Morgunblaðið - 23.07.1976, Síða 36
Al'GLYSINGASÍMJNN ER:
22480
|Wor0unl>l«í>ií)
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHerguniilAbit)
FÖSTUDAGUR 23. JÚ’LÍ 1976
Loðnu-
veiðar
EINS og fram hefur komið f Mbl. þá eru loðnuskipin, sem stunduðu
veiðar við Nýfundnaland, komin heim. Afli þeirra varð ekki mikill,
ekkert skipanna náði 2000 lesta afla. Þessar myndir tók Þórleifur
Ólafsson um borð f Hilmi SU, á miðunum við Nýfundnaland. Stærri
myndin var tekin er nýlokið var við að fylla bátinn og flæðir loðnan
eftir dekkinu. Minni myndin sýnir Hilmi f höfn f Port Union á
Nýfundnalandi með 500 tonn af loðnu og fyrir innan Hilmi liggur
Grindvfkingur GK, einnig með fullfermi.
FFSI
fyrir
stefnir LÍU
Félagsdóm
Telur ólögmætt að
gert sé upp eftir
nýju samningunum
FARMANNA- og fiskimannasam-
band Islands hefur stefnt Lands-
sambandi fslenzkra útvegsmanna
fyrir Félagsdóm vegna þess að
útvegsmenn hafa gert upp við sjó-
menn eftir þeim samningum, sem
felldir voru af sjómönnum vfða
um land s.l vor.
„Við getum ekki unað þvf, að
útvegsmenn geri upp eftir samn-
ingum, sem flestir sjómenn hafa
fellt, og þvf settum við málið fyrir
félagsdóm. Við viljum fá að vita
hvort gömlu samningarnir eru í
gildi eða hvort engir samningar
eru f gildi og ef ekki að fá skýr
svör við þessu máli f dómi.“ sagði
Ingólfur ingöifsson formaður
Vélstjórafélags Islands þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gær.
Ingólfur sagði, að það væri mik-
ið ófremdarástand að engir algild-
ir samningar væru í gildi og við
það mætti ekki búa miklu lengur.
Hann var þá af því spurður
hvort eitthvað hefði gerzt í samn-
ingamálunum að undanförnu.
Sagði hann, að fyrir viku hefði
verið haldinn fundur hjá sátta-
semjara með útvegsmönnum og
Framhald á bls. 35
Skattskráin í Reykjavík:
Heildarálagningin er 31
milljarður — Einstakling-
ar greiða um 10 milljarða
Þjófurinn var
handtekinn eft-
ir átta mínútur
BROTIZT var inn f mannlausa
íbúð við Hverfisgötu f gærdag
og stolið þaðan talsverðum
fjármunum, bæði fslenzkum
peningum og gjaldeyri, en
þannig stendur á að sá sem býr
í fbúðinni er á förum til út-
landa eftir örfáa daga. Lög-
reglan fékk tilkynningu um
þjófnaðinn rétt eftir kiukkan
19 f gærkvöldi og átta mfnút-
um sfðar var búið að handtaka
þjófinn og finna mest af pen-
ingunum. Það voru óbreyttir
en árvökulir lögregfumenn á
eftirlitsferð sem handtóku
kauða, sem var ölvaður og
hafði eytt einhverjum hluta
peninganna f áfengiskaup.
Naut lögreglan góðrar aðstoð-
ar borgara við að hafa uppi á
manninum.
SKATTSKRÁIN í Reykjadvk kemur út í dag og eru
tilkynningar skattstofunnar á leið til gjaldenda f
pósti. Allir gjaldendur f Reykjavík ættu að vera búnir
að fá tilkynningu skattstofunnar á morgun. Skattskrá-
in mun liggja frammi á Skattstofunni til 5. ágúst nk.,
en þá rennur út frestur til að kæra álögð gjöld.
Hæstu gjaldendur f Reykjavík f
röðum einstaklinga eru nú Pálmi
Jónsson kaupmaður f Hagkaup,
sem greiðir tæplega 15.5 milljón-
ir króna f opinber gjöld. Næstur
er Sveinbjörn Sigurðsson, Safa-
mýri 73, sem greiðir tæplega 14.5
milljónir f opinber gjöld, en
þriðji hæsti gjaldandinn í ár er
Sigfús Jónsson, Hofteigi 54, en
samanlögð gjöld hans nema tæp-
lega 14.3 milljónum króna.
Hæst gjöld fyrirtækja greiðir
Samband íslenzkra Samvinnufé-
laga eða 136.7 milljónir króna, en
næsthæst gjöld greiða Flugleiðir
eða 76.3 milljónir króna. Eim-
skipafélag Islands hf. greiðir 63.1
milljón króna og Olfufélag Is-
lands 59.4 milljónir. Þar næst
kemur Ölgerðin Egill Skalla-
grfmsson sem greiðir 46.8 millj-
ónir í opinber gjöld.
A bls. 3 f blaðinu f dag er lengri
listi yfir einstaklinga og félög
sem greiða hæst gjöld samanlagt
og einnig sundurliðaðar upplýs-
ingar um röð þeirra einstaklinga
og félög sem greiða hæstan tekju-
skatt og aðstöðugjald og röð
þeirra félaga sem greiða mestan
eignarskatt, landsútsvar og skila
mestu sölugjaldi (þ.e. söluskatti
og öðrum gjöldum sem innheimt
eru með honum).
Heildarálagning opinberra
gjaida í ár nemur rúmlega 31
milljarði króna en þar af greiða
44644 einstaklingar 10,2 milljarða
og 2879 félög 3,4 milljarða. í fyrra
nam heildarálagningin 20,6 millj-
örðum króna og nemur hækkunin
alls 50.32%. Söluskattur nemur
nú tæpum 15 milljörðum og aðrir
liðir samtals eru um 2,5 milljarð-
ar.
Tekjuskattur einstaklinga nem-
ur nú 4,448 milljörðum króna en
var í fyrra 3,371 milljarður.
Hækkunin er 31.97%. Eignar-
skattar einstaklinga nema nú
307.2 milljónum króna, en voru í
fyrra 131 milljón. Hækkun eign-
arskatta einstaklinga nemur
134.64%. Önnur gjöld einstakl-
inga hækka um 23—31%, en með-
altalshækkun skatta einstaklinga
Framhald á bls. 35
Mjólkárvirkjun
II vígð í gær
SlÐDEGIS í gær var vfgð 5,7 MW
viðbótarvirkjun við Mjólkárvirkj-
un f Arnarfirði en þessi nýja
virkjun hefur verið nefnd Mjólk-
árvirkjun. II. Það var Matthfas
Bjarnason ráðherra sem vfgði
virkjunina f fjarveru Gunnars
Thoroddsens orkumálaráðherra,
sem ekki komst vestur þar sem
ekki var flugveður í gær.
Með tilkomu þessarar virkjunar
tvöfaldast orkuframboð á Vest-
fjörðum, hægt verður að draga úr
keyrslu díselvéla til raforkufram-
leiðslu sem hefur verið mjög
kostnaðarsöm síðustu ár. Nánar
segir frá vígslúnni og þessari
nýju virkjun á bls. 16 1 blaðinu 1
dag.
Gæzlu-
fangelsi
á Tungu-
LAGT hefur verið fram í borgar-
ráði bréf dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins varðandi úthlutun
á lóð við Tunguháls til byggingar
gæzluvarðhaldsfangelsis ásamt
teikningum af byggingunni. Að
sögn Baldurs Möller ráðuneytis-
stjóra f dómsmálaráðuneytinu,
hefur verið unnið að teikningum
þessarar byggingar hjá húsa-
meistara ríkisins lengi eða um
tveggja ára skeið og sagði Baldur
að með þessu bréfi hefði ráðu-
neytið viljað tryggja sér um-
rædda lóð, sem áður hefði verið
rætt um að fengist úthlutað undir
húsnæði af þessu tagi.
Þarna verður fyrst og fremst
um gæzluvarðhaldsíangelsi að
ræða, enda kvað Baldur þörfina
brýnasta á því sviði, en þó er gert
ráð fyrir nokkurri deildaskipt-
ingu innan fangelsisins. Fangels-
inu er fyrst og fremst ætlaó að
leysa hegningarhúsið við Skóla-
vörðustíg af hólmi en reynt verð-
ur áð notast við húsnæðið við
Framhald á bls. 35
Falsaðir 5000 kr,
seðlar í umferð
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
hefur nú upplýst mál ér varðar
fölsun á nokkrum 5000 króna
seðlum, en tveir slíkir seðlar
komust f umferð f Reykjavík
fyrir skömmu.
Forsaga málsins er sú, að fyr-
ir nokkrum árum var prentari
hér í borg að ljúka verki f
prentvél. Hann var með brún-
leitan lit í vélinni og kom til
hugar að gaman væri að renna
5000 kr. seðli f gegn. A þennan
hátt bjó hann (il milli 40 og 50
5000 kr. seðla, sem hann sfðan
fór með heim og setti ofan f
skúffu hjá sér. Sfðan gerðist
ekkert þar til fyrir nokkru, að
dóttir prentarans var með gleð-
skap heima hjá sér. Tók hún þá
upp seðlana og sýndi 3 piltum
er þar voru. Stóðust þeir ekki
freistinguna og tók hver einn
seðil.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem Morgunblaðið fékk hjá
rannsóknarlögreglunni í gær-
kvöldi þá gerðist það næst í
málinu, að einn af kunningjum
lögreglunnar borgaði leigubíl-
stjóra 600 kr. upp í skuld með
einum þessara seðla. Leigubíl-
stjórinn tók ekki strax eftir því
að seðillinn var falsaður, en er
maðurinn var horfinn sá hann
að myndin á bakhlið seðilsins
var á hvolfi. Hann hafði þá sam-
band við lögregluna, sem fékk
seðilinn í rannsókn. Kom í ljós,
að seðillinn var heldur ljósari
en venjulegir 5000 kr. seðlar,
en hins végar var pappírinn
mjög áþekkur.
Fljótlega tókst að ná mannin-
um, sem hafði borgað leigubil-
stjóranum. Við yfirheyrslu kom
í ljós, að hann átti kunnings-
Framhald á bls. 35
i