallaða
Schoenfeld-bræður sem munu
vera synir þekkts læknis á San
Francisco-svæðinu.
Hins vegar hafði enn ekki
verið gefin út skipun i dag um
handtöku ungu mannanna.
Önnur landareign mun háfa
verið umkringd og svipuð leit
gerð þar.
Nokkrir bílar, dráttarvél og
fleira sem lögreglan hefur
áhuga á hafa fundizt á landar-
eigninni. Dráttarvélin virðist
hafa verið notuð til að draga
skólabílinn ofan i lægð sem
hann fannst í.
Þeir sem annast rannsóknina
hallast helzt að þvi að þeir sem
rændu börnunum séu dýrkend-
ur eiturlyfja og vopna og úr
ríkum fjölskyldum. Með því að
ræna börnunum er talið að þeir
hafi viljað gera eitthvað spenn-
andi.______ _ _______
— Mannréttindi
Framhald af bls. 1
geðveikrahælum vegna skoð-
ana sinna, þrátt fyrir Helsinki-
yfirlýsinguna. Horfur fari ekki
batnandi í málum þeirra, sem
vilji flytjast frá Sovétríkjunum,
því að nú neiti yfirvöld þeim
um vegabréfsáritun á þeim for-
sendum, að brottflutningur
muni stuðla að því að sundra
fjölskyldum en ekki sameina
þær. Þá segir, að yfirvöld
hindri á sama hátt og áður allt,
sem flokkazt geti undir óháð
upplýsingastreymi, svo og
stofnun samtaka, sem ekki
starfi undir eftirliti kommún-
istaflokks Sovétríkjanna.
Skorað er á samtök þau í
landinu, sem berjast fyrir
auknum mannréttindum, að
gera meira af því að birta upp-
lýsingar um ástand þessara,
mála. Þá er skorað á almenning ’
á Vesturlöndum að styðja sam-
tökin með raunhæfum aðgerð-
um í stað þess að mistúlka
grundvallarreglur um sjálf-
stæði og lýðfrelsi, en að þessu
tilskildu muni sovézk yfirvöld
sjá sig tilneydd til að láta smám
saman af kúgun sinni, og það
muni stuðla að þvi að lýðræðis-
leg réttindi verði í heiðri höfð.
Framhald af bls. 36
Síðumúla áfram, enda þótt ófull-
komið sé.
Baldur sagði ennfremur, að
gert væri ráð fyrir um 50 vistrým-
um í nýja fangelsinu. Nokkur
fjárveiting hefur verið tryggð í
lögum til byggingar fangelsisins
eða sem næst 15 milljón krónur á
ári. Baldur kvað þá fjárveitingu
naumast hrökkva fyrir undirbún-
ingsvinnu, en gert er ráð fyrir að
kosta muni um eða yfir 100
milljónir króna að reisa húsið.
AÐ sögn Baldurs hefur fyrir-
ætlunum um smíði ríkisfangelsis
að Ulfarsvatni verið skotið til
hliðar í bili, þar eð talin var meiri
þörf fyrir fangelsi af þvi tagi sem
áður getur og af hálfu ráðuneytis-
ins talið vonlitið að fjárveiting
fengist til tveggja svo kostnaðar-
samra framkvæmda. Enda sagði
Baldur, að endurbætur og við-
byggingar að Litla Hrauni hafi að
*Ro*:kru leyti létt á þörfinni varð-
andi ríkisfangelsi jafnframt því
sem aukin deildaskipting breytti
nokkuð hugmyndum manna um
rikisfangelsið við Ulfarsfeil.
— Stefnir LÍÚ
Framhald af bls. 36
bátasjómönnum og næstkomandi
mánudag yrði haldinn fundur hjá
sáttasemjara á ný og myndu þá
bæði bátasjómenn og meólimir
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins koma á þann fund með
útvegsmönnum. „En því miður,
gerðist lítið á siðasta fundi," sagði
Ingólfur.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Ég fann Drottin í söfnuði einum, þar sem strangar reglur
gilda um kristilega hegðun. A sunnudaginn var kom prestur-
inn okkar til mín og sagði, að það væru sex atriði, sem mér
bæri að forðast: 1) Að klippa eða liða hárið. 2) Að nota
skartgripi. 3) Fötin yrðu að vera með síðum ermum og ekki
aðskorin. 4) Engar stuttbuxur. 5) Ekkert andlitsduft eða
kinnalitur. 6) Ég má ekki hlæja mikið. Sfðan hef ég komizt að
raun um, að reglurnar eru fleiri t.d. sú, að menn mega ekki
sækja sýningar eða hringleikahús, hvorki börn né foreldrar
þeirra. Nælur og hálsfestar eru bannfærðar og allar konur
eiga að greiða hár sitt á einfaldan hátt og mega ekki setja í
það varanlega hárliðun. Hinir heilögu mega ekki sitja hjá
syndurunum. Og margt fleira. Ég var glöð, þegar ég^eignaðist
trúna. Nú veit ég ekki mitt rjúkandi ráð. Hvað á ég aá gera?